Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1986, Síða 26
26
DV. MÁNUDAGUR 28.APRÍL 1986.
Handknattleikur unglinga - Handknattleikur unglinga - Handknattleikur unglinga - Handk
Pittalandsliðið í 3. sæti í Danmörku
Unglingalandsliðið, skipað piltum
18 ára og yngri, tók þátt i Norður-
landamóti unglinga fyrir skömmu.
Mótið fór fram á Norður-Jótlandi, í
smábæ sem kallast Fjerritslev.
Liðið lék við jafnaldra sína frá Sví-
þjóð, Noregi, Grænlandi, Danmörku
og Færeyjum.
Úrslit leikjannavoru sem hér segir.
Svíþjóð-Ísland 27-19
Noregur-Færeyjar 30-15
Danmörk-Grænland 27-16
Noregur-ísland 25-23
Svíþjóð-Grænland 34-10
Danmörk-Færeyjar 38-18
Grænland-ísland 17-44
Svíþjóð-Færeyjar 43-16
Danmörk-Noregur 16-19 Staðan: Leikurinn gegn Svíum var jafii fram-
Noregur-Svíþjóð 18-23 Svíþjóð 5 5 0 0 10 an af. Svíar leiddu þó ávallt og upp
Grænland-Færeyjar 21-30 Noregur 5 4 0 1 8 úr miðjum fyrri hálfleik sigu þeir fram
Danmörk-ísland 17-21 Ísland 5 3 0 2 6 úr og staðan í leikhléi var 9-13, Svíum
Noregur-Grænland 38-17 Danmörk 5 2 0 3 4 í vil. Það sem helst gerði þennan mun
Færeyjar-ísland 19-29 Færeyjar 5 1 0 4 2 var að markvörður Svía varði allt
Danmörk-Svíþjóð 13-21 Grænland 5 0 0 5 0 hvað af tók, bæði víti og dauðafæri.
Sigtryggur Albertsson var í leiknum gegn Dönum.
Undirbúningsfundur um málefni yngri flokka
Þriðjudaginn 15. apríl var haldinn
undirbúningsíundur um málefni yngri
flokka í hinni nýju byggingu ÍSÍ í
Laugardal.
Til fúndarins vr boðað af HSÍ að
undirlagi Gauta Grétarssonar og Mar-
inós G. Njálssonar.
j Á fúndinum var rætt vítt og breitt
^ um máleíni yngri flokka, hvað væri
að, hvað væri til bóta, að hvaða mark-
i miðum skyldi stefnt og hver væri
1 hlutur félaganna, þjálfara og ekki síst
HSÍ í að ná þeim markmiðum.
Umræður
í máli fundarmanna kom fram að
: almenn óánægja væri með fyrirkomu-
i lag íslandsmóts. Fjöldi leikja væri
{ ekki nægur, alltaf væri leikið við sömu
[ andstæðingana og fyrirkomulagið
j væri ekki nægilega hvetjandi, hvorki
i fyrir lið sem gengi vel eða illa.
! Of langur tími liði milh umferða og
oftar en ekki væru úrslit ráðin í 2.
umferð þannig að sú þriðja væri óþörf.
Þá kæmi upp vandamál að einstök lið
mættu ekki til leiks í síðustu umferð,
þar sem þau væru úr leik.
Menn voru sammála um að riðla-
keppni í hraðmótsformi væri samt
æskilegt form á mótinu. Það nýttist
vel, t.d. við undirbúning unglinga-
landsliða.
Mikil gagnrýni kom á dómaramál.
Dómarar túlkuðu reglur misjafnlega
og hefðu ekki nógu mikla þekkingu á
þeim. Lítt reyndir eða óreyndir dómar-
ar væru að dæma mikilvæga leiki og
réðu ekkert við það. Þá væri alltof
algengt að dómarar dæmdu leiki sinna
félaga og drægju of mikið taum þeirra
og hreinlega hjálpuðu þeim til að
vinna leiki. Einnig væri það forkast-
anlegt að velja kannski úrslitaleiki í
riðlum sem prófleiki fyrir dómara. Þá
var nefnt dæmi um að leikmenn hefðu
dæmt leiki í sinni eigin riðlakeppni.
Flestir voru sammála um að fram-
kvæmdahliðin væri ekki lengur það
vandamál sem áður var með fáeinum
undantekningum. Þó mættu félögin
sýna mótunum meiri áhuga, t.d. aug-
lýsa mótin, hafa aðstöðu til að selja
veitingar og fleira.
Gagnrýni kom á það að oft lékju
eldri flokkar í litlum sal á sama tíma
og 6. og 5. flokkur lékju í stórum sal.
Rætt var um réttar boltastærðir og
möguleika á að nota minni mörk i
yngstu aldursflokkunum.
Bent var á aðstöðumun sem hand-
bolti og fótbolti byggju við. Fótboltinn
hefði fría aðstöðu á meðan handbolt-
inn þyrfti að greiða háa húsaleigu og
sums staðar væru íþróttahúsin lokuð
hluta ársins og nýttust ekki sem
skyldi.
Slíkt væri óþolandi ef nokkur mögu-
leiki væri til að ná árangri. í þessu
kom einnig fram að fúrðulegur væri
sá munur sem þessar íþróttagreinar
fengju í umfjöllun í fjölmiðlum á
kostnað handboltans, sérstaklega þar
sem handknattleikur á íslandi stæði
miklu framar á alþjóðavettvangi en
fótbolti.
Hvað er til bóta?
Fjölga þarf leikjum í öllum yngri
flokkum og gera mótin áhugaverðari.
Reifuð var hugmynd um deildarskipt-
ingu í yngri flokkum þannig að í
upphafi stæðu öll lið jalnt að vígi en
eftir fyrstu umferð væri þeim skipt í
deildir eftir árangri. Síðan færu fram
3 umferðir í deildum og eftir hverja
umferð færðust lið milh deilda. Áð
lokum var rætt um að gera úrslita-
keppnina eins veglega og mögulegt
væri, til dæmis að leika ixrslit á lengri
tíma og að allir lékju við alla.
Dómaramál þarf að bæta mikið,
bæði varðandi niðurröðun á leiki og
UMFN sigraði í
3. flokki kvenna
| Úrslit í 3. flokki kvenna
Staðan í riðlunum:
A-riðill. ; Stjaman-Víkingur A-riðill.
6-6 Víkingur 4 48-22 3 1 0 7
Stjaman-ÍR 8-3 Stjarnan 4 41-15 3 1 0 7
Stjaman-Haukar 14-1 Þór, AK. 4 26-44 1 0 3 2
Stjarnan-Þór, AK. 13-5 Haukar 4 21-37 1 0 3 2
Víkingur-ÍR , Víkingur-Haukar 14-4 9-7 ÍR 4 17-35 1 0 3 2
í Víkingur-Þór, AK. 13-5 B-riðill
t ÍR-Haukar 7-4 UMFN 3 28-20 3 0 0 6
| Ír-Þór, AK. 3-9 Týr 3 35-24 2014
' Haukar-Þór, AK 9-7 ÍBK 3 24-29 1 0 2 2
B-riðill i UMFN-Týr í UMFN-ÍBK 11-9 34 FH 3 22-36 0 0 3 0
J UMFN-FH { Týr-ÍBK 12-7 Leikur um 3. og 4. sæti, Stjaman-
14-8 Týr 9-3
f Týr-FH | ÍBK-FH 12-5 Leikur um 1. og 2. sæti, Víkingur
12-10 - UMFN 4-8
2. flokkur karia:
IR-ingar komnir
i í úrslrt bikarsins
á. ír-ingar tryggðu sér á miðvikudags-
P kvöld sæti í bikarúrslitum annars
* flokks. Þeir sigruðu þá Val með 19
* mörkum gegn 18. í fyrri hálfleik höfðu
? Valsmenn frumkvæðið en þó var mun-
ur aldrei mikill á hðtmum. í hálfleik
var staðan jöfn, 11-11. Síðari hálfleikur
v var einnig jafii en í lokin sigu ÍR-ingar
fram úr og komust í 18-15. Leikurinn
endaði síðan eins og áður sagði, 19-
18, en það voru Valsmenn sem skoruðu
síðasta markið er 25 sekúndur voru
til leiksloka. ÍR-ingar héldu knettinum
síðustu sekúndur leiksins.
Þórður Sigurðsson var besti maður
vallarins í þessum leik og áttu ÍR-
ingar í talsverðum vandræðum með
hann. ÍR-liðið var jafnt að þessu sinni.
Úrslit verða í bikarkeppni 2. flokks
á miðvikudag.
Efri röð. Talið frá vinstri: Páll Guðmundsson, Gunnar Gunnarsson, Hallgrímur
Jónasson, Ólafur Grettisson, Jón Þór Eyjólfsson, Svava Sigurðardóttir, Unnur
Jóhannsdóttir og Linda B. Jónsdóttir.
Fremri röð frá vinstri: Trausti Hafliðason, Njörður Ámason og Ami Sigurðs-
son. Á myndina vantar Jóhann Ásgeirsson.
Uppskeruhátíð hjá ÍR
Fyrir skömmu hélt handknattleiks-
deild ÍR uppskemhátíð sína. Vom
veitt verðlaun fyrir mestar framfarir,
bestu mætingu og áhuga. Einnig var
leikmaður ársins valinn. Á uppskem-
hátíðina mætti fongulegur hópur ungs
fólks og vom kökur og annað með-
læti á boðstólum.
Eftirtaldir krakkar fengu verðlaun.
5. flokkur karla:
Besti leikmaður: Trausti Hafliðason.
Mestu framfarir: Njörður Ámason.
Best mæting og áhugi: Ámi Sigurðs-
son.
Þjálfari flokksins í vetur var Guð-
mundur Jónsson.
4. flokkur karla:
Besti leikmaður: Jón Þór Eyjólfsson.
Mestu framfarir: Gunnar Gunnarsson.
Best mæting og áhugi: Ólafúr Grettis-
son.
Þjálfari í vetur var Einar Ólafsson.
3. flokkur karla:
Besti leikmaður: Páll Guðmundsson.
Mestu framfarir: Hallgrímur Jónas-
son.
Best mæting: Jóhann Ásgeirsson.
Þjálfari í vetur var Guðmundur Þórð-
arson.
3. flokkur kvenna:
Mestu framfarir: Linda B. Jónsdóttir.
Best mæting og áhugi: Svava Sigurð-
ardóttir.
Besti leikmaður: Unnur Jóhannsdótt>
ir.
Þjálfarar: Matthías Matthíasson og
Þorsteinn Guðmundsson.
Krakkamir í ÍR stóðu sig vel í vet-
ur. 5. flokkur karla ásamt 3. flokki
karla og kvenna komust í úrslit, svo
og 2. flokkur karla.
Eftirtaldir krakkar fengu verðlaun
á uppskeruhátíð ÍR.
ekki síst túlkun á reglum. Breyta
þyrfti framkvæmd dómaraprófs þannig
að einn reyndur dómari dæmdi með
dómaraefninu. Þá mætti hiklaust fella
menn ef þeir stæðust ekki kröfúr.
Auka þyrfti fræðslustarfið og ekki
veita dómurum stimpla nema þeir
hefðu mætt á fræðslufúndi í upphafi
keppnistímabils.
Fram kom að virkja þyrfti þann
mikla áhuga sem vaknað hefði vegna
velgengni á HM. En skiptar skoðanir
vom um hvort auka ætti áhuga á
landsbyggðinni eða treysta betur þann
grunn sem byggt er á, á suðvestur-
hominu. Þar væri forgangsmál að
fjölga æfinga- og keppnishúsum með
löglegri vallarstærð.
Allt þetta ætti að skila sér í öflugri
og betri handknattleiksliðum, sem
þýðir betri landslið í öllum aldurs-
hópum beggja kynja sem síðan leiðir
til heilbrigðs æskulýðsstarfs ungs
fólks í landinu.
Niðurstöður:
Helstu niðurstöður fúndarins auk
framangreinds snúa að markmiðum
sem stefna skal að og hlut félaganna,
þjálfaranna og HSÍ í þeirri vinnu.
Markmið:
Auka áhuga á íþróttinni.
Fjölga leikjum.
Gera mótin áhugaverðari.
Bæta aðstöðu til æfinga og keppni.
Félögin:
Byggja upp virkar stjómir með öflug-
um bakhjörlum.
Efla unglingastarfið.
Fjölga héraðsmótum.
Fá betri þjálfara.
Fá fleiri og betri dómara.
Virkja foreldrana.
Þjálferar:
Að þeir hafi áhuga, séu fyrirmynd,
hafi lágmarksmenntun og geri sér far
um að kenna handbolta. Einnig er
nauðsynlegt að þeir hafi þekkingu á
leikreglum.
HSÍ:
Verðlauna bestu menn í úrslitum.
Fá fjölmiðla til að sinna yngri flokkum
betur.
Hafa handboltaskóla.
Halda dómaranámskeið á hveiju
hausti svo og þjálfaranámskeið.
Hjálpa félögunum í baráttunni fyrir
bættri aðstöðu.
Fá sérstakan blaðafiilltrúa sem safnar
leikskýrslum og sendir fréttatilkynn-
ingar til fjölmiðla.
Þá er upptalið það helsta sem fram
kom á þessum fundi. Menn voru sam-
mála um að þessi umræða hefði verið
mjög gagnleg og nauðsynleg og væri
nauðsynlegt að halda henni áfram.
Var ákveðið að boða til annars fúndar
eftir um það bil hálfan mánuð og hafa
hann í ráðstefnuformi þar sem stærri
hópur kæmi saman. Vonast er til að
sem flestir sem eitthvað koma nálægt
starfi yngri flokka sjái sér fært að
mæta á þann fúnd.