Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1986, Side 43
DV. MÁNUDAGUR 28.APRÍL 1986.
43
ijós Sviósljós Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós
Mynd frá velmektardögunum: Ali í Kínareisu með Veronicu, hinni fallegu
eiginkonu sinni.
000. Það ætti því engan að furða
þótt .eitthvað væri farið að gefa sig
eftir slíkar barsmíðar.
Ali er sennilega ekki á heljar-
þröminni fjárhagslega
Fyrrum þjálfari Alis, Angelo
Dundee, telur Ali ekki vera í alvar-
legum fjárkröggum. . .
Með tilliti til gengisbreytinga á
liðnum árum hefur Ali halað inn
um 2,2 milljarða ísl. króna. Eftir
standa um það bil 4 milljónir doll-
ara sem ættu að gefa honum
mánaðarvaxtatekjur upp á 35.000
dollara, sem þættu allþokkaleg
mánaðarlaun sums staðar. Aftur á
mót virðist Ali ekkert sérstaklega
ánægður með þetta.
Upp á síðkastið tönnlast Ali sí-
fellt á því að hann sé að verða
gamall. Einnig talar hann mikið
um dauðann. Þetta myndi nú mörg-
um fmnast ffemur snemmt þar eð
Mohammad Ali varð 44 ára þann
17. jan. sl. í afmælisveislunni sagði
hann við vini sína að hann væri
að búa sig undir dauðann. Sál mín
verður að vera hrein, hvort sem
dauðinn ber að dyrum í dag, eftir
5 ár eða tíu.
Hann er aftur á móti fámáll um
milljónirnar sínar. „Forgengilegir
hlutir skipta mig engu máli,“ segir
hann. Sennilega er hér um óbeina
tilvitnun í Kóraninn að ræða, því
þar stendur undir orðinu „ein-
manaleiki": Þegar hjarta þitt er
hnuggið þá hjálpar enginn utanað-
komandi gleði.“
Langþráð afkvæmi
Ljómandi af gleði voru nýbakaðir
foreldrarnir Olivia Newton-John og
Matt Lattanzi þegar Irene móðir
Oliviu tók myndir af þeim með litlu
dótturina Chloe Rose. Olivia vildi
ekki láta ljósmyndara koma nærri
dótturinni en amman brá sér frá
Ástralíu til þess að líta krílið augum
og mynda í leiðinni.
Eilífðarunglingurinn Olivia er orð-
in þrjátíu og sjö ára gömul og það
þykir nokkuð gamalt fyrir móður
sem er að eiga sitt fyrsta barn. Allt
gekk þó vel, dóttirin fæddist nokkr-
um vikum fyrir timann en var samt
á allan máta fullburða. Faðirinn
Matt er tíu árum yngri en eiginkon-
an og segist vera rétt að byrja fjölgun
mannkyns á sínu heimili. Hann er
alinn upp í fátækt, einn níu systkina
og vill eiga svipaðan fjölda barna
sjálfur.
Lítt hefur fengist upp úr Oliviu um
ffekari barneignir, hún virðist því
ekki með öllu fráhverf og ætlar að
snúa sér að því að breyta ímyndinni
frá unglingi í fullvaxinn kvenmann.
Ungar
fyrirsætur
óskast!
Ertu á aldrinum tfu til tólf ára,
strákur eða stelpa, og langar til
þess að reyna færnina í fyrirsætu-
störfum? Þá er ef til vill tækifærið
núna því undanfarið hefur verið
hér á landi listhönnuðurinn Martie
Dekkers í leit að góðum fyrirsætum
fyrir tískumvndatöku hérlendis á
næstunni.
Þetta er vinna á vegum hollensku
barnafatafyrirtækjanna Barbara
Farber og Pointer en þau eru með
umfangsmikla framleiðslu á fatn-
aði fyrir börn og unglinga. Núna
er ætlunin að vinna myndefni við
bækling um vetrartískuna ’86 -’87
og er honum dreift ókeypis í tveim-
ur milljónum eintaka til viðskipta-
fyrirtækja og einstaklinga víðs
vegar um Evrópu. Myndirnar
verða teknar hérlendis og íslensk
börn notuð í fyrirsætustörf þannig
að þarna er um heilmikla land-
kvnningu að ræða.
Martie Dekkers er væntanlegur
aftur hingað til lands 3. maí ásamt
aðstoðamönnum og mun þá velja
endanlega þau börn sem henta í
fyrrnefna fyrirsætuvinnu. Þeir sem
hafa áhuga eða vilja gefa ábend-
ingar um aðra. sem hæfileika hafa
í slíka vinnu, eru beðnir að hafa
samband við starfsfólk í verslun-
inni Sonju að Laugavegi 81 og geta
þar fengið nánari upplýsingar um
fyrirætlanir Dekkers.
Fyrstu skrefin
Diana prinsessa í Bretlandi stóð í ströngu þegar hún
flaug með synina William, þriggja ára, og Harry, eins
og hálfs árs, frá London til Aberdeen í Skotlandi. Þess-
ir verðandi heimsborgarar skoðuðu veröldina af
óblandinni forvitni þannig að allt var í hers höndum
í flugvélinni. Prinsessan var á harðahlaupum alla leið-
ina til þess að varna því að bræðurnir hlutuðu farkost-
inn niður í smástykki. Á meðfylgjandi mynd er hún
sloppin út undir bert loft með afkvæmin og Harry tek-
ur samstundis viðbragð og ætlar að hendast eftir
flugbrautinni.