Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1986, Síða 20
20
DV. MIÐVIKUDAGUR 5. MARS1986.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
• Leif Mikkelsen.
„Versti dagur
Irfs míns‘
- sagði Leif Mikkeisen,
þjálfari Dana
Frá Hauki Lárusi Haukssyni, frétta-
ritara DV í Danmörku:
„Þetta er versti dagur lífs míns en
ég tel Per Fredericsen aðstoðarþjálf-
ara ekki eiga neina sök á því hvemig
fór,“ sagði þjálfari Dana, Leif Mik-
kelsen, hann hann horfði á leikinn
frá áhorfendapöllunum þar sem hann
varíbanni.
„Bæði horna- og línuspil okkar
molnaði niður í harðri íslenskri vörn
og ótti okkar um líkamlega harða
heimsmeistarakeppni varð að veru-
leika. Leikmenn mínir eru ekki nógu
stórir og sterkir og dómararnir tóku
ekki nógu hart á málunum. Þeir áttu
t.il að mynda að vísa Kristjáni Ara-
syni tvívegis af leikvelli er hann sló
Jurgen Glover í sókn íslendinga. Það
er ekki hægt að kenna dómurunum
um tapið þar sem íslendingarnir léku
mun betur 'og verðskulduðu sigur-
inn,“ sagði Mikkelsen sem var mjög
niðurlútur í búningsherbergi danska
liðsinseftirleikinn. -fros
Erfitt að
pissa
„Það gekk mjög eiiiðlega að pissa
i glasið. Ég held að allur vökvinn
hafi verið farinn úr likamanum,11
sagði fyrirliði landsliðsins, Þorbjörn
Jensson í samtali við DV i gærkvöldi
en eftir leik íslands og Danmerkur
voru hann og Þorbergur Aðalsteins-
son kallaðir í lyfjapróf.
Eins og fram hefur komið hér í DV
er vandlega fylgst með lyfjanotkun
leikmanna þeirra liða sem hér leika
í Sviss og íslensku leikmennirnir
hafa ekki farið varhluta af því. Áður
voru þeir Guðmundur Guðmundsson
og Bjarni Guðmundsson boðaðir ti.
lyfjaprófs eftir leikinn gegn Tékkum
í forkeppninni. -SK.
Everton í
6. umferðma
Frá Sigurbimi Aðalsteinssyni,
fréttamanni DV á Englandi:
Everton tryggði sér í gærkvöldi
rétt í 6. umferð ensku bikarkeppn-
innar, þegar liðið sigraði Tottenham,
2-1, í gærkvöldi. Sanngjarn sigur
Everton, Englandsmeistaramir réðu
lengstum gangi leiksins. Þó slasaðist
fyrirliðinn, Kevin Ratcliffe, í fyrri
hálfleik. Kendall stjóri beið með það
í átta mínútur að setja varamann ínn
á. Það gerði hann svo og það var
einmitt varamaðurinn, Adrian He-
ath, sem skoraði fyrsta mark leiksins
á 50. mín. Á 73. mín. komst Everton
í 2-0 með marki Gary Lineker. Mark
Falco minnkaði muninn á 79. mín.
og lokakaflann reyndi Tottenham
mjög að jafna. Það tókst ekki og í
6. umferð leikur Everton á útivelli
annað hvort við Arsenal eða Luton.
hsím
ISLENDINGAR RÚLLUDU DÖNUM UPPÁHM
Verður draumurinn um i
píuleikunum 1988að \
ísland hefur góða möguleika á að leika um fimmta sætið á HM
Frá Stefáni Kristjánssyni, blaða-
manni DV á HM í Sviss:
Eftir langstærsta sigur Islands á
Danmörku á erlendri grund eru
miklir möguleikar á því að íslenska
landsliðið leiki hér um 5.-6. sætið og
er það vissulega frábær árangur sem
fáir hefðu látið sig dreyma um fyrir
keppnina svo ekki sé talað um stöðu
mála eftir tapið í fyrsta leiknum gegn
Suður-Kóreu. Miklir möguleikar eru
á að ísland hafi tryggt sér sæti á
ólympíuleikunum í Seoul 1988 með
þessum sigri.
íslenska landsliðið hefur aldrei
sýnt eins góðan leik og í gærkvöldi í
síðari hálfleik gegn Dönum. íslend-
ingar léku handknattleik eins, og
hann gerist bestur og Danir vissu
hvorki í þennan heim né annan. Eftir
að staðan í leikhléi hafði verið jöfn
skoruðu íslendingar 15 mörk í síðari
hálfleik gegn aðeins 6 mörkum Dana
og það segir það sem segja þarf.
Leikur Islendinga og Dana í gær-
kvöldi var merkilegur fyrir margra
hluta sakir. Eins 'og áður sagði er
þetta stærsti sigur sem við höfum
unnið gegn Dönum á erlendri
grundu. Þetta var annar stærsti sig-
ur á Dönum frá upphafi og fyrsti
sigur okkar á Dönum í heimsmeist-
arakeppni og öðrum álíka stórmót-
Og það leyndi sér ekki að íslenska
landsliðið hafði unnið snilldarafrek
í gærkvöldi þegar flautan gall til
merkis um leikslok. í annað sinn í
þessari keppisferð sturluðust allir
Islendingar sem í Almend Festhallen
STEFÁN
H W KRISTJÁNSSON
, *** _ • mMlm BLAÐAMAÐUR
I | DV SKRIFAR
FRÁHM í SVISS
* &
í Luzern voru. Fjölmargir Islending-
ar fylgdust með leiknum og hávaðinn
og hvatningaróp þeirra jöfnuðust
fyllilega á við stemmninguna í Laug-
Þegar betri arangur
en reiknað var með
raunhæft að ætla að Island leiki um 5.-6. sætið
„Fyrir heimsmeistarakeppnina var stefnt
að sæti á næstu ólympíuleikum og eftir
sigurinn í kvöld er ekki hægt annað en vera
bjartsýnn á að það takist,” sagði Jón Hjal-
talín Magnússon, formaður HSl, eftir leik-
inn gegn Dönum.
„Þetta var fráhær leikur hjá íslenska liðinu,
vörnin var mjög góð svo og markvarslan og svo
var mjög gaman að sjá Þorgils Ottar í slagnum
á ný,” sagði Jón Hjaltalín.
fram og við ætlum okkur til Seoul á næstu
ólympíuleika," sagði Þorgils óttar Mathiesen.
„Gaman að þessu”
„Það var mjög gaman að koma inn í þetta
aftur og þessi sigur þjappar okkur enn betur
saman fyrir leikinn gegn Svíum. Árangur okkar
hér er þegar orðinn betri en búist var við fyrir-
ISLAND LEIKUR UM
VERDLAUNASÆTI
- segír Erik Veje Rasmussen
„Þessi stórgóði leikur íslenska liðsins
kom okkur í opna skjöldu og þá sér-
staklega leikur liðsins í síðari hálf-
leik,” sagði Erik Veje Rasmussen,
stórskyttan i liði Dana sem leikur
með Vfl Gummersbach í Vestur-
Þýskalandi, eftir leikinn í gærkvöldi.
„Það er mikið áfall fyrir danskan
handknattleik að við skulum þurfa
að leika i næstu b-keppni eins og
allt bendir til. Við höfum leikið mjög
illa í þessari keppni og vissulega eru
það mikil vonbrigði en ég vil ekki
segja að þessi úrslit gegn jslandi í
kvöld þýði nánast dauða fyrir
danskan handknattleik. Hitt er ljóst
að íslenska liðið lék geysilega vel og
það var engin skömm að tapa fyrir
því. Ég spái því að ísland vinni Sví-
þjóð og lendi í því að leika um verð-
launasæti hér í Sviss,” sagði Erik
Veje. -SK
„Raunhæft aö tala um 5.-6.
sæti”
„Eftir þennan rosalega sigur er raunhæft að
tala um að íslenska liðið lendi í 5. eða 6. sæti
þegar upp verður staðið. Síðari hálfleikurinn
er það langbesta sem ég hef séð til landsliðsins
frá upphafi," sagði Gunnar Kjartansson dóm-
„Þetta var ævintýralegur sigur og ég verð
að segja eins og er að ég bjóst aldrei við svona
stórkostlegum sigri íslenska liðsins. Við eigum
stóran möguleika gegn Svíum og ég spái því
að við vinnum tveggja marka sigur. Eftir þessi
úrslit yrði draumaendir að lenda í 5. eða 6.
sæti," sagði Rögnvald Erlingsdómari.
Bogdan erfrábær
„Það er greinilegt að íslenska landsliðið er í
mjög góðri æfingu og það er einnig ljóst að það
er 100% rétt sem Bogdan landsliðsþjálfari hefur
verið að gera. Ef við vinnum Svía leikum við
um bronsverðlaunin en ef við töpum og Ung-
verjar vinna Suður-Kóreu þá er öruggt að.við
leikum um 5. 6. sætið,” sagði Þórður Sigurðs-
son í farastjórn HSÍ.
„Það var hugsanlega mjög sálrænt fyrir okkur
að fá Þorgils Óttar í liðið á ný. Við vorum mjög
óheppnir í fyrri hálfleik en í síðari hálfleik
náðum við áð teygja vel á vörn Danaima.
Michael Fenger tók mig mjög stíft í horninu
og við það losnaði vel um Atla sem blómstraði
í síðari hálfleik eins og Einar Þorvarðarson,”
sagði Guðmundur Guðmundsson. -SK
„Átta ára vera Dana
á toppnum á enda
- skrifaði danska blaðið Aktuelt
Frá Hauki Lárusi Haukssyni, frétta-
ritara DV í Danmörku:
„Átta ára vera Dana á handknatt-
leikstoppnum er á enda,“ sagði
danska blaðið Aktuelt eftir sigur ís-
lendinga á Dönum í gærkvöldi.
Blaðið segir: „Vonlaus síðari hálf-
leikur þar sem liðsheildin brotnaði
algjörlega gegn baráttuglöðum ís-
lendingum orsakaði stóran skell
gegn Islandi eftir að Danir höfðu
leikið ágætlega í fyrri hálfleik. Blað-
ið sér ekki ástæðu til þess að hrósa
nema tveimur leikmönnum Dana
fyrir frammistöðuna, þeim Morten
Stig Christiansen og Michael Fen-
ger.
Grófir íslendingar
Það heyrir til undantekninga að
Danir kvarti ek’ki undan grófum Is-
lendingum og blaðið segir að sóknar-
leikmenn Dana hafi hreinlega
kvarnast í íslensku vörninni. Einna
harðorðastur er Jens Eric Roepstoerf
er sagði: „Þegar maður keyrði inn í
íslensku vörnina var maður bara
sleginn. Þeir reyna ekki að halda
manni. Þeir bara slá.“
Þrátt fyrir neikvæðan tón Dana
mátti sjá það fyrir leikinn að þeir
voru við hinu versta búnir. Mikið
var skrifað um stórskytturnar Kristj-
án Arason, Atla Hilmarsson og Sig-
urð Gunnarsson og danska sjón-
varpið sýndi fyrir leikinn í gær syrp-
ur með þeim þremenningum auk þess
sem sýnt var frá markvörslu Einars
Þorvarðarsonar. Þá hættu Danir við
að sýna leikinn beint eins og til stóð,
sýndu þess í stað aðeins kafla frá
leiknum.
Dæminu snúið við
Sjónvarpsþulurinn danski sagði í
lok útsendingarinnar að nú væri
dæminu snúið við. - Nú gætu Danir
farið að læra af Islendingum. Þeir
væru ekki bara baráttuglaðir eins
og alltaf. Þeir væru virkilega farnir
að leika góðan handknattleik.
Þess má í lokin geta að tapið kemur
að öllum líkindum til með að hafa
afdrifaríkar afleiðingar fyrir Dani.
Flestallt bendir til þess að liðið þurfi
að leika í næstu b-keppni og taka
þátt í undankeppninni fyrir ólymp-
íuleikanaíSeoul. -fros
ardalshöllinni þegar hún er sem best.
Það var eins og íslenska liðið væri
að leika á heimavelli og ekki heyrðist
stuna né hósti frá þeim Dönum sem
í höllinni voru. Gleðin í lokin var
hreint ólýsanleg og það er ekki laust
við að maður verði hálfklökkur
þegar hugsað er til þess möguleika
að íslenska landsliðið leiki um verð-
launasæti í þessari heimsmeistara-
keppni. En það má ekki gleyma því
að leikurinn gegn Svíum er eftir og
hann skiptir okkur öllu máli.
Stórkostlegur árangur
Nú þegar hefur íslenska landsliðið'
náð hreint frábærum árangri hér í.
Sviss. Liðið hefur sýnt það svo ekki.
verður um villst að það er í feikna- ■"
lega góðri æfingu og í betri æfingu;
en mörg lið sem hér leika. Það komí
á daginn, sem margir sögðu fyriri
þennan leik, að Danirnir höfðu ekki;
úthald í nema rúmlega einn hálfleik;
Lístvel
Gummc
-segirKristj
„Jú, það er rétt að forráðamenn
Gummersbach ætla að ræða við mig
en það er of snemmt að segja til um
hvort ég fer til liðsins. Það verður
Fimmtán |
Þrátt fyrir að rúmlega 900 áhorf-
endur hefðu verið í Almend Fest-
halle í Luzern í gærkvöldi yfir-
gnæfðu hvatningaróp íslensku
áhorfendanna öll önnur hróp og
Leikurin
Árangur íslensku leikmannanna
gegn Dönum í gær var frábær í sókn
og vörn. Markavarsla Einars Þor-
varðarson glæsileg í siðari hálfleik.
ísland átti 43 sóknir og skoraði 25
mörk eða 58% sóknarnýting. Árang-
ur einstakra leikmanna.
• Atli Hilmarsson skoraði átta
mörk í 11 skottilraunum. Átti tvær
línusendingarsem gáfu mörk. Tapaði
knetti einu sinni.
• Kristján Arason skoraði sex mörk
úr 12 skottilraunum. Eitt úr víta-
kasti, misnotaði annað. Glataði
knetti einu sinni.
• Páll Ólafsson skoraði 4 mörk úr
6 tilraunum. Fiskaði eitt víti, tappði
knetti einu sjnni.
• Þorbergur Aðalsteinsson skoraði
2 mörk úr 2 tilraunum.
• Bjarni Guðmundsson skoraði 2
mörk úr 3 tilraunum. Fiskaði eitt