Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.1986, Side 12
12
DV. FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 1986.
SVEITARSTJÓRI
Staöa sveitarstjóra í Grundarfirði er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 20. júní. Nánari upplýsingar gefur
Sigríöur A. Þórðardóttir í síma 93-8640.
LAUS STAÐA
Staða bókavarðar í Landsbókasafni íslands er laus til
umsóknar. Til greina kemur að ráða í tvær hálfar stöður.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og starfs-
feril, skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu fyrir 25.
júní næstkomandi.
4. júní 1986.
Menntamálaráðuneytið.
tJRARIK flTROn
^ RAFMAGNSVEITUR RlKISINS ^ |
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftirfarandi:
RARIK-86009: Þrífasa dreifispennar 800-1600 kVA.
Opnunardagur: Fimmtudagur 10. júli 1986 kl. 14.00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins,
Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyrir opnunartima og
verða þau opnuð á sama stað að viðstöddum þeim bjóð-
endum er þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkis-
ins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með fimmtu-
degi 5. júní 1986 og kosta kr. 300,- hvert eintak.
Reykjavík, 3. júní 1986.
Rafmagnsveitur ríkisins.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Álftamýri 38, þingl. eign Erlendar O. Ólafssonar,
fer fram eftir kröfu Björgvins Þorsteinssonar hdl. á eigninni sjálfri mánudag
9. júní 1986 kl. 14.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Grundarstig 11, þingl. eign Árna Jenssonar, fer
fram eftir kröfu Landsbanka íslands, Veðdeildar Landsbankans og Guðjóns
Á. Jónssonar hdl. á eigninni sjálfri mánudag 9. júní 1986 kl. 16.00.
____Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Nesvegi 46, þingl. eign Gísla Hjaltasonar, fer fram
eftir kröfu Haraldar Blöndal hrl„ Ásgeirs Thoroddsen hdl. og Veðdeildar
Landsbankans á eigninni sjálfri mánudag 9. júní 1986 kl. 10.30.
___________Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 14., 19. og 23. tbl. Lögbirtingablaðs 1986 á hluta í Hverf-
isgötu 82, tal. eign Ólafar Birnu Waltersdóttur, fer fram eftir kröfu Jóns
Ingólfssonar hdl. á eigninni sjálfri mánudag 9. júní 1986 kl. 10.45.
_____Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 14 , 19. og 23. tbl. Lögbirtingablaðs 1986 á hluta í Hverf-
isgötu 82, tal. eign Jóns Þ. Walterssonar, fer fram eftir kröfu Péturs
Guðmundarsonar hrl. og Guðjóns Á. Jónssonar hdl. á eigninni sjálfrí mánu-
dag 9. júní 1986 kl. 10.45.
_____________Borgarfógetaembættið i Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Grettisgötu 94, þingl. eign Ástríðar Eyjólfsdóttur,
fer fram eftir kröfu Gísla Gíslasonar hdl. og Sigurmars K. Albertssonar hdl.
á eigninni sjálfri mánudag 9. júní 1986 kl. 15.15;
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Háaleitisbraut 36, þingl. eign Ólafar K. Erlends-
dóttur, fer tram eftir kröfu Róberts Á. Hreiðarssonar hdl. og Gjaldheimtunnar
í Reykjavík á eigninni sjálfri mánudag 9. júní 1986 kl. 14.45.
_________________Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta I Freyjugötu 10, þingl. eign Sigríðar Hallgríms-
dóttur, fer fram eftir kröfu Jóns Þóroddssonar hdl., Sveins H. Valdimarssonar
hrl. og Skúla Bjarnasonar hdl. á eigninni sjálfri mánudag 9. júní 1986 kl. 10.30.
_______________Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Neytendur Neytendur Neytendur
Utfjólublá Irfshætta
- sólböð reynast mun hættulegri en áður var talið
Það verður nú sífellt augljósara að
afleiðingar sólbaða eru mun hættu-
legri en áður hefur verið talið. Þetta
á ekki einungis við um sólbekki og
lampa, heldur einnig allt sólarljós.
Staðreyndin er sú að á undanfómum
árum hefur tiðni húðkrabba aukist
með ógnvænlegum hætti og hefur það
leitt til þess að húðsjúkdómafræðingar
hafa beint athygli sinni að sólböðum,
sem er sá þáttur sem er hvað áhrifa-
mestur.
Frá árinu 1930 hefur tíðni húð-
krabbameins aukist frá því að einn
af hveijum 1.500 fengu þessa tegund
krabbameins upp í það að vera árið
1986 einn af hverjum 150 og hlutfallið
verður að öllu óbreyttu einn af hveij-
um 100 árið 2000.
Helsta vandamálið sem læknar
standa frammi fyrir er að allt sólarljós
virðist vera mun skaðlegra en áður
var ætlað, í öðru lagi líkar fólki vel
að liggja í sólinni og síðast en ekki
síst segir tískan fólki að það sé fallegt
að vera sólbrúnn, fólleitur litarháttur
bendir til heilsuleysis og þykir ekki
eftirsóknarverður. Sólbrúnn litarhátt-
ur komst fyrst verulega í tfsku snemma
á þessari öld þegar hann stóð fyrir góð
efni sem gátu leyft fólki að sækja
klúbbinn sinn og stunda útiveru sem
almúganum gafst ekki færi á. Nú á
dögum stendur útitekin húð einnig
fyrir æsku og heimsborgaralegan stíl
sem þykir eftirsóknarverður. Þessi
tíska sýnir sig best í því að á undaföm-
um árum hafa sólbaðsstofur sprottið
upp eins og gorkúlur og gera fólki því
kleift að auka enn við sólböðin. Þær
njóta geysilegra vinsælda, jafnvel á
stöðum þar sem sólin skín árið um
kring.
Talað fyrir daufum eyrum
Vandinn, sem sérfræðingar standa
frammi fyrir, er hvemig á að fá fólk
til að hlusta á röksemdimar gegn sól-
böðum og það sem enn erfiðara er,
hvemig á að fá það til að fara eftir
þeim. Fyrir stuttu kom ítalskur húð-
sjúkdómafræðingur fram í sjónvarpi
og beindi þeim tilmælum til kvenna
að forðast útivem yfir hádaginn þegar
sólin skín sem sterkast á milli 11 og
Á fyrstu myndinni sést algengasta
tegund af húðkrabbameini. Önnur
myndin sýnir hvernig breytingin hefur
leitt til byrjunarstigs sortuæxlis, á
þriðju myndinni er krabbameinið
komið á það stig að erfitt getur orðið
að iækna það og fjórða myndin sýnir
sortuæxli sem getur reynst ólæknan-
legt því það dreifir sér hratt um
húðina.
16.00. En áhrifin virtust lítil. „Hvemig
get ég sagt þrítugri konu að með
áframhaldandi sólböðum fói hún húð-
krabbamein um sextugt?" spyr annar
sérfræðingur. Húðsjúkdómafræðingar
em nú á þeirri skoðun að hvers konar
geislun frá sólinni komi af stað röð
af frumubreytingum sem em að mestu
leyti endanlegar og leiða til skemmda
á húðinni. Ályktun þeirra er skýr og
skorinorð: „Sólböð em hættuleg i öllu
tilliti."
Húðkrabbamein
Algengustu skemmdimar, sem verða
af sólarljósinu, em krabbamein í
þekjufrumunum og í flestum tilfellum
er hægt að lækna slíkt, en mun alvar-
legri em hin illkynja sortuæxli, sem
em sjaldgæfari. Margt bendir til þess
að helsta orsökin sé ekki langvarandi
sólböð, heldur skipti vemlegur sól-
bmni meira máli. Það em útfjólubláir
geislar sólarinnar sem geta haft var-
anleg skaðleg áhrif á uppbyggingu
DNÁ, en því miður em það eimnitt
þessir geislar sem draga fram litarefni
í húðinni. Sérfræðingar greina á milli
útfjólublárra A-geisla (UV-A), sem em
lengri, og útfjólublárra B-geisla (UV-
B) sem em mun sterkari og hættulegri
og em sterkastir um hádegisbilið. Fyr-
ir nokkm skiptu sólbaðsstofur yfir í
A-geisla í þeirri trú að þeir væm al-
gjörlega skaðlausir, en nú em vísinda-
menn famir að efast alvarlega um
skaðleysi þeirra því í tilraunum hefur
komið ffarn að A-geislar em samvirk-
andi með B-geislum og koma í veg
fyrir að DNA geti haldið eðlilegri end-
umýjun sem þörf er á eftir hina
skaðlegu B-geisla í sólarljósinu. Af
þessu má því ætla að tiltölulega
hættulaust væri að stunda sólböð í
UV-A geislum, svo framarlega að sól-
baðsdýrkandinn færi aldrei út fyrir
hússins dyr yffr hádaginn. Húðsjúk-
dómaffæðingar hafa því lagst gegn
sólböðum í sólarbekkjum, hvort sem
geislamir em af A eða B-gerð.
Sólarljósið getur orsakað
blindu
Önnur hlið á sólböðum, sem hingað
til hefur ekki verið til umræðu, er
áhrif sólarljóssins á augun og sjónina.
Svo virðist sem útfjólubláir geislar
geti orsakað myndun vagls á auga og
auka sólgleraugu, sem ekki halda
geislunum frá, á hættuna. Vegna þess
að birtan er minni em augun galopin
og geislamir eiga greiða leið inn í
augað og þegar til lengri tíma er litið
getur geislunin orsakað blindu. Það
sem helst hefur verið rætt um varð-
andi sólböð er aukin hrukkumyndun,
og jafn-kaldhæðnislegt og það er virð-
ist það vera helsta hræðsluefnið.
UV-geislamir þurrka upp húðina og
gera það að verkum að sveigjanleiki
og þanþol frumnanna minnkar til
muna. Rannsóknir sýna að lítill mun-
ur er á húð þrítugrar og sjötugrar
manneskju ef tekin er húð sem að öllu
jöfnu er hlíft við sólarljósi. Þetta sýn-
ir að húðin heldur sér ungri mun
lengur en áður var haldið og er sólar-
ljósið hér aftur stærsti skaðvaldurinn.
Húðsjúkdómaffæðingar skipta húð
niður í nokkra flokka eftir því hve fljót
hún er að taka lit. Mjög ljós og frekn-
ótt húð, sem aldrei tekur lit, er í
mestri hættu en dökk húð í minnstri.
Húð, sem þegar er orðin sólbrún, hefur
fjórum sinnum meira viðnámsþol gegn
bmna, en fæstir gera sér grein fyrir
því að hann á sér samt sem áður stað
undir sólbrúnkunni og skemmdimar
verða jafnmiklar.
Fyrir þá sem vilja taka sönsum, auka
lífslíkur sínar og halda sér ungum
ffam á efri ár er besta ráðið að forð-
ast sólböð. Fyrsta reglan er að liggja
ekki í sólarlömpum og í öðm lagi að
forðast að vera úti í sterku sólskini
án góðrar vamar. Til þess er hægt að
nota stóra hatta, þótt íslendingar séu
fbekar ólíklegir til að taka þann sið
upp, setja upp sólskýli og fara aldrei
út í sólskin án þess að bera á sig krem
til vamar hinum skaðlegu geislum
sólarinnar.
(Stuðst við Newsweek) -S.Konn.
UpplýsingaseðiU;
til samanbimVar á heimiliskostnaði I
Hvað kostar heimilishaldið? [
Vinsamlega sendið okkur þennan starseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak |
andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar |
fjolskvldu af sömu stærð og vðar. ,
V
1 Nafn áskrifanda _______________ !
Heimili
i Sím’i
I
Fjöldi heimilisfólks
I
Kostnaður í maí 1986.
Matur og hreinlætisvörur kr.
Annaö kr.
Alls kr.