Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1986, Síða 22
22
DV. MIÐVIKUDAGUR 5. MARS1986.
íþróttir íþróttir íþróttir Iþróttir
%
• Garth Crooks.
Crooksá
sölulista
-ogeinnig Mickey
Thomas
„Ég tel það ekki rétt hjá at-
vinnumönnum að búa langt frá
félagi því sem þeir leika með. Ég
hef rætt við leikmennina tvo og
beðið þá að flytja hingað. Þeir
neituðu og því hef ég sett þá á
sölulista," sagði Brian Saunders,
stjóri botnliðs WBA, í West
Bromwich í gær.
Leikmennirnir tveir eru Garth
Crooks, sem WBA keypti frá
Tottenham fyrr á leiktímabilinu,
og Mickey Thomas, landsliðs-
maðurinn kunni hjá Wales. Hann
býr í Norður-Wales en Crooks í
Lundúnaborg. Þeir eru meðal
bestu og þekktustu ieikmanna
WBA og liðið má illa við að vera
án þeirra. Þeir vilja hins vegar
ekki flytja til Birmingham eða
nágrcnni þessarar annarrar
stærstu borgar Englands. West
Bromwich útborg Birmingham.
Saunders hefur alla tíð verið
mjög strangur stjóri og var ekk-
ert að hika við að setja leikmenn-
ina á sölulista þegar þeir neituðu
ósk hans.
hsím
hsim
Heimsmet
Austur-þýska sundkonan
Sylvia Gerasch setti heimsmet i
200 m bringusundi nýlega í
landskeppni við Sovétrikin
Leningrad, synti vegalengdina á
2:28,20 mín. Eldra heimsmetið,
sem Silke Hörner, A-Þýskalandi,
átti, var 2:28,33 mín., sett í Leipzig
í júní 1985.
hsím
Allgottá
sprettinum
Allgóður árangur náðist í
spretthlaupum á IR-móti innan-
húss í síðustu viku. Jóhann
Jóhannsson hljóp 60 m á 5,9 sek.
Þórður Þórðarson og Jón Leó
Ríkharðsson komu næstir á 6,0
sek. Þórður sigraði í 50 m grinda-
hlaupi á 7,1 sek. Grettir Hreins-
son annar á 7,4 sek. I þrístökki
sigraði Jóhann Ómarsson, stökk
13,32 m. Jóhann Jóhannsson
annar með 13,01 m. í 5o m hlaupi
kvenna sigraði Eva Sif Heimis-
dóttir á 6,8 sek. Guðbjörg Svans-
dóttir önnur á 7,0 sek. og Guðrún
Valsdóttir þriðja á 7,1 sek.
Haukamir fara í úrslitin
gegn UMFN
- unnu sigur á Val í þriðja leik liðanna um
gærkvöldi 81-76
Haukar tryggðu sér í gærkvöldi
réttinn til að leika til úrslita i úrvals-
deildinni gegn Njarðvík er liðið vann
sigur á Val, 81-76, í íþróttahúsinu í
Hafnarfirði í gærkvöldi. í leikhléi
hafði Valur eins stig forskot, 42-41.
Það var allan tímann mikill hasar
í leik liðanna. Valsmenn leiddu oft-
ast en annars munaði alltaf mjóu á
liðunum, einu stigi munaði í leikhléi
eins og áður sagði.
Valsmenn juku við forskotið í
byrjun síðari hálfleiksins og komst í
48-43 en þá fóru Haukar, með Henn-
ing Henningsson í fararbroddi, að
sýna sitt rétta andlit. Liðið komstí
54-51 og skömmu síðar náði liðið
fimmtán stiga forystu, 68-53, og eftir
það voru Haukarnir alltaf í forystu.
Undir lokin munaði fjórum stigum í
stöðunni 76-72 áður en Haukar juku
muninn í 81-74 en lokatölur voru sem
áður sagði 81-76.
I liði Hauka áttu þeir ívar Webster
og Ólafur Rafnsson báðir mjög góðan
leik. Henning átti góðan sprett í
síðari hálfleiknum er Haukar náðu
yfirhöndini en hann var þá mjög
skæður í hraðaupphlaupum Hauka.
Þá var Kristinn Kristinsson sterkur
undir körfunni.
Með þessu tapi lendir Valur í 3.-4.
sæti á Islandsmótinu ásamt Keflavík
er tapaði viðureignum sínum við
Njarðvíkinga. Liðið kom á óvart í
þessum leikjum gegn Val með mjög
góðri frammistöðu en herslumuninn
vantaði. Þeir Tómas Holton og
Kristján Ágústsson áttu mjög góðan
leik og þá komust þeir Leifur Gúst-
afsson og Torfi Magnússon vel frá
sínu.
úrslitasæti í
Stig Hauka: ívar W. 23, Ólafur
Rafnsson og Henning Henningsson
15, Pálmar 14, Kristinn Kristinsson
12, Eyþór Árnason 2.
Stig Vals: Kristján Ágústsson 20,
Tómas Holton 14, Leifur Gústafsson
13, Torfi Magnússon 12, Jóhannes
Magnússon 6, Einar Ólafsson 5, Jón
Steingrímsson 4, Páll Arnar 2.
Þeir Ómar Scheving og Kristbjörn
Albertsson dæmdu leikinn ágætlega.
-fros
adidas"
• íslandsmeistarar Fram í 1. deild körfuboltans ásamt aðstoðarmönnum. Liðið mun á næsta hausti taka sæti ÍR í úrvalsdeildinni,
DV-mynd S,
FER SIGURÐUR BJ. í
LANGT KEPPNISBANN?
- fyrir að sparka í dómara í æfingaleik ÍBK og Breiðabliks
Sigurður Björgvinsson, knatt-
spyrnumaður úr Keflavík, verður að
öllum líkindum dæmdur í keppnis-
bann, jafnvel langt, fyrir að sparka í
dómarann, Gunnar Jóhannsson.
Atvikið átti sér stað í æfingaleik
Breiðabliks og Keflavíkur i Kópavogi
um helgina.
„í fyrri hálfleik áminnti ég Sigurð
Björgvinsson, leikmann í Keflavík,
fyrir að mótmæla dómum mínum. I
síðari hálfleik heyrðist mér síðan
Sigurður hvetja samherja sína til
Frá Hauki Lárusi Haukssyni, frétta-
ritara DV í Danmörku:
Það var allra mál að Dönum hefði
tekist að stöðva Kóreumenn með því
að klippa hornamenn þeirra út.
Samtímis fengu báðir hornamenn
Dana, Michael Fenger og Keld Niel-
sen, að leika lausum hala hinum
þess að sparka í andstæðinga. Bolt-
inn var ekki í leik. Þá sneri ég mér
til þjálfara IBK en samkomulag hafði
verið gert um það við þjálfara beggja
liðanna að ef ég sæi ástæðu til að
vísa mönnum af velli þá mætti setja
nýjan leikmann inr, á í staðinn. Sig-
urður var ekki sáttur við þetta og
sparkaði fast í mig. í búningsher-
bergi eftir leikinn bað hann mig
síðan afsökunar." Þessa skýrslu hef-
ur Gunnar þegar sent til aganefndar
KSÍ og til Ungmennasambands Kjal-
arnesþings.
megin á vellinum. Þeir tveir skoruðu
samtals nítján mörk i leiknum og er
það ekki síst að þakka undirbún-
ingsvinnu Morten Stig Christensen
en hann sýndi sínar sterku hliðar
sem stjórnandi spilsins. Leiknum
lyktaði með sigri Dana sem kunnugt
er, 31-27. -fros
Sigurður í langt bann?
Það er ekki að efa að Sigurður
getur fengið þungan dóm fyrir brot
sitt. Svo gæti jafnvel farið að hann
fengi ársbann frá knattspyrnu. For-
dæmi eru fyrir því, bróðir hans,
Björgvin, fékk ársbann fyrir að rota
dómara í leik í litlu bikarkeppninni
fyrir tveimur árum og Sigurður gæti
hæglega fengið sama dóm. Það yrði
óneitanlega mikið áfall fyrir Kefla-
víkurliðið sem og Sigurð sjálfan sem
vitanlega sparkaði í Gunnar í
stundaræði.
Það verður að teljast lán í óláni
að ekki fór verr í þetta sinn því
Gunnar hafði nýlega gengist undir
aðgerð á fæti. Til allrar lukku var
það þó ekki sami fóturinn og Sigurð-
ursparkaðií.
“Ég tel líklegt að málið verði tekið
fyrir á miðvikudaginn í næstu viku
í framhaldi af stjórnarfundi. Ég hef
ekki náð að kynna mér málið til
hlítar og get ekki sagt á þessu stigi
málsins hvort málið á heima hjá
okkur en við munum alla vega ræða
það,“ sagði Garðar Oddgeirsson,
formaður aganefndar KSÍ, í samtali
í gær. - frös'
i Samvinnuferöir ,
Landsýn
• SigurðurBjörgvinsson.
Lausnin fundin
við leik Kóreu?