Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1986, Blaðsíða 28
28
DV. MÁNUDAGUR 28.APRÍL 1986.
íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
„Góð staða sem við eram
í - þurfum þrjá sigra '
- sagði Howard Kendall, stjóri Everton, eftir jafntefli í Nottingham.
Peter Reid slasaðist. Liverpool náði tveggja stiga forustu í 1. deild
og West Ham á enn möguleika
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni,
fréttamanni DV á Englandi:
„Meistaratitillinn er nú í okkar
höndum, það er góð staða sem við
erum í þó það hafi verið nokkur von-
brigði að bæði Liverpool og West
Ham skyldu vinna á laugardag. Við
vissum fyrir leikinn i Nottingham að
við þyrftum þrjá sigra og jafntefli til
að vera öruggir með titilinn og nú
þurfum við þrjá sigra,“ sagði Howard
Kendall, stjóri Everton, eftir að lið
hans hafði gert OOjaf'ntefli í snjöllum
leik á City Ground í Nottingham á
laugardag. Mikill baráttuleikur sem
hafði allt til að bera nema mörk.
Forest sótti meira í leiknum, Carr
átti skot i stöng marks Everton
snemma leiks og í annað sinn bjarg-
aði Kevin Sheedy þar á marklínunni.
Everton átti líka sín færi og var með
alla sína bestu leikmenn nema Sout-
hall markvörð. Greinilegt þó að
ensku meistararnir gerðu sig ánægða
með jafntefli í þessum erfiða leik.
Gary Lineker var þó talsvert frá sínu
besta, mjög þreyttur í Iokin.
Everton varð fyrir áfalli í leiknum.
Peter Reid slasaðist en lék þó til loka.
í gær, þegar meiðsli hans höfðu verið
athuguð betur, kom í ljós að þau eru
talsvert alvarleg. Jafnvel er talað um
að hann muni ekki geta leikið í úr-
slitum FA- bikarsins gegn Liverpool
eða farið á HM í Mexíkó.
URSLIT
Úrslit í leikjunum í ensku knatt-
spyrnunni.
1. deild:
ArsenalWBA 2-2
Aston Villa-Chelsea 2-1
Ipswich-Oxford 3-2
Liverpool-Birmingham 5-0
Luton-Watford 3-2
Man. Utd-Leicester 4-0
Newcastle-Man. City 3-1
Nott. Forest-Everton 0-0
QPR-Tottenham 2-5
Southampton-Sheff. Wed 2-3
West Ham-Coventry 1-0
2. deild:
Barnsley-Crystal Palace 24
Bradford-Shrewsbury 3-1
Brighton-Sunderland 3-1
Charlton-Blackburn 3-0
Fulham-Huddersfield 2-1
Grimsby-Norwich 1-0
Leeds-Charlisle 2-0
Middlesbrough-Millwall 3-0
Sheff. Utd-Portsmouth 0-0
Stoke-Oldham 2-0
Wimbledon-Hull 3-1
3. deild:
Bolton-Bristol City 0-4
Brentford-York 3-3
Bristol Rovers-Chesterfield 1-1
Lincoln-Wigan 0-0
Newport-Darlington 3-0
Plymouth-Blackpool 3-1
Reading-Derby 1-0
Rotherham-Bournemouth 4-1
Swansea-Nots County 0-0
Walsall-Bury 3-2
Wolverhampton-Cardiff 3-1
Föstudagur:
Doncaster-Gillingham 2-3
4. deild:
Burnley-Scunthorpe 1-2
Chester-Southend 2-0
Crewe-Colchester 0-2
Hartlepool-Wrexham 3-3
Hereford-Halifax 2-1
Northampton-Cambridge 0-2
Peterborough-Aldershot 3-0
Preston-Exeter 2-2
Rochdale-Mansfield 1-1
Liverpool náði tveggja stiga for-
ustu á laugardag í 1. deild eftir
stórsigur á fallliði Birmingham á
Anfield, 5-0, og er af mörgum talið
hafa betri möguleika á meistaratitl-
inum en Everton. En Liverpool hefur
leikið einum leik meira, á eftir tvo
leiki, báða á útivöllum, gegn Leicest-
er og Chelsea. Everton á eftir þrjá
leiki. Leikur gegn Oxford á útivelli
á miðvikudag, síðan Southampton
og West Ham á heimavelli. Leikur-
inn við West Ham næstkomandi
mánudag.
Allir bestu með
Liverpool var með alla sína bestu
leikmenn gegn Birmingham nema
hvað MacDonald lék í stað Steve
McMahon. Athygli vakti þó að Mark
Lawrenson var aðeins varamaður.
Gary Gillespie hélt stöðu sinni og
skoraði þrennu í leiknum! Ian Rush
skoraði fyrsta markið á 26. mín.
Craig Johnston gaf fyrir, Ronnie
Whelan spymti á markið og Rush
stýrði knettinum inn. Jan Mölby
skoraði síðan úr vítaspymu. Gille-
spie skoraði fyrsta mark sitt með
skalla á 46. mín. Fyrsta mark hans
á leiktímabilinu. Hann skoraði aftur
á 56. mín. með góðu skoti og þegar
Liverpool fékk aðra vítaspymu sjö
mínútum fyrir leikslok heimtuðu
áhorfendur að Gillespie tæki spyrn-
una. Dalglish, sem ekki bar mikið á
í leiknum, samþykkti þegar og Gary
skoraði.
„Þetta er einn alversti leikur okkar
á keppnistímabilinu en gott að fá
stigin þrjú,“ sagði John Lyall, stjóri
West Ham, eftir að lið hans hafði
sigrað Coventry 1-6 á heimavelli.
Leikmenn Coventry léku stífan
varnarleik og miðverðir liðsins
höfðu lengstum góð tök á
McAvennie og Cottee. Fyrir leikinn
var Cottee útnefndur besti leikmaður
WH á leiktímabilinu. Hann hafði
áður hlotið titilinn „besti ungi leik-
maðurinn" í kjöri félags atvinnu-
mannanna ensku. West Ham hefur
aðeins tapað einu stigi meira en
Liverpool og á því vissulega mögu-
leika á meistaratitlinum. Á fjóra
leiki eftir, tvo heima, tvo úti. Coven-
try, sem haldið hefur sæti sínu
samfleytt í 19 ár í 1. deild, er nú í
mikilli fallhættu. Á aðeins einn leik
eftir og hefur verri markamun en
Leicester og Oxford, sem eru neðar
á töflunní. Coventry hefur þó hlotið
Qórum stigum meira en Oxford.
Loks skoraði Davenport
Man. Utd komst í þriðja sætið á
ný eftir sigur á Leicester á Old Traf-
ford, 4-0. Frank Stapleton skoraði
fyrsta mark leiksins, eina markið í
fýrri hálfleik. Þá Mark Hughes og
það er síðasta markið sem hann skor-
ar fyrir United á Old Trafford, að
minnsta kosti næstu árin. Er á förum
til Barcelona. Clayton Blackmore,
sem lék í stað Bryan Robson, skoraði
þriðja markið og Peter Davenport
það fjórða úr vitaspyrnu. Fyrsta
mark hans fyrir United frá því hann
\ ar keyptur frá Forest fyrir nokkrum
vikum.
Aston Villa komst úr fallhættunni
eftir „slagsmálaleik“ við Chelsea á
Villa Park. Sigraði 3-1. David Nor-
• Glenn Hoddle á nú hvern stór-
leikinn eftir annan.
ton skoraði fyrsta mark Villa mínútu
fyrir leikhléið. Spackman jafnaði
fyrir Chelsea úr mjög vafasamri víta-
spyrnu en á síðustu sex mínútunum
skoraði Villa tvívegis, fyrst Steve
Hunt, síðan Simon Steinrod á loka-
mínútunni.
Sheff. Wed. vann góðan sigur í
Southampton, 2-3, þar sem miðvörð-
urinn Paul Hart skoraði sigurmarkið
á siðustu mínútunni. Sheff. Wed.
náði forustu með marki Carl Shutt á
þriðju mín. Jimmy Case jafnaði í
byrjun síðari hálfleiks. Aftur náði
Wednesday forustu með marki Shel-
ton. Danny Wallace jafhaði og svo
kom að Hart.
En naumara var það hjá Ipswich
þegar liðið sigraði Oxford 3-2 á
heimavelli. Aitken skoraði sigur-
mark Ipswich þegar þrjár mínútur
voru komnar fram yfír venjulegan
leiktíma. Nokkrar tafir í leiknum
vegna meiðsla Terry Butcher.
Aldridge skoraði fyrsta mark leiks-
ins fyrir Oxford, 30. mark hans á
leiktímabilinu og eina markið í fyrri
hálfleik. Jason Dozzell jafnaði á 51.
mín. og tveimur mín. síðar skoraði
Butcher. Philips jafnaði fyrir Oxford
meðan Butcher var utan vallar
vegna meiðsla sem hann hlaut.
• Arsenal komst í 2-0 gegn WBA
með mörkum Stewart Robson og Ian
Allinson en George Reilly jafnaði
fyrir fallliðið í 2-2.
• Mick Harford skoraði þrennu
fyrir Luton í sigrinum á Watford en
Jackett og Sinnett skoruðu fyrir lið
Elton John.
• Gordon Davies skoraði fyrir
Man. City snemma leiks gegn New-
castle en leikmenn heimaliðsins tóku
við sér í síðari hálfleik. Skoruðu þá
þrjú mörk, Clark, Roeder og White-
hurst.
• Glenn Hoddle var hreint frábær
með Tottenham gegn QPR á gervi-
grasinu og ýmsir eru farnir að spá
honum aðalhlutverki í enska lands-
liðinu á HM. Tottenham komst í 0-5
áður en QPR skoraði þar sem leik-
menn Tottenham skoruðu fjögur
mörk á 15 mínútum frá 39. mín. til
Titill Hearts í
nær öruggri höfh
- eftir 1-0 sigur á Clydebank. Celtic á enn fræðilega
möguleika eftir 2-0 sigur gegn Dundee
Gary McKay nær gulltryggði liði
sínu Hearts skosku meistaratignina
í knattspyrnu er hann skoraði eina.
mark liðsins í 1-0 sigri á Clydebank
í úrvalsdeildinni um helgina.
Mark McKay tryggði Hearts fjög-
urra stiga forystu þegar aðeins ein
umferð er eftir. Celtic, sem er í öðru
sæti, á þó enn möguleika á að ná
Hearts að stigum, á leik inni, en
Edinborgarliðið er með mun betri
markatölu. Nái Hearts stigi í Dundee
næstkomandi laugardag mundi það
gulltryggja fyrsta meistaratitil liðs-
ins síðan 1960. Annars urðu úrslit
þessi í Skotlandi um helgina:
Aberdeen-Rangers............1-1
Celtic-Dundee...............2-0
Dundee Utd-St. Mirren.......1-2
Hearts-Clydebank............1-0
Motherwell-Hibemian.........3-1
Brian McClair og Maurice Jo-
hnston tryggðu Celtic auðveldan
sigur á Dundee á heimavelli sínum.
Dundee lék einum færra mestallan
leikinn eftir að Ray Stephen hafði
verið vikið af leikvelli fyrir að slá
Danny McGrain, fyrirliða Celtic.
Celtic á eftir að leika við Mother-
well og St. Mirren og eru báðir
leikimír á útivelli.
Það var John Hewitt sem tryggði
fráfarandi meisturum Aberdeen stig
gegn Rangers en áður hafði Ted
McMinn náð forystunni fyrir gest-
ina. -fros
Staðan í skosku úrvalsdeildinni eft-
ir leiki á laugardag.
Hearts
Celtic
Dundee Utd
Aberdeen
Rangers
Dundee
St. Mirren
Hibernian
Motherwell
Clydebank
35 20 10 5 59-31 50
34 18 10 6 60-38 46
35 17 11 7 57-30 45
35 15 12 8 56-31 42
35 12 9 14 51-45 33
35 13 7 15 43-51 33
35 13 5 17 42-58 31
35 11 6 18 48-61 28
34 7 6 21 33-62 20
35 6 8 21 29-71 20
• Gary Gillespie, þrenna fyrir
Liverpool og fyrstu mörk hans á leik-
tímabilinu.
54. Clive Allen skoraði tvívegis,
einnig Mark Falco en Hoddle eitt
mark. Þeir Rosenior og Bannister
skoruðu fyrir QPR. Fyrst við vorum
að skrifa um enska HM-liðið má
geta þess að annaðhvort Steve
Hodge, Sheff. Wed., eða Chris Tum-
er, Man. Utd, verða valdir í HM-liðið
ef Gary Bailey, Man. Utd, verður
ekki búinn að ná sér af hnémeiðslun-
um slæmu sem hann hlaut á lands-
liðsæfingu fyrir Skotaleikinn. Peter
Shilton verður auðvitað aðalmark-
vörður enskra. Chris Woods, Nor-
wich, gengur næstur honum.
• í 2. deild er nú að verða öruggt
að það verða Lundúnaliðin Charlton
og Wimbledon sem fylgja Norwich
upp í 1. deild. Bæði unnu góða sigra
á laugardag en Portsmouth náði að-
eins jafntefli í Sheffield. Portsmouth
hefur aðeins unnið einn leik af sex
síðustu og möguleikamir á sæti í 1.
deild, sem virtust svo góðir í byrjun
þessa mánaðar, eru nú foknir út í
veður og vind annað árið í röð. Mað-
ur hlýtur að hafa samúð með litla
Allan Ball, stjóra liðsins, heims-
meistara 1966. Þá má einnig geta
þess að Wolverhampton Wanderers,
það stórfræga lið, féll á laugardag
niður í 4. deild þrátt fyrir 3-1 sigur
á Cardiff. _hsím
STAÐAN
Staðan á Englandi eftir leikina á
laugardag. 1. deild:
Liverpool 40 24 10 6 86-37 82
Everton 39 24 8 7 78-38 80
Man. Utd 41 22 9 10 69-35 75
West Ham 38 23 6 9 67-34 75
Chelsea 39 20 11 8 56-48 71
Sheff. Wed. 41 20 10 11 62-54 70
Luton 41 18 11 12 6943 65
Nott. For. 41 18 11 12 67-52 65
Arsenal 39 18 9 12 4644 63
Newcastle 41 17 12 12 67-70 63
Tottenham 40 17 8 15 6547 59
Watford 39 15 9 15 62-59 54
QPR 41 15 7 19 52-62 52
Southampton 39 12 9 18 46-50 45
Man. City 40 11 11 18 42-55 44
A. Villa 41 10 14 17 49-63 44
Ipswich 40 11 8 21 31-52 41
Coventry 41 10 10 21 46-70 40
Leicester 40 9 12 19 52-74 39
Oxford 39 8 12 19 57-78 36
Birmingham 41 8 5 28 30-72 29
WBA 41 4 12 25 33-86 24
2. deild:
Norwich 40 24 9 7 80-36 81
Charlton 39 20 10 9 7343 70
Portsmouth 41 21 7 13 6541 70
Wimbledon 38 19 11 8 55-36 68
C. Palace 41 19 8 14 56-51 65
Sheff. Utd 41 17 10 14 63-62 61
Hull 40 15 13 12 62-55 58
Stoke 40 14 15 11 4847 57
Brighton 40 16 8 16 64-60 56
Millwall 40 16 7 17 60-63 55
Barnsley 41 14 13 14 4548 55
Oldham 40 15 9 16 58-59 54
Bradford 39 16 5 18 50-56 53
Leeds 41 15 8 18 56-68 53
Grimsby 41 14 10 17 57-59 52
Huddersfield 41 14 10 17 51-66 52
Shrewsbury 40 13 9 18 50-61 48
Blackburn 41 11 13 17 50-61 46
Middlesbro 41 12 9 20 43-51 45
Sunderland 40 11 11 18 43-61 44
Carlisle 39 12 7 20 42-66 43
Fulham 40 10 6 24 44-65 36