Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1985, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1985, Qupperneq 16
16 DV. MÁNUDAGUR 23. DESEMBER1985. Heilsulindin þornuð Aldraður íslendingur hringdi: Ég vil vekja athygli á þeirri stað- reynd að Læralækurinn, okkar einasta heilsulind, er skraufþurr nú þegar gamla fólkinu liggur sem mest á að komast í hann. Ekki get ég skilið hvernig á því stendur. Þarna finnst öllum gott að koma, hvort heldur þeir eru ungir að árum eða níræðir öldungar. Ætli það sé til nokkur skynsam- leg skýring á því hvers vegna þetta er svona. Ég held að þetta sé hugs- unarleysi hjá stjórnvöldum. Það er nú ekki alltaf mikil hugsun á efstu hæðum. Ó, nei, því er nú miður. En mikið yrði ég feginn ef þessu yrði kippt í lag og lækurinn færi að renna aftur. Það yrðu örugglega fleiri fegnir og gott ef heilsufar íslendinga myndi ekki batna til muna. Það mætti segja mér það. Er jólaskapið komið? Varhugaverðir lampar Útlendingur skrifar: Margir vilja á vorum dögum vera fallega brúnir. Þeir sem hafa peninga og tíma fara á sólljósstofur en aðrir kaupa sóllampa til heimanotkunar. Nauðsynlegt er að hafa í huga að þessir lampar eru varhugaverðir. Mjög góð tegund getur gefið tvenns konar ljós: rautt ljós, merkt infrared og sólljós, þ;e. útfjólublátt, merkt ultraviolet. Útfjólublátt ljós er frá quartz lampa og því hættulegt. Nauðsynlegt er að fá nákvæmar, skriflegar upplýsingar um æskilega fjarlægð frá ljósi og tima í ljósum því hann getur verið allt niður í nokkrar sekúndur. Því er nauðsyn- legt að kaupa aðeins lampa með klukkustillingu og bjöllu. Undir öll- um kringumstæðum verður að nota sólgleraugu; upplýsingar hafa feng- ist um að unglingar yrðu blindir í nokkra daga vegna bruna. Heiti lækurinn í Nauthólsvík er meira en gleðigjafi, hann er sannkölluð heilsulind. Haukur Hannesson nemi: Já, síð- an í gær, pósthúsið kom mér í jóla- skap og ég hlakka alveg geysilega til. Sigríður Jónsdóttir húsmóðir: Ég er búin að vera í jólaskapi lengi, ég er yfirleitt í jólaskapi og hlakka allt- aftil jólanna. Frímann Sturluson skipatækni-| fræðingur: Já, það er að koma núna þegar ég set fh'merki á jólapóstinn, ég er strax byrjaður að hlakka til. Það er aldrei neitt nema bolti í íþróttaþáttunum, eins og allir Islending- ar séu með boltadellu. Burt með einokun boltans íþróttaunnandi hringdi: Hvemig væri nú að breyta til og súna eitthvað annað en boltaleiki í íþróttaþáttunum? Það em til fleiri skémmtilegar íþróttagreinar. Skemmtilegar, segi ég, því mér finnst fótboltinn ágætlega skemmtilegur. En ekki svo skemmtilegur að hann verðskuldi að taka tíma frá öllum öðrum íþróttagreinum. Á mínu heimili er einn sem hefur virkilega gaman af bolta. Allir hinir eru að verða vitlausir á þessu órétt- læti að einungis hann skuli fá sína uppáhaldsíþrótt. Það liggur mjög oft við slagsmálum af þessum sökum. Eru ekki margir sammála mér? Hvemig væri að láta duglega í sér heyra? Niður með boltann! Ábyrgðarstarf að ala upp börn Fósturmóðir skrifar: Vegna þeirra skrifa, sem birtust í blaðinu um daginn um meðlag, mæðralaun og fleira vil ég koma með nokkrar athugasemdir. Bréfritari talar um að Félagsmálastofnun greiði allt að 18 þúsund krónur með einu barni sem komið er fyrir. Það má rétt vera en í stað þess að taka undir gagnrýni á þessa fjárhæð vil ég benda á að í slíkum tilfellum er um börn með sérþarfir að ræða, börn sem krefjast ummönnunar dag og nótt og eru í engu tilfelli sambærileg við heilbrigð börn. Ef börn eru heil- brigð greiðir Félagsmálastofnun þrefalt meðlag, krónur 10.128. Það þykir mér ekki mikið. Hins vegar mættu feður gjarnan borga meira en þeir gera. En bréfritari má hugsa um það að fleira þarf en fæða börn og klæða. Aðalmálið er að koma þeim til manns, í því felst mesta ábyrgðin. Hvað yrði um þau börn sem þarf að koma fyrir ef enginn vildi taka við þeim? Yrðu þau nokkurn tíma nýtir þjóðfélagsþegnar? Oft eru það börn með sérþarfir sem komið er í fóstur. Áshildur Bragadóttir nemi: Auð- vitað, ég hef verið í jólaskapi síðan ég kláraði prófin í MS. Ég hlakka mikið til, en ég er ekki komin í þetta ektajólaskap. Anna Kvist nemi: Já, ég er búin að vera í jólaskapi síðan í gær. Það var ekkert sérstakt sem kom með jólaskapið en ég hlakka gasalega til, alveg gasalega. Sigurður Örn Leósson kennari: Ég er alltaf í jólaskapi en maður nýtur þess betur að geta nú átt skemmtilegri samverustundir með vinum og ættingjum. Ég get ekki sagt að ég hlakki til jólanna sem slíkra. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Spurningin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.