Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1986, Page 5
DV. MIÐVIKUDAGUR 5. MARS1986.
5
Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál
- segir Ossur Skarphéðinsson, ritstjóri Þjóðviljans
- Er það ekki áfall fyrir þig að
verða fyrir þessari hörðu gagnrýni
frá Dagsbrúnarmönnum með Guð-
mund J. í broddi fylkingar? As-
mundur Stefánsson, forseti ASI,
hefur einnig tekið undir þessa
gagnrýni.
„Alls ekki. Þetta er óréttmæt
gagnrýni. Og þar að auki eðlismun-
ur á gagnrýni Ásmundar og gagn-
rýni Guðmundar. Guðmundur J.
gagnrýnir fréttaskrif blaðsins, sem
er enginn fótur fyrir að eitthvað
sé að. Ásmundur gagnrýnir hins
vegar ritstjórnarskrif blaðsins og
það er allt annað.“
- Kemur þér þessi gagnrýni á
óvart?
„Eftir að hafa verið nokkur ár í
Alþýðubandalaginu kemur mér
ekkert á óvart.“
Óttast þú ekki að þú hafir nú
glatað tiltrú verkalýðshreyfingar-
innar?
„I sögu Þjóðviljans hefur alltaf
verið nokkuð stirt samband á milli
verkalýðsforystu og Þjóðviljans.
Það kann að vera dapurleg stað-
reynd en það er samt satt. Þegar
'ég kom inn sem ritstjóri voru ekki
beinlínis heitar ástir með Þjóðvilj-
anum og verkalýðsforystunni eftir
samningana 1984 sem Þjóðviljinn
snerist mjög harkalega gegn. Þessi
gagnrýni kemur mér því ekki á
óvart og ég sef enn vel á nóttunni."
Reyndu verkalýðsforingjarnir
að stoppa skrif þín meðan á samn-
ingum stóð?
„Ekki svo ég yrði verulega var
við.“
- En samt eitthvað?
„Nei, ég held að það sé hægt að
segja að þeir hafi ekki reynt það.
Þeir eru hættir svoleiðis."
- Það var samt reynt?
„Ekki í þessum samningum."
- Hefur umfjöllun blaðsins af
samningunum vcrið villandi og
röng?
„Nei, það er bara dclla og fráleitt.
Þau dæmi, sem Guðmundur J.
rekur í einu dagblaðanna í gær.
standast ekki. Ekki eitt einasta
þeirra.“
- Þessi umfjöllun hefur þá ekki
verið siðlaus eins og Guðmundur
J. telur.?
„Nei, alls ekki. Og ég tel það
afskaplega afleitan málflutning hjá
Guðmundi að taka þannig út ein-
stakan blaðamann. Hann er raun-
verulega ekki að veitast að rit-
stjórnarskrifum blaðsins eins og
Ásmundur gerir. Hann er að veitast
að fréttaskrifum blaðsins og kallar
þau siðlaus - röng og segir að
við höfum reynt að stinga hlutum
undir stól. Þetta er algjörlega
rangt og ég er hissa á jafngeð-
prúðum manni og Guðmundur er
að láta svona frá sér fara."
Hefur afstaða þín til samning-
anna ekki endurspeglast í fréttum
blaðsinsafþeim?
„Nei. Ég var ekki með neina
fyrirfram gerða skoðun á þessum
samningum. Það er ekki fyrr en
þeir eru gerðir að afstaða mín
verður til. Við höfðum. að mig
minnir, tekið 11 sinnum viðtöl við
Ásmund Stefánsson áöur en samn-
ingar smullu saman og þau flest
á forsíðu einnig nokkur við
Guðmund J. en því miður neitaði
hann að ræða við þann blaðamann
okkar. sem var í samningunum.
þegar reynt var að hafa við hann
viðtal."
- Guðmundur J. var efstur á blaði
sem stuðningsmaður þinn í nýaf-
stöðnu forvali. Óttast þu að þessi
stuðningur sé ekki lengur fyrir
hendi?
„Ég held nú að þetta séii fyrst
og fremst samningatimburmenn
hjá Guðntundi og þeini í verkalýðs-
forystunni. Þeir eru sárir yfir því
að við tókum ekki þátt í stríðs-
dansinum kringum samningana.
En það er rétt að þa.ð hafa verið
heitari ástir með okkur Guðmundi
heldur en eru núna. Guðmundur
og ég höfum átt skap saman. mér
YFIRHEYRSLA
ARNARPÁLL
HAUKSSON
þvkir værrt um Guðmund og mér
er enn hlýtt til hans. Ég hugsa samt
að héðan í frá muni nokkuð kala
á milli vina."
- Eru þetta kolómögulegir samn-
ingar?
..Þeir eru ekki kolómögulegir. En
miðað við þær efnahagslegu for-
sendur og það bullandi góðæri. sem
þið á DV eruð alltaf að tala um.
þá hefði verið sjálfsagt að launa-
fólk hefði fengið mun meiri hlut-
deild í þjóðartekjum."
- Hvernig samning hefðir þú vilj-
að?
„Ég hefði viljaö sjá samning þar
sem kaupmátturinn hefði hækkað
miklu meira. Að því leyti finnst
mér niðurstaða samninganna vera
afleit."
- Hefði þá átt að fara út í verk-
fallsaðgerðir?
„Ég er ekki endilega að hvetja
til verkfalla því ég er svo sáttfús
að eðlisfari. Það hefði þó verið í
lagi að verkalýðshreyfingin hefði
skekið makkann með aðeins meiri
grimmúð áður en fallist var á þessa
niöurstöðu."
Þú hefur sagt að þessir samn-
ingar staðfesti kjararán ríkis-
stjórnarinnar. Er það ekki hörð
gagnrýni á verkalýðsforystuna?
„Er það rétt eða rangt? Éf ekkert
næst til baka þá hefur kjararánið
ekki minnkað og þar með er það
staðfest."
Hvernig ætlar þú að bregðast
við þessum afskiptum af skrifum
blaðsins?
„Ég held áfram að sofa vel á
nóttunni. brosa framan í konuna
rnína á morgnana og aka glaður til
vinnu. Ég get ekkert annað gert."
- Hefur þú fengið áminningu frá
útgáfustjórninni?
„Nei"
- Nú hefur gamla flokksforystan
ekki verið besti vinur lýðræðiskyn-
slóðarinnar sem þú tilheyrir. Er
ekki liklegt að hún reyni að koma
þér úr ritstjórastólnum?
„Ef menn vilja byrja kosninga-
baráttuna á þvi að reka úr rit-
stjórastóli mann. sem möguíega
verður í baráttusæti flokksins í
Reykjavík. þá eru þeir pólitískir
nefapar. Auk þess hef ég níu líf
eins og kötturinn."
- Hvernig myndir þú bregðast við
því ef nýr ritstjóri yrði ráðinn þér
til höfuðs?
„Ég á eftir að sjá þaö gerast."
- Ef þú vrðir rekinn. fer þá öll
ritstjórnin með þér?
„Við stöndum saman eða föihmi.
Málið snýst ekki bara um mig.
Þetta beinist að allri ritstjórninni.
Það má ekki heldur gleyma því að
þarna er vegið mjög ómaklega að
starfsheiðri eins tiltekins blaða-
manns sem við höfðuni í þessum
samningum. Það er talað um að
hann stingi fréttum undir stól. að
hann sé óheiðarlegur og að hann
stundi ekki starf sitt sem skvldi.
Þetta eru allt að því ærumeiðingar
að mínu mati.
Málið er auðvitað það að þeir eru
að ráðast á stefnu blaðsins sem
kemur fram í ritstjórnarskrifum.
Þeir hafa hins vegar valið þann
leiöa kost að ráðast á einn blaða-
mann. Það hefur þjappað saman
öllum blaðamönnunum á bak við
blaðið."
- Hvernig ætlið þið þá að bregðast
við þessari gagnrýni i garð þessa
blaðamanns?
„Það hafa verið nefnd ákveðin
dænti og við munum svara þeirn.
Þessi dæmi eru öll röng."
- Er Þjóðviljinn ekki málgagn
verkalýðshreyfingar og sósialisma?
„Jú. Þióðviljinn er það. Hann er
málgagn hins róttæka hluta verka-
lýðshreytíngarinnar. Það þvðir þó
ekki að við séum eitthvert tölvu-
skrímsli. sem hægt er að forrita
til að liósta upp fagnaðaróputn eftir
pöntun þegar samningar eru gerð-
ir. Viö tökum gagnrýnt á málunum.
í þetta skipti gerðum við það. \'ið
sögðum kost og við sögðunt líka
löst á þessum samningum. Þetta
þýðir þó ekki að við séurn sérstakir
málsvarar manna eins og Biörns
Þórhallssonar þó að hann sé ágaet-
ur maður og valmenni. Við erum
málsvarar róttækrar verkalýðs-
stefnu og vilium að fólkið fái
mannsæmandi laun. Þeir sem ekki
gátu lifað af laununum sinum í
fyrra geta það heldur ekki í ár eftir
þessa samninga.”
- Heldur þú að það verði áfram-
hald á þessum árásum?
„Tíminn verður að leiða það í
ljós. Það er svo með stórlaxa að
þeir þreytast fljótt á löngu sundi
en við smásilungarnir komumst að
lokum á leiðarenda."
- Færöu starfsfrið á næstunni?
„Ég veit það ekki. Hins vegar get
ég sagt það að oft á tiðum reynist
mér erfitt að sinna starfi mínu sem
ritstjóri vegna þess að maður þarf
stöðugt að vera að standa í naggi
og nöldri. innan úr flokknum og
innan úr verkalýðsforystunni. Og
sannast sagna þá er ég orðinn
hundleiður á því. Það er eins og
enginn maður megi hafa sína eigin
skoðun heldur verði að vera til
einhver löggilt skoðun á hlutunum.
Því miður gengur það ekki í nú-
tímaþjóðfelagi."
- Það er þá stundum erfitt að
vera ritstjóri á Þjóðviljanum?
„Já. það er stundum mjög erfitt
en samt það skemmtilegasta sem
ég hef gert." -APH