Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1986, Page 15
DV. MÁNUDAGUR 28.APRÍL 1986.
15
Bandanskar vömr
- nei takk
Að ætla að fara aftur um 1 til 2
mán. eða 3 til 4 ár til að finna ein-
hveqa góða og gilda ástæðu fyrir
árás Bandaríkjanna á Líbýu er ekki
fræðilegur möguleiki.
Þau átök, sem eiga sér nú stað við
Miðjarðarhaf, eru hluti af áratuga
baráttu tveggja afla. Annars vegar
arabaríkjanna með stuðningi Sovét-
ríkjanna. Sú barátta krefst pólití-
skrar og menningarlegrar
rannsóknar og ætla ég mér ekki að
taka það að mér hér eða rekja gang
mála í Austurlöndum. Ég læt öðrum
um það að sinni. Þó helst ekki
Magnýsi Bjamfreðssyni, þar sem
mér leiðist hinn gullni meðalvegur,
en gott skólabókardæmi um hann
birtist í grein Magnúsar í DV 17
apríl sl.
Ég ætla hins vegar að rifja upp
hvemig heimsvaldastefha Banda-
ríkjanna hefur komið við okkur
íslendinga.
Kaninn kemur
Eftir seinna stríð var ísland auð-
ugt ríki. Stórir markaðir höfðu
opnast fyrir sjávarafurðir, gengi ís-
lensku krónunnar hélst stöðugt og
var aldrei fellt á þessum tíma og
vegna kreppunnar miklu fyrir stríð
vom ennþá alls kyns innflutnings-
höft. íslenska heildsalaveldið var þá
ekki komið með þá rænu að flytja
inn 5 tegundir af hveiti eða 10 teg-
undir af eldhúsrúllum. Með stríðs-
gróðanum tókst íslendingum ekki
aðeins að greiða niður allar erlendar
skuldir heldur líka að safha erlend-
um gjaldeyri sem nam u.þ.b. 580
milljónum kr. í maí 1945. Til viðmið-
unar má nefha að kaupverð nýsköp-
unartogarans Ingólfs Amarsonar
var 3 milljónir 1947.
Hér á íslandi var því góður efha-
hagslegur gmndvöllur fyrir upp-
byggingu atvinnulífs og viðskiptas-
ambönd, t.d. við Sovétríkin, vom
góð. Hér var útlit fyrir bullandi at-
vinnulíf og arðbæra útgerð.
Víkjum nú að Bandaríkjunum sem
á þessum tíma var auðugasta ríki
veraldar. Eftir stríð þurftu þau ekki
að kosta til fé til að endurreisa borg-
ir sínar eins og hálf heimsbyggðin
og mörg fyrri áhrifasvæða Breta
vom komin undir þeirra vemdar-
væng, þ.á m. ísland.
í krafti auðs og valda hófu þá áróð-
urssérfræðingar USA að leika á
hörpu og syngja óð til friðarins með
Morgunblaðið á fyrstu fiðlu (hinn
falski dúett).
Árið 1947 söng svo G. Marshall,
þáverandi utanríkisráðherra USA,
um efriahagslega aðstoð við Evrópu
(í sjálfu sér góður söngur en...).
Komst sá söngur til framkvæmda
og var þá kallaður því kunnuglega
nafhi Marshallaðstoðin.
Truman forseti er engu síður
kunnuglegt nafn en hann var ein-
lægur kommahatari og svo boru-
brattur að hann jóðlaði framan i
þjóð sína að heimurinn biði hrein-
lega eftir leiðsögn „vorri“.
Marshallsamningurinn milli
USA og íslands var síðan undirrit-
aður þann 3. júlí 1948. Sjálfsagt
mál að setja bráðabirgðalög á með-
an Alþingi er í sumarleyfi,_ en
milliríkjasamning? Gerðust ráð-
herrar í ríkisstjóm Stefáns Jó-
hanns landsráðamenn? Svari nú
hver fyrir sig.
Ekki er allt gull...
Marshalltíminn svokallaði spann-
aði 5 ár eða til 30. júní 1953. Á
þessum tíma var Marshallfénu dreift
í ýmsu formi og nam sú upphæð
38,65 milljónum dollara.
Það skiptist þannig: 29,8 millj.
gjafafé, 5,3 millj. lánsfé til 35 ára
með 2,5% vöxtum, og 3,5 millj. sem
skilorðsbundið framlag til greiðslu
fyrir útflutningsafurðir.
í fréttatilkynningu utanríkisráðu-
nejdisins frá þessum tíma segir að
féð eigi að styrkja atvinnulíf, efla
iðnað og viðskiptasambönd. Einnig
segir í tilkyimingunni:
„Ber íslendingum að leggja til
hliðar í íslenskum gjaldmiðli sam-
svarandi upphæð og þeir kunna að
fá endurgjaldslaust af Marshallfé og
verði þessum íslensku innistæðum
síðar ráðstafað í samráði við Banda-
ríkjamenn." (tilv. lýkur).
Á árunum á eftir jókst neysluvöru-
innflutningur gífurlega og kom
aukningin öll frá Bandaríkjunum
og samkvæmt annarri grein Mars-
hallsamningsins réðu Bandaríkja-
menn gengi ísl. krónunnar. Á
fáeinum árum náði bandaríska
heimsvaldstefhan kverkataki á ís-
lensku þjóðinni. í kjölfar þessa
samnings kom svo annar samningur
til 99 ára, skotmarkið á Miðnesheiði.
Því má svo skjóta hér inn í til
gagns og gamans fyrir strákana frá
Chicago að af Marshallfénu var
greiddur 75% stofnkostnaður við
virkjun Sogs og Laxár og skv. gengi
ísl. krónunnar 1948 var Marshallféð
251,2 millj. ísl. kr. Skv. gengi krón-
unnar 18. mars 1950 samsvaraði sú
upphæð 629,6 millj. kr. íslenska
verðbólgan var komin í fjórða gír
enda fleiri krónur um hvem þorsk.
Það er í sjálfu sér hægt að skrifa
dágóðan doðrant um Marshallað-
stoðina á íslandi og grátlegu
umræðuna um hana á þeim árum.
EINAR ÞÓR
GUNNLAUGSSON
nenii, fjölbrautaskólanum
VIÐ ÁRMÚLA
Það ætti hins vegar að vera ljóst
að þeir dollarar sem Bandaríkja-
menn létu af hendi hafa nú margfalt
skilað sér til baka. Þeim hefur nefhi-
lega tekist að gera þennan eyjaklasa
að flugmóðurskipi, þeim þótti bara
rétt að ota að okkur fáeinum dollu-
rum fyrst. Auk þess hefur þeim tekist
að koma okkur inn á kort amerí-
skrar fjöldaframleiðslu þar sem allt
lýtur sömu lögmálum, hvort sem þar
á í hlut Westinghouse þvottavélar
eða framúrskarandi og spennandi
kvikmynd í litum, byggð á sannsögu-
legu kjaftæði. Amerísk list, sú sem
hér hefur þrifist i hart nær 30-40 ár,
einkennist af innri tómleika og ytri
glæsileika.
Styðjum líbýska alþýðu
Sú heimsvaldsstefha sem lagði
Líbýubúum lífsreglurnar 14. apríl sl.
er sú sama og íslendingar sáu ekki
fyrir 40 árum og sjá ekki enn. Vinnu-
brögð Bandaríkjamanna á alþjóða-
vettvangi stjómast einfaldlega af
þeirra eigin hentisemi.
En pólítík Reagans afsakar ekki
póhtík Gaddafis.
Um það geta allir verið sammála.
Hins vegar höfum við meiri en næga
ástæðu til að sniðganga allar banda-
rískar vörur, reka herinn úr landi
og segja skilið við NATO.
Einar Þór Gunnlaugsson.
a „Sú heimsvaldastefha sem lagði Líbý-
^ ubúum lífsreglurnar 14. apríl sl. er sú
sama og Islendingar sáu ekki fyrir 40 árum
og sjá ekki enn.“
Ný gerð félags-
málasamtaka?
Á síðustu árum hafa komið firam
félags- og menningarmálasamtök
sem em almenns eðlis frekar en að
þau séu nátengd hagsmunahópum
eða starfsgreinum. Vert er að vekja
athygli á þessu því vart er hægt að
hugsa sér skýrari merki þess að
menningarmál og tómstundir séu að
færast í fyrirrúm í lífi okkar. Em
þessa ýmis dæmi:
1. Landkynningarfélög
Hellas, gríska menningarfélagið,
er dæmi um landkynningarfélag með
nýrri vídd. Það hélt nýlega upp á
eins árs afmæli sitt og var vel sótt
að vanda. Eins og venjulega var þar
rædd fyrirhuguð Grikklandsferð. Þó
ætlaði ekki meirihluti viðstaddra í
þá ferð heldur virtist aðdráttaraflið
fyrir félagsmenn vera fyrirlestramir
sem jafnan hafa verið þar um grísk
efni, svo sem heimspeki, sögu og
bókmenntir.
íslenskt bouzouki-tríó lék þar fyrir
grískum dansi, leikari túlkaði kafla
úr grískri nútímaskáldsögu og
Grikklandsvinir af ýmsu tagi sögðu
frá kynnum sínum af Grikkjum,
bæði sönnum og skálduðum. Grískur
matur og vín vom á borðum. Af
þátttöku menningarvita og almenn-
ings sýndist mér mega ráða að þætti
fínt að vera í þessu félagi.
Hér virðist vera um almennt
menningarfélag að ræða því grísk
menning í tíma og rúmi spannar
einnig evrópska menningu að miklu
leyti.
Fróðlegt er að velta fyrir sér af
hverju slíkt félag reis ekki fyrr. Trú-
lega tengist þetta auknum ferðalög-
um og menntun íslendinga á síðustu
árum.
Fleiri slík félög mætti nefha, sem
þó em sérhæfðari og tengjast ein-
stökum þjóðarsvæðum gegnum náin
samskipti, svo sem Norræna félagið,
Anglíu, Germaníu, Alliance Franca-
ise, Þjóðræknisfélagið og félag
innflytjenda frá Víetnam, eða fremur
ólíkum menningarsvæðum, svo sem
Indlandsvinafélagið.
Ótalin em félögin kringum sendi-
ráðin, svo sem Menningarfélag
íslands og Ráðstjómarríkjanna og
Menningarstofhun Bandaríkjanna.
Rauða Kína og Grænland hafa einn-
ig sótt í sig veðrið með sýningum
að undanfömu. Einnig em til E1
Salvadomefnd og Afganistannefhd.
Fjölgun slíkra félaga er tímans tákn.
2. Lífsskeiðafélög
Annars konar félag er Félag maka-
lausra. Ólikt Félagi einstæðra for-
eldra er það ekki fyrst og fremst
hagsmunafélag heldur afþreyingar-
félag. Ekki veit ég hvers vegna slík
félög em vandfundin erlendis. Er
e.t.v. erfiðara að vera einhleypur
hér, en um leið auðveldara fyrir ein-
hleypa að koma saman hér heldur
en víða erlendis?
Af hliðstæðum nýlegum félögum
hérlendis má nefria félag eldra fólks,
Hana-nú, en bæði þessi félög snúast
mikið kringum ferðalög og dans-
leiki, um leið og þau auka hóptil-
finningu.
Ef litið er á þessi félög sem félög
er tengjast vandamálum ákveðinna
æviskeiða mætti e.t.v. benda á
grósku félagsheimila unglinga sem
annað dæmi.
3. Heimspeki- og
mannúðarspekifélög
Af félögum sem tengjast ekki
ferðalögum má nefha Félag áhuga-
manna um heimspeki. Það efnir til
fyrirlestra heimspekimenntaðra
manna og höfðar til leikra og lærðra
með umræðum sínum um stjómmál,
trúarbrögð o.fl.
Amnesty Intemational er annað
nýlegt félag. Það helgar sig mann-
réttindamálum pólitískra fanga í
löndum þar sem þau em fótum troð-
in. (Þannig séð er félagið þverpólit-
ískt eða ópólitískt ef litið er svo á
að vestræn mannréttindi séu hafin
yfir pólitík. En auðvitað gagnast
samtökin meira áróðri t.d. Banda-
ríkjanna en Sovétríkjanna þar eð
fleiri pólitískir fangar em i Sovét.)
Meðal aðildarfélaga Amnesty má
trúlega finna áhugafólk um trúmál,
heimspeki og útlönd, svo og um
stjómmál.
Félagið Samhygð og afsprengi
þess, Flokkur mannsins, virðast
tengjast indversk-ættuðum trúmál-
um, æskulýðsmálum o.fl. Þau virðast
vera dæmi um þá tilhneigingu síð-
ustu tíma að gera einkamál að
félagsmálum og félagsmál að stjóm-
málum.
Að lokum má nefna baráttusam-
a „Hér virðist það vera að gerast að það
^ sem áður var einkamál eða einkaá-
hugamál finnur sér leið inn í félagsmál og
að félagsmál taki á sig stjómmálasvip.“
Kjallarinn
TRYGGVI V. LÍNDAL
SKRIFSTOFUMAÐUR
LANDSPÍT ALANUM
tökin gegn kjamorkuvá. Þau em
almenns eðlis að því leyti að óttinn
við kjamorkuvopn er vandamál sem
hefur áhrif á alla hópa, s.s. stjóm-
málahópa, böm og fullorðna. Því
þjóna slík samtök ekki bara pólitísk-
um tilgangi heldur einnig almenn-
um, uppeldislegum og sálfræðilegum
tilgangi. Sú staðreynd að hægt er
að útrýma öllu lífi á jörðu er að
verða hvað tíðasta tilefhi nútíma-
manna til heimspekilegra vanga-
veltna.
Flest ofangreind félög hafa komið
fram á allra síðustu árum. Hér virð-
ist það vera að gerast að það sem
var áður einkamál eða einkaáhuga-
mál finnur sér leið inn í félagsmál
og að félagsmál taki á sig stjóm-
málasvip. Þessi nýju félög em því
áþreifanlegur vitnisburður um þá
félagslegu samheldni almennings
sem er að gerjast fyrir utan stjóm-
mála-, stétta- og hagsmunafélögin.
Þetta lýsir sér einnig í fjölgun hefð-
bundnari félaga, svo sem á sviði
heilbrigðismála, íþrótta, tónlistar,
leiklistar og myndlistar, svo sem les-
andinn mun geta nefht mörg dæmi
um.
Tryggvi V. Líndal