Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1986, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1986, Qupperneq 7
DV. MIÐVIKUDAGUR 5. MARS1986. 7 Atvinnumál Atvinnumál Atvinnumál Atvinnumál Ef bændum fer að fækka: Skriða sem ekki verður stöðvuð „Stjómleysi hefur einkennt meðferð landbúnaðarmála mörg undanfarin ár og búmarkið, sem komið var á 1980, hefur ekki verið hagnýtt nægjanlega til stjómunar framleiðslu eða íjárfest- ingar í landbúnaði. Innanlandsmark- aðurinn íyrir landbúnaðarafurðir hef- ur dregist vemlega saman vegna minnkandi kaupgetu almennings á sama tíma og dregið hefur stórlega úr niðurskurði," segir i ályktun bændafundar sem haldinn var fyrir skömmu í Neskaupstað. Ennfremur segir í ályktuninni: „Sérstaklega for- dæmir fundurinn þær aðferðir sem beitt var við setningu fullvirðismarks, þar sem ekkert tillit er tekið til að- stæðna á einstökum svæðum en beitt köldum reikningsaðferðum við niður- skurð framleiðslunnar." í Laxárdalshreppi em bændm' einnig mjög uggandi um sinn hag. „Ef ríkis- vald og forystumenn bændastéttarinn- ar gera ekki ákveðrtar hliðarráðstaf- anir varðandi þessa nýju reglugerð bendir allt til þess að fullvirðismark svæðisins reynist hjóm eitt er fram líða stundir. Ef ekki eru gerðar ráðstafanir lýsir atvinnumálanefnd hreppsins fúllri ábyrgð á hendur þessara forystu- aðila á þeirri landauðn hér um slóðir sem af því mun leiða. Nefndin varar við þeim félagslegu afleiðingum sem fækkun hænda í Dalasýslu hefur í för með sér.“ „Skil vel sjónarmið bænda í Norðfirði“ „Norðíjarðarsvæðið kemur illa út í þessum niðurskurði,.bændur þar hafa framleitt mikið af mjólk og fengið undanþágu til þess. En það skiptir ekki miklu máli íýrir þá hvort það svæði hefði verið sérstakt svæði eða hluti af svæði Búnaðarsambands Austurlands. Þeir hefðu fengið mjög svipaðan fullvirðisrétt sem sérsvæði og þeir fá sem hluti af Austurlandi," sagði Sigurjón Friðriksson frá Búnað- Sigurjón Friðriksson frá Búnaðar- sambandi Austurlands. arsambandi Austurlands, er DV hitti hann fyrir á búnaðarþingi 1986 sem nú stenduryfir. „Með því mikilvægasta sem er að gerast á þinginu er sú stefha sem ríkir að auka stuðning við nýbúgreinar eins og loðdýrarækt. Það er þó mikið reið- arslag hversu skinnin hafa fallið í verði en ég er bjartsýnn á að það ástand lagist." Aðspurður sagði Sigurjón að bænd- ur yrðu að horfast í augu við það að framleiðslan á mjólk væri of mikil og það yrði að minnka framleiðsluna. „Af illri nauðsyn verður að skipta þessari skerðingu niður og reynt verður að að skipta fullvirðisréttinum niður á svæði eins réttlátlega og kostur er.“ Sigurjón vildi ekki kenna milliliða- kostnaði og yfirbyggingu hjá bænda- stéttinni mn hátt verff afurðanna og samdrátt í sölu. „Síðan smásöluálagn- ing var gefin frjáls hefur verðið stór- hækkað. Þetta sýnir best að frjálsræð- ið í þessum efnum getur leitt menn í ógöngur. Hvað varðar yfirbygginguna eða skipulagið á samtökum bænda eru allar hugmyndir um að sameina Sétt- arsambandið, Framleiðsluráðið og Búnaðarfélagið í eitt út í bláinn. Hver stofhun hefur sitt verksvið og allar sameiningarhugmyndir, sem hafa komið fram, hafa verið illa grundaðar. „Allt of stuttur aðlögunartími" „Auðvitað kom þessi stutti aðlögun- artími bændum á óvart. Hann var allt of stuttur .og mér lýst ekkert á þessa takmörkun. Bændur á Norðfjarðar- svæðinu koma auðvitað verst út úr þessu, þeir hafa framleitt svo mikið og verið með óskerta framleiðslu. En bændur á Austurlandi ptmennt ætla ekkert að leggja upp laupana, enda Austurland mikið kjötfram- ieiðslusvæði. Bændur kvíða því er niðurskurðurinn kemur á kjötið. Ef bændum fer hins vegar að fækka fyrir austan þá óttast ég að það fari af stað skriða sem ekki verður stöðvuð. Bændur eru svo háðir hver öðrum varðandi t.d. fjailskil og fleira,“ sagði Guttormur V. Þormar frá Búnaðar- sambandi Austurlands. Sameining stofnana bændasam takanna hefur verið rædd „Þessi niðurskurður kemur illa nið- ur á okkar litla mjólkursamsölusvæði fyrir vestan. Við verðum að hafa lág- marksframleiðslumagn af mjólk til þess að að hægt sé að halda rekstrin- um gangandi, sem er nauðsynlegt fyrir neytendur á þessu svæði. En ég hef( trú á þvi að okkar mál verði lagfærð þannig að ekki þurfi að koma til flótti úr bændastéttinni á Vestfjörðum. Ef hins vegar verður um flótta að ræða óttast ég að hann verði meira en lítill. Það eru ýmsar skyldur sem bændur verða að sinna sameiginlega, til dæmis fjallskil og fleira," sagði Össur Guð- ^NAÐAR «UG ISLANDS. Búnaóarsambcnd Búnaðarþmg t]órn Búnaðarf, SfrS"lÆ ír*t' end«rstö*““;4íír. m ín.r^ítéð { & flí* oi t li Guttormur V. Þormar frá Búnaðarsambandi Austurlands. ;T£TTAK^,‘“' sÖrmeCiÞ,crju >. Aðalfundur Stétta UiárUnn úf hverr. sys. . i Stiorn,' Skri Styrktarsjóður \ rot StéttarsafnbdndsinsK ful S}o -lul S trúar 11 ins Árbók Össur Guðbjartsson frá Búnaðarsambandi Vestfjarða. DV-myndir PK bjartsson frá Búnaðarsambandi Vest- fjarða. Össur sagði að vafalaust ætti hár milliliðakostnaður sinn þátt í háu verði á landbúnaðarafurðum. „En það er frjáls álagning á t.d. kjötinu og ekki hefur það skilað sér í lækkuðu verði til neytenda." Össur sagði að sameining hinna ýmsu stofnana bæn- dasamtakanna hefði komið til tals og verið væri að ræða ýmsa möguleika til hagræðingar í yfirbyggingunni. „Ég er þó ekki sannfærður um að hægt, sé að sameina t.d. Búnaðarfélagið, Fram- leiðsluráðið og Stéttarsambandið. En auðvitað verða bændur að nýta sér þá hagræðingarmöguleika sem fyrir hendi eru,“ sagði Össur. -KB PORTÚGAL ALGARVE Nýr, glæsilegur gististaöur í Albufeira Montechoro - ALFONSO III - ásamt þessum gömlu góðu, VILA MAGNA OG OLIVEIRAS. Fegurstu strendur Evrópu - öruggt sólskin! Fríklúbbsverö frá kr. 25.200 í 2 vikur Ferðaskrifstofan ÚTSÝN -Austurstræti 17 - Sími 2661L

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.