Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1986, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1986, Qupperneq 10
10 DV. MIÐVIKUDAGUR 5. MARS1986. Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd Einka ólympíu- mót Hollendinga Sigrún Harðardóttir, fréttaritari DV í Amsterdam: 14. ellefu borga-skautahlaup Fríslendinga var haldið í fögru vetrarveðri í síðustu viku. Þessar ellefu borgir eru Leeuwarden, þar sem keppnin hófst, Sneec, Ijlist, Sloten, Staveren, Hinderlopen, Worcum, Bolsward, Harlingen, Franker, Doccum og til baka til Leeuwarden 200 km langa leið. Skautahlaupinu er skipt i tvo hluta: annars vegar hlaup skauta- íþróttamanna, sem keppa til vinn- ings, hins vegar hlaup áhuga- manna, sem keppa fyrir ánægjuna og að einhverju leyti við skeið- klukkuna. Gamalmenni meðal þátttakenda Skráðir þátttakendur voru sautj- án þúsund, þar af 862 konur. Þónokkur íjöldi tók þátt í hlaupinu án þess að hafa tilskilin leyfi. Er- lendir keppendur voru 115. At- hyglisvert þótti að 25 karlmenn og 2 konur á aldrinum 80 til 90 ára voru skráð í hlaupið. Að þessu sinni voru um 250 skautaíþróttamenn sem kepptu um fyrsta sætið, en konurnar í þeim hópi voru tólf. Hlaupið hófst eldsnemma morg- uns eða kl. 5.15. Það var tólf stiga frost og gola. Þátttakendur skokk- uðu frá Fríslandshaal í Leeuward- en eins og hálfs km vegalengd að rasmarkinu. Keppendur fóru af stað í þúsund manna hópum með fimmtán mín- útna millibili. Fór síðasti keppand- inn út á ísinn klukkan níu. Hratt farið Skautaíþróttamenn ná upp undir sextíu km hraða á klukkustund ef þeir hafa góðan bakvind. En með- alhraði er vfirleitt um 35 km/klst. Að þessu sinni var hann ekki nema um 27 km/klst. Frosið skegg, héla í augnhárum og fingrakul háði sumum keppend- um. Heldur dró þó úr frostinu er líða tók á daginn og sólin bræddi ísdrönglana úrskeggi karlanna. Fyrstur i mark ári, Fríslendingurinn Evert Van Benthem, tuttugu og sjö ára gamall bóndi, kom fyrstur í mark á sex klukkustundum fimmtíu og fimm mínútum og sautján sekúndum. Annar varð Rein Jonker, þrjátíu og fimm ára gamall matreiðslu- maður, á sex klukkustundum fimmtíu og sex mínútum og tuttugu og sex sekúndum. Og öllum að óvörum hafnaði algjörlega óþekkt- ur skautamaður, arkitektinn Ro- bert Kampermann, í þriðja sæti, nokkrum sekúndum á eftir mat- sveininum. Fyrsta konan, sem kom í mark, var Tinece Dijcshoorn frá Suður- Hollandi. Kom hún í mark tæpri klukkustund á eftir sigurvegaran- um. Óeirðalögreglan kvödd til Nær þúsund lögreglumenn voru að störfum og 350 menn úr óeirða- lögreglunni hjálpuðu þeim. Aðal- annirnar voru að halda áhorfend- um og blaðamönnum frá lokamarki keppninnar. Á blaðamannafundi daginn fyrir keppnina hafði þó verið gefið loforð um að blaðamenn mundu komast að lokamarkinu, en það virtist eitthvað hafa farið á milli mála og lenti fréttaritari DV í ryskingum við óeirðalögregluna ásamt öðrum blaðamönnum við að reyna að ná myndum af sigurveg- urunum. Um 1450 blaðamenn, ljósmyndar- ar og sjónvarpsmenn frá ýmsum löndum fylgdust með hlaupinu. Hollenska sjónvarpið var með beina útsendingu frá klukkan fimm um morguninn til klukkan átta um kvöldið og er talið að um átta milljónir manna hafi fylgst með útsendingunni. Um allt land mátti sjá hópa fólks saman komna fyrir utan sýningarglugga sjónvarps- verslana og allmargir vlðskipta- vinir kaffihúsa og veitingastaða fylgdust með hlaupinu af skjánum á milli þess sem þeir sinntu dagleg- um störfum. Við verðlaunaafhendingu í Frís- landshaal um kvöldið skapaðist neyðarástand hjá áhorfendum vegna ölvunar og troðnings. Þurfti til að koma aðstoð hersins til þess að bera burt meðvitundarlaust fólk er í þrengslunum hafði fallið í öngvit eða troðist undir. Karnival-andrúmsloft Rúmlega ein milljón manna var komin til Fríslands til þess að fylgj- ast með hlaupinu og fjöldi lúðra- sveita lék meðfram hlaupaleiðinni við góðar undirtektir áhorfenda. Þegar kvöldið fyrir keppnina var mikill manníjöldi samansafnaður í Leeuwarden og var þar sannkölluð karnival-stemmning á götum borg- arinnar alla nóttina. Mikið var að gera hjá lögreglunni vegna ölvaðra skautadýrkenda. Síðasta lestin frá Leeuwarden til Amsterdam lagði af stað hálfri stundu eftir miðnætti á keppnis- daginn og var mikill glaumur og gleði í lestinni á leiðinni. Illa gekk að ná áfangastað og seinkaði lest- inni um rúma klukkustund vegna misnotkunar á neyðarhemlunum, en sökudólgarnir fundust að sjálf- sögðu ekki. Ellefu borga-skautahlaup Það er gömul hefð hjá Hollend- ingum að fara á milli á skautum, jafnvel milli borga, ef sikin eru lögð ísi. Fyrsta ellefu borga-skauta- hlaupið á Fríslandi, sem vitað er um, átti sér stað 1763. Þetta var öðru hvoru endurtekið allt til árs- ins 1909 að fyrsta allsherjarskauta- hlaup og keppni var formlega hald- ið. Síðastliðinn vetur var skauta- hlaupið haldið í þrettánda sinn eftir tuttugu og tveggja ára hlé. Þykir alveg einstakt að það skyldi vera mögulegt að halda keppnina aftur í ár. Þjóðaríþrótt Hollendinga Frá fjögurra eða fimm ára aldri nota Hollendingar hvert tækifæri til þess að binda á sig skautana og er ísinn oft varasamur þó að þeir hætti sér út á hann, því að þeir eiga bágt með að neita sér um að skauta. Þegar skautafæri er færist leikfimikennsla skólanna úr leik- fimisölunum og út á skautaísinn, þar sem nemendur eru blátt áfram þjálfaðir á skautum og gefnar ein- kunnir eftir árangri. Þetta skýrir þá athygli og um- fjöllun sem frísneska skautahlaup- ið vekur. Eru þetta nokkurs konar einka-ólympíuleikar Hollendinga. 13.500 luku keppni Veðurskilyrði til keppni voru að þessu sinni mjög góð. Isinn var misjafn og síðasta hluta leiðarinn- ar, 11 /2 km, var hann mjög ójafn og erfiður yfirferðar. Á sautján stöðum á leiðinni urðu keppendur ýmist að hlaupa eftir Rayon-braut- um eða þar til gerðum timburbrúm til þess að sneiða hjá hættusvæðum og var lengsta Rayonbrautin 300 metrar. Er skautahlaupinu var formlega lokið klukkan 22 höfðu sextán þúsund og fimm hundruð manns íokið keppni. Fimmtán mínútum fyrir keppnislok kom krónprins Hollendinga, Willem Alexander, í mark eftir tæpar sextán klukku- stundir. Hann var í fylgd ríkislög- reglumanns þessa 200 km og keppti undir dulnefni. Notaði hann eftir- nafn ömmu sinnar, W.A. Van Bur- en. Sigurvegari keppninnar frá fyrra Áhugamenn í skautahlaupi, á leið um eitt síkið, koma undan einni af fjölmörgum brúm á leiðinni. hann er kominn í mark og keppnin á enda. Texti og myndir: Sigrún Harðardóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.