Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1986, Page 40
40
DV. MÁNUDAGUR 28.APRÍL 1986.
Andlát
Helga E. Andersen lést 18. apríl sl.
Hún fæddist í Reykjavík 23. júlí 1894.
Foreldrar hennar voru Helga Jóns-
dóttir og Hans Andersen. Helga
giftist Bjarna Þorgeiri Magnússyni,
en hann lést langt um aldur fram.
Þeim hjónum varð fjögurra bama
auðið. Utför Helgu var gerð frá Dóm-
kirkjunni í morgun.
Kolbrún Jónsdóttir lést 18. apríl sl.
Hún fæddist 21. ágúst 1913 á Æsu-
stöðum í Húnavatnssýslu, en fluttist
ung að ámm til Reykjavíkur þar sem
hún bjó síðan alla tíð. Kolbrún vann
við verslunarstörf alla tíð og í nokk-
ur ár rak hún verslunina Iðu við
Laugaveg. Útför hennar verður gerð
frá Dómkirkjunni í dag kl. 15.
Sigurður Árnason lést 18. apríl sl.
Hann fæddist að Kúskerpi í Húna-
vatnssýslu 17. apríl árið 1920. For-
eldrar hans voru Guðrún Jónsdóttir
og Ámi Sigurðsson. Sigurður út-
skrifaðist úr Verslunarskóla íslands
árið 1940. Hann réðst til Síldarverk-
smiðja ríkisins sem gjaldkeri árið
1948, hann varð síðan skrifstofustjóri
árið 1959 og gegndi því starfi til
dauðadags. Eftirlifandi eiginkona
hans er Sigríður Sigurðardóttir.
Þeim hjónum varð þriggja bama
auðið. Útför Sigurðar verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag kl. 13.30.
Elín Jóhannesdóttir lést 19. apríl sl.
Hún fæddist í Flatey á Breiðafirði
15. febrúar 1985. Foreldrar hennar
voru hjónin Herdís Jónatansdóttir
og Jóhannes Ámason. Elín lærði
hjúkrun og starfaði lengst af á
sjúkrahúsi Patreksfjarðar. Útför
hennar verður ferð frá Fossvogs-
kirkju í dag kl. 15.
Sigríður Benjamínsdóttir, Þúfubarði
11, Hafnarfirði, andaðist að Sólvangi
25. apríl.
Sigurbjörg Eyjólfsdóttir, Grettisgötu
76, Reykjavík, lést á heimili sínu
miðvikudaginn 23. apríl. Útförin
verður auglýst síðar.
Victoriano Álberto Zorrilla lést 23.
apríl sl. í Ocean Reef í Florida. Minn-
ingarathöfn fer fram í Reykjavík
síðar.
Brynjólfur Símonarson lést 23. apríl
í Hafnarfirði.
Sigurgarðar Sturluson, Hrauntugu 8
Kópavogi, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju, þriðjudaginn 29.
apríl kl. 15.
Útför Fríðu Gísladóttur, Hjarðar-
haga 46, sem lést 17. apríl, verður frá
Dómkirkjunni í dag kl. 13.30.
Andrea Helga Ingvarsdóttir, Ham-
arsbraut 12, Hafnarfirði, sem lést 21.
apríl, verður jarðsungin frá Hafnar-
fjarðarkirkju, í dag mánudag kl.
13.30.
Anna P. Helgadóttir, Grundarstíg 10,
sem lést 22. apríl verður jarðsungin
frá Dómkirkjunni föstudaginn 2. maí
kl. 10.30.
Margrét Friðbjarnardóttir, Suður-
götu 15, Keflavík, lést í sjúkrahúsi
Keflavíkur 24. apríl.
Sigurbjöm Árnason frá Landakoti,
Sandgerði, verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni þriðjudaginn 29. apríl
kl. 15.
Kristín Eyjófsdóttir, Krókahrauni 4,
Hafharfirði, verður jarðsungin frá
Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn
29. apríl kl. 13.30.
Tilkynningar
200 ára afmæiis
Reykjavikur minnst
Nk. miðvikudagskvöld, 30. apríl, kl.
20.30 mun Félagið Ingólfur (stofnað
1934) efna til fundar þar sem minnst
verður 200 ára afmælis Reykjavíkur.
Ingólfur hefur fengið Guðjón Frið-
riksson, sem starfar hjá Reykjavík-
urborg við að skrá sögu hennar, til
að flytja fyrirlestur um húsið Aðal-
stræti 8 sem á sér lengri sögu en
sjálfur kaupstaðurinn. 1 sögu þessa
húss endurspeglast saga bæjarins.
Guðjón rekur sögu Aðalstrætis 8 í
máli og myndum og segir frá fræg-
ustu íbúum þess, svo sem Einari
hattara, Jónasi Hallgrímssyni, Sig-
urði Breiðfjörð, Benedikt Gröndal,
Valgarð Breiðfjörð og Jóhanni
„próka“. Valgarð stækkaði húsið og
byggði aftan við það leikhús sem
kallað var Fjalakötturinn. Saga Að-
alstrætis 8 gefur innsýn í atvinnu-
og menningarsögu höfuðstaðarins.
Fundurinn verður haldinn í Stúd-
entakjallaranum við Hringbraut. Á
undan erindinu verður efnt til aðal-
fundar Ingólfs en fyrirlesturinn hefst
kl. 21 og er öllum opinn.
Snæfellingafélagið i Reykjavík
Mörg undanfarin ár hefur skemmti-
nefnd Félags Snæfellinga og Hnapp-
dæla gengist fyrir því að bjóða eldri
héraðsbúum til sameiginlegrar kaffi-
drykkju. Hafa þessar samkomur
verið mjög vel sóttar. Að þessu sinni
verður kaffiveislan haldin í hinu
nýja félagsheimili Sóknar að Skip-
holti 50a sunnudaginn 4. maí nk. kl.
15. Til skemmtunar verður m.a. að
kór félagsins syngur nokkur lög und-
ir stjórn Friðriks Kristinssonar.
Kórinn mun í vor fara í söngferð á
Snæfellsnes og halda tónleika 10.
maí á Hellissandi og í Breiðabliki.
Byggingarnefnd
Þjóðarbókhlöðu
kom saman miðvikudaginn 23. apríl
til að fagna frumvarpi því til laga
um þjóðarátak til byggingar þjóðar-
bókhlöðu er samþykkt var á Alþingi
daginn áður. Nefndin þakkar Sverri
Hermannssyni menntamálaráðherra
forgöngu hans í þessu máli og Al-
þingi brautargengið. Hönnuðir
bókhlöðunnar hafa að undanförnu
haft uppi viðbúnað vegna næstu
áfanga en stefnt er síðan að fullnað-
arhönnun hennar. Unnið hefur verið
inni í bókhlöðunni i vetur að múr-
verki og undirbúningi einangrunar
og hitalagnar og býr sú vinna í hag-
inn fyrir frekari framkvæmdir.
Landsmót UMFÍ1990
Á stjórnarfundi UMFÍ 19.-20. apríl
sl. var sú ákvörðun tekin að fela
UMSK landsmótshald árið 1990.
Landsmótsstaður hefur verið ákveð-
in að Varmá i Mosfellssveit. Verður
þetta í fyrsta sinn sem UMSK heldur
landsmót UMFÍ og fer vel á að það
verði 1990 en þá eru liðin 50 ár frá
því að UMSK vann landsmót i fyrsta
sinn. Landsmótið 1990 verður það 20.
í röðinni. Formaður UMSK er Katr-
ín Gunnarsdóttir og framkvæmda-
stjóri er Einar Gunnarsson.
Sambandið hefur skrifstofu að
Mjölnisholti 14 í Reykjavík og er
síminn þar 16016.
Utvarp_____________Sjónvarp
Bergþóra Ámadóttir tónlistarmaöur:
Ég treysti á mitt fólk
Þó að ekki sé beinlínis keppt um
myndbönd hlýtur það að hafa eitt-
hvað að segja að íslenska mynd-
bandið er áberandi best. En það er
líka mjög gott frá Júgóslavíu, þar
fannst mér lagið að auki virkilega
skemmtilega þjóðlegt, má kannski
segja eina þjóðlega lagið í keppn-
inni. Svo er tyrkneska lagið ansi
skemmtilegt, það er eins og hafi ve-
rið lagt talsvert í þessi.
Af því sem kom í gær, frá Dan-
mörku, Svíðþjóð og Finnlandi,
fannst mér sænska lagið alveg stórg-
ott og myndbandið skondið og
skemmtilegt.
Mér finnst Gleðibankinn alveg
þrælgóður miðað við það sem hann
var, útsetningin er þrælgóð hjá
Gunnari og þau þrjú finnst mér
koma mjög vel fyrir og gera góða
hluti. En ég hef athugasemd við tex-
tann. Ég var í húsi í gær þar sem
var lítill strákur sem sagði: „Gleði-
hús, er það ekki hóruhús?" Mér
þykir hafa verið kastað til höndun-
um með íslenska textann, er ekki frá
því að sá enski sé betri. Og þetta set
ég fram af því að í upphafi var einn-
ig keppt um texta. Það var látið
heita svo en ég get ekki merkt það
á þeim lögum sem komust í tíu laga
úrslit, til dæmis er forkastanlegt að
lag með áberandi málvillur eins og
„fyrir mér og þér“ skyldi komast
áfram, það er alveg furðulegt og sýn-
ir mér og fleirum sem hugsum um
íslensku að ekki var tekið mikið til-
lit til texta. En ég treysti á mitt fólk
og vona að þau vinni. Ég óska öll-
um, sem í Gleðibankanum vinna, til
hamingju, þetta er stórgott hjá þeim.
Þessi keppni hefur aldrei verið jafri-
viðamikil fyrir okkur, nú hefur
maður fengið að fylgjast með öllu
og það er skemmtilegt og það að
vera með er góð landkynning.
-JSÞ
Lif-fara-fræði
í dag, mánudaginn 28. apríl, verður
nýstárleg fræðigrein kynnt en þá
heldur Már Vilhjálmsson jarðfræð-
ingur fyrirlestur um hvemig hægt
er að greina för og ummerki eftir líf-
verur í setlögum og nota þau til að
túlka það umhverfi sem lífverumar
lifðu og hrærðust í.
1 fyrirlestrinum ætlar Már m.a. að
greina frá niðurstöðum rannsókna
sinna á setlögum í Fossvogi frá síð-
. asta hlýskeiði ísaldar.
Fyrirlesturinn verður í stofu 201 i
Ámagarði og hefst kl. 20.30. Allir
velkomnir.
Vordagar Samtakanna 78
Þann 29. apríl nk. heíjast svonefndir
Vordagar Samtakanna ’78, félags les-
bía og homma á Islandi. Vordagamir
er samfelld lista- og menningardag-
skrá sem stendur í fimm daga og
lýkur með dansleik 3. maí. Þetta er
í annað skipti sem Samtökin 78 efna
til slíkrar viku til að kynna menn-
ingu og listsköpun homma og lesbía
og er hún haldin í húsakynnum Sam-
takanna í Reykjavík, Brautarholti
18, 4. hæð. Það er von þeirra sem að
Vordögunum standa að allir þeir
birtist þar sem láta sig vaxtarbrodda
menningarinnar einhverju varða.
Þriðjudaginn 29. apríl hefjast Vor-
dagamir kl. 20 með opnun myndlist-
arsýningar. Örn Karlsson sýnir
collage- og vatnslitamyndir frá und-
anförnum árum og verða þær til
sýnis alla Vordagana. Allar mynd-
irnar em til sölu á viðráðanlegu
verði. Síðar um kvöldið verður sýnd
kvikmynd sem einkum höfðar til
kvenþjóðarinnar.
Miðvikudaginn 30. apríl er opið
hús í Brautarholti 18 frá kl. 20 en
kl. 21 hefst fjölbreytt listadagskrá.
Fimmtudaginn 1. maí verður
verkalýðskaffi og róttækar kökur á
boðstólum frá kl. 15. Um fimmleytið
verður sýnd kvikmyndin Hnefarétt-
ur frelsisins eftir Rainer Werner
Fassbinder.
Föstudaginn 2. maí er opið hús frá
kl. 20 en um kl. 21 verður flutt sam-
felld dagskrá um lesbíska tónlist og
texta. Þá verður bandaríska skáld-
konan Alice Walker kynnt, lesinn
kafli úr frægustu bók hennar, Purp-
uralitnum, og kvenmenning mun
ríkja fram eftir kvöldi.
Vordögum lýkur síðan með gleð-
skap á almennum dansleik sem
Samtökin ’78 halda í risinu, Hverfis-
götu 105, laugardaginn 3. maí, frá
kl. 23-3 eftir miðnætti.
Tölvufræðinemar Háskóla ís-
lands:
Tölvusýning í október
Hópur tölvunarfræðinema hefur
ákveðið að standa fyrir umfangsmik-
illi tölvu- og hugbúnaðarsýningu í
október. Sýningin verður haldin í
hinu nýja Borgarleikhúsi í Reykja-
vík.
Undirbúningur er þegar hafinn og
er stefnt að því að þessi sýning verði
hin veglegasta sinnar tegundar sem
haldin hefur verið hér á landi. Farið
er að hafa samband við þá aðila sem
selja vél- og hugbúnað og hafa ýmsir
þegar gefið vilyrði sitt fyrir þátttöku.
Má til dæmis nefna IBM, HP og
KÓS.
Yfirskrift sýningarinnar verður
„Tölvur og þjóðlíf ‘ og er ætlunin að
sýna tölvunotkun í sínu víðasta sam-
hengi. Er t.d. í athugun að auk hins
almenna tölvubúnaðar sýni einstök
fyrirtæki sérhönnuð kerfi.
1 tengslum við sýninguna verður
einnig haldin ráðstefna og gefið úr
blað.
Þeim sem hafa áhuga á að fræðast
nánar um sýninguna er bent á:
Sýningarhóp tölvufræðinema,
c/o Jóhann Másson,
Hjarðarhaga 4-6,
Reykjavík.
Kvennaskólastúlkur Blönduósi
1969-70
Hvernig væri að við færum að hitt-
ast? Hafið samband við Jónu í síma
94-7335 eða Svönu í síma 94-3886
fyrir 3. apríl.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur
Flóamarkaður verður í dag, 28. apríl,
að Garðastræti 3. Opið frá kl. 14-17.
Kvenfélag Fríkirkjunnar
í Reykjavík
heldur fund fimmtudaginn 1. maí nk.
kl. 20.30 að Ásvallagötu 1. Spilað
verður bingó.
Gullúr fannst
Karlmannsgullúr fannst á bílastæði
við Ólympíuhúsið, Grettisgötu, fyrir
rúmum mánuði. Upplýsingar í síma
10836 (Helga).
STEFAN BOJSTEN
piano
Ljóðatónleikar í Norræna
húsinu
Þriðjudaginn 29. apríl kl. 20.30 verða
ljóðatónleikar í Norræna húsinu.
Sænska söngkonan Marianne Eklöf
syngur við undirleik Stefans Boj-
stens. Á efnisskránni eru 9 söngvar
eftir Þorkel Sigurbjörnsson við ljóð
eftir Jón úr Vör, söngvar eftir Wil-
helm Stenhammar, Wilhelm Peter-
son-Berger, Xavier Monsalvatge og
þrjú vorljóð eftri Miklos Maros við
MAKíANNE eklöf
UCZZOSOPKAN
japönsk ljóð. Stefan Bojsten leikur
verk eftir Fr. Chopin á píanó.
Marianne Eklöf og Stefan Bojsten
halda tónleika á vegum Norræna
hússins. og Norræna félagsins á
Húsavík á sunnudag kl. 16 og á Ak-
ureyri um kvöldið en norræn vika
verður haldin á þessum stöðum í
næstu viku.
Þá munu þau Eklöf og Bojsten
skemmta gestum á Valborgarmessu-
hátíð Sænsk-íslenska félagsins á
miðvikudagskvöld 30. apríl.
BIFREIÐASTJÓRAFÉLAGIÐ SLEIPNIR
heldur félagsfund 29. apríl 1986 kl. 20.
Fundarstaður Hótel Esja.
Fundarefni staðan í samningunum.
Daníel Óskarsson formaður.
OFFSETPRENTARAR
Óskum eftir að ráða offsetprentara nú þegar.
Mikil vinna.
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR
Þverholti 11 - simi 27022.
V