Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1986, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1986, Qupperneq 14
14 DV. LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ 1986. Skartgripir geta líka verið skemmtilegir Þau höfðu komið sér fyrir í Aust- urstræti í glampandi sólskini og voru að selja handunna skartgripi. Hann dökkur á húð og hár en hún ljós yfirlitum. Hann er kallaður Cheo og er frá Kólombíu, hún heit- ir Sigríður Elva og er íslensk. Óvenjulegt par og skartgripimir þeirra voru líka mjög óvenjulegir. Þeir voru líka skemmtilegir og vöktu mikla athygli þeirra sem leið áttu um Austurstræti. Brotnir speglar, ál og plast En hvaðan skyldu þeir koma, þessir sérkennilegu skrautmunir? „Þetta eru handunnir skartgripir sem við bjuggum til í Barcelona,“ sagði Sigríður Elva sem stundar nám í skartgripasmíði í Barcelona a Spáni. „Við notum eiginlega hvaða efni sem er, brotna spegla, ál, plast og gler en ekki þessa dýru málma sem fólk kannast best við í skartgrip- um. Og formin em mjög ólík því sem fólk á að venjast. Skartgripir þurfa ekki endilega að vera rándýr fjárfesting. þeir geta verið skemmtilegir, fyndnir, hreyft sig og framleitt hljóð.“ Áhrif frá indíánalist Sigríður Elva var spurð hvaðan þau fengu hugmyndimar að þess- um gripum, hvort þetta væri kennt í skartgripasmíðinni? Hún hristi höfuðið og brosti. „Nei, nei, skartgripasmíðin er al- gjörlega hefðbundið nám. Áhrifin koma víða frá. Á vissan hátt eru þetta áhrif frá deginum í dag, augnabliksáhrif, eins og til dæmis firá tilvist kjamorkunnar.“ Og Cheo bætir við: „Svo erum við lika undir sterkum áhrifum frá frumstæðri list, einkum suður- amerískri indíánalist. Þaðan kemur þetta viðhorf að skartgripir þurfi ekki endilega að endast, séu skraut en ekki fjárfesting. Þannig að það er hluturinn sem skiptir máli en ekki efnið." Harðari útlendingalöggjöf Selduð þið þetta á götum úti í Barcelona? „Nei, Það er svo mikið vesen að fá leyfi þar. Maður getur þurft að bíða í margar vikur. Sumir fara út í það að selja án þess að hafa leyfi en það ert> þá stanslaus hlaup um leið og birtist lögga. Síðan eru menn sektaðir ef þeir nást. Og við útlendinga eru þeir jafhvel enn harðari. Það er búið að setja ný útlendingalög og menn orðnir ansi harðir. Útlendingar geta því jafn- vel átt von á því að vera settir inn. Þannig að við nenntum ekki að standa í svoleiðis löguðu. Sumartákn En við gerðum í því að ganga með svona skartgripi í Barcelona og þeir vöktu mikla athygli. Okkur var til dæmis boðið að taka þátt í sýningu þar sem kallast Sumar- tákn. Það er samsýning sem tíu til fimmtán manns taka þátt í, með föt, skartgripi og hatta. Allt af óvenjulegra taginu. Sýningin opn- ar 20.júní svo við skildum bara eftir nokkra gripi en getum því miður ekki séð hvernig þetta kemur út,“ sagði Sigríður Elva. Vinnið þið skartgripina saman? „Við setjumst niður og byrjum LÍFSNAUÐSYNLEG OLÍA Sigriður Elva og Cheo frá Kólombiu. hvort á sínum hlutnum en leitum svo álits hvort hjá öðru. Og ef ég get ekki klárað eitthvað þá tekur hann við því og öfugt. Við sem sagt skiptumst á hugmyndum og gagn- rýni,“ svarar Sigríður Elva sem af skiljanlegum ástæðum hefur oftar orð fyrir þeim. Aldrei séö miðnætursól Cheo hefur stundað nám í gerð vídeomynda en fékkst einkum við „performance" áður en hann kom hingað. En hvernig datt honum í hug að koma til íslands? „Ég hafði heyrt svo mikið um Island og sem krakki las ég mikið um íslendingasögumar og norr- ænu goðasögurnar. Og þegar ég kynntist Sigríði fékk ég þessa stór- kostlegu hugmynd að koma til íslands og láta drauma mína ræt- ast,“ sagði hann. „ísland er frábært land. Fyrir tveimur árum orti ég ljóð um mið- nætursólina þó ég hefði aldrei séð neitt slíkt. Eg hafði heyrt að hér gæti maður séð sólina um hánótt og mér fannst það alveg stórkost- legt. í Kólombíu eru nóttin og sólin andstæður og að yrkja um miðnæt- ursól er súrrealismi, óraunveru- leiki. Hér er það raunveruleikinn sjálfur." Halda áfram aö flakka Þau hafa bæði flakkað mikið, skartgripasmiðirnir frá Barcelona. Hér heima ætla þau að dvelja í tvo til þrjá mánuði en halda þá aftur til Barcelona þar sem Sigríður Elva á eftir þrjá vetur í námi. En hver skyldu framtíðaráformin vera? Ætlar Sigríður að koma heim að loknu námi eða halda þau áfram að flakka? „Ég hugsa að ég haldi áfram flakkinu. Það er alltaf einhver þörf hjá manni fyrir að koma heim, að hafa einhvem fastan punkt til þess að týna sér ekki alveg. En í augna- blikinu er ég ekki til í að fara að búa hér. Mér finnst gott að koma hingað en líka gott að vita að ég fer aftur,“ svarar Sigríður. Og Cheo brosir og segir: „Kannski verðum við áfram á Spáni, kannski förum við til Kólombíu. Það er ómögulegt að segja." -VAJ Sýnishorn af skartgripasmíðinni. Þau nota allskyns efni, plast, ál og gler. Skartgripirnir sem þau bera eru að sjálfsögðu eigið handverk.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.