Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1986, Page 31

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1986, Page 31
DV. MIÐVIKUDAGUR 5. MARS1986. 31 Sandkorn Sandkorn Eysteinn Helgason Íhaldið hjá Sambandinu Það er ótrúlegt en satt að allmargir íhaldsmenn hafa komist til valda og metorða innan Framsóknarvígisins Samvinnuhreyfingarinnar. Þetta kemur fram í ítar- legri grein í tímaritinu Þjóðlífi sem lítur dagsins ljós í lok vikunnar. Þar er gerð ítarleg úttekt á SÍS og stjórnendum þess, t.a.m. bakgrunni þeirra. Og þar kemur ýmislegt sérkenni- legt í ljós. Það er langt frá því að allir frammámenn í SIS séu bornir og barnfæddir í hreyfingunni. Til dæmis eru nefnd dæmi um Eggert Á. Sveinsson, fram- kvæmdastjóra fjárlaga- deildar SÍS. Hann var áður hjá Hagvangi og er fyrrver- andi stjórnarmaður í Heimdalli. Eysteinn Helga- son, verðandi fram- kvæmdastjóri hjá Seafood Corporation, var vel virkur í Vöku i Háskólanum. Auglýsingastjóri Sam- bandsins, Guðmundur Jónsson, er í stjórn fulltrú- aráðs sjálfstæðisfélaganna i Reykjavík. Hann var blaðafulltrúi hjá banda- ríska hernum í „den“. Og María Ingvadóttir, formað- ur Hvatar, er nýlega byrjuð að starfa hjá hagdeild SÍS. María er viðskiptafræðing- ur að mennt og á sjálfsagt eftir að klifra upp stigann. Merkilegt - ekki satt. Kjaftfor krakki Að þessu sinni er það austfirska blaðið Þingmúli sem léttir okkur lifið: Margir hafa munninn fyrir neðan nefið, þótt ekki séu þeir háir í loftinu. I skóla einum átti kennari í erfiðleikum með að kenna snáða nokkrum margföld- unartöfluna. Þráspurði hann drenginn hvað 2x6 væri mikið. Eitthvað mun stráksi hafa verið orðinn leiður á þrasinu í kennar- anum því hann þeysti út úr sér: „120 - ef þú bætir sjálf- um þér aftan við útkom- una.“ Útvilek Það getur stundum verið giftu fólki þraut og pína vilj i það fara út að skemmta sér þegar betri helmingurinn kýs að vera heima. Svona tilfelli koma víst alltaf upp öðru hveiju. Þau leysast yfirleitt þannig að báðir helmingarnir hanga heima. En sumir eru ráðabetri en aðrir. Sú var raunin með ungu konuna sem langaði þessi ósköp að fara út að skemmta sér eina helgi fyrir stuttu. En kallinn sagði nei! Kvöldið skyldi tekið rólega og punktum og basta. Eiginkonan hafði ekki mörg orð um málið. En með kvöldkaffinu bar hún bónda sínum samloku með dýrindis salati. Hann hám- aði þetta í sig og féll i fasta- svefn skömmu síðar. Kon- an dreif sig aftur á móti í sparigallann og skellti sér á ball. Þar dansaði hún áhyggjulaus fram á nótt, enda hafði hún mulið góðan slurk af svefntöflum og sett saman við salatið í brauði eiginmannsins. Hann, aftur á móti, svaf svefni hinna réttlátu langt fram á næsta dag. Gljúfrasteinn á listanum Listi Alþýðubandalagsins í Mosfellssveit fyrir kom- andi sveitarstjórnarkosn- ingar hefur nú verið skip- aður. Ekki verður annað sagt en að Gljúfrasteinn setji svip sinn á hann að þessu sinni. í öðru sæti list- ans er Sigríður Halldórs- dóttir Laxness. Heiðurssæti hans skipar svo Auður Sveinsdóttir Laxness á Gljúfrasteini. Auður Laxness Næturlífíð lokkar. Skreið inn á húsfreyju Og enn höldum við okkur við sögurnar úr næturlif- inu. Áð þessu sinni er komið við í Sandgerði: Að sögn Víkurfrétta fékk húsfreyja nokkur óvenju- lega heimsókn á dögunum. Konan, sem býr ein með dóttur sinni á jarðhæð, varð vör við það að maður stóð yfir henni þegar hún vaknaði rétt fyrir klukkan sex um morguninn. Kon- unni brá að vonum og hafði maðurinn sig þá hið skjót- asta í burtu. Lögreglunni var að sjálf- sögðu tilkynnt um atburð- inn. Er hún kom á staðinn voru augljós verksum- merki eftir manninn. Hann hafði spennt um læsingar- járnið á glugganum til þess að geta skriðið inn. Slíkur var hugurinn. Umsjón: Jóhanna S. Sigþórsdóttir. Kvikmyndir__________Kvikmyndir REGNBOGINN - MADUR OG KONA HVERFA Draumur um veruleika? ★ ★★ Charlotte Rampling og Michel Piccoli í hlutvcerkum sínum. Maður og kona hverla (Viva la vie). Leikstjóri: Claude Lelouch. Aðalleikarar: Charlotte Rampiing, Michel Piccoli, Jean-Louis Trintignant og Charles Aznavour. Það má með sanni segja að Claude Lelouch komi á óvart með tuttug- ustu og sjöttu kvikmynd sinni, Maður og kona hverfa. 1 tæpan aldarfjórðung hefur hann verið boð- beri rómantikurinnar í frönskum kvikmyndum og hefur árangurinn í heild satt að segja verið misjafn. I flestum mynda sinna hefur Lelouch yfirkeyrt með sykursætri tónlist og fagurri en leiðigjamri myndatöku. Nokkrar hafa samt vakið athygli og sú frægasta er vafalaust þriðja mynd hans, Maður og kona (Un homme et une femme), sem hann gerði 1966. Sú mynd hlaut almennar vinsældir og ýmis verðlaun að verðleikum, þótt ekki geti ég neitað að mér fannst aldurinn hafa farið nokkuð illa með hana þegar ég.sá hana í sjónvarpinu fyrir stuttu. Allar götur síðan hefur Claude Lelouch verið einn vinsæl- asti leikstjórinn í Frakklandi. Nú, í Maður og kona hverfa tekst Lelouch á við viðfangsefni sem erfitt er að úskýra svo vel fari. I byrjun myndarinnar hverfur þekktur mað- ur i París. A sama tíma hverfur ung og efnileg leikkona. Engin skýring er á hvarfi þeirra og í fyrstu eru þau ekki tcngd saman. Bæði koma þau aftur fram á sjónarsyiðið eftir tvo daga og geta ekki gefið skýringar á hvarfi sínu. Þau hverfa jafnharðan aftur. Hér er komið, að því er virðist, efni í sakamálamynd. Svo einfalt er það nú ekki. Þau birtast aftur, þá bæði með höfuðumbúðir og geta sem fyrr ekki gefið skýringu á hvarfi sínu. Málið vekur þjóðarathygli og ekki minnkar spenningurinn þegar þau fara að gefa út yfirlýsingar um tor- tímingu jarðarinnar. Erum við hér komin í vísindaskáldskap með boð- skap? Kannski á yfirborðinu, en það eru jarðbundnar skýringar sem koma upp á yfirborðið þegar liður á myndina, þótt langsóttar séu. Og þegar áhorfandinn heldur að hann sé búinn að fá botn í málið kollsteyp- ist söguþráðurinn og áhorfandinn situr uppi með ósköp venjulega skýringu, eða hvað...? Það má með sanni segja að Claude Lelouch sé alltaf að koma áhorfand- anum á óvart í Maður og kona hverfa. Hann byrjar með því að koma fram sjálfur í byrjun myndar- innar og gefa áhorfendum smáágrip af þvi hvað muni gerast en eftir það verður áhorfandinn að treysta á eigin dómgreind og athygli. Maður og kona hverfa er um margt merkileg kvikmynd þótt ég telji Lelouch hafa færst of nukið í fang. Boðskapurinn er margþættur og sjálfsagt eru ekki allir sammála imi gildi hans. Myndin er i heild helj- armikið púsluspil sem erfitt er að koma saman. Claude Lelouch hefúr þó gert kvikmynd sem ekki gleymist svo létt. Hilmar Karlsson. ★★★★ Frábær ★★★ Góð ★★ Miðlungs ★ Léleg 0 Afleit Skrifstofuhúsnæði óskast Skrifstofuhúsnæði óskast strax eða sem fyrst í Reykja- vik. Þarf að vera 60-80 fermetrar. Upplýsingar í síma 651182. Markús Jóhannesson VÉLRITUN KVÖLDNÁMSKEIÐ Námskeiðið hefst mánudaginn 10. mars og stendur yfir í 5 vikur. Kennt verður á mánudögum, miðvikudögum og fimmtudögum frá kl. 19.10-20.30. Samtals 30 kennslustundir. Á námskeiðinu verður lögð áhersla á að kenna blind- skrift og undirstöðuatriði í vélritunartækni. Þátttaka tilkynnist í síma 688400, Verzlunarskóli Íslands, Ofanleiti 1, Reykjavík. Ath. Starfsmenntunarsjóðir ríkisins, Reykjavíkurborg- ar og VR styrkja félagsmenn sína til þátttöku á nám- skeiðinu. ffiTA TiMrA fttTA TTA Nýtt símanúmer frá 1. mars 1986 O JÓHANN ÚLAFSSON & C0. HF. 43 Sundaborg 13 - 104 Reykjavík - Sími 688 588

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.