Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1986, Qupperneq 48
Hafir þú ábendingu eða vitn-
eskju uxn firétt - hringdu þá í
sima 687858.
Fyrir hvert firéttaskot, sem
birtist eða er notað í DV,
greiðast 1.000 krónur.
Fyrir besta firéttaskotið í
hverxi viku greiðast 3.000
krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við firéttaskotum
allan sólarhringinn.
Frjálst, óháð dagblað
MÁNUDAGUR 28. APRlL 1986.
I
í
í
i
Ásakanir um áfengisneysiu og
agaleysi hjá Landhelgisgæslunni:
„Kalla á
rannsókn“
- segir Steingrímur Hermannsson
„Það verður að rannsaka málið.
Landhelgisgæslan getur ekki legið
undir þessum ásökunum. Ef þær eru
réttar verður að laga það sem aflaga
hefur farið,“ sagði Steingrímur Her-
_jnannsson forsætisráðherra og
dómsmálaráðherra í fjarveru Jóns
Helgasonar, vegna ummæla Jóns
Sveinssonar, fyrrum starfsmanns
Landhelgisgæslunnar, þess efnis að
innan gæslunnar ríkti agaleysi, skort-
ur á fagmennsku og skipulagi, örygg-
ísmálum væri ábótavant, mikið skorti
á þjálfun starfsmanna og að þeir eyddu
tíma sínum um borð í fyllirí og spila-
mennsku.
Gunnar Bergsteinsson, forstjóri
Landhelgisgæslunnar, hefur hafnað
þessum ásökunum Jóns Sveinssonar
og skilur ekkert í því hvaðan hann
hefur þetta.
Jón Sveinsson er sjóliðsforingi frá
Noregi og hlaut sína menntun á þeim
vettvangi þar.
„Ég veit ekki annað en þessi maður,
Jón Sveinsson, sé traustur og áreiðan-
legur. Á hann ber auðvitað að hlusta.
Ég ætla samt ekki að gerast dómari í
málinu en ofnotkun áfengis og aga-
leysi eru mjög alvarlegar ásakanir.
Ég þekki marga góða menn sem
starfað hafa í Landhelgisgæslunni og
mig hefur aldrei grunað að ástandið
væri svona ef ásakanir Jóns eru rétt-
ar,“ sagði Steingrímur.
Steingrímur sagðist mundu ræða við
menn í ráðuneytinu um leiðir til þess
að komast til botns í málinu. „Síðan
mun það bíða Jóns Helgasonar þegar
hann kemur aftur,“ sagði Steingrímur.
-KB
Hungurfanginn
byrjaður að borða
„Hann byrjaði að borða á föstudag-
inn þannig að það er von til að honum
líði eitthvað betur núna,“ sagði Helgi
Jónsson í dómsmálaráðuneytinu í
samtali við DV. Þriggja vikna hungur-
verkfalli fanga í Hegningarhúsinu við
Skólavörðustíg er því lokið.
Fanginn, sem ekki hafði nærst á
^iðru en vatni í þijár vikur, var að
mótmæla Hæstaréttardómi sem kveð-
inn var upp 30. apríl 1985. Þar var
hann dæmdur fyrir grófa líkamsárás
vopnaður hnífi og hlaut 8 mánaða
fangelsi.
„Menn eru stundum að reyna að
svelta sig út úr fangelsum en það geng-
ur nú ekki,“ sagði Helgi Jónsson.
-EIR
Ari Þór Jóhannesson með leyfið fra Sky Channel
Fimmta erlenda sjónvarpsstöðin:
Græntljósá
Sky Channel
Breska gervihnattasjónvarpsstöð-
in Sky Channel hefur nú opnast
íslendingum. Er hún fimmta erlenda
sjónvarpsstöðin, sem gefiir íslend-
ingum leyfi til að horfa á sig.
Sky Channel er send út trufluð.
Til að ná henni þarf að kaupa sér-
stakan aftruflara frá Sky Channel
fyrir 415 pund eða um 26 þúsund
krónur.
Fimm slíkir aftruflarar hafa verið
sendir til íslands. Þremur þeirra er
óráðstafað en hinir tveir fara til
Hótel Holts og Ara Þórs Jóhannes-
sonar, rafeindavirkja I Krummahól-
um 8, sem í nóvember í vetur varð
fyrsti einstaklingurinn hérlendis til
að taka á móti gervihnattasjónvarpi.
„Sky Channel er fyrir flestalla
besta rásin sem við eigum kost á,“
sagði Ari Þór, sem í síðustu viku
fékk tilraunaleyfi Sky Channel. Býst
hann við að fá innan tíu daga leyfi
til að tengja Sky Channel við íhúðir
í Krummahólum 2, 4, 6, 8 og 10.
„Sky Channel er ekkert nema af-
þreying; kvikmyndir, framhalds-
þættir, tónlistarþættir. Það er mikið
um íþróttir og bamaefhi, til dæmis
er mikið um teiknimyndir fyrir böm
um helgar. Stöðin sýnir marga þætti
sem vora í Keflavíkursjónvarpinu í
gamla daga, til dæmis Lost in Space
og Lucy Ball,“ sagði Ari Þór.
Talið er að upp séu komnir hér-
lendis um 30 skermar til að taka við
sjónvarpssendingum gervihnatta.
Áuk Sky Channel hafa fjórar stöðv-
ar í Eutelsat I-gervihnettinum gefið
íslendingum grænt ljós. Þær era
franska stöðin TV-5, kristilega stöð-
in New World, bandaríska stöðin
Worldnet og evrópska stöðin
Europa.
-KMU
Kaupskipin
að stöðvast
Bæði undirmenn og skipstjórar á
farskipum hafa boðað verkfall. Und-
anfarið hafa verið haldnir árangurs-
lausir sáttafundir þessara hópa.
Sáttasemjari mun síðdegis kanna
hvort grandvöllur sé fyrir nýjum
sáttafundum.
Skipstjórar hafa boðað tveggja sól-
arhringa verkfall frá og með hádegi á
morgun og þriggja daga verkfall síðar
ef ekki nást samningar. Þá hefúr Sjó-
mannafélag Reykjavíkur boðað verk-
fall undirmanna á farskipum frá og
með 1. maí.
Sáttafundur Bílstjórafélagsins
Sleipnis hefur verið ákveðinn á mið-
vikudaginn. Bílstjórar hafa einnig
boðað til verkfalls frá og með 1. maí.
APH
Veðrið á morgun:
Hlýtt veður
en skýjað
um allt land
Á morgun verður hlýtt veður um
allt land og fer hiti mest í 10 stig
fyrir norðan. Þetta er þó ekki sól-
baðsveður þvi lítið mun sjást til sólar
nema þá helst hjá Norðlendingum
sem njóta hennar af og til. Austan-
áttin verður ríkjandi um allt land
með skúrum um allt sunnan- og suð-
austanvert landið. Annars staðar
verður þurrt.
-S.Konn.
LOKI
Ætli kjölfar varðskipanna
sé mjög hlykkjótt?
Ætla að mynda breið-
fylkingu nýrra hluthafa
Níumannahópurinn svokallaði á-
kvað um helgina að nota næstu tvær
Geriö uerösamanburö
og pantiö
úr
til þrjár vikur til að mynda breiðfylk-
ingu nýrra hluthafa í Amarflugi. Er
ætlunin að leita til fjölmargra aðila.
Ennþá hefur enginn skrifað sig fyrir
nýju hlutafé.
Meðan níumannahópurinn safhar
nýjum hluthöfum þarf stjóm Amar-
flugs að halda hluthafafund til að færa
gamla hlutaféð niður í tíu prósent af
nafnvirði. Ennfremur þurfa Amar-
flugsmenn að semja við erlenda
kröfuhafa.
-KMU