Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1986, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1986, Qupperneq 12
12 DV. MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 1986. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Stórútsalan á Fosshálsi - DV fer í útsöluleiðangur Nú stendur yfir útsala á Fosshálsi og eru það 22 aðilar sem koma þar við sögu. Bima Eyjólfsdóttir, um- sjónarmaður stórútsölunnar, sagði að Kamabær leigði húsnæðið og fengi svo fleiri verslanir í lið með sér. Mjög mikil aðsókn hefur verið á útsöluna og sagði Bima að margir Yrsa var með sölubás á útsölunni og var þessi ungi afgreiðslumaður duglegur við að selja ýmiss konar skart og snyrtivörur, enda allt á gjafverði. Axel Ó. var með skóútsölu og var þar að finna allt frá bomsum upp í glerfína spariskó. MyndirKristján Ari. biðu gagngert eftir að hún byijaði. „Þetta em mest konur sem koma hingað og leggja mikið upp úr því að kaupa einungis það sem er hag- kvæmt og það sem nýtist vel fyrir fjölskylduna. Enda er ekki mikill vandi að klæða alla fjölskylduna fyrir lítið verð. Við geymum einnig vömr og skiptum fyrir fólk þannig að enginn þarf að vera hræddur um að sitja uppi með vömr sem hann geturekki notað.“ Eftir því sem vömúrvalð minnkar því neðar fer verðið og á hverjum degi em sértilboð á einhverri vöru og tilboðsborð em alltaf i gangi, t.d 500 krónur fyrir allar buxur og annað borð var með slíkum sem seldar vom á 200 krónur. Utsalan hefur nú staðið frá 21. febrúar og henni lýkur á föstudaginn kemur. DV fór í útsöluleiðangur og eins og myndimar sýna var einlæg út- sölugleði ríkjandi. -S.Konn. „Hvað fmnst þér að ég eigi að gera?“ Þær vom lengi búnar að velta þessu fyrir sér. Eins og sjá má á þessari mynd vom viðskiptavinir á öllum aldri á útsölunni og vefnaðarvörubásinn freistandi. Uppíýsingaseðilíj til samanbutóar á heimiliskostnaði j Hvað kostar heimilishaldið? , Vinsamlt'ga sendið okkur þennan svarseðif. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak- | andi i upplfsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaöar | fjolskvldu af sömu stærð og vðar. , | Nafn áskrifanda i Heimili Sírhi Fjöldi heimilisfólks _ Kostnaður í janúar 1986. I Matur og hreinlætisvörur kr. Annaö kr. Alls kr. I ii Dýrir bílavarahlutir Alltof dýr, segir viðskipta vinurinn. Nærri helmingi dýrari í dag, segir verslunarstjórinn Enn berast okkur fréttir af dýmm varahlutum f bíla. Nú sfðast kom maður með lítið stykki sem heitir straumstillir (cut out) sem hann taldi sig hafa greitt a.m.k. 5 þús. kr. of mikið fyrir. Þessi litli hlutur kost- aði hjá umboðinu kr. 7.580 kr. Við höfðum samband við umboðiö þar sem verslunarstjórinn varð fyrir svörum. „Þetta er laukrétt verð,“ sagði verslunarstjórinn eflir að hann hafði kynnt sér verðútreikning á þessum varahlut „Og mér sýnist meira að segja að hluturinn hafi ekki verið með fullri álagningu. Ef þessi hlutur væri pantaður inn í dag myndi hann kosta yfir 11 þúsund kr. miðað við eðlileg- an flutning. Staðreyndin er að þetta er meira en venjulegur straumstillir. Inni í þessu tæki er lítil örtölva. Þess vegna eru þessi tæki svona dýr. , Samkeppnisaðilar bílaumlxxlanna flytja inn svipaða varahluti en í flest- um tilfellum er um tvennt ólíkt að ræða og alls ekki sömu gæðin. M.a. þess vegna tekst þeim að halda verð- inu niðri en þeir sem til þekkja vita að þarna er oftast um að ræða lélega varahluti sem duga ekki til jafns við varahluti umboðanna," sagði versl- unarstjórinn. -A.Bj. Það fer ekki mikið fyrir varahlutum í bíla þótt þeir kosti sitt. DV-mynd GVA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.