Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1985, Side 48

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1985, Side 48
FRÉTTASKOTIÐ Hafir þú ábendingu ’ eða vitneskju um frétt — hringdu þá i sima 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV, greið- ast 1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku, Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Frjálst,óháð dagblað MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 1985. je- Hvít og rauð jól „Það verða örugglega hvít jól á Norður- og Austurlandi yfír jólin en ennþá er möguleiki ó björtum og rauðum jólum á suðvesturhom- inu,“ sagði Eyjólfur Þorbjörnsson, veðurfræðingur á Veðurstofunni, í morgun. Um allt land verður ríkjandi norðaustanátt og yfirleitt kalt í veðri, frost á bilinu 5-10 stig. „Greiðfært verður fyrir jóla- sveinana, þó er vissara að þeir noti jeppana sunnanlands og vestan. Sleðinn er góður fyrir norðan og austan,“ sagði Eyjólfur. -KB Innbrotaalda íHafnarfirði Innbrotaalda gekk yfir Hafnarfjörð um helgina. Þegar menn kornu til starfa í trésmíðaverkstæðið að Kaplahrauni 6 á iaugardagsmorg- un kom í ljós að brotist hafði verið þar inn um nóttina. Miklar skemmdir höfðu verið unnar inn- andyra. Meðal arrnars höfðu inn- brotsþjófarnir komist yfir tíu lítra málningarfötur og hellt málning- unni yfir vandaðar eldhúsinnrétt- ingar sem lokið hafði verið við smíði á. Einnig höfðu þeir hellt málningu niður í vélar trésmiðj- unnar Sömu nótt var brotist inn í þrjár sjoppur í Hafnarfirði. Var stolið talsverðu magni af tóbaki og sæl- gæti. Grunur leikur á að sömu aðilar hafi verið að verki í öll þrjú síðasttöldu skiptin. Þeir hafa ekki náðst. Næsta blað DV kemur út föstudaginn 27. desember. Smáauglýsingadeild blaðsins er opin í dag, mánudag, frá kl. 9 18. Lokað verður á að- fangadag, jóladag og annan i jólum. Smáauglýsingadeild verður opin nk. föstudag frá kl. 9 til kl. 22. Gleðilegjól! „SÁ ALDREI MANNINN” — starfsmanni fíknief nalögreglunnar misþyrmt eftir dansleik „Ég sá aldrei manninn; hann kom mér að óvörum þama fyrir utan Broadway og sló mig niður. Ég er allur marinn og blár en þó óbrot- inn, að ég held,“ sagði Óskar Kristjánsson lögreglumaður i sam- tali við DV. „Það má alltaf búast við svona löguðu. Þetta er daglegt brauð úti í hinum stóra heimi og hvers vegna ætti þetta ekki að gerást hér?“ Óskar, sem er starfsmaður fíkni- efnalögreglunnar, var að koma af dansleik í Broadway aðfaranótt laugardagsins þegar hann varð fyrir fólskulegri líkamsárás. Ungur piltur vatt sér að lögreglumannin- um og veitti honum þvílíka áverka að flytja varð hann á sjúkrahús. Árásarmaðurinn var handtekinn á staðnum en sleppt seint á laugar- dagskvöldið eftir ítarlegar yfir- heyrslur. „Málið er nær því upplýst," sagði Hallvarður Einvarðsson rann- sóknarlögreglustjóri síðdegis í gær. „Þó er ekki fullljóst hvort fíkniefni tengjast þessu máli. Reyndar hefur ekkert komið fram sem bendir til að svo sé.“ Árásarmaðurinn hefur aldrei komið við sögu fíkniefna og lög- reglumaðurinn er á batavegi. EIR. LlstiDVyfir metsölubækurnar: Eðvarð og Aðal- enní Sextán ára í sambúð og Lífesaga baráttukonu skipa enn tvö efstu sætin á DV-listanum yfir mest seldu bækurnar. Listinn var tekinn saman á laug- ardagskvöld en bóksalar eru sam- mála um að salan hafi verið mikil á laugardaginn. Röð tíu efstu bóka á DV-listanum er þannig: 1. Eðvarð Ingólfsson: Sextán ára í sambúð. 2. Inga Huld Hákonardóttir: Lifs- sagabaráttukonu. 3. Sveinn Sæmundsson: Guð- mundur Kjærnested. 4. Alistair MacLean: Njósnir á hafinu. 5. Jón Ormur Halldórsson: Lög- legt en siðlaust. 6. Hulda Á. Stefánsdóttir: Minn- ingar. 7. Andrés Indriðason: Bara stæl- ar. 8. RolfLidberg: Jólasveinabókin. 9. Þór Whitehead: Stríð fyrir ströndum. 10. Auður Haralds: Elías á fúllri ferð. Pyrir helgina birti Kaupþing bóksölulista sinn fyrir vikuna 11.-17. desember. Þar var Sextán ára í sambúð í fyrsta sæti, Lífssaga baráttukonu í öðru, Njósnir á haf- inu í þriðja, Guðmundur Kjær- nested í fjórða og Bara stælar í fimmtasæti. GK. Nóbelsskáldið Halldór Laxness áritaði bók sína, 1 Austurvegi, á laugardaginn í bókabúð Máls og, menningar og var myndin tekin við það tækifæri. -DV-mynd: GVA. Akureyrin setur íslandsmet íafta- verðmæti: Hefur rofíð 200 núttióna mtírinn Frá Jóni G. Haukssyni, blaða- manni DV á Akureyri: Frystitogarinn Akureyrin hefur veitt fyrir rétt rúmlega 200 milljón- ir króna á þessu ári. Þetta er ís- landsmet. Hásetahlutur skipsins er kominn í rúmlega tvær milljónir króna. Hásetarnir hafa þó ekki náð þeirri upphæð þar sem enginn þeirra hefur farið í allar veiðiferðir skipsins. „Þegar við sáum að við áttum möguleika á að ná 200 milljónunum stefndum við að því, lögðum harðar að okkur“, sagði Þorsteinn Vil- helmsson, skipstjóri á Akureyrinni, í gær en skipið kom um helgina úr sinni sextándu veiðiferð á árinu. Akureyrin er mettogari íslenskra togara. Skipið setti glæsilegt fs- landsmet í sumar þegar það kom með afla að verðmæti 27 milljónir króna úr einni veiðiferð. Meðaltogari, venjulegur, aflar að meðaltali fyrir í kringum 50 millj- ónir á ári. Sumir eru vel fyrir neðan þau mörk, aðrir fara upp í rúmlega 60 milljónir á ári, þeir bestu. Akureyrin hefur fengið um 7.901. tonn af fiski á árinu, þar af um 3.000 tonn af þorski. „Jú ,við erum löngu búnir með kvótann okkar, höfum verið að kaupa kvóta af öðrum síðustu mánuði," svaraði Þor- steinn um kvótamál Akureyrarinn- ar. f i í í i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i I í i i í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.