Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1986, Side 37
DV. LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR1986
37
Hamrahlíð um helgina en þá fá
þeir reyndar meiri tíma til að
hugsa. Tímamörk í landskeppninni
verða 2 klst. á f'yrstu 40 leikina og
síðan klukkustund á næstu 20 leiki
og þá fyrst verður gert stutt hlé og
skákin sett í bið. í sjónvarpinu
höfðu þeir aðeins 5 mínútur hvor
og máttu leika það sem hendi var
næst á síðustu sekúndunum.
Sjónvarpsskákin var býsna fjör-
ug á að horfa. Jóhann skapaði sér
betri færi framan af og Margeir
notaði meiri tíma til þess að finna
leiki í vöminni. Þar kom að hann
sneri vöm í sókn í endatafli, fékk
gjörunna stöðu en baráttan við
klukkuna kom í veg fyrir að hann
gæti leikið skynsamlega leiki á
borðinu. Hann lék taflinu smám
saman niður en er hann féll á tíma
hafði hann þó enn unna stöðu.
E.t.v. hafa einhverjir gaman af
því að velta þessari fjömgu skák
fyrir sér í ró og næði. Skákin kemur
hér á eftir en vitanlega ber að taka
taflmennsku þeirra hæfilega alvar-
lega þar sem umþóttunartími er svo
knappur. Að meðaltali hugsuðu
þeir rétt liðlega 4 sekúndur á leik
en í landskeppninni fá þeir 45 sinn-
um meiri tíma...
Hvítt: Jóhann Hjartarson
Svart: Margeir Pétursson
Enskurleikur
1. c4 c5 2. Rf3 e6 3. b3 Rf6 4. e3 d5
5. Bb2 Rc6 6. Be2 Be7 7. 0-0 0-0 8.
d3 b6 9. Rc3 Bb7 10. e4 dxe4 11. dxe4
Dxdl 12. Haxdl Hfd8 13. e5 Re8 14.
h4 Rc715. h5 h616. Re4 Rd4 17. Rxd4
Bxe418. Bf3 Bxf3 19. Rxf3 a6 20. Rd2
b5 21. Re4 Hab8 22. Bc3 Re8 23. Ba5
Hxdl 24. Hxdl bxc4 25. bxc4 Hb2
abcdefgh
26. Rc3?
Valdar a-peðið en riddarinn
hverfur úr ógnandi stöðu og svart-
ur nær að rétta úr kútnum. Rétt
var 26. Bd8! Kf8 (Ekki 26. - Bxd8?
27. Hxd8 Kf8 28. Rd6 og vinnur; eða
26. - Bf8? 27. Rd6 og eftir uppskipti
verður svartur að gefa mann til að
stöðva d-peðið; eða 26. - f5? 27.
Bxe7 fxe4 28. Hd8 KÍ7 29. Hd7
Hxa2 30. Bxc5+ Kg8 31. He7 og
svartur lendir í svikamyllu og
missir riddarann von bráðar) 27.
Bxe7 + Kxe7 28. Rxc5 Hxa2 29.
Hd7 + Kf8 og vegna þess hve hvítu
mennirnir eru virkir er svartur í
úlfakreppu. Skemmtilegt framhald
er 30. Ha7 a5 31. Rb7 a4 32. Rd8!
Hd2 (ef 32. - a3 33. Hxf7+ Kg8 34.
Ha7 ásamt Rxe6 og vinnur létt því
að svarti riddarinn sleppur ekki
út) 33. Rxf7 a3 34. Rh8! a2 35. Rg6 +
Kg8 36. Kh2 Hxf2 37. c5 og vinnur
vegna mátnetsins (ef 37. - Hc2 38.
He7!, ef 37. - Rc7 38. Hxc7 al = D
39. Hc8 + og mátar og ef 37. - Kh7
þá 38. Ha8 og vinnur). En þetta var
útúrdúr.
26. - fB! 27. Hd7 Kf8 28. Ha7 fxe5
29. Hxa6 Rd6 30. Ha8+? Kf7 31. Ha7+
Ke8 32. Ha8+ Kd7 33. Ha7+ Hb7 34.
Hxb7 Rxb7 35. Bb6 Kc6 36. Ba7? Ra5
37.Bb8Rxc438.f4
Hótunin var 38. - Kb7 og vinna
biskupinn. Svartur hefur náð vinn-
ingsstöðu.
38. - Bf6 39. Re4 Kd5 40. Rc3+ Kd4
41. Rb5+ Kd3 42. fxe5 Bxe5 43. Ba7
Bd4+ 44. Kfl Re3+ 45. Kf2 Rd5+
46. Kf3 e5 47. Rd6 c4
Einfaldara er 47. - Rc3! og e-peðið
skríður fram.
48. Bxd4 exd4 49. Re4 c3 50. Rf2+
Kc4(?) 51. Ke2 Rf4+ 52. Kdl d3 53.
a4 c2 + 54. Kd2 Kb4??
Nú var 54. - Kb3 ásamt Kb2
bráðvinnandi.
55. g3 Rxh5 56. Rxd3+ Kxa4 57.
g4 Rfl6 58. Re5 Kb5? 59. Kxc2 Kc5 60.
g5 hxg5 61. Kd3 Kd5 62. Rf3 g4 63.
Rh4 Ke5 64. Ke3 Rd5+ 65. Kf2 Kf4
66. Rg6+ Kg567. Re5Rf4
Hér stöðvaði Jóhann klukkuna
og krafðist vinnings því að Margeir
var fallinn á tíma og Jóhann getur
stillt upp mátstöðu. „Jafntefli með
bestu vörn“ var dómur þeirra eftir
skákina en hann var fljótfærnisleg-
ur, því að hið rétta er að svartur
hefur vinningsstöðu. Staðan er
þekkt úr skák Matulovic og Uj-
tumen á millisvæðamótinu á Mall-
orca 1970. Svartur nær að þröngva
fremra peðinu áfram og koma hvít-
um í leikþröng. JLÁ
Seljum I dag
Saab 900 GL árg. 1983, 4ra dyra,
drapp, beinskiptur, 5 gfra, ekinn
56 þús. km, mjög fallegur bíll.
Skipti möguleg á ódýrari. Verfl kr.
490.000.
Saab 900 GLS árg. 1982, 5 dyra,
Ijósblár, sjálfskiptur, ekinn 61 þús.
km, mjög góður bill. Skipti á ódýr-
ari möguleg. Verð kr. 430.000.
Saab 99 GL árg. 1983, 4ra dyra,
Ijósdrapp, beinskiptur, 5 gfra, ek-
inn 50 þús. km, góður bill. Verð
kr. 400.000.
Saab 900 GLS árg. 1982, 5 dyra,
dökkblár, sjálfskiptur, ekinn 61
þús. km, góður bill. Verð kr.
430.000.
Opið laugardag kl. 13—17.
TÖGGURHR
UMBOÐ FYFUR SAAB OG SEAT
Bíldshöfða 16, símar 681530 - 83104.
stig, auk heildarverðlauna að verð-
mæti alls 350.000 kr. fyrir öll mótin
þrjú (tvö hin fyrri voru fyrir áramót).
Bridgesambandið skorar á spilara
að íjölmenna í þetta þriðja stórmót
á Húsavík og gera veg þess sem
mestan. Það er aldrei að vita nema
næstu Samvinnuferða/Landsýnar-
mótin verði haldin á Akureyri, Egils-
stöðum eða Blönduósi eða Homa-
firði?
Framhaldsskólamótið
Minnt er á skráninguna í fram-
haldsskólamótið í sveitakeppni, sem
haldið verður um næstu helgi. Eins
og staðan er í dag verður ekkert mót
haldið nema þátttakan aukist veru-
lega. Skráð er einungis hjá Bridge-
sambandi íslands (Ólafur Lárusson,
s. 91-18350).
Skráningarfrestur rennur út mið-
vikudaginn 12. febrúar nk. kl. 16.
Þær sveitir, sem ekki hafa skráð sig
til BSÍ fyrir þann tíma, geta ekki
búist við að fá að vera með þessu
sinni, þ.e.a.s. verði eitthvért mót.
Frá Bridgesambandi
íslands
íslandsmót kvenna og yngri spilara
í sveitakeppni verður haldið fyrstu
helgi í mars, dagana 1. og 2. mars, í
Gerðubergi í Breiðholti. Spila-
mennska hefst kl. 13 á laugardegin-
um en fyrirkomulag að öðru leyti
byggist á þátttöku hverju sinni. Þó
er stefnt að því að allir spili v/alla í
undanrásum og 4 efstu sveitir úr
hvorum flokki komist í úrslit sem
verða spiluð næstu helgi á eftir í
Drangey v/Síðumúla 35.
Skráning er hafin hjá Bridgesam-
bandi íslands og lýkur skráningu
miðvikudaginn 26. febrúar nk.
Þátttökugjaldi verður stillt í hóf
að venju og keppnisstjóri verður
Agnar Jörgensen. Spilað er um gull-
stig í þessum mótum auk verðlauna
fyrir efstu sveitir.
Bridgefélag Breiðholts
Að loknum 8 umferðum í aðal-
sveitakeppni félagsins er röð efstu
sveita þessi:
1. Sv. Antons R. Gunnarss. Stig 145
2.-3. Sv. Helga Skúlasonar 143
2.-3. Sv. Baldurs Bjartmarss. 143
4. Sv. Þorsteins Kristjánss. 137
5. Sv. Garðars Garðarssonar 131
Keþpnin heldur áfram næsta
þriðjudag.
Bridgefélag Hvolsvallar
og nágrennis
Þann 29. desember var haldið ár-
legt K.R.-mót í tvímenningi og var
þátttakan að þessu sinni 22 pör.
Spilað var með barómeterfyrirkomu-
lagi og var keppnisstjóri Brynjólfur
Gestsson.
Stig
1. ViðarBjarnason
-Sigurjón Pálsson 105
2. Gyða Thorsteinsson
-Guðmundur Thorst. 76
3. Kjartan Jóhannsson
-Örn Hauksson 68
4. Brynjólfur Jónsson
-Haukur Baldvin..son 66
5. Guðjón Bragasoi.
-Daði Bjömsson 48
6. SigurðurSigurjónsson
-Sigurjón Karlsson 36
7.-8. Magnús Bjarnason
-Árni Sigurðsson 28
7.-8. TorfiJónsson
-Jón Þorkelsson 28
Fyrsta mót nýja ársins var svo 3
kvölda einmenningur samhliða
firmakeppni. Þátttakan var 32 spil-
arar og 50 firmu. Það er því upp-
sveifla í bridgelífi hér í héraði. Þau
firmu, er tóku þátt í keppninni, fá
þakkir fyrir að stuðla að styrkari
stöðu félagsins. Fram undan er
sveitakeppni og helgina 7.-9. febr.
verður Suðurlandsmót í sveita-
keppni haldið á Hvolsvelli.
Úrslit í firmakeppni
Bridgefélags Hvoisvallar
og nágrennis
1. Videoleigan, Hellu 416
2. Trésmiðja G.G. 397
3. Hellirinn 393
4. Efnagerðin Búra, Hellu 388
5. Hvolhreppur 383
6.-7. Pökkunarstöðin, Þykkvabæ 378
6.-7. Morgunbl., umboö, Hvolsv. 378
8.-9. Fðður og fræ, Gunnarsholti 363
8.-9. Brunabótaf. ísl., umb., Hellu 363
10. Dagblaðið, umboð, Hvolsvelli 361
11. Bilaskjól, Hvolsvelli 359
12.-14. Nýja þvottah., Hvolsv. 356
12.-14. Grillið, Hellu 356
12.-14. Holtabúið 355
15.-16. Blikksmiðjan Sörli 353
15.-16. Sýsluskrifstofan 353
17. Austurleið h/f 352
18. Bílaverkst. K.R., Hvolsv. 351
19. Minnitæknir, Hellu 346
Spilarar fyrir Videoleiguna voru
Brynjólfur Jónsson og Torfi Jónsson.
Úrslit í einmenningskeppni
Bridgefélags Hvolsvallar
og nágrenrtis Stíg
1.-2. Emil Gíslason 584
1.-2. Torfl Jónsson 584
3. Þorstelnn Sverrisson 582
4. Brynjóllur Jónsson 567
5. Andrl Jónsson 552
6. Haukur Baldvinsson 537
7. Eyþór Gunnþórsson 531
8.-9. Helgi Hermannsson 527
8.-9. Gyða Thorsteinsson 527
10. Jón Þorkelsson 523
11. Bryn|ólfur Teltsson 518
12. Óskar Pálsson 515
13. Gísli Kristjánsson 513
14. Unnur Ingólfsdóttir 511
15. örn Hauksson 509
Fréttirfrá Bridgesambandi
Vesturlands
Helgina 1. og 2. febrúar var haldið
á Akranesi Vesturlandsmót í sveita-
keppni. Alls tóku 12 sveitir þátt í
mótinu og fór það í alla staði mjög
vel fram. Efst varð sveit Þórðar El-
íassonar, Akranesi, með 221 stig.
Með Þórði spiluðu þeir Alfreð Vikt-
orsson, Bjarni Guðmundsson og Karl
Alfreðsson.
Röð efstu sveita varð þessi:
Þórður Elíasson, Akranesi 221
Ellert Kristinsson, Stykkish. 196
Ingi St. Gunnlaugss., Akranesi 194
Eggert Sigurðss., Stykkish. 183
Jón Á. Guðmundss., Borgarn. 176
Þórir Leifsson, Borgarfírði 161
Bikarkeppni
Vesturlands 1986
Dregið hefur verið í 2. umferð í
bikarkeppni Vesturlands. Eftirtaldar
sveitir eigast við:
Ellert Kristinsson/Hermann Tómas-
son- Ragnar Haraldsson
Þorgeir Jósefsson-Guðmundur Sig-
urjónsson
Þorsteinn Pétursson-Eggert Sig-
urðsson
Jón Á. Guðmundsson-Ingi Steinar
Gunnlaugsson
Keppt er um farandbikar, sem
Sjóvá gefur, auk verðlauna sem veitt
verða fyrir 1. og 2. sætið.
Vesturlandsmót í
tvímenningi1986
1. og 2. mars verður haldið í Stykk-
ishólmi Vesturlandsmót í tvímenn-
ingi. Þátttökutilkynningar þurfa að
hafa borist fyrir 23. febrúar í síma
1080 (Einar) eða 8361 (Eggeri). Þátt-
tökugjald verður ca 1000 kr. á mann.
Bridsdeild Breiðfirðinga
„Barómeter“
1. Jón Stefánsson
-Magnús Oddsson
2. Svelnn Þorvaldsson
-Hjólmar Pálsson
3. Helgi Nielsen
-Alison Dorosh
4. Sveinn Sigurgeirsson
-Baldur Árnason
5. JóhannJóhannsson
-Kristján Sigurgeirsson
6. Guðmundur Thorsteinsson
—Gisli Steingrimsson
7. Albert Þorsteinsson
-Sigurður Emilsson
8. Guömundur Aronsson
-Sigurður Ámundason
9. Halldór Jóhannsson
-Ingvi Guðjónsson
10. Ingibjörg Halldórsdóttir
-Sigvaldi Þorsteinsson
550
424
414
403
390
353
334
296
269
266
BRAUTARHOLTI 33 - SÍMI: 6212 40
Ford Bronco árg. 1982, ekinn
40.000 km, hvitur. Verð kr.
950.000.
VW Golf CL árg. 1985, ekinn
13.500 km. steingrár. Verð kr.
470.000.
MMC Sapporo GLX árg. 1982, Saab 900 GLS árg. 1982, ekinn
ekinn 17.000 km, grásans. Verð 41.000 km, blár. Verð kr. 440.000.
kr. 440.000.
MMC Cordia GLS árg. 1983, ekinn
27.000 km, rauður. Verð 380.000.
VW Double Cab árg. 1984, ekinn
26.000 km, hvitur, bensin. Verð kr.
550.000,-
Gott úrval notaðra MMC Pajero-bíla á
staðnum.
RUMGOÐUR SYNINGARSALUR
— REYNDIR SÖLUMENN —
OPIÐ:
Mánud.—föstud.kl. 9.00—19.00.
Laugard. kl. 10.00—19.00.