Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1986, Blaðsíða 18
18
DV. LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR1986
SPRAUTUKLEFI Til sölu mjög góður klefi, sem nýr. Til sýnis sunnu- dag frá kl. 2-4. Upplýsingar í síma 75748.
LEIKHÚSSTJÓRI Starf leikhússtjóra hjá Leikfélagi Akureyrar er laust til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 15. mars. 1986. Umsókn skulu fylgja upplýsingar um menntun og fyrri störf. Umsókn skal send til formanns leikhúsráðs, pósthólf 522, Akureyri. Leikfélag Akureyrar.
Nauðungaruppboð annð og síðara sem auglýst var í 63., 64. og 70. tölublaði Lögbirtinga- blaðsins 1982 á eigninni Skeifu v/Nýbýlaveg, þingl. eign Kristínar Viggós- dóttur, fer fram að kröfu skattheimtu ríkissjóðs í Kópavogi, Landsbanka islands, Steingríms Eiríkssonar hdl., Borgarskrifstofu Reykjavíkur, Guðjóns Á. Jónssonar hdl. og Veðdeildar Landsbanka Islands á eigninni sjálfri þriðjudaginn 11. febrúar 1986 kl. 10.00. Bæjarfógetinn í Kópavogi
Nauðungaruppboð annað og síðara sem auglýst var í 69., 70. og 73. tölublaði Lögbirtinga- blaðsins 1984 á eigninni Hlíðarvegi 37 - hluta -, þingl. eign Ernu Odds- dóttur, fer fram að kröfu Bæjarsjóðs Kópavogs, skattheimtu ríkissjóðs í Kópavogi og Guðjóns Steingrímssonar hrl. á eigninni sjálfri þriðjudaginn 11.febrúar1986 kl. 10.45. Bæjarfógetinn í Kópavogi
Nauðungaruppboð annað og siðara sem auglýst var í 20., 31. og 33. tölublaði Lögbirtinga- blaðsins 1985 á eigninni Digranesvegi 54, þingl. eign Karls Gunnarsson- ar, fer fram að kröfu skattheimtu ríkissjóðs í Kópavogi og Ólafs Gústafsson- ar hdl. á eigninni sjálfri þriðjudaginn 11. febrúar 1986 kl. 11.30. Bæjarfógetinn í Kópavogi
Nauðungaruppboð annað og síðara sem auglýst var i 101,104. og 106. tölublaði Lögbirtinga- blaðsins 1985 á eigninni Álfhólsvegi 81 - hluta -, þingl. eign Unnar Daníelsdóttur, fer fram að kröfu Jóns Finnssonar hrl. á eigninni sjálfri þriðjudaginn 11. febrúar 1986 kl. 11.15. Bæjarfógetinn í Kópavogi
Nauðungaruppboð sem auglýst var i 69., 79. og 83. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eigninni Kjarrhólma 18 - hluta -, tal. eign Elsu Dýrfjörð og Ingibergs Bjarnasonar, fer fram að kröfu Bæjarsjóðs Kópavogs á eigninni sjálfri þriðjudaginn 11. febrúar 1986 kl. 13.45. Bæjarfógetinn í Kópavogi
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 69., 79. og 83. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eigninni Engihjalla 19 - hluta -, þingl. eign Gunnars Ö. Gunnarssonar, fer fram að kröfu Veðdeildar Landsbanka Islands á eigninni sjálfri þriðju- daginn 11. febrúar 1985 kl. 14.00. Bæjarfógetinn í Kópavogi
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 51. 55. og 57. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 á eigninni Hlíðarvegi 17 - hluta -, þingl. eign Guðmundar Hallsteinssonar og Guðrúnar Guðmundsdóttur, fer fram að kröfu Veðdeildar Landsbanka íslands á eigninni sjálfri þriðjudaginn 11. febrúar 1986 kl. 14.30. Bæjarfógetinn í Kópavogi
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 68., 80. og 84. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eigninni Lundarbrekku 14 - hluta -, þingl. eign Ásgeirs Þorvaldssonar, fer fram að kröfu Útvegsbanka íslands, Skúla J. Pálmasonar hrl. og Ásgeirs Thoroddsen hdl. á eigninni sjálfri þriðjudaginn 11. febrúar 1986 kl. 15.00. Bæjarfógetinn í Kópavogi
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 40., 42. og 44. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 á eigninni Skjólbraut 1 - hluta -, þingl. eign Kolbrúnar Kristjánsdóttur, fer fram að kröfu Landsbanka Islands, Björgvins Þorsteinssonar hdl., Helga V. Jónssonar hrl., og Gunnars Jónssonar lögfr. á eigninni sjálfri þriðjudag- inn 11. febrúar 1986 kl. 15.30. Bæjarfógetinn í Kópavogi
Nauðungaruppboð annað og síðara sem auglýst var í 5., 8. og 10. tölublaði Lögbirtingablaðs- ins 1984, á eigninni Hlaðbrekku 11 - hluta -, þingl. eign Hilmars Adólfs- sonar, fer fram að kröfu skattheimtu ríkissjóðs í Kópavogi, Veðdeildar Landsbanka Islands og Iðnaðarbanka Islands á eigninni sjálfri þriðjudag- inn 11. febrúar 1986 kl.16.15. Bæjarfógetinn í Kópavogi
Listahátíðin 1986:
Hallalaust
happdrættí
„Listahátíð er alltaf happdrætti,“ sagöi Hrafn
Gunnlaugsson, formaður listahátíðarnefndar,
á fundi með blaðamönnum, „en happdrætti
eru oft nauðsynleg.“
Tilefnið var að sjálfsögðu kynning á bráða-
birgðadagskrá fyrir listahátíð sumarsins sem
hefst hinn 31. maí og stendur til 17. júní. Auk
þess verða einhverjar af listsyningum hátíð-
arinnar uppi fram í júlí.
Er þessi bráðabirgðadagskrá er
skoðuð kemur í ljós að atriði eru
mun færri en oft áður. Hrafn var
inntur eftir þessu og kvað hann
stefnu núverandi framkvæmda-
stjórnar að hafa atriðin bæði færri
og betri, t.d. kæmi sjaldan fyrir að
fleiri en tvö atriði bæri upp sama
daginn.
Hrafn lýsti sjálfur öðru einkenni á
fyrirhugaðri hátíð, þ.e. að hlutur
íslenskra tónlistarmanna verður þar
minni en venjulega. Hins vegar verð-
ur hlutur íslenskra tónskálda þeim
mun meiri. Nefndi hann sem dæmi
að flutt yrðu 10 ný eða nýleg verk
eftir þau. Obbann af þeim flytur
Guðni Franzson klarínettuleikari en
auk þess munu erlendir tónlistar-
menn, t.d. orgelleikarinn Colin
Andrews og New Music Consort,
vera með íslensk verk á dagskrá.
Verðlaunaverk Hafliða Hallgríms-
sonar, Poemi, verður þar að auki
flutt við opnun hátíðarinnar.
Strigabassar og sóprandívur
Annars verður mjög mikið um
tónlist á hátíðinni. Ungur píanóleik-
ari frá Filippseyjum, Cecile Licad,
mun leika með Sinfóníuhljómsveit-
inni strax á fyrsta degi hennar og
nokkrum dögum seinna verður einn
af þekktustu píanóleikurum vorra
tíma, Claudio Arrau, með einleiks-
tónleika.
Óperuáhugafólk fær einnig sitt því
nýr stjömubassi frá Sovétríkjunum,
Paata Burchuladze, mun syngja með
Sinfóníuhljómsveitinni. Að sögn
Kristins Hallssonar hefur Burc-
huladze þessum verið líkt við Sjalj-
apín, einn mesta bassa sem uppi
hefur verið. Heimsþekkt sópran-
söngkona, Katia Ricciarelli, syngur
einnig með hljómsveitinni okkar en
hana ættu menn að kannast við af
sjónvarpsupptöku af óperunni „Luc-
ia di Lammmemoor" eftir Donizetti.
Ungur sænskur ljóðasöngvari,
Thomas Lander, verður einnig með
tónleika, en hann gátu þeir Kristinn
Hallsson og Birgir Sigurðsson,
blaðafulltrúi listahátíðar, ekki prís-
að nógsamlega.
Orgeláhugafólk fær einnig sitt eins
og áður er nefnt, nútímatónlistin
sömuleiðis (sjá New Music Consort
) og Vínarkvartettinn mun flytja
nokkur sígild verk eins og „Dauðann
og stúlkuna" eftir Schubert.
Jassgeggjarar fá Herbie Hancock,
sem spilar sóló, og Dave Brubeck
með kvertett sinn. „Gamlir hippar fá
svo að sjá og heyra Joan Baez,“ sagði
Hrafn og taldi að heimsókn hennar
gæti leitt til þess að við fengjum að
heyra sjálfan Bob Dylan eftir nokkur
ár. Auk þess las Hrafn upp úr bréfi
frá Leonard Cohen sem sagðist fús
að koma til íslands um leið og tón-
leikaplön hans leyfðu. Það er því
ljóst að allt getur gerst á næstu
mánuðum.
Claudio Arrau.
Cecile Licad.