Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1985, Side 26
26
DV. MÁNUDAGUR 23. DESEMBER1985.
Kvikmyndir__________Kvikmyndir___________Kvikmyndir__________Kvikmyndir
Nýja bíó — Löggulíf
Þór og Danni í nýjum ævintýrum
Löggulíf.
Leikstjóri: Þráinn Bertelsson.
Handrit: Þráinn Bertelsson og
Ari Kristinsson.
Kvikmyndun: Ari Kristinsson.
Leikmynd: Hallur Helgason,
Árni Páll og Stefán Hjörleifs-
son.
Hljóð: Siguröur Snæberg.
Umsjón með tónlist: Guö-
mundur Ingólfsson og Lárus
Halldór Grimsson.
Aöalleikarar: Eggert Þorleifs-
son, Karl Ágúst Ulfsson, Lilja
Þórisdóttir, Siguröur Sigur-
jónsson og Flosi Ólafsson.
Þá eru þeir komnir aftur á kreik
kumpánarnir Þór og Danni. Nú
ganga þeir til liðs við lögregluna í
Reykjavík og við fylgjumst með
þeim í hinum ýmsu störfum í þágu
réttvísinnar i þriðju kvikmynd um
þá félaga, Löggulífi. Og satt best
að segja hafa Þór og Danni aldrei
kitlað hláturtaugar áhorfenda
jafnmikið og nú. Að vísu fá þeir
hjálp frá nokkrum ágætum leikur-
úm við ærslalætin.
í byrjun myndarinnar hittum við
þá félaga þar sem þeir hafa komið
sér upp dýraathvarfi og auk þess
að standa í viðskiptum við erlenda
fálkaungakaupmenn um sölu á
kjúklingum sem þeir hafa málað
gráa til að þeir líkist fálkaungum,
hafa þeir aukatekjur af að ræna
ketti ráðherrafrúar einnar sem
borgar þeim svo fundarlaun fyrir
að hafa fundið köttinn. Ráðherra-
frúin hefur hannað nýjan lögreglu-
búning og setur pressu á mann sinn
að gera hann löglegan. Lögreglan
er af skiljanlegum ástæðum mikið
á móti þessum búningi.
Atvikin haga því svo til að ráð-
herrafrúin kemur þeim Þór og
Danna í lögregluna án þess að þeir
þurfi að ganga í gegnum stranga
þjálfun. Þeir lenda strax á nætur-
vakt.
Á næturvaktinni hitta þeir félag-
ar hinar ýmsu skrýtnu mannskepn-
ur þjóðfélagsins sem ekki ganga
hinn hefðbundna veg meðalmanns-
ins og þar sem Þór og Danni eru
nú engir venjulegir borgarar og
hafa þar að auki farið breiðu braut-
ina á leið sinni gegnum erfiða lífs-
baráttu gerast margir kostulegir
hlutir á leið þeirra í gegnum bæinn.
Þeir hitta fyrir útigangsmanninn
Kormák Reynis, kallaðan Kogga,
sem býr hjá forföður sínum uppi á
Amarhóli. Á leið sinni með Kogga
í steininn hitta þeir hina glæsilegu
Sóleyju og eiga kynni þeirra við
hana eftir að hafa afdrifaríkar af-
leiðingar. Það kemur sem sagt í
ljós að hún býr með tveimur sér-
kennilegum frænkum sem eru allt
annað en ánægðar með þjóðfélagið
og fá Þór og Danni óþyrmilega að
kynnast vopnum þeirra.
Löggulíf fer nokkuð rólega af
stað. Dýraathvarfsatriðið er nokk-
uð skemmtilegt, en allt þetta til-
stand með nýja lögreglubúninginn,
er aftur á móti ekki eins vel heppn-
að og er vel að nýi lögreglubúning-
urinn hverfur alveg út úr handrit-
inu eftir fyrsta hálftímann.
En éftir að þeir Þór og Danni eru
loks komnir af stað í lögreglubíln-
um tekur myndin vel við sér og
eftir það heldur hún ágætum ball-
ans eins og farsaleikir verða að
gera til að halda áhorfandanum við
efnið. Að sjálfsögðu eru atriðin
misgóð eins og í öllum försum.
Bestu atriðin eru atriði eins og
þegar Þór og Danni hitta fyrir
blindan mann sem er að rembast
við að opna vitlausan bíl. Að sjálf-
sögðu hjálpa þeir honum við að
finna bílinn sinn. Og af stað ekur
blindi maðurinn með stafinn út um
gluggann sem leiðarvísir. Þetta
atriði er frumlegt og sprenghlægi-
legt. Sem betur fer eru þau atriði
fleiri sem skemmtileg eru en þau
sem mistakast. En atriði eins og
það þegar þeir félagar Þór og
Danni hitta á nakinn útlending í
heita læknum í Nauthólsvík er
ekki fyndið og í litlu samhengi við
myndina og þess utan er það virki-
lega ósmekklegt. Hápunktur
myndarinnar er fyrsti íslenski bíla-
eltingaleikurinn í kvikmynd. Og
þar kemur reynsla þeirra félaga
sem standa að Nýju lífi í ljós. Atrið-
ið er virkilega spennandi og vel
gert þótt ekki standist það kannski
samanburð við trukksenuna í
Beverly Hills Cop. Það er þeyst um
gamla bæinn, einn bíllinn endar
úti í tjörn. Örlög hinna bílanna
verða ekki rakin hér, sjón er sögu
ríkari.
Löggulif er þriðja kvikmyndin
um Þór og Danna og sú besta
hingað til. Eins og í fyrri myndun-
um eru það Eggert Þorleifsson og
Karl Ágúst Úlfsson sem leika þá
Þór og Danna og eins og áður hefur
Eggert vinninginn. Hann er kvik-
myndaleikari af guðs náð og einn
af fáum sem getur ofleikið með
góðum árangri. Virðist ekkert
þurfa að hafa fyrir því að vera
sniðugur. Karli Ágústi hefur farið
fram, en hann stendur enn í skugg-
anum af Eggerti. Aðrir leikarar
sem standa upp úr eru Sigurður
Sigurjónsson i hlutverki Kogga,
hins lífsreynda útigangsmanns, og
í litlu hlutverki er Arni Páll óborg-
anlegur sem blindur bílstjóri.
Þráni Bertelssyni hefur tekist
það sem til stóð, sem sagt að
skemmta landanum í skammdeg-
inu. Ýmsir hnökrar í handriti og
vinnslu gleymast yfir kostulegum
tiltektum Þórs og Danna í lög-
reglubúningunum, undir létt jass-
aðri tónlist Guðmundar Ingólfs-
sonar og félaga sem fellur skemmti-
lega að efninu. Hilmar Karlsson.
>
*
gleðilegra ióla og gœfu og gengis a
komandi dri
skum landsmönnum öllum
Fijáls fjö'lmidlun