Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1986, Side 26
26
DV. LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR1986
Nauðungaruppboð
annað og siðara sem auglýst var í 6., 14. og 18. tölublaði Lögbirtinga-
blaðsins 1983 á eigninni Nýbýlavegi 64 - hluta þingl. eign Sævars
Ólafssonar, fer fram að kröfu Bæjarsjóðs Kópavogs, skattheimtu ríkissjóðs
í Kópavogi, Bjarna Ásgeirssonar hdl., Inga Ingimundarsonar hrl., Arna
Einarssonar hdl., Guðjóns Á. Jónssonar hdl., Veðdeildar Landsbanka
íslands og Brynjólfs Kjartanssonar hrl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn
12. febrúar 1986 kl. 13.45.
Bæjarfógetinn í Kópavogi
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 75., 81. og 82. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á
eigninni Hamraborg 24 - hluta -, þingl. eign Kristínar Ögmundardóttur,
fer fram að kröfu skattheimtu ríkissjóðs í Kópavogi og Útvegsbanka ís-
lands á eigninni sjálfri miðvikudaginn 12. febrúar 1986 kl. 15.15.
Bæjarfógetinn í Kópavogi
Nauðungaruppboð
annað og síðara sem auglýst var í 75., 81. og 82. tölublaði Lögbirtinga-
blaðsins 1983 á eigninni Engihjalla 9 - hluta -, þingl. eign Kristjáns
Guðmundssonar, fer fram að kröfu Útvegsbanka Islands, Guðjóns Á.
Jónssonar hdl. og Veðdeildar Landsbanka Islands á eigninni sjálfri mið-
vikudaginn 12. febrúar 1986 kl. 15.45.
Bæjarfógetinn i Kópavogi
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 68., 80. og 84. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á
eigninni Nýbýlavegi 90 - hluta -, þingl. eign Páls S. Péturssonar og
Mörtu Árnadóttur, fer fram að kröfu skattheimtu rikissjóðs í Kópavogi á
eigninni sjálfri fimmtudaginn 13. febrúar 1985 kl. 11.30.
Bæjarfógetinn i Kópavogi
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 68., 80. og 84. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á
eigninni Löngubrekku 10 - hluta -, þingl. eign Eysteins Jónssonar og
Þóru L Karlsdóttur, fer fram að kröfu Bæjarsjóðs Kópavogs og Ólafs
Gústafssonar hdl. á eigninni sjálfri fimmtudaginn 13. febrúar 1986 kl.
13.45.
Bæjarfógetinn í Kópavogi
*
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 69., 79. og 83. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á
eigninni Skólagerði 36 - hluta -, tal. eign Sveins Jónssonar, fer fram að
kröfu skattheimtu ríkissjóðs i Kópavogi, Arnmundar Backman hrl. og
Iðnaðarbanka Islands á eigninni sjálfri fimmtudaginn 13. febrúar 1986
kl. 14.00.
Bæjarfógetinn í Kópavogi
Nauðungaruppboð
annað og síðara sem auglýst var í 69., 79. og 83. tölublaði Lögbirtinga-
blaðsins 1985 á eigninni Álfhólsvegi 149 - hluta -, þingl. eign Guðrúnar
Halldórsdóttur, fer fram að kröfu 8æjarsjóðs Kópavogs og skattheimtu
ríkissjóðs í Kópavogi á eigninni sjálfri fimmtudaginn 13. febrúar 1986 kl.
13.30.
Bæjarfógetinn í Kópavogi
Nauðungaruppboð
annað og síðara sem auglýst var í 68., 80. og 84. tölublaði Lögbirtinga-
blaðsins 1985 á eigninni Kópavogsbraut 68 - hluta -, þingl. eign Guð-
mundar J. Jónssonar, fer fram að kröfu Bæjarsjóðs Kópavogs og Guðjóns
Á. Jónssonar hdl. á eigninni sjálfri fimmtudaginn 13. febrúar 1986 kl.
14.30.
Bæjarfógetinn í Kópavogi
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 101., 104. og 106. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985
á eigninni Auðbrekku 2, þingl. eign Guðmanns Aðalsteinssonar, fer fram
að kröfu Bæjarsjóðs Kópavogs á eigninni sjálfri fimmtudaginn 13. febrúar
1986 kl. 15.45.
Bæjarfógetinn í Kópavogi
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 112., 115. og 118. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á Einars-
nesi 52, þingl. eign Jóhannesar K. Guðmundssonar, fer fram eftir kröfu
Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri þriðjudag 11. febrúar 1986
kl. 11.15.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Kötlufelli 11, þingl. eign Guðnýjar Hjálmars-
dóttur, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Jóns Finnssonar
hrl„ Veðdeildar Landsbankans, Árna Guðjónssonar hrl. og Landsbanka
íslands á eigninni sjálfri þriðjudag 11. feþrúar 1986 kl. 14.15.
Borgarfógetaemþættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Arnarbakka 2, þingl. eign Guðmundar H. Sigmunds-
sonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Hafsteins SigUrðs-
sonar hrl. og Ölafs Gústafssonar hdl. á eigninni sjálfri þriðjudag 11. febrú-
ar 1986 kl. 15.45.
Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 134., 138. og 145. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta
í Fornhaga 24, þingl. eign Valdimars Leifssonar, fer fram eftir kröfu Gjald-
heimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri þriðjudag 11. febrúar 1986 kl.
11.00.
Borgarfógetaembættið í Reykjavik,
Micbael Caine
með beimþúa
JL fyrirsæta, ættuð frá Guy
„Ég er á heimleið - búinn að fá
nóg,“ sagði Michael Caine við
blaðcimann; þeir hittust heima hjá
stjörnunni þar sem hann sat inni í
bókaherberginu í glæsihýsinu ofan
við Beverly Hills og horfði á segl-
bátana, sem mjökuðust varla úr
stað niðri á sólbökuðu Kyrrahaf-
inu, þegar tilfinningin helltist yfir
hann.
Hann var óhamingjusamur
„Ég var búinn að fá nóg,“ sagði
Caine við blaðamann. Og talar enn
með sínum heimsfræga cocney—
hreim þótt hann hafi á seinni árum
verið sá í hópi Hollywood-leikara,
sem hvað mest hefur haft að gera.
„Ég var bara kominn með ósköp
gamaldags heimþrá."
Það eru tuttugu ár síðan Caine
lék sitt fyrsta stórhlutverk. Það var
í myndinni „Alfie“ (sýnd í íslenska
sjónvarpinu fyrir nokkrum vikum)
- mynd um óforbetranlegan
kvennabósa, sem greinilega er á
því að konur séu bara til eins nýti-
legar. Síðustu sjö árin hefur Caine
búið í villu sinni ofan við Beverly
Hills.
„Það var skynsamlegt af mér að
flytja hingað á sínum tíma,“ sagði
leikarinn með heimþrána. „Mér
hefur liðið vel hér í Ameríku. En
ég er búinn að borga mína skatta
og það er kominn tími til að koma
sér heim. Ég er búinn að gera það
sem ég ætlaði mér að gera í
Hollywood."
Caine er fimmtíu og tveggja ára.
Hús hans í Beverly Hills er hannað
mjög að enskri fyrirmynd. Hann
hefur leikið í þremur myndum í röð
síðustu mánuði - og reiknar með
að tapa fé á því að flytja til Eng-
lands. - Til Énglands - en ekki á
þær slóðir þar sem hann ólst upp.
Caine ólst upp í fátækrahverfi í
London og vonast til að þurfa ekki
að búa á sínum æskuslóðum.
Villa I Wallingford
Stjarnan ætlar að setjast að í
smáhöll einni eða villu í Walling-
ford, sem er þorp í Oxfordskí ri upp
með Thames. „Þegar ég var búinn
að ganga frá kaupum á því húsi
varð ég hamingjusamur aftur,"
sagði hann.
Glápandi túristar
Caine hitti blaðamann í bókaher-
bergi sínu, en virtist þó ekki geta
slakað á innan um allar bókmennt-
irnar og hægindastólana. Hann
tottaði stóran vindil, stökk á fætur
hvað eftir annað til að ýta á hnapp
sem opnar eða lokar jámgrinda-
hliðinu fyrir akveginum gegnum
trjágarðinn heim að húsi hans. Á
skiltum utan við hliðið stendur :
„Vopnaðir verðir" og lóðin er
umlukin hávöxnum trjágróðri sem
kemur í veg fyrir að rútufarmar af
forvitnum ferðamönnum á „stjörn-
urúntinum" geti barið hann aug-
um.
Innan veggja hefur seinni kona
Caine, Shakira, fyrrum Ijósmynda-
með þjónustufólkinu og ver eigin-
mann sinn fyrir öllum þeim sem
stöðugt reyna að ná tali af honum
í síma.
Níutíu prósent í skatta
Þegar þau fluttu til Hollywood
1979 kvartaði Caine opinberlega
yfir því að skattakerfið í Englandi
væri að leggja kvikmyndaiðnaðinn
í rúst.
„Ég vann oft erlendis," sagði
hann - „kom heim með kaupið
mitt og stjórnin hirti af mér 90%.“
Nú hefur Caine leikið í 50 kvik-
myndum og þarf víst ekki að hugsa
svo mjög um fjárhag sinn.
„Ég var 46 ára þegar ég flutti
hingað. Það er erfitt að gerast
innflytjandi á þeim aldri.“ Hann
er enn breskur ríkisborgari og
segist sakna breskrar fæðu og
matreiðslu. Sjálfur er leikarinn
reyndar þekktur áhugamaður um
matreiðslu. „Og þótt undarlegt sé,
þá sakna ég líka rigningarinnar
heima. Mig langar að grafa mig
niður úti í sveit í Englandi. Ég vil
helst vera einn heima í garðinum
mínum. Mín áhugamál þarfnast
næðis - garðyrkja og matreiðsla.
En,“ - segir hann - „þegar síminn
hringir og mér er boðið hlutverk,
sem ég hef áhuga á, þá rýkur adren-
alínið uppúr öllu valdi og ég er
kominn af stað á fimm mínútum.
Og það er vinna fyrir mig í Bret-
landi. Ég á marga vini þar. Og ég
á líka marga vini hér. En það er
kominn tími til að ég komi mér
heim.
- Ronald Clarke/Reuter.
MichaelCaine-meðheimþrá.