Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1985, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1985, Side 11
DV. MÁNUDAGUR 23. DESEMBBR1985. 11 FRÁ FRÉTTARITURUM DV ERLENDIS: í fylgd með Nikulási jólasveini var sveinn nokkur, Rupprecht að nafni. Safnaði hann öllum illum börnum í poka og fór með þau á braut. Á Nikulásardag fara pörupiltar á kreik, klæðast gervum trölla og illmenna og hrella fólk. Sama þýska jóla- kakan í350 ár Færeyjar: Fiskiknett- ir með tólg á aðfanga- dagskvöld Ásgeir Eggertsson, DV, Miinchen: Jól, jól, jól. Hér í Miinchen er ekki þverfótað fyrir jólum. Daglega er maður minnt- ur á að kaupa síðustu jólagjafimar áður en það er um seinan. Ef maður á annað borð heldur í bæinn sést ekki í jólavarning fyrir fólki. Sama stressið hvar sem maður er staddur. Þjóðverjar - að minnsta kosti eldri kynslóðin - tekur jólahá- tíðina mjög alvarlega. Allt fer fram eftir settum reglum ár eftir ár. I byrjun desember fara flestir að huga að jólaskreytingunum. Að- ventukransinn er búinn til og bakst- urinn hefst. Jólamarkaðir eru opnað- ir. Hér í Miinchen hefur hver bæjar- hluti sinn markað. Selt er allt á miili himins ogjarðar. Á aðaltorginu, Marienplatz, er hinn hefðbundni markaður þar sem hægt er að fá leirtau, kerti, jóla- skraut og allt sem nöfnum tjáir að nefna. Ekki má gleyma mat og drykkjarfongum sem á boðstólum eru. í Schwabing bæjarhlutanum er aftur á móti annars konar bragur á markaðnum. Þar selja listamenn og listiðnaðarmenn eigið handverk. Eigulega hluti má þar fá. Ef grannt er skoðað er ekki mikið sem aðgreinir þýska og íslenska jóla- siði. Að sjálfsögðu hafa íslendingar einkarétt á sínum þrettán jólasvein- um. í Þýskalandi er mikið jóla- sveinasvelti. Aðeins er til einn jóla- sveinn og heitir hann Nikulás. Heilagur Nikulás var munkur sem var góður fyrir börn og fátæka. Mun hann hafa verið uppi um 350 eftir Krist og má rekja til hans jólasveina- siðinn. Hann er því eins konar faðir vestræna jólasveinsins. Rupprecht með barnapokann Sagan segir að í fylgd með Nikulási hafi verið sveinn nokkur að nafni Rupprecht sem hafði það að starfi að safna öllum illum börnum í poka- skjatta. Þjóðfræðingar segja að þessi saga sé uppeldislegs eðlis og megi rekja til heiðinna trúarbragða eins og fleira í jólahaldinu. Haldið er upp á dag Nikulásar þann 6. desember. þá fara margir pörupiltar á kreik og hrella fólk á förnum vegi. Segjast þeir vera félag- ar Nikulásar og séu komnir til að stinga fórnarlambi sínu i pokann. Þá sögu sagði mér íslenskur náms- maður hér í borg að hann hefði verið að stíga hjólhest sinn í mesta sak- leysi og var orðið niðadimmt. Vissi hann ekki fyrr en hann lá í götunni og sá glytta í stráka sem voru með hárið litað í öllum regnbogans litum. Hélt hann að nú væri runnin upp sín hinsta stund og flúði í ofboði. Seinna komst hann að hinu sanna og átti ekki nógu sterk orð til að lýsa vanþóknun sinni á athæfi drengjanna. Nytsamir jólasveinar Þýskar konur baka mikið af ágætis sætabrauði. Drottning þýskra kakna er jólakakan er á rætur sínar að rekja til Dresden. Hún hefur verið bökuð með sama hætti undanfarin 650 ár. Romm, rúsínur og möndlur heyra til er kakan er bökuð. Svo mikilvæg- ar voru þessar kökur fyrr á öldum að teknir voru skattar af þeim til kirkjubygginga. Ef vel er að gáð er kakan mjög táknræn. í miðjunni á aflangri kökunni er ílangur hnúður. Fróðir menn segja að kakan eigi að tákna Jesúbarnið reifað. Til að gera reifana æta fundu bakararnir upp á því að strá yfir kökuna flór- sykri. í þýskum þorpum og bæjum geta húsmæður oft fengið að baka hjá bakaranum í bænum ef þær koma með tilbúið deig. Ef íslensk og þýsk jólagjafamenn- ing er borin saman kemur í ljós að Þjóðverjar gefa mikið af gjöfum sem þeir búa til sjálfir. Kunningi minn sagði mér það um daginn að hann byrjaði á sínum jólagjöfum í sept- ember og væri að vinna flestar helgar framaðjólum. Að mínu mati er ekki eins mikið um tískujólagjafir hér og á íslandi. Þó mátti greina það um síðustu jól að heimilistölvur voru afarvinsælar. Spilið Trivial Pursuit var einnig vinsæl jólagjöf í fyrra. Ekki hef ég í ár komið auga á ákveðna vöru sem vinsæl er framar öðrum. Einfalt á aðfangadag Að síðustu er vert að minnast á matarvenjur héh í Vestur-þýskalandi um jólin. Á aðfangadagskvöld er oftast borðuð einföld, köld máltíð. Aðalhátfðarmaturinn er aftur á móti á jóladag. Margir hafa þá gæs en sjálfsagt getur það verið mjög mismunandi hvað fólk borðar. Jólasiðirnir í Þýskalandi geta verið mjög mismun- andi eftir því hvar í landinu maður er staddur og ber alls ekki að líta á þessa upptalningu sem algilda fyrir allt landið. Eðvarð T. Jónsson, DV, Þórs- höfn, Færeyjum: Færeyskir kaupmenn hafa átt góða daga í jólamánuðinum því sjaldan hafa jafnmargir Færeyingar verið jafnfjáðir nú fyrir jólin. Jólaglaðningur gjaldheimtunnar Ástæðan er sú að í byrjun desember sendi færeyska gjaldheimtan út hvorki meira né minna en rúmar þrjú hundruð milljónir íslenskra króna til rúmlega 17 þúsund fær- eyskra skattborgara. Staðgreiðslukerfi skatta var tekið upp hér í Færeyjum snemma á þessu ári en fljótlega kom í ljós að skattar höfðu verið talsvert ofreiknaðir hjá mörgum og gjaldheimtan lofaði þeg- ar í stað að umframupphæðin yrði send skattgreiðendum með tólf pró- sent vöxtum í desember. Þessi jólaglaðningur er því ekki beinlínis óvæntur fyrir færeysku heimilin sem fá hann. Staðgreiðslukerfið hefur annars reynst vel eftir að sigrast hafði verið á byrjunarerfiðleikum. Við ánægju manna með nýja skattkerfið bætist nú þessi glaðningur sem í mörgum tilvikum nemur mánaðarkaupi verkamanns. í tilefni þessara dýrðardaga bólgna ekki aðeins verslanir út af munaðar- varningi heldur hefur ofvöxtur hlaupið í dagblöðin sem venjulega eru heldur rýr í roðinu og jafnvel á miðjum annadegi er það meiriháttar þraut að verða sér úti um stæði fyrir bílinn við SMS, stærstu verslunar- miðstöð Færeyinga. Breytt jólahald Kunnugir segja að jólahald hér í Björg Eva Erlendsdóttir, DV, Osló: Jólasnjórinn er löngu kominn í Osló en í Vestur-Noregi er rigning og slydda eins og venjulega. Fyrsti snjórinn í Osló féll snemma í desember og um sama leyti komu lifandi jólasveinar í flest vöruhús og stórmarkaði og jólaölið í búðirnar. Þetta jólaöl er bjór af sterkari gerð- inni og þykir mörgum Norðmannin- um ómissandi við jólaundirbúning- inn. jSkíðin vinsælust : Eins og annars staðar fylgja jólun- |um í Noregi mikil hlaup og kaup. jÞví meir sem jólin nálgast því hraðar Færeyjum hafi breyst töluvert frá því áður fyrr og hið trúarlega innihald þeirra sé eins og annars staðar víkj- andi. Tíminn fyrir jól er því ekki aðeins tími mikilla innkaupa heldur einnig tími stóra vinningsins í útvarpshapp- drættinu og tími stórbingóanna. Smekkur manna fyrir jólamat hef- ur færst æ meira í danskt form. Áður fyrr undi Færeyingurinn þvi vel að eta fiskaknetti á aðfangadags- kvöld. En fiskaknöttur er stór fisk- bolla með tólgarklípu í miðjunni. Siginn fiskur þótti einnig \ el boðleg- urjólamatur. Nú snæða Færeyingar steikta gæs eða önd á aðfangadagskvöld að sið Dana. Sigið kjöt, færeyski þjóðarréttur- inn, er einnig haft um hönd á jólun- um og soðin af því gómsæt súpa. Færeyingar hafa einnig flutt, inn annan danskan sið, jólafrúkostinn, sem þykir nú ómissandi á öllum vinnustöðum. Áður fyrr þótti ekki við hæfi að stíga færeyskan dans nema á stór- hátíðum eða undir sérstökum kring- umstæðum. Ekki þótti kristilegt að byrja að dansa fyrr en á annan dag jóla en í sumum byggðum úti i eyjun- um virtu menn ekki slík boð og bönn og byrjuðu að stíga dansinn strax á aðfangadagskvöld og héldu því áfram sólarhringum saman, oft fram yfir nýár. Færeysk veðurblíða Milt og blitt veður hefur haldist í Færeyjum undanfarnar vikur og menn eru að vona að það haldist yfir jólin. Fremur fágætt er að uþp- lifa hvít jól í þessu landi rigning- anna. hleypur fólk til að komast yfir jóla- gjafakaupin. Skíði eru sennilegast ein vinsæl- asta jólagjöfin. Nútíma Norðmenn eru fæddir með tvenns konar skíði á fótunum, bæði gönguskíði og svig- skíði. Jólin eru tilvalinn tími til að endurnýja skíðaútbúraðinn. Jólamaturinn er mismunandi. Þeir sem hafa vilja hefðbundinn jólamat 'borða soðinn þorsk eða salt og þurrk- |að lambakjöt á aðfangadagskvöld. I Aðrir hafa svínahrygg á boðstólum. I fslendingum þætti sennilega lítið Ivarið í að fá soðinn þorsk í jólamat- !inn en hérna fá færri en vilja því |hann er oft uppseldur löngu fyrir jól. Noregur: Færrí en vilja fá soðinn þorsk á jólum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.