Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1986, Qupperneq 8
8
DV. MÁNUDAGUR 28.APRÍL 1986.
Utlönd
Utlönd
Utlönd
Utlönd
Sprengja við sendi-
ráð USA í Mexíko
SérfrEeðingum tókst að gera
óvirka sprengju sem fannst í bif-
reið fyrir utan sendiráð Banda-
ríkjanna í Mexíkóborg. Áður
hafði verið hringt í dagblöðin af
aðilum sem sögðust vera fyrir
„Simon Bolívar-fylkingunni“, en
hún hefur ekki heyrst nefnd áð-
ur. Var sagt að sprengja væri í
þann veginn að springa við
sendiráðið og væri það hefhd fyr-
ir loftárás Bandaríkjamanna á
Líbýu. Er nú vakinn kvíði fyrir
því að heimsmeistarakeppnin í
knattspymu, sem hefst í Mexíkó
í næsta mánuði, verði vettvangur
fyrir hryðjuverk.
Spánverjar vissu
Líbýuárásina fyrir
Báru eld
að sjáif-
um sér
Tveir námsmenn í Suður-Kóreu klifr-
uðu upp á þriggja hæða byggingu í
miðborg Seoul, höfuðborgar landsins,
í morgun, helltu yfir sig bensíni og
kveiktu í, eftir miklar mótmælaað-
gerðir um 250 námsmanna við
Háskólann í Seoul gegn stjómvöldum
í Suður-Kóreu.
Höfðu námsmennimir hótað að bera
eld að bensínvotum klæðum sínum ef
lögregla reyndi að fjarlægja þá af hús-
þakinu og stóðu við hótun sína er
lögreglumenn færðust nær. Tvímenn-
ingamir liggja nú illa haldnir á
sjúkrahúsi í Seoul með alvarleg
brunasár.
Talsmaður námsmannanna sagði í
morgun að með aðgerðum sínum vildu
námsmennimir mótmæla skertum
mannréttindum í Suður-Kóreu og nýj-
um tilskipunum yfirvalda um þjálfún-
arskyldu námsmanna í her landsins.
Pétur Pétursson, fréttaritari DV í
Barcelona:
Samkvæmt nýjum upplýsingum frá
landvamaráðuneytinu hér á Spáni
vom herstöðvar Bandaríkjanna hér í
landi óbeint notaðar í loftárásinni á
Líbýu þann 14. mars síðastliðinn.
Stjómvöld hér hafa fram að þessu
svarið af sér alla vitneskju um loftár-
ásina eða að minnsta kosti um tíma-
setningu hennar en ný hefúr aftur á
móti komið í ljós að þann 11. apríl eða
aðeins þremur dögum fyrir árásina,
heldur fimm KC-10 eldsneytisvélar frá
herflugvellinum í Saragosa áleiðis til
herstöðvar Bandaríkjamanna í Bret>
landi.
Þær vom síðan notaðar til að fylla
eldsneytistanka bandarísku sprengju-
flugvélanna á leiðinni tO skotmark-
anna í Líbýu. Þetta var gert með
vitund spænskra yfirvalda er hafa
haldið þessu leyndu hingað til.
Það þykir og renna stoðum undir
Spænsk yfirvöld hafa nú viðurkennt að hafa vitað af fyrirhugaðri árás Bandaríkjamanna á Líbýu þann 11. apríl síð-
astliðinn og sætir ríkisstjóm Gonzales nú harðri gagnrýni þeirra er fordæmt hafa aðgerðimar .
Sænski íhaldsflokkurinn
hefur misst helming fylgisins
Gunnlaugur A. Jónsson, fréttaritari
DV í Lundi:
Ulf Adelson, leiðtogi sænska íhalds-
flokksins á nú mjög í vök að veijast.
Flokkur hans tapar stöðugt fylgi og
er nú svo komið að íhaldsflokkurinn
hefúr aðeins um helming þess fylgis
er flokkurinn hafði á sama tíma í fyrra.
í skoðanakönnun SIFO, stofnunar-
innar er birt var um helgina , fékk
íhaldsflokkurinn aðeins 15.5 prósent,
en hafði um 30 prósent á sama tíma í
fyrra.
Fylgistapið er þó ekki nema 0,5 pró-
sent frá síðustu skoðanakönnun.
Jysta Bohman, fyrrum formaður
íhaldsflokksins játaði í sjónvarpsvið-
tali um helgina að hann hefði verið
mjög óánægður með frammistöðu efit-
irmanns sína síðastliðið haust en
neitað þó að kenna Adelson um hvem-
ig komið væri.
Adelson hefúr meðal annars sætt
gagmýni fyrir að hann taki fjölskyld-
una fram yfir flokkinn í mjög ríkum
mæli.
Bengt Westerberg, formaður Þjóðar-
flokksins hefúr fest sig í sessi sem
leiðtogi stjómarandstöðunnar. Þjóð-
arflokkurinn fékk nú 22 prósent
atkvæða, sem er um 8 prósentum
meira en í síðustu kósningum þar sem
flokkurinn var þó yfirlýstur óumdeild-
ur sigurvegari. Jafnaðarflokkurinn
virðist enn njóta góðs af þeirra samúð-
aröldu sem flokkurinn hlaut í kjölfar
morðsins á Olof Palme. Jafnaðarmenn
hluti nú 47,0 prósent sem er 1,5 pró-
senti minna en í síðustu könnun.
Miðflokkurinn fékk 9 prósent og
vinstriflokkurinn, kommúnistar, 5
prósent sem er svipað og þessir flokk-
ar hafa haft í kosningum.
Samkvæmt þessari nýju könnun er
semsé enn öruggur meirihluti sósíal-
ísku flokkanna í Svíþjóð, 52 prósent
gegn 46,5 prósentum hægri flokkanna.
Svisslendingar óttast heimsstyrjöld
Gizur Helgason, fréttaritari DV
í Zúrich:
Eftir loftárás Bandaríkjamanna á
Líbýu fyrir tveim vikum virðist sem
stríðsótti hafi aukist hér í Sviss.
Fyrir helgi var gerð hér skoðana-
könnun meðal almennings og sam-
kvæmt henni óttast 2/3 hlutar
aðspurðra að alheimsátök kunni að
vera á næsta leiti.
511 konur og karlar í þýsku- og
frönskumælandi hluta Sviss tóku þátt
í könnuninni. Af þeim sögðust 62 pró-
sent óttast þriðju heimsstyijöldina.
Hjá konum virðist þessi ótti meira
áberandi, eða 72 prósent meðal þeirra
en 52 prósent hjá körlum.
Það sem menn hér segja að sé ef til
vill merkilegast við þessa skoðana-
könnun er að fólk svaraði spumingun-
um yfirleitt afdráttarlaust og aðeins 5
prósent aðspurðra svöruðu „veit
ekki“.
þær grundsemdir að stjómvöld hafi
vitað hvað í aðsigi væri það kapp sem
spænsk og ítölsk stjómvöld lögðu á
að utanríkisráðherrafúndi Efhahags-
bandalágsins yrði flýtt, en hann var
haldinn aðeins nokkrum stundum fyr-
ir árásina.
Flugi Iberia aflýst
Einnig var flugi Iberia, spænska rík-
isflugfélagsins til Trípólí aflýst daginn
fyrir árásamóttina, auk þess sem nú
er vitað að spænskar ratsjárstöðvar á
Miðjarðarhaisströndinni vom í við-
bragðsstöðu.
Ríkisstjómin hefur verið harðlega
gagmýnd fyrir tvöfeldni í þessu máh
og lögreglan fyrir hörkulegar aðgerðir
gegn hópum mótmælenda en vikuna
eftir árásina vom haldnir mótmæla-
fundir á hveijum degi í Madrid og hér
í Barcelona og kom oftsinnis til hörku-
legra átaka á milli öryggissveita og
mótmælenda.
Breti
myrtur
í Jerú-
salem
Breskur ferðamaður var skotinn til
bana í Jerúsalem í gær við greftrunar-
stað Krists.
Poul Appleby frá Bristol var ásamt
öðrum ferðamönnum að skoða sögu-
staði í Jerúsalem er skyndileg skothríð
í bakið særði hann til ólífis.
Árásin á Appleby í gær er hugsan-
lega talin hluti af hefhd arabiskra
hryðjuverkasamtaka gegn hlutdeild
Bretlands í árásinni á Líbýu fyrr í
þessum mánuði en yfirvöld í Jerúsalem
hafa þó ekki útilokað þann möguleika
að Appleby hafi verið myrtur í mis-
gripum fyrir ísraelsmann.
Árásin í gær er þriðja árásin á
tveggja mánaða tímabili á ferðamenn
í Jerúsalem.
í febrúar var bandarískur ferðamað-
ur illa særður í skotárás og fyrir
réttum tveirn vikum var vestur-þýskur
ferðamaður myrtur á Via Dolorosa í
Jerúsalem, sömu leið og talið er að
Kristur hafi gengið með krossinn áður
en hann var krossfestur.