Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1986, Side 18
18
DV. MÁNUDAGUR 28.APRÍL 1986.
NÝJUSTU FRÉTTIRNAR
í LJÓSSETNINGU FRÁ
SCANTEXT
Á prentsýningunni DRUPA '86 í Diisseldorf munu
Sven Erik Röhn og Stein Vighöi frá Scangraphic A.S.
sýna þér nýjustu tækni í digital setningarkerfum.
Tímabilið 2. til 15. maí verða þeir í bás 4E17 í sýning-
arskála 4.
SCANGRAPHIC A.S
Langmyrgrenda 1, 0861 Oslo 8, Norge
Telefon: (472) 23 25 80
scan.
graphic
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
Aðstoðarlæknir óskast til starfa á Rannsóknastofu
Háskólans í meinafræði frá 20. júlí nk. til eins árs.
Um er að ræða námsstöðu í almennri líffærafræði
með áherslu á sérsvið. Gert er ráð fyrir að viðkomandi
aðstoðarlæknir taki þátt í rannsóknarverkefnum.
Umsóknir á umsóknareyðublöðum lækna sendist
skrifstofu ríkisspítala fyrir 26. maí nk.
Upplýsingar veitir forstöðumaður Rannsóknastofu
Háskólans í meinafræði í síma 29000.
Aðstoðarlæknar (2) óskast við svæfinga- og gjör-
gæsludeild Landspítalans til eins árs frá 1. júlí nk.
Stöður þessar eru fyrst og fremst ætlaðar þeim sem
hyggja á sérnám í svæfingalæknisfræði.
Umsóknir á umsóknareyðublöðum lækna sendist
skrifstofu ríkisspítala fyrir 26. maí nk.
Upplýsingar veitir yfirlæknir svæfinga- og gjörgæslu-
deildar í síma 29000.
Meinatæknar óskast til sumarafleysinga við Landspít-
alann á rannsóknadeildum í blóðmeinafræði, mein-
efnafræði og ísótópastofu.
Upplýsingar veita deildarmeinatæknar viðkomandi
deilda í síma 29000.
Starfsmaður óskast nú þegar við dagheimili ríkisspít-
ala, Sunnuhlíð.
Upplýsingar veitir forstöðumaður dagheimilisins í
síma 38160.
Hjúkrunarstjóri óskast til afleysinga í 6 mánuði frá 1.
júní nk. við Kópavogshæli.
Upplýsingar veitir yfirlæknir Kópavogshælis í síma
41500.
Starfsfólk óskast til sumarafleysinga á deildum Kópa-
vogshælis.
Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Kópavogshælis
í síma 41500.
Þroskaþjálfi óskast í fullt starf við leikfangasafn Kópa-
vogshælis. Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri í síma
41500.
Starfsfólk óskasttil ræstinga við Kópavogshæli. Hluta-
starf.
Upplýsingarveitirræstingastjóri Kópavogshælis ísíma
41500.
Hjúkrunarfræðingar óskast á gjörgæsludeild 12 B og
bæklunarlækningadeild 12 G.
Hjúkrunarfræðingar óskast á vökudeild.
Hjúkrunarfræðingar óskast á Barnaspítala Hringsins á
allar vaktir og einnig á fastar næturvaktir um helgar
eða virka daga.
Hjúkrunarfræðingar óskast í fasta vinnu og til sumaraf-
leysinga á kvenlækninga- og krabbameinsdeild 21 A.
Sjúkraliðar óskast í fasta vinnu og til sumarafleysínga
á sængurkvennadeildir 22 A og 22 B.
Ljósmæður óskast til sumarafleysinga á sængur-
kvennadeildir 22 A og 22 B.
Upplýsingar um ofangreind störf veitir hjúkrunarfor-
stjóri Landspítalans í síma 29000.
Reykjavík, 28. apríl 1986.
Menning Menning Menning
Mikilvæg augnaMik
Þrátt fyrir sín 60 ár er Ljósmynd-
arafélag íslands ekki sérstaklega
þroskalegur félagsskapur. í stað
þess að vinna kappsamlega að vexti
og viðgangi ljósmyndunar á Islandi
með námskeiðum, sýningum á ís-
lenskum og erlendum ljósmyndum,
jafnvel útgáfustarfsemi, hafa for-
svarsmenn félagsins eytt allri orku
sinni í að þróa alls kyns útilokun-
araðferðir, væntanlega til að koma
í veg fyrir ofvöxt í atvinnugrein-
inni. Er nú svo komið að maður
ber kinnroða fyrir þær íslensku
ljósmyndir sem sýndar eru á al-
þjóðlegum sýningum, hvort sem er
á Norðurlöndum eða annars stað-
ar.
Á nokkurra missera fresti rennur
félaginu þó blóðið til skyldunnar
og efnir það þá til lokaðra funda
eða samkeppna. í Listasafni ASÍ
er nú að finna ljósmyndir úr sam-
keppni sem einmitt var haldin í
tilefni af 60 ára afmæli félagsins.
Ljósmyndarar ffá hinum Norður-
löndunum fjórum skipuðu dóm-
nefnd sem veitti verðlaun í tveimur
flokkum ljósmyndunar, portrett-
myndagerð og „frjálsri aðferð“.
Fengu þau Guðmundur Kr. Jó-
Don Rypka - Ég skal segja þér hvað
klæðskerinn minn heitir...
hannesson, Sigurgeir Sigurjónsson
og Árný Herbertsdóttir verðlaun
fyrir portrett, en þau Anna Fjóla
Gísladóttir, Sigurgeir Sigurjónsson
og Harpa Þórisdóttir verðlaun fyrir
frjálst myndefni.
Þótt finna megi hugmyndaríkar
og vel lukkaðar ljósmyndir á sýn-
ingunni, t.a.m. á meðal mynda
þeirra Sigurgeirs Sigurjónssonar,
Guðmundar Ingólfssonar, Jóhönnu
Ólafsdóttur, Ragnars Th. Sigurðs-
sonar og Guðmundar Kr. Jóhann-
essonar, og jafhvel athyglisverða
tilraunaljósmyndun (Anna E.
Svavarsdóttir), þá mundi helftin af
sýningunni flokkast undir þegi
andríkar stúdíómyndatökur.
LJOSMYNDUN
AÐALSTEINN
INGÓLFSSON
Að þóknast fyrirsætum
Þar eru ljósmyndarar einfaldlega
að þóknast fyrirsetum og -sætum
sínum og kemur ekki til hugar að.
breyta út af viðteknum venjum, í
uppstillingum, lýsingu o.s. frv. Út
úr þessum tökum koma þurrar
skýrslur um útlit, en enginn skiln-
ingur á því.
Frágangur þessarar sýningar í
Listasafni ASÍ mætti vera betri.
Upphenging á myndum er ekki til
að halda athygli áhorfenda og allar
upplýsingar skortir um þær 124
ljósmyndir sem þarna er að finna.
Aldrei þessu vant er aðra ljós-
myndasýningu einnig að finna í
bænum, þ.e.a.s. í vesturgangi Kjar-
valsstaða. Hér er um að ræða
sýningu á ljósmyndum eftir banda-
ríska fréttaljósmyndara sem hafa
þann aðalstarfa að „dekka“ Hvíta
húsið í Washington.
Guðmundur Kr. Jóhannesson -
Portrett
Frásagnarleg
Hafa þeir með sér félagsskap og
veita viðurkenningar fyrir ýmiss
konar Ijósmyndun á ári hverju. Er
hún ekki bundin við Hvíta húsið
og forsetann heldur öll þau við-
fangsefni sem nútíma fréttaljós-
myndari þarf að fást við í dag.
Sýningin gefur góða hugmynd
um bæði helstu kosti og galla
fréttaljósmyndunar. Upp á sitt
versta er hún æsifengin, væmin og
of frásagnarleg, en hún getur líka
fangað hið „mikilvæga augnablik"
(pregnant moment) með sérlega
áhrifamiklum hætti.
Að vísu finnst mér ekki allt of
mikið af slíkum augnabliksmynd-
um á þessari sýningu, e.t.v. vegna
þess að mat bandarískra ljósmynd-
ara á viðburðum er annað en
okkar. Ef ég ætti að nefna eina ljós-
mynd, sem situr eftir í mér, þá er
það mynd sem hefur strangt til tek-
ið ekkert með fréttamennsku að
gera. Hún sýnir konu sem situr í
upplýstum símaklefa í kvöldhúm-
inu. Það er allt og sumt. En alveg
nóg. -ai
GítaKtónleikar) Torvalds
Nilsons í Norræna húsinu
Tónleikar Torvalds Nilsons í
Norræna húsinu 21. apríl.
Á efnisskrá: Ensk lútutónlist frá því um
1600; ítölsk lútutónlist frá því um 1600;
Napoleon Coste: Cantabile - Melancoly
op. 51; Isaac Albéniz: Granada úr Suite
Espanola op. 47; Femando Sor: Fantasie
Elegiaque op. 59; Jan Antoni Losy: Svita
i a-moll; Heitor Villa-Lobos: Preludie nr. 1
og Mazurka Choros; Francesco Tárrega:
Capricio Arabe.
Stundum er það svolítið skrýtið
tónlistarlífið í henni Reykjavík. I
langan tíma bjóðast engir gítartón-
leikar, til dæmis. En sVö allt í einu
lenda þeir hverjir ofah í öðrum.
Eflaust væri betra að hafa jafhari
dreifingu á þeim, en út af fyrir sig
hefur svona skipulagsleysi líka kosti,
ekki síst fyrir þann sem eltir alla
tónleika og lendir þá í því að bera
saman. Fyrir Torvald Nilson var
samanburðurinn harla óhagstæður.
Þó er mér til efs að miklu hefði
breytt þótt hann hefði sloppið við
að þola samanburð við einn af yngri
gítarleikurum úr fremstu röð, sem
hér lék nútíma gítarmúsík um helg-
ina.
Úr meistaraflokki?
Torvald Nilson mun hafa staðið
hér fyrir námskeiði að undanfomu,
skilgreindu sem „Master class“. Þess
háttar námskeið halda venjulega
þekktir listamenn sem jafnframt
þykja góðir leiðbeinendur. Þó er svo
sem allur gangur á því og sums stað-
ar í veröldinni halda ótrúlegustu
fuglar slík meistaraflokksnámskeið.
Hingað til höfum við bara verið svo
heppin hér á íslandi að fá raim-
verulega góða og þekkta listamenn
til að halda námskeið í þessum flokki
Tónlist
EYJÓLFUR MELSTED
og að þeim hefur yfirleitt verið mik-
ill fengur. Vel má vera að Torvald
Nilson sé svo frábær leiðbeinandi
að kennsla hans teljist í meistara-
flokki, en hún er þá í mótsögn við
gítarleik hans.
Patentlausnin altgítar?
Torvald Nilson hefur ánetjast alt-
gítamum svonefhda, en hann er átta
strengja lútustæling og raunar stillt-
ur eins og hin staðlaða renaissance
lúta nútímans. Hann kemur þó eng-
an veginn í staðinn fyrir lútu þótt
viss hópur gítarsértrúarmanna haldi
þvi fram. Með honum er aðeins ve-
rið að víkka gítartónsviðið, búið og
basta. Veikleikar gítarleikarans
Torvalds Nilsons vom þó mun
minna áberandi þegar hann lék á
altgítarinn. Eða, kannski átti maður
þá betra með að sætta sig við þá.
Einhvem veginn gnrnar mig að út-
gáfumar, sem hann lék af lútutón-
list, séu hans eigin. Ekki er það
meint sem hrós, því umskrift hans
af Granada úr Spánarsvítu Albeniz
var hreint ekki af albesta tagi.
Bjöguð enska í leik og tali
I barokkverkunum var blæbrigða-
leysið í leik Torvalds Nilsons á sinn
hátt þolanlegt, en átakanlegt í róm-
antískri gítarmúsík manna eins og
Villa-Lobos og Tárrega. Tónninn er
kaldur og mattur og þótt hann lyfti
■styrknum með uppmögnunaráhaldi,
sem Svíar nefha tonbord skiluðu
ekki nærri allar nótur sér - sumar
alls ekki og aðrar til hálfs. Tempóin
vom líka kapítuli út af fyrir sig. Sem
dæmi skal tekið að sorgarmarsinn í
Harmkvæða fantasíu Sors var leik-
inn moderato. Þótt bjöguð enskan
sem herra Nilson vildi endilega út-
skýra (og stundum afeaka) gítarleik
sinn á komi leik hans í sjálfu sér
ekkert við þá get ég hennar hér -
einungis til að hafa einhverja hand-
fasta viðmiðun við gítarleikinn sem
upp á var boðið. EM