Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1986, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1986, Side 15
DV. MIÐVIKUDAGUR 5. MARS1986. 15 Er stutt í jarðarför Ríkismats sjávarafurða? Undanfarið heíur mátt lesa í dag- blöðum hástemmdar yfirlýsingar frá Ríkismati sjávarafurða. Eitt dag- blaðið sagði meira að segja í fyrir- sögn að þama væri um byltingu að ræða. Slík var fyrirsögnin af þeirri nýtísku stjómun sem þama væri verið aðinnleiða. Við sem starfað höfum lengi við fiskmat og þekkjum af eigin raun þau vandamál, sem þar er um að ræða, erum undrandi yfir þessari óskiljanlegu skrúðmælgi. Hinn kaldi raunvemleiki er sá að hjá Ríkismat- inu hefur undanfarið ekki verið tekið á neinu af þeim mörgu vanda- málum er við blasa. Haldi svo fram þá er stutt í jarðarför stofnunarinn- ar, enda virðist að því stefnt. Upphafið Segja má að þessi óheillaþróun heflist er núverandi sjávarútvegs- ráðherra bar fram og fékk samþykkt á alþingi frumvarp um Ríkismat sjávaraíúrða og þar með var Fram- leiðslueftirlit sjávarafurða lagt nið- ur. Þama byrjaði skrúðmælgin um að verið væri að leggja gmndvöll að auknum gæðum sjávarafurða og að um algjör þáttaskil yrði nú að ræða í þeim efhum. Þó var aldrei hægt að fá ráðher- rann eða samstarfsmenn hans til þess að benda á neina galla í eldri lögum né heldur hvað það væri í nýju lögunum um Ríkismatið sem stuðlaði að bættu eftirliti og auknum gæðum. Margir sögðu að tilgangurinn með þessum lagabreytingum væri sá einn að gera ráðherra kleift að losna við nokkra starfsmenn Framleiðslueftir- litsins og fá þannig stöður til ráðstöf- unar. Hver var niðurstaðan? Heíúr eftir- lit og skipulag skánað? Nei, þvert á móti. Ég veit hins vegar um fjóra starfsmenn Framleiðslueftirlitsins sem ekki áttu kost á endurráðningu hjá Ríkismatinu. Þetta vom þeir fjórir starfsmenn sem vemlega menntun höfðu, þ.e. efúaverkfræð- ingur, líffræðingur, matvælafræð- ingur og matvælatæknifræðingur. Þetta vom allt hæfir og duglegir starfsmenn með mikla starfsreynslu. Þeir gegndu allir yfirmannsstörfum hjá Framleiðslueftirlitinu. Hvaða tilgangi það átti að þjóna hjá sjávarútvegsráðherra að reka best menntuðu starfsmennina skal ekki fjallað um hér. Þarna var í reynd um hreina niðurrifsstarfsemi að ræða og hefúr fiskeftirlitið ekki borið sitt barr síðan. Menntun og reynsla Ég tel að skilyrði fyrir vel reknu fiskmati sé m.a. að starfsliðið sé samsett af vel menntuðum sérfræð- ingum, ,með góða yfirlitsþekkingu annars vegar, og starfsmönnum með langa starfsreynslu við fiskvinnslu og fiskmat, sem þekkja af eigin raun starfshætti og vandamál bæði á sjó og landi, hins vegar. Ef slíkir starfs- kraftar vinna vel saman skapast öll skilyrði fyrir góðum árangri. Góður árangur næst hins vegar ekki þegar yfirmenn telja sig yfir það hafna að nýta þekkingu þrautreyndra fisk- matsmanna, eins og nú á sér stað. Þá er það athyglisvert hvað menn hafa enst stutt í forstjórastólnum í tíð núverandi sjávarútvegsráðherra. I ágúst sl. réði hann þriðja forstöðu- manninn frá því að hann ýtti for- stöðumanni Framleiðslueftirlitsins fyrst úr stólnum, tveimur árum áður. Ráðherra réði að þessu sinni náf- rænda sinn og nafúa, sem að vísu hafði aldrei komið nálægt fiskmati. Eins og ég minntist á hér að fram- an, þá streymir nú frá fiskmatsstjór- anum yfirlýsingaflóð, mjög há- stemmt, um endurskipulagningu og nýtísku stjórnun. Framkvæmdin er að þessu sinni í því fólgin að kalla fyrir sig fiskmatsmenn með langa starfsreynslu og tilkynna þeim munnlega að þeir verði reknir. Slíka fræðslu fengu yfirmatsmenn í Reykjavík, Vestmannaeyjum, á Akranesi, Siglufirði og fulltrúi í Reykjavík. Framámenn í sjávarútvegi í Vest- mannaeyjum hrugðu hart við og kröfðu fiskmatsstjóra skýringa á uppsögn yfirfiskmatsmannsins. Eyjamenn skildu ekki skrúðmælg- ina um nýtísku stjórnun, en fisk- matsstjóri varð að éta fyrri fullyrð- ingar ofan i sig, draga uppsögnina til baka og biðja um gott veður. í Reykjavík gerðust svipaðir at- burðir og í Eyjum varðandi yfirfisk- matsmann þar. Yfirfiskmatsmaðurinn, sem búsett- ur er á Siglufirði, er einn hæfasti saltsíldarsérfræðingur landsins, en það passar víst ekki inn í nýja kerfið. Yfirfiskmatsmaðurinn á Akranesi og fulltrúinn í Reykjavík hafa báðir fengið skriflegar' uppsagnir. Annar þeirra hætti með hálfs mánaðar fyr- irvara. Þeir hafa báðir starfað við fiskmat í áratugi, og annar þeirra nær hámarksaldri ríkisstarfsmanna á næsta ári. Óskiljanlegt Ég hef engan mann hitt sem skilur ástæður þessara uppsagna né þær hvatir sem að baki búa. Sagt er að sjávarútvegsráðherra afsaki sig nú með unggæðingshætti og reynsluleysi fiskmatsstjórans þegar hann lendir í vanda út af þessum málum. En stafa þessar uppsagnir þá ekki af því að verið sé að fækka fólki með bættu skipulagi? Nei, öðru nær. Á sama tíma og verið er að reka þrautreynda fiskmatsmenn er aug- lýst eftir fólki. Það er verið að segja upp fagmönnum en fjölga á skrifstof- unni. Búnar hafa verið til stöður fulltrúa fiskmatsstjóra. undirskriftastjóra útflutningspappíra, fjármálastjóra o.fl. Öllum þessum störfum gegndi skrifstofustjórinn áður og fór létt með. Sami maður gegnir enn starfi skrifstofustjóra. Fjármálastjórinn er fyrrverandi yfirkennari og skólastjóri. Gæti nokkuð verið hæft í því að maðurinn sé á vegum flokksins? Þá hefur verið mynduð enn ný a „Sagt er að sjávarútvegsráðherra af- ^ saki sig með unggæðingshætti og reynsluleysi fiskmatsstjórans þegar hann lendir í vanda út af málum þessum.“ PÉTUR H. ÓLAFSSON FISKMATSMAÐUR staða, rekstrarstjóri. Rekstrarstjór- inn á að stjórna og skipuleggja störf yfirfiskmatsmanna og ferskfiskmats- manna. Reynslulaus Samkvæmt lögum eiga fúlltrúar að stjórna vfirfiskmatsmönnum og þeir aftur að stjóma matsmönnum. Fulltmar og yfirfiskmatsmenn eru yfir 25 talsins en ferskfiskmatsmenn um 60. Rekstrarstjórinn hlýtur að vera ákaflega afkastamikill og hæfur maður að taka slíkt að sér. Sérstak- lega þar sem liggur fyrir að hann hefur enga starfsreynslu eða mennt- un á sviði sjávarútvegs. Við hvað starfaði maðurinn áður? Hann var framkvæmdastjóri F ramsóknarflokksins. Ætli stóllinn hafi verið farinn að gliðna undir honum og flokkurinn því þurt að útvega honum starf? Þá hefur það heyrst að nokkrir framsóknarmenn séu á biðlista eftir störfum. Ætli það verði því ekki sagt upp til viðbótar nokkrum revndum og hæfum fiskmatsmönnum og þannig fengnar stöður til ráðstöfun- ar. Jafnframt yrðu birtar hástemmd- ar lýsingar á því að með þessu væri verið að stuðla að auknum gæðum sjávarafurða. bættu skipulagi og nýtísku stjórnun eftirlitsins. Framsókn sér um sína. Pétur H. ÓLafsson „Blíð trú“ og raunsæ Kjallarinn EÐVARÐT. JÓNSSON I greinum, sem birst hafa í banda- rísku tímaritunum Time og News- week um ofsóknimar á hendur Bahá’íum í íran, hefur Bahá’í trúin stundum verið kölluð „blíð trúar- brögð“ („a gentle Faith“). Þama er sennilega höfð í huga sú staðreynd að írönsku Bahá’íarnir gerðu ekki tilraun til að verja sig þegar bylting- arverðir komu eftir þeim á heimili þeirra og vinnustaði og sýndu mikla rósemi og jafnvel vingjarnleik gagn- vart ofsækjendum sínum í þeim rétt- arhöldum, sem sýnd vom í sjónvarpi og vestrænir fréttamenn höfðu að- gang að. Sjálfsagt em líka hafðar í huga meginreglur Bahá’í trúarinnar, sem kenna einingu og gagnkvæma virðingu allra mannsins bama, jafn- rétti, róttláta skiptingu lífsgæða og banna um leið stranglega hvers konar ofbeldi, yfirgang og sundmng. En að kalla Bahá’í trúna „blíða trú“ segir þó aðeins hálfa söguna. Alda- gamalt misrétti, arðrán, styrjaldir og fordómar hafa kallað skelfilegar hörmungar yfir mikinn meirihluta mannkynsins. Blíðskapur má sín þvf miður lítils gegn þessu hryggilega böli. Til að fyrirbyggja atlan mis- skilning skal strax tekið fram að Baahá’í trúin tilheyrir ekki þeim trúfélögum sem bíða eftir yfimáttúr- legri íhlutun f jarðnesk málefni, alls- herjarkraftaverki sem á að frelsa heiminn frá þjáningum hans. Hafi maðurinn brotið niður og eyðilagt verður maðurinn sjálfur að byggja upp og bæta. Ávarp til þjóða heimsins I tilefúi árs friðarins, sem nú stend- ur yfir, sendi Allsherjarhús réttvís- innar f Haifa (æðsta stjórnstofnun Bahá’í trúarinnar) frá sér ávarp til allra þjóða heimsins sem sýnir vel „hina hliðina" á þessari trú, þ.e. raunsætt viðhorf hennar til þess ógnþmngna vanda sem steðjar að heimsbyggðinni og öllum íbúmn hennar, og um leið em settar fram raunhæfar lausnir á þessum vanda. A síðustu mánuðum hefur verið unnið að því að dreifa þessp bréfi, persónulega eða á annan hátt, til allra veraldlegra og andlegra leið- toga sem vilja á annað borð veita því viðtöku og til allra annarra sem vilja kynna sér innihald þess. Hvað stendur svo í þessu ávarpi? f fyrsta lagi greinir það ríkjandi klofning í málefnum manns og heims og sú greining er um leið framúr- skarandi skilmerkileg og snjöll menningarsöguleg úttekt á orsökum núverandi kreppuástands, andlegs og efhahagslegs, í lífi einstaklinga og þjóða og í alþjóðlegum samskipt- um. í öðm lagi eru gefin skýr og ótvíræð svör við spurningunni um hvert heimurinn stefnir og svarið kemur kannske mörgum á óvart: hann stefnir, þrátt fyrir allt, í átt til einingar og aukins samræmis. Segja má í stuttu máli að ávarpið fjalli um markmið mannlegrar þróunar. um öflin sem vinna með þessari þróun og öflin sem vinna gegn henni og það svarar spumingunni um hvað mun að endingu leiða mennina til þessa markmiðs og hverjir það verða sem njóta munu góðs af því. Hér er ætlunin að fjalla stuttlega um þann hluta friðarávarpsins sem lýtur að einingu þjóða heimsins. Þar er nefnilega fúllyrt að þetta sé mark- mið sem maðurinn sem tegund hafi stefnt að leynt og ljóst frá upphafi vega, óaðskiljanlegt mannlegri við- leitni og mannlegri reynslu, gnmn- stefið i trúarbrögðum mannkynsins. Þar er einnig fullyrt að einingar- hvötin sé manninum ásköpuð - hann leiti einingar af sömu knýjandi þörf og þvrstur maður vatns. Á okkar dögum birtist þessi hneigð skýrast f stofnun alls konar samtaka og bandalaga, sem hafa það að mark- miði að gæta innbyrðis hagsmuna aðildarríkjanna. Sem dæmi eru nefnd ASEAN-löndin, CARICOM, COMICON. OAU og OAS og banda- lag landa f Suður-Kyrrahafi („South Pacific Forum"). Margir hafa orðið til að neita því að einingarhvöt sé ásköpuð mannlegri viðleitni þrátt fyrir vitnisburð sögunnar um þróun- ina frá smæstu þjóðfélagseiningun- um. fjölskyldu. ættbálk. borgríki. til nútíma þjóðveldis. Þessi hugmynd um einingarhvötina sem rauðan þráð í þroska mannsins sem tegund- ar veldur þó líklega engum erfiðleik- imi nema þeim sem draga i efa tilvist fyrirbrigða eins og ..mannseðlis". ..sögulegrar þróunar" o.s.fi'v.. og þeir eru revndar ófáir. Það hafa meira að segja verið færð fram vitsmunaleg rök fyrir því að ekki sé til neitt mannkyn. Væntanlega gefst tæki- færi til þess síðar að skýra sjónarmið Bahá’í trúarinnar á þessum málum. En þeim sem efast um að mannkvnið stefni núna. eða hafi nokkru sinni stefnt. f átt til einingar má benda á reynslu þjóðanna á meginlandi Evrópu. Fyrir frönsku stjórnarbylt- inguna voru í Evrópu um 330 sjálf- stæð rfk og landsvæði. Eftir seinni heimsstyrjöldina voru ríki utan áhrifasvæðis Sovétríkjanna 18 tals- ins. Á síðustu áratugum hafa hinar stærstu og voldugustu meðal þessara þjóða stefnt að efhahagslegri sam- einingu V-Evrópu og það er sögð vera aðeins bvrjunin á því sem koma skal: Bandaríkjum V-Evrópu. Samruni þjóðanna Þótt nálega öll eining sé af hinu góða er sammni þjóðanna í mörg hagsmunasamtök ekki sú eining sem átt er við i friðarávarpi Allsherjar- húss‘ réttvisinnar. heldur er þar átt við einingu þar sem ekki lengur er neitt svigi-úm fyrir hagsmunaágrein- ing af neinu tagi - þar sem í stuttu máli hagsmunir einnar þjóðar eru hagsmunir allra þjóða. Efnahags- bandalag Evrópu stefnir að sam- ræmingu allra þeirra hagnýtu þátta sem geta auðveldað samskipti milli bandalagsrfkjanna. Eitt vegabréf og einn gjaldmiðill á t.d. að gilda yfir öll bandalagsríkin. Norræn nefnd sérfiæðinga í atvinnumálum. með forstjóra Volvo í forsæti, hefur lagt til að sams konar tilhögun verði tekin upp fyrir Norðurlöndin - þau verði gerð að einu þjóðlandi hvað snertir lýðréttindi og efnahag. Hve- nær beinum við augum okkar að heiminum sem heild? Við erum, þegar allt kemur til alls, ekki annað en ein Qölskylda, sundruð af stétta- og hagsmunaágreiningi, trúar- og þjóðernisfordómum. Stærsti hluti þessarar fjölskyldu hefúr engin mannréttindi, lifir á mörkum hung- urdauðans, hefur hvorki tækifæri til atvinnu né frumstæðustu skóla- göngu og eygir, undir núverandi kringumstæðum, enga von til betri og réttlátari lffskjara. Á meðan víg- girða ríkar þjóðir Vesturlanda sig innan bandalaga, sem í raun hafa ekkert annað markmið en viðhalda óbreyttu ástandi. Það er m.a. að þessum málum sem friðarávarp Allsherjarhúss réttvís- innar biður þjóðir heimsins, menn og konur, unga og gamla, góðfúslega að beina augum sínum. Eðvarð T. Jónsson. a „En þeim sem efast um að mannkynið ^ stefni núna, eða hafi nokkru sinni stefnt, í átt til einingar, má benda á reynslu þjóðanna á meginlandi Evrópu.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.