Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1985, Qupperneq 23
DV. MÁNUDAGUR 23. DESEMBER1985.
23
Menning Menning
Skottur
fara á
flakk
í Lúxemborg er svo sem kunnugt
er íslendingabyggð sem að mann-
fjölda slagar upp í meðalþorp úti á
landi. Ekki er víst að margir geri sér
grein fyrir því að þar á meðal eru
hátt í eitt hundrað börn innan ferm-
ingar.
Það er ekki á hverjum degi sem
þeim gefst kostur á að sjá íslenskt
barnaleikrit en nú á aðventu komu
góðir gestir til Lúxemborgar. Revíu-
leikhúsið hafði þar forsýningu á
nýjum, íslenskum leik, Skottuleik,
sem frumsýndur verður hér heima i
janúar næstkomandi. Þó að aðstæð-
ur væru frumstæðar var greinilegt
að börnin kunnu vel að meta heim-
sóknina og skemmtu sér hið besta.
í leiklýsingu segir að Skottuleikur
sé eldfjörug leiksýning fyrir börn,
byggð á gömlum hefðum í leikhúsi
Evrópu, svo sem trúðleik. I sýning-
unni eru skottur þjóðsagnanna lagð-
ar til grundvallar en auk þess er aflað
fanga í kímnisögum, Bakkabræðra-
sögum, gömlum gátum, leikjum og
draugasögum. Skotturnar þrjár
verða íslenskar sögukellingar,
spennandi og tímalausar.
Tónlist í leiknum er samin af Jóni
Ólafssyni við texta Karls Ágústs
Úlfssonar. Una Collins hannaði lit-
skrúðuga búninga en annar búnaður
er hafður sem einfaldastur því við
það er miðað að sýningin geti verið
flökkusýning. Er það vel við hæfi þvi
að skotturnar gömlu voru, sem
kunnugt er, fúsar til ferðalaga ef með
þurfti.
Brynja Benediktsdóttir, sem er
höfundur og leikstjóri sýningarinn-
ar, segir aðdragandann hafa verið
þann að forráðamaður Revíuleik-
hússins, Þórir Steingrímsson, kom
að máli við hana og bað hana að
semja og leikstýra sýningu fyrir
börn. Brynja fékk leyfi milli verkefna
í Þjóðleikhúsinu og tekið var til
óspilltra málanna í október. Þrjár
leikkonur, Guðrún Alfreðsdóttir,
Saga Jónsdóttir og Guðrún Þórðar-
dóttir, leika, syngja, sprella og dansa
í sýningunni.
„Mér hefur lengi verið hugleikinn
trúðleikurinn," segir Brynja. „Trúð-
urinn málar á sig hlæjandi grímu en
getur engu að síður látið áhorfendur
gráta með sér ef því er að skipta. En
hinir klassísku evrópsku trúðar eru
að mörgu leyti fjarlægir íslenskum
börnum svo að ég leitaði í okkar
sagnahefð að samsvörun og fann
skotturnar í þjóðsögunum. Þær eru
hinir íslensku trúðar, hrekkjóttar og
skrýtnar en að ýmsu leyti drama-
tískar persónur."
Og börnin í Lúxemborg fylgdust
af áhuga með skottunum þremur og
tiltækjum þeirra. Ekki bar á öðru en
að þau skildu textann vel þrátt fyrir
það að mörg þeirra hafi búið erlendis
alla sína ævi og þurfi í skólanum að
vera jafnvíg á þýsku og frönsku, auk
þess sem talmálið lúxemborgska er
þeim flestum tamt.
í janúar gefst svo jafnöldrum þeirra
hér heima kostur á að kynnast skott-
unum þremur en þá verður leikurinn
frumsýndur sem fyrr segir.
AuðurEydal.
Þótt börnin hafi sum hver búið alla ævi í Lúxemborg þá skildu þau
íslenskuna eins og þau hefðu aldrei heyrt annað tungumál.
- DV-myndir Auður Eydal.
ALLT Á SAMA STAÐ!
ÞVERHOLTI11.
Sízninn á öllum deildum
27022
Börnin í íslendinganýlendunni í Lúxemborg tóku því nýnæmi vel að fá að sjá íslenska leiksýningu.
LITLI REIKNINGSKENNARINN
Þessi litla leiktölva frá
Canon
leggur reikningsdæmi fyrir börnin. Ef þau svara ekki rétt,
gefur tölvan svarið.
Samlagning, frádráttur, margföldun, deiling. Bæði létt
dæmi og þung, eftir óskum þess sem spilar.
Einnig leikir með tölvur. Þú getur notað hana sem venju-
lega reikningstölvu þegar þú vilt.
Látið litla
reikningskennarann
aðstoða við námið
Gæðatölva
með 1 árs ábyrgð.
SkrifoéKn hf
Suðurlandsbraut 12, Box 8715, simi 685277.
Við bjóðum aðeins fyrsta flokks
DBMANIA
Demantar eru okkar sérgrein
Við bjóðum aðeins fyrsta flokks demanta greypta í hvítagull
og rauðagull.
Abyrgðarskírteini fylgir öllum okkar demantsskartgripum.
Meðlimir í demantsklúbbi Félags íslenskra Gullsmiða.
Greiðslukortaþjónusta.
ult (ófyöllin
Laugavegi 72 - Sími 17742