Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1986, Síða 42
42
DV. MÁNUDAGUR 28.APRÍL 1986.
Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós Svið
Ólyginn
sagði...
„Heimsins fallegasti og besti“
orðinn að brjóstumkennanlegum trúði
Ryan O’Neal
eyðir nú dögunum í barnagæslu
og bleiuþvott á meðan Farrah klíf-
ur karrierstigann í kvikmyndun-
um. Hún er á kafi i hlutverki sinu
i nýrri kvikmynd og sést sjaldan
á heimavígstöðvum. Ryan tekur
lifinu með mestu ró og segist vera
alsæll með skiptin. „Eins og flest-
ir kaþólskir írar er ég ákaflega
hrifinn af börnum og vonast eftir
tvíburum næst.“
Diana
prinsessa
hefur harðbannað Karli eigin-
manni sínum að syngja i baöi
nema þegar hún sjálf er víðs fjarri
Kensington Palace. Prinsinn er
að sögn kunnugra hræðilegasti
sturtutenór sem fyrirfinnst í
landinu og flytur sígild óperulög
beint frá eigin brjósti. Diana hefur
andstyggð á allri klassik og ekki
batnar það við þetta form á flutn-
ingnum. Karl hefur ýmislegt reynt
í sjálfsvarnarskyni og þrautalend-
ingin er að láta hanna hljóðein-
angraða sturtu undir
útidyratröppunum. Arkitektar
hans hátignar vinna nú baki
brotnu að lausn málsins.
XXULJí\Jí\JL
1 *H • >C
er lokið
Frá Gizuri í. Helgasyni, fréttaritara
DV í Ziirich:
Hjónabandið er farið í hundana
og draumavillan út í veður og vind
- en samt ferðast Muhammad Ali
um gjörvöll Bandaríkin í húsbíl
sínum og boðar fagnaðarerindi
Allah.
Hér áður fyrr var hann dáður og
virtur en nú hefur maður með-
aumkun með honum. Muhammad
Ali, 44 ára, þrefaldur heimsmeistari
í þungavigt, mesti boxari allra
tíma.
Ali varð að yfirgefa 22ja her-
bergja stórhýsi sitt í Los Angeles
og býr nú í húsbíl, reyndar af skárri
gerðinni (verð 43.000 $), 20 metra
löngum. í honum þýtur hann svo
um hraðbrautir Bandaríkjanna - í
þjónustu Allah, eins og hann kunn-
gjörir: „Ég er þjónn Allah og það
sem ég geri er gert fyrir Allah.
Hann hefur hlekkjað mig, en ég er
þakklátur fyrir það.“
Dýr skilnaður
Ali er skilinn við hina fögru ljós-
myndafyrirsætu Veronicu. Hún var
þriðja eiginkona hans og sú dýr-
asta, jafnt fyrir sem eftir skilnað.
Veronica hélt ekki aðeins drauma-
villunni (þessari með herbergjun-
um 22) heldur heimtar hún einnig
3 milljónir dollara fyrir að hafa
búið með „þeim mesta og besta“ í
8 ár.
Fáir koma til að sjá kappann
Á meðan Muhammad Ali var og
hét í hringnum þyrptust að honum
þúsundir manna hvar sem hann
kom, til að sjá og heyra hetjuna,
enda munnurinn á réttum stað á
þeim tima. í dag er svo komið að
örfáir auðnuleysingjar koma til
þess að sjá „the greatest“. Stundum
er Ali fenginn til þess að opna nýja
staði, s.s. vörumarkaði og fleira í
þeim dúr. Samkvæmt fréttum af
slíkum hátíðarstundum virðist Ali
hafa misst allt það aðdráttarafl sem
hann hafði, enda þótt í tilkynning-
um sé því lofað að hann taki
nokkur „spor“ og „sveiflur" upp á
gamla mátann. Sporin eru klunna-
leg og sveiflurnar hægar. Gamla
kímnin virðist horfin og þess í stað
virka sögumar hans raunalegar og
leiðigjamar. í stað þess að vekja
aðdáun þá fær hann meðaumkvun.
Er Mohammad Ali með Park-
insonsveikina?
Þeir fáu en tryggu vinir, sem Ali
á í dag, segja að hann sé veikur.
„Hann lifir ekki lengur í þessum
heimi. Allah, Allah, Allah. Allah
hefur tekið hug hans allan.“
Ali hefur sjálfur annast um út-
gáfu á bókum sem bera titilinn
„Prayer and Al-Islam“ og skrifar
sjálfur vitnisburð á titilsíðurnar til
þess að auka sölumöguleika ri-
tanna. Þrátt fyrir „vitnisburðinn“
virðast fáir hafa áhuga á því að
kaupa bækumar og hefur Ali orðið
að gefa mestan hluta upplaganna.
Þetta þætti víst ekki góð kaup-
mennska í jólabókaflóðinu á
íslandi. Ali er aftur á móti ekkert
miður sín vegna þessara málaloka,
eða svo er hvorki að sjá né heyra.
Þetta er allt í þjónustu Allah.
Muhammad Ali er pottþéttur í
trú sinni: „Allah er að prófa mig.
Sérhver sem er jafn „great“ og ég
þarf að gangast undir ákveðna eld-
raun og greiða sitt verð þar að
lútandi. Þetta er stærsta „keppni"
mín til þessa.“
Vissulega stendur Ali í eldraun
en þar er um að ræða veikindi hans.
Sérfræðingar segja nefnilega að
hann þjáist af hinni illræmdu
Parkinsonsveiki, krónískum
taugasjúkdómi sem hvorki er vitað
um orsakir fyrir né lækning er við.
Helstu sjúkdómseinkennin eru stíf-
ir vöðvar, stöðugur skjálfti og
hægar hreyfingar. Andlitsdrættir
slakna, raddbeiting versnar, allt tal
verður án tilþrifa og hægt. Göngu-
lag verður hægt og stundum
reikandi.
Glaðvær svipur í harmleiknum. Aðeins sárafáir koma til að sjá Muhammad Ali við opnun markaða.
Orsakanna að leita í boxinu
Menn telja að ugglaust megi
rekja veikindi Alis til boxáranna.
Einhverjir hafa gert sér það til
dundurs að reikna út hversu mörg
högg Ali hafi fengið á sig, bæði á
skrokk og höfuð, þau ár sem hann
var í hringnum. Talan varð 300.
„Ég hef eiginlega verið á flakki undanfarin sex ár,“ segir
danskennarinn Hulda Hallsdóttir, „en núna er stefnt að
því að freista gæfunnar í Reykjavík. Hulda hefur rekið
dansskólann Danslínuna undanfarin ár og í þessari viku
byrja hjá henni námskeið hérna í höfuðstaðnum.
„Fyrst lærði ég hjá Sigvalda, síðan hjá Sigurði Hákonar-
syni og að því loknu stofnaði ég Danslínuna og byrjaði að
flakka um landið. í millitíðinni hef ég þó farið til London
í nám, var þar í sex mánuði og tók svokallað Membership
í suður-amerískum dönsum. Margir eldri kennaranna hér-
lendis hafa þetta próf en líklega er ég ein um það af yngri
kynslóðinni.
Núna ætla ég að fara af stað með námskeið í bænum, þau
heíjast í þessari viku og síðar kemur í Ijós hvort flakkið
heldur áfram. Framtíðin er óákveðin.“
Hulda Hallsdóttir
ætlar að halda sér
við höfuðstaðinn
á næstunni.
Dansinn sem lifibrauð
Jú, það er hægt að lifa af dansinum, en tekjumöguleikar
eru ofsalega mismunandi. Einn veturinn er fullt af nemend-
um og þann næsta enginn. Þetta fylgir tískunni og við
getum aldrei verið örugg með nemendafjöldann. Kennslan
fer svo líka einungis fram á veturna en liggur alveg niðri
yfir sumartímann. En þetta er mjög skemmtilegt starf og
krefjandi - og alltaf einstaklega gaman að sjá árangur.
í Bretlandi hefur sama sérhæfi-
leika og okkar íslenski forsætis-
ráðherra ef marka má bresku
blöðin. Hann lamdi hressilega á
puttann á sér við heimaföndur
fyrir skömmu og varð að vera
með höndina i umbúðum svo
dögum skipti. Myndir af lemstruð-
um prinsinum birtust á útsíðum
einna tuttugu stórblaða í Breta-
veldi og sýnir það Ijóslega ein-
stæða umhyggju landsmanna
fyrir heittelskuðum erfðaprinsi.
Karl prins