Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1986, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1986, Qupperneq 6
6 DV. MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 1986 Viðskipti Viðskipti Viðskipti Viðskipti Viðskipti Peningamarkaðurinn Innlán með sérkjörum Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn- stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða fullra 16 ára. 65-74 ára geta losað inn- stæður með 6 mánaða fyrirvara, 75 ára og eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarn- ir eru verðtryggðir og með 8% nafnvöxtum. Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með 9% nafnvöxtum. Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn- stæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafn- vextir eru 19,5% og ársávöxtun 19,5%. Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir 14% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mánuði án úttektar upp í 20%. Ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu er 21,55% á fyrsta ári. Búnaðarbankinn: Sparibók með sér- vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 18% nafnvöxtum og 18,8% ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð- tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 1% í svonefnda vaxtaleiðrétt- ingu. 18 mánaða reikningur er með innstæðu bundna í 18 mánuði á 19% nafnvöxtum og. 19,9% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings reynist hún betri. Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru annaðhvort með 15% nafnvöxtum og 15,6% ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3% vöxtum. Hærri ávöxtunin gildir hvem mánuð. Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging auk 1% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka má út tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án þess að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir 30.06. og 31.12. Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með 18% nafnvöxtum og 18,8‘X, ársávöxtun eða ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reiknings reynist hún betri. Afhverri úttekt dragast 1% í svonefnda vaxtaleiðréttingu. 100 ára afmælisreikningur er verðtryggö- ur og bundinn til 15 mánaða. Vextir eru 7.25*,’ó og breytast ekki á meðan reikningurinn verð- ur í gildi. Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg. fyrst 12*X), eftir 2 mánuði 13%, 3 mánuði 14*%,. 4 mánuði 15%, 5 mánuði 16%, og eftir 6 mánuði 18%, eftir 12 mánuði 18.6'%, og eftir 18 mánuði 19%. Sé ávöxtun betri á 3ja eða 6 mánaða verðtryggðum reikningum gildir hún um hávaxtareikninginn. 18 og 24 mánaða reikningar eru bundnir og verðtryggðir og gefa 7,5 og 8% vexti. Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í bankanum, nú 15,56%, eða ávöxtun 3ja mán- aða verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxt- um sé hún betri. Samanburður er gerður mánaðarlega en vcxtir færðir í árslok. Sé tekið út af reikningnurn gilda almennir sjjari- sjóðsvextir, 12%,• þann mánuð. Sé ekki tekið út allt árið greiðist 10% álag á verðbætur og vexti. Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er óbundinn. I>á ársíjórðunga sem innstæða er óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu sinni eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár- reikninga í hankanum. Nú er ái'sávöxtun annaðhvort 16,42*%, eða eins og á verðtryggð- um 6 mánaða reikningum með 2,5% nafn- vöxtum. Af úttekinni upphæð reiknast al- mennir sparisjóðsvextir. 12,5%, og eins á alla innstæðuna innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur verið út oftar en einu sinni. Inn- legg fær strax hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila ársfjórðung. Vextir færast fjórum sinnurrv á ári og leggjast við höfuðstól. Þeir eru alltaf lausir til útborgunar. Sparisjóðir: Trompreikningur er verð- tryggður og með ávöxtun 6 mánaða rfeikninga með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn 3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun með svokölluðum trompvöxtum, 16,5%, með 17,2% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn- stæðu í hverjum ásfjórðungi. Reynist tromp- vextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður inn- an mánaðar bera trompvexti sé innstæðan eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari- sjóðsvexti, 12%. Vextirfærastmisserislega. Spariskírteini Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð- um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum. Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og 100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem eru 50 þúsund að nafnverði. I>au eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Með þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, fjög- urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur. vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14 ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun er 8,16% á verðbættan höfuðstól hverju sinni og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert. Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð- stól. Gengistryggð skírteini eru til fimm ára. I>au eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til- tekin samsetning af dollar, pundi. yeni. þýsku marki og frönskum franka). Vextir eru 8.5%. Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í einu lagi við innlausn. Almenn verðbréf Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá verðbréfasölum. I>au eru almennt trvggð með veði undir 60% af brunabótamati fasteign- anna. Bréfin eru ýmist verðtrvggð eða óverð- tryggð og með mismunandi nafnvöxtum. I>au eru seld með afíöllum og ársávöxtun er al- mennt 12-16% umfram verðtryggingu. Húsnæðislán Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis- ins. F-lán. nema á 1. ársfjórðungi 1986: Til einstaklinga 782 þúsundum króna. 2-4 manna fjölskyldna 994 þúsundum. 5 manna og fleiri 1.161 þúsundum. 7 manna og fleiri (í sértilvik- um) 1.341 þúsundum. Lánin eru til 31 árs. Lán til kaupa á eldri íbúðum. G-lán. nema á 4. ársfjórðungi 1985: Til kaupa í fvrsta sinn er hámark 391 þúsund krónur til einstaklings. annars mest 195 þúsund. 2-4 manna fjölskvlda fær mest 497 þúsund til fvrstu kaupa. annars mest 248 þúsund. 5 manna fjölskylda eða stærri fær mest 580 þúsundir til fyrstu kaupa. annars mest 290 þúsund. Lánstími er 21 ár. Húsnæðislánin eru verðtrvggð með láns- kjaravísitölu og með 3.5% nafnvöxtum. Fvrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól. aðeins vextir og verðbætur. Útlán lífeyrissjóða Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt. lánsupp- hæðir. vexti og lánstíma. Stvsti tími að láns- rétti er 30-60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru á bilinu 150-1000 þúsund eftir sjóðum. starfstíma og stigum. Lánin eru verð- tryggð og með 5-8'X, vöxtum. Lánstími er 15-42 ár. Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum. Nafnvextir, ársávöxtun Nafnvextir eru vextir í eitt ár og reiknaðir í einu lagi yfír þann tíma. Séu vextir reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri en nafnvextirnir. Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 22% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tímans 1220 krónur og ársávöxtunin þannig 22*X,. Liggi 1000 krónur inni í 6 + 6 mánuði á 22‘X, nafnvöxtum reiknast fyrst 11% vextir eftir 6 mánuði. I>á er upphæðin orðin 1110 krónur. Á hana koma svo 11% vextir eftir næstu 6 mánuði. Þannig verður innstæðan í lok tím- ans 1232 krónurogársávöxtunin 23,2%. Dráttarvextir Dráttarvextir eru 2,75% á mánuði eða 33% á ári. Dagvextir reiknast samkvæmt því 0,9167%. Visitölur Lánskjaravísitala í mars 1986 er 1428 stig en var 1396 stig í janúar. Miðað er við grunn- inn 100 í júní 1979. Byggingarvísitala á 1. ársfjórðungi 1986 er 250 stig á grunninum 100 frá 1983 en 3699 stig á grunni 100 frá 1975. VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%) 01 -10.03. 1986 INNLÁN IVIEÐ SÉRKJÖRUIV sjAsérlista ll sj || íf H ií Ji II íhi INNLAN 0VERDTRYGGD SPARISJÓÐSBÆKUR Úbundin innstæða 13.0 13,0 12.5 12.0 13.0 12.0 12.0 12.0 12.5 12.0 SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsogn 14,0 14.5 14.0 13.0 13.5 14.0 13.0 12.5 14.0 13.0 6 mán.uppsogn 17,0 17.7 17.0 14.0 15,0 17.0 13.0 15.5 14,0 12 mán.uppsogn 18,5 19.4 18,5 15.0 15.0 SPARNAÐUR - LÁNSRÉTTURSparað 3 5 mán 17.0 17.0 13.5 14.0 12.0 12.5 14.0 13.0 Sp. 6mán. ogm. 17.0 17.0 14.0 15,0 13.0 14,0 TÉKKAREIKNINGAR Ávísanarf ikningar 11.0 11.0 4.0 5.0 5.0 4.0 4.0 5.0 4.0 Hiaupareiluiingar 5.0 4.0 4.0 5.0 5.0 4.0 4.0 5.0 4.0 innlAn VERÐTRYGGÐ SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsogn 1.5 1.3 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 6 mán. uppsogn 3.5 3.5 3.5 3.0 3.5 3.0 3.0 2,5 3.0 innlAn GENGISTRYGGO GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarikjadollarar 8.0 8.0 7.5 7.0 7.0 7.5 7.5 7.5 7.5 Sterlingspund 11.5 11.5 11.5 11.0 11.5 11.5 11.0 11.5 11.5 Vestur-þýsk mörk 4.5 4.5 4.0 4.0 3.5 4.5 4.5 4.5 4.5 Danskar krónur 10.0 9.5 8.0 8.0 7.0 9.0 9.0 10.0 8.0 útlAn úverðtryggð ALMENNIR VÍXLAR (forvextir) 19.5 19.5 19.5 19.5 19,5 19.5 19.5 19.5 19.5 VIÐSKIPTAVÍXLAR 2) (forvextir) kge 24.0 kge 24.0 kge kge kge kge ALMENN SKULDABRÉF 3) 20,0 20.0 20.0 20.0 20.0 20.0 20.0 20.0 20.0 VIÐSKIPTASKULDABRÉF2) kge 24.5 kge 24,5 kge kge kge kge HLAUPAREIKNINGAR VFIRDRATTUR 19.5 19.5 19,5 19.5 19.5 19.5 19.5 19,5 19.5 ÚTLÁN VERÐTRYGGÐ SKULDABRÉF3) Að 2 1/2 ári 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 Lengri en 2 1/2 ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 ÚTLÁN TIL FRAMLEIÐSLU SJANEÐANMALSI) ?■ 1) Lán til innanlandsframleiðslu eru á 19,25% vöxtum. Vegna útflutnings, í SDR 10,0%, í BandaríkjadoUurum 9,5%, í sterlingspundum 14,25%, í vestur-þýskum mörkum 6,0%. 2) Við kaup á viðskiptavíxlum og vi öski púLsk ulda bréfum er miðað við sérstakt kaup- gengi, kge, hjá þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá flestum stærstu sparisjóðunum. 3)Vaxtaalag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er 2% á ári, bæði á vefðttyggð og ó.yerðtoSK4!áp.... ■ ■ Flytjum fiskinn aftur frá Ameríku • Grandi hf. gerir tilraunir með sölu fiskrétta frá Coldwater Nú þýðir ekki lengur að hrópa „hand- ritin heim“, þau eru öll komin, sem við fáum á annað borð. í staðinn erum við byrjuð að flytja „fiskinn heim“ og étum nú íslenskan fisk, brasaðan í Bandaríkjunum, sem fæst í verslunum hérlendis. „Þetta er tilraun með svona 10 tonn,“ segir Svavar Svavarsson, fram- leiðslustjóri Granda hf„ sem flytur fiskréttina inn. „Þama er um að ræða karfa og ufsa, aðallega, sem unninn hefúr verið bæði í brauðdeig og brauð- mylsnu, liklega 4-5 mismunandi.teg- undir alls. Við erum að gera tilraun. Ætlunin er að sjá hvort fólk hér vill svona fisk. Það borgar sig ekki að setja upp tæki til þess að vinna hann nema víst sé að hann seljist." Svavar segir að kynning á þessum fiskréttum hafi ekki farið hátt. Þeir hafa verið boðnir í verslunum og mötuneytum. Þessa fyrstu sendingu á að selja upp áður en ákveðið verður um framhaldið. „Það kemur vel til greina að flytja meira inn, bæði af þessum fiski og öðrum tegundum, á meðan við erum að þreifa okkur áfram með markaðinn. Grandi hf. er, með nokkrum fleiri fyrirtækjum víða á landinu, með sér- stakt útflutningsátak. Að sögn Svav- ars er verið að kanna þá neytenda- markaði sem helst koma til greina. Hann telur líklegast að fyrir valinu verði fá lönd, en fyrirhugað er að selja þangað fiskrétti, eitthvað í líkingu við þá sem Grandi flytur nú inn frá Bandaríkjunum. Það er því sannköll- uð æfing. íslenski fiskurinn frá Bandaríkjun- um er ekki dýr þótt hann hafi hlotið verulega meðhöndlun og verið fluttur fram og til baka um langa leið. Meira að segja varð að borga af honum toll við heimkomuna. Þeir sem reynt hafa ■þennan fisk finna flestir lítið fiskbragð að honum. „Þetta er spuming um smekk og kröfur," segir Svavar Svav- arsson, „yngri kynslóðunum virðist líka þetta betur en þeim eldri, eins og til dæmis að borða fiskpylsur í brauði." HERB Einkabanki starfsmanna Miklagarðs Starfsmenn stórverslunarinnar Miklagarðs þurftu ekki að skreppa frá í banka þegar launin voru borguð út á mánudag. Bankinn kom nefni- lega til þeirra. Alþýðubankinn hafði opna sérstaka bankaafgreiðslu í Miklagarði milli klukkan 10 og 12. Verður svo fram- vegis á útborgunardögum. „Þessi þjónusta er eingöngu fyrir starfsfólk Miklagarðs. Meirihluti þess er í launareikningi hjá okkur," sagði Indriði Jónsson, aðalféhirðir hjá Al- þýðubankanum. í afgreiðslunni í Miklagarði var ásamt honum Valdís Vilhjálmsdóttir deildarstjóri. „Það er mikil ánægja með þetta. Starfsmennimir þurftu ekki að nota allan matartímann sinn til að koma til okkar,“ sagði Indriði. Um leið létti bankaafgreiðslan í Miklagarði á útibúi Alþýðubankans við Suðurlandsbraut. Það munar um að geta afgreitt 200 starfsmenn um morguninn í stað þess að fá stóran hluta þeirra í bankann í hádeginu. -KMU Kjartan Stefánsson, hinn nýi rit- stjóri Frjálsrar verslunar. GamallVísis- maðurritstjóri Frjálsrar verslunar Ritstjóraskipti hafa orðið á Fijálsri verslun. Sighvatur Blöndahl, sem verið hefur ritstjóri i tvö ár, hefur látið af störfum og Kjartan Stefánsson tekið við. Kjartan er 35 ára, fæddur og uppal- inn á Siglufirði. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1972. Hann hóf störf við blaðamennsku hjá Vísi 1977 og starfaði þar til ársloka 1979 er hann tók við ritstjórn Sjávar- frétta. Kjartan var blaðafulltrúi Versl- unarráðs Islands frá 1981 þar til hann varð ritstjóri Frjálsrar verslunar fyrir skonunu. ’ ; - -KR út Invinirvog gj'eitt-relkBÍiigaá útborgunardegUjipphafi-hvei'ainánaðar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.