Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1986, Síða 2
2
DV. MIÐVIKUDAGUR 5. MARS1986.
Fréttir Fréttir Fréttir
Aðstandendur Fréttaútvarpsins dæmdir í Sakadómi:
FRÉTTAÚTVARPIÐ 25
ÞÚSUND KRÓNAVIRDI
segir Ellert B. Schram
„Þessi dómur kemur ekki á óvart,
enda búið að dæma áður í tveim
hliðstæðum málum. En dómnum
verður að sjálfsögðu áftýjað," sagði
Ellert B. Schram ritstjóri, er upp
hafði verið kveðinn dómur yfir að-
standendum Fréttaútvarpsins er
rekið var í verkfalli BSRB í október
1984. Ákærðir voru stjómarformað-
ur, útgáfústjóri og ritstjórar DV og
þeim gefið að sök að hafa brotið lög
um einkarétt Ríkisútvarpsins til
úrvarpssendinga með starfrækslu
Fréttaútvarpsins.
í Sakadómi voru hinir ákærðu
sakfelldir og hverjum gert að greiða
25 þúsund króna sekt. Þá var tækja-
búnaður Fréttaútvarpsins gerður
upptækur og hinum dæmdu gert að
greiða verjanda sínum, Þórði S.
Gunnarssyni hrl., málsvarnarlaun
að upphæð 60 þúsund krónur.
„Hitt er svo annað að það er ekki
erfiður biti að kyngja að greiða 25
þúsund krónur fyrir að stunda
frjálsa fréttamennsku. Öll mann-
réttindi eru dým verði keypt,“ sagði
Ellert B. Schram. „En þessi dómur
er tímaskekkja. Fréttaútvarpið réð
úrslitum um það að nú er búið að
afhema einokun Ríkisútvarpsins og
samþykkja ný lög um frjálst útvarp.
Fréttaútvarpið var svo sannarlega
25 þúsund króna virði.“
-EIR
Erient sjón-
varpá
Patreksfirði
Skermur til móttöku sjónvarpsefnis
frá Eutelsat-gervihnettinum hefur
verið settur upp á Vestfjörðum í fyrsta
sinn. Þrjátíu íbúðaeigendur í rað-
húsum á Patreksfirði hafa sameinast
um kaup á búnaðinum. Með vinnu
fyrir uppsetningu greiða þeir samtals
174 þúsund krónur eða 5.800 krónur á
íbúð.
„Myndin næst mjög vel, alveg tipp-
topp. Þetta er jafnskýrt og í Reykja-
vík,“ sagði Ari Þór Jóhannesson raf-
eindavirki sem setti diskinn upp á
Patreksfirði.
„Vestfirðingar voru taldir verst sett-.
ir til að ná geislanum. Nú er komið í
ljós að þetta er allt í lagi. Þeir eru
ekki út úr heiminum," sagði Ari Þór.
Patreksfirðingamir fengu takmark-
að leyfi til að prófa búnaðinn. Næst
ætla þeir að fá leyfi til að horfa á
bresku stöðina Sky Channel.
-KMU
Sementsverksmiðjumenn í BSRB:
Treystaá
Kristjánog
Guðlaug
Við lá að samningar Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja og fjármála-
ráðuneytisins strönduðu á fostudags-
kvöldið vegna deilu um kaupauka til
BSRB-manna í Sementsverksmiðju
ríkisins. Fjármálaráðherra treysti sér
ekki til þess að lofa kaupaukanum.
En yfirlýsing Kristjáns Thorlaciusar,
formanns BSRB, og Guðlaugs Þor-
valdssonar sáttasemjara um að þeir
myndu beita sér í málinu varð til þess
að kaupaukamálinu var ýtt í þeirra
hendur.
„Ég hlýt að treysta því að þessir
menn komi vitinu fyrir fjármálaráð-
herra," segir Einar Ólafsson, formaður
Starfsmannafélags ríkisstofnana. í
Sementsverksmiðjunni er greiddur
kaupauki til ASÍ-manna en ekki
BSRB-manna. í Áburðarverksmiðj-
unni fá hins vegar allir kaupauka.
Kaupaukinn er sagður 10-20% eftir
árstímum og álagi. I samningunum í
síðustu viku var beðið um samræm-
ingu fyrir BSRB-mennina í sementinu.
„Um hádegi síðasta samningadaginn
fengum við hins vegar bréf frá launa-
deild fjármálaráðuneytisins með neit-
un. Þessi afstaða kom á viðkvæmum
tíma og við hlutum að setja það á
oddinn að fá þessu breytt," segir Einar.
„En Kristján og Guðlaugur hjuggu á
hnútinn á síðustu stundu og okkar
menn í Sementsverksmiðjunni treysta
auðvitað á þá. Það er rétt að þetta
komi skýrt fram vegna þess að missagt
hefur verið að fjármálaráðherra hafi
lofað úrbótum, hann lofaði ekki öðru
en að athuga málið. En það nægir
okkur bara ekki.“ HERB
Vitni vaittar
Vitni vantar að árekstri sem varð á Talið er að fólk í bifreið á leið austur
mótum Hringbrautar og Vatnsmýrar- Hringbrautina hafi orðið vitni að
vegar þann 8. febrúar. Þar lentu sam- árekstrinum. Er þess vænst að það eða
anbifhjól á leið austur Hringbraut og aðrir sem kunna að hafa verið nær-
bifreið sem ekið var Vatnsmýrarveg- staddir gefi sig fram við lögregluna svo
inn. Töluverðar skemmdir urðu á unt verði að skera úr um hvor var í
báðum ökutækjunum. rétti þegar áreksturinn varð.
Hafliði Hallgrímsson tekur hér á móti tónskáldaverðlaunum Norðurlandaráðs úr hendi Anker Jörgensens
forsetaráðsins. Símamynd: Nordfoto.
Hafliða og Róa
afhentverðlaunin
Tónlistar- og bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs voru afhent í gær-
kvöldi við hátíðlega athöfn í ráðhúsi
Kaupmannahafnar.
Forseti Norðurlandaráðs, Anker
Jörgensen, afhenti verðlaunahöfun-
um, Hafliða Hallgrímssyni tónskáldi
og sellóleikara, og Róa Paturssyni,
ljóðskáldi frá Færeyjum, verðlaun
sín fyrir fullu húsi gesta.
Olof Palme, föllnum forsætisráð-
herra Svía, var minnst í byrjun
athafnarinnar og minntist Bent
Nebelong, forseti borgarstjómar
Kaupmannahafnar, forsætisráð-
herrans.
Ulla Britt Edberg tónlistargagn-
rýnandi skýrði þá ákvörðun ráðsins
að veita Hafliða og Róa verðlaunin
að þessu sinni og fjallaði í ræðu sinni
um stöðu tónlistar á íslandi og í
Færeyjum.
Anker Jörgensen kvað það í ræðu
sinni skemmtilega tilviljun að þegar
verðlaununum var úthlutað síðast í
ráðhúsi Kaupmannahafnar hefðu
þau einnig fallið íslendingi í skaut,
Atla Heimi Sveinssyni tónskáldi.
Anker Jörgensen afhendir Roa Patursson bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í gærkvöldi.
Símamynd: Nordfoto.