Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1986, Qupperneq 31
DV. MÁNUDAGUR 28.APRÍL 1986.
31
Sandkorn Sandkorn
Pan-póstur
Þrátt fyrir að allir lands-
menn séu orðnir frekar
þreyttir á öllu snakkinu um
Pan-hópinn, sem gengur
um með frygðarglampa í
augum og sýnir nærbræk-
ur, verður þessi Pan-saga
að flnka:
Málið er nefnilega það að
pósthúsið á Akureyri er
sagt yfirfullt af Pan-tækj-
um. Virðist sem Pan-póstur
sé núna nánast eini póstur-
inn sem berst til Akur-
eyrar.
Skagstrend-
ingar
fá nýtt nafn
Skagaströnd heitir í lög-
giltum kokkabókum
Höfðakaupstaður. Fáir tala
hins vegar um Höfðakaup-
stað heldur einungis
Skagaströnd. Nú mun líka
svo komið að hreppsnefnd-
in á staðnum ætlar að
breyta nafninu - og að sjálf-
sögðu í Skagaströnd.
Veislan mikla
Matarveislan mikla í
íþróttahöllinni, sem starfs-
mannafélag Sambands-
verksmiðjanna hélt í tilefni
50 ára afmælis félagsins,
tókst í alla staði frábærlega
vel. Tæplega 700 manns
mættu í matinn. En frekar
fannst mönnum fámennt
liðið frá SÍS í Reykjavík.
Erlendur Einarsson for-
stjóri boðaði forföll vegna
starfa hjá Sambandi sam-
vinnufélaga á Norðurlönd-
unum. Hjörtur Eiríksson,
fyrrum forstjóri verksmiðj-
anna, átti ekki heiman-
gengt og það mætti enginn
frá starfsmannafélagi Sam-
bandsins í Reykjavík.
En kátt i höllinni samt.
Eyfirðingar
eiga loft
Áfram um matarveisluna
miklu i Höllinni á Akureyri:
Valur Arnþórsson,
stjórnarformaður Sam-
bandsins, hélt skemmtilega
tölu og skaut i glettni á þá
Jón Sigurðarson, forstjóra
verksmiðjanna, og Bjarna
Jónsson, formann starfs-
mannafélagsins, sem báðir
eru Þingeyingar, og sagði
Þingeyinga sjaldnast
skorta loft. Bjarni formað-
ur svaraði þá fyrir sig með
vísu sem faðir hans, Jón
Bjarnason frá Garðsvík á
Svalbarðseyri, setti saman
fyrir nokkrum árum:
Þessi heyrist æði oft,
öfundsjúkra kliður.
Eyfirðingar eiga loft,
en anda því bara niður.
Kjaftasögur
Þær kjaftasögur sem
mest voru í gangi á Akur-
eyri í síðustu viku voru um
Ingvar Gíslason og næsta
bæjarstjóra. Heyrðist að
Ingvar yrði nú senn sendi-
Ingvar Gíslason.
herra - og að Valur kaup-
félagsstjóri tæki sæti á lista
framsóknarmanna í næstu
þingkosningum. Helgi
Bergs bæjarstjóri á, sam-
kvæmt sömu sögu, að taka
við starfi kaupfélagsstjóra
KEA. Björn Jósef Arnvið-
arson, (jóröi maður á lista
Alþýðuflokksins í komandi
bæj arstj órnarkosningum,
og gamla alþýðuflokks-
kempan, Sighvatur Björg-
vinsson, voru og nefndir
sem kandídatar í bæjar-
stjórann.
María í
Málmey
Blóðbræður, söngleikur-
inn sem Leikfélag Akur-
eyrar sýnir um þessar
mundir, hefur fengið góðar
undirtektir. Verið er að
frumsýna stykkið um öll
Norðurlönd þessar vikurn-
ar. í Malmö Stads Teater
voru Blóðbræður frum-
sýndir á dögunum. Akur-
eyrsk stúlka, María
Árnadóttir, fer þar með eitt
aðalhlutverkið.
Helgi Bergs.
Gleðibankinn
á ensku
Þjóðin hefur greinilega
sameinast um Gleðibank-
ann sem á að slá í gegn í
Björgvin um helgina. Lagið
er reyndar þrumugott.
Ungu kynslóðinni á Ak-
ureyri finnst þó lagið enn
betra á ensku og viil að
þannig verði það kyijað i
Björgvin. En því miður -
einhverjar reglur kveða á
um að söngvararnir verði
að bregða fyrir sig móður-
málinu.
Stutt ferð -
en löng
Fyrirsagnir dagblaða
geta oft verið skemmtileg-
ar. I einu norðanblaðinu
stóð þessi á dögunum, er
verið var að segja frá Græn-
landsferð:
„Stutt ferð - en löng til
Grænlands.“
Og önnur:
„Magnamenn fóru heim
með tíu mörk á bakinu.“
Þeir eru greinilega ekki
af baki dottnir hjó Magna á
Grenivík.
Af grímuballi
Þessa tökum við beint
upp úr Degi:
Það var haldið grímuball
í sveitinni og ein stúlkan
mætti í korti af íslandi. Ein-
hvern tima um kvöldið var
hún á tali við ungan mann.
Þá gerðist það aUt í einu að
hún sló hann utan undir og
geystist svo í burtu.
„Hvað gerðist eiginlega?“
spurði vinur unga manns-
ins.
„Við vorum bara að tala
saman, hún spurði hvaðan
ég væri og ég benti á Vest-
mannaeyjar."
Umsjón: Jón G. Hauksson.
Kvikmyndir Kvikmyndir
1 Austurbæjarbíó - Elskhugar Maríu ★★★ 1
Persónuleg og falleg mynd
hjá Rússanum Konchalovsky
Elskhugar Maríu (Maria’s Lovers
Bandarísk, árgerð 1984.
Leikstjóri: Andrei Konchalovsky sem
einnig er höfundur handrits ásamt öðrum.
Framleiðendur: Menahem Golan og
Yoram Globus.
Tónlist: Gary S. Renal.
Myndataka: Juan Ruiz Anicia.
Aðalhlutverk: Nastassja Kinski, John
Savage, Robert Mitchum og Keith Carrad-
ine.
Það leynir sér ekki að Andrei
Konchalovsky, sem er leikstjóri-og
höíundur handrits þessarar myndar,
er rússneskur að þjóðemi. Myndin
er miklu nær rússneskri kvikmynda-
hefð en bandarískri þó hún sé
framleidd í Bandaríkjunum. Aðal-
sérkenni hennar að þessu leyti eru
þó hin sterku persónulegu einkenni
sem myndin heíúr. Hún er fyrst og
fremst verk eins manns enda krafð-
ist Konchalovsky þess að leikstýra
auk þess að gera handrit. Þó er það
nokkur einföldun að segja að að hún
sé rússnesk með öllu. Elskhugar
Maríu er t.d. mjög „hröð“ mynd,
miðað við myndir Tarkowskys.
Konchalovsky naut mikila vin-
sælda í heimalandi sínu áður en
hann flutti vestur fyrir jámtjald.
Eftir að hann fór vestur gekk honum
illa að fá verkefni en nú er hann
kominn á skrið. Auk þessarar mynd-
ar hefur hann gert myndina
Runa way Train en fyrir frammistöðu
sína í þeirri mynd var Jon Voight
tilnefndur til óskarsverðlauna. Án
þess að hafa séð þá mynd held ég
að það megi fullyrða að ffami Voight
þar sé að nokkm Konchalovsky að
þakka. Myndir hans gefa nefnilega
Rússneski leikstjórinn Konchalovsky leikstýrir þeim Kinski og John Savage
i myndinni Elskhugar Maríu.
leikurum ákaflega kærkomin tæki-
færi til að sýna snilli sína. Þetta
kemur berlega í ljós í Elskhugum
Maríu þar sem mikið mæðir á aðal-
leikurum.
í raun er sagan í Elskhugum Mar-
íu ákaflega óljós og erfitt er að skilja
hvað Konchalovsky er að fara. Hann
beitir fyrir sig ýmsum táknmyndum
sem erfitt er að ráða i og lengi fram-
an af er eins og söguþráðurinn sé
að leysast upp.
Við sjáum í upphafi þegar rætt er
við Ivan Bibic (John Savage) um það
hvað hann hafi hugsað um á meðan
á stríðinu stóð. Hann svarar heimil-
ið og það er hin rauði þráður
myndarinnar. Væntingar hans til
lífsins, sem heima bíður, eru svo
miklar að honum tekst ekki að að-
lagast þvf sem heima bíður. Hann
giftist æskuást sinni, Maríu, en
draumurinn um hana hefúr orðið að
nokkurs konar þráhyggju hjá hon-
um á meðan hann dvaldist í fanga-
búðum Japana. Þrátt fyrir að þau
Ivan og María séu orðin hjón þá
getur lvan ekki notið ástar með
Maríu. Þetta fær svo á hann að hann
fer að heiman. Eftir það er spurning-
in aðeins hvort þau ná saman aftur.
Konchalovsky hefúr tekist með
þessari mynd að skapa athyglisvert
myndverk og nýtur við það dyggrar
aðstoðar myndatökumannsins Juan
Ruiz Ancia. Aðalleikaramir standa
sig með prýði og njóta þess greini-
lega að vinna undir öruggri stjóm
Konchalovsky. John Savage útvíkk-
ar aðeins taugaveikluðu „týpuna“
sem hann lék í The Deer Hunter og
stendur sig vel.
Það er ánægjulegt að sjá að þeir
félagar Golan og Globus hafa ein-
hvern listrænan metnað en þetta er
án efa ein merkilegasta myndin sem
hefur komið úr smiðju þeirra til
þessa. Sigurður Már. Jónsson
★★★★ Frábær ★★★ Góð ★★ Miðlungs ★ Léleg 0 Afleit
Nýkomið glæsilegt úrval af vor- og
sumarbuxnadrögtum, jökkum og kápum.
£fáátwn
LAUGAVEGI66 9 SÍMI25980
GOODYEAR
ó hagstæðu verði
Hvort sem er í þurru færi eða blautu
í lausamöl eða á malbiki
á hálku eða í snjó eru:
MÝKT, GRIPFESTA OG GÓÐ ENDING
aðalsmerki Goodyear-hjólbarðans
LEIÐANDI í VERÖLD TÆKNIÞRÓUNNAR HJÓLBARÐA
GOODfÝEAR
IhIHEKIAHF
Laugavegi 170 172 Sfcr>i 21240