Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1986, Side 35

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1986, Side 35
DV. LAUGARDÁGUR 21. JÚNÍ 1986. 35 Veiðimenn á öllum aldri munu fjölmenna tii veiða á veiðidegi fjölskyldunnar og þá er ekki spurt um aldur heldur áhuga. Veiðimaður framtiðarinnar, Petra Ingvarsdóttir, rennir fyrir fisk í Apavatni. DV-mynd G.Bender Veiðidagur fjólskyldunnar á morgun Á morgun efiiir Landssamband stangaveiðifélaga í annað sinn til allsherjar stangaveiðidags fjölskyld- unnar um allt land til að auka skilning almennings og stjómvalda á gildi stangaveiðiíþróttarinnar. Hefur sambandið hvatt aðildarfé- lög sín til að fá aðstöðu við silungs- veiðivatn eða -á sem næst sínu byggðarlagi og bjóða almenningi til veiða þennan dag undir leiðsögn vanra veiðimanna. Fyrir velvild Þingvallanefhdar getur stjóm LS boðið endurgjalds- laust til veiða í Þingvallavatni fyrir landi þjóðgarðsins á veiðidegi fjöl- - mætir þú ekki? Veiðivon Gunnar Bender skvldunnar. Gylfi Pálsson, foi-maður landssambandsins, flytur ávarp kl. 10 árdegis við Vatnaskor og þar verða leiðbeinendur óvönum til að- stoðar til kl. 18. Vitað er um eftirtalin stangaveiði- félög sem ætla til veiða í þessum vötnum. Stangaveiðifélag Borgarness í Langavatni. Flúðir á Húsavík í Kringluvatni. Stangaveiðifélag Keflavíkui- í Sel- tjöm. Stangaveiðifélag Hafnaríjarðar í Kleifarvatni. Armenn í Vífilsstaðavatni og Stangaveiðifélag Reykja\dkur í Ell- iðavatni. G.Bender. Veiði- maðurinn? skáldið og forsætis- ráðherrann Steingrímur Hermannsson forsæt- isráðherra er veiðimaður mikill og fer i marga veiðitúra á hverju sumri. Kjarrá er sú veiðiá sem Steingrimur heíúr heimsótt nokkrum sinnum og oft veitt vel á flugu, þó komi stund- um fyrir að laxinn geti verið tregur. Steingrímur var við veiðar í Kjarrá síðasta sumar og orti þá þessa vísu í veiðibókina. Við fengum nesti og nýja skó og nutum þess að vera við Rauðaberg í berjamó já, betra mátti ei gera. Því áin hún var ansi lág og afar lítil veiði mér aðeins tókst í einn að ná en ótal falleg seiði. Þó veiðin sé ekki alltaf mikil er það kannski ekki aðalmálið hjá for- sætisráðherra, heldur útivistin. G.Bender Steingrimur Hermannsson. Veiðieyrað... Veiðieyrað... Veðurofsi Þó veðuifarið sé ekki alltaf upp á það besta í veiðinni harka veiðimenn það af sér. Á Hlíðarvatni í Selvogi getur stundum orðið haugasjór í roki og leiðindaveðri. Veiðimaðm- einn lýsti veðurfarinu við vatnið svo einn daginn fyrir skömmu. „Þegar ég leit út um gluggann á veiðihúsinu var vatnið eins og innsiglingin í Grinda- vík í verstu veðrum. þvílíkm var veðurofsinn." En veiðimenn kalla ekki allt ömmu sína í þessum efnum og um hádegi hafði aðeins lægt og vinurinn. sem fyn' im\ morguninn leit út um gluggann á veiðihúsinu. veiddi 7 silunga. „Jú. veðurfarið hafði aðeins batnað. en ekki mikið. öldugangm-inn var minni." 1000krónur StónuTÍðinn úr Heiðarvatni í Mýrdal hefur vakið athygli meðal veiðimanna og þótti fallegur. Þessi urriði var seldur nokknmi dögum seinna í reyk og var söluverðið 1000 krónur. Skyldi veiðast annar svona vænn? Við skulum vona það. Förum varlega Þegar veiðiár eru vatnsmiklar get- ur verið hættulegt að vaða þær, allavega verður að fara varlega. Norðurá í Borgarfirði var í slíkum ham í vikunni og var erfitt að vaða. Veiðimenn, sem voru við veiðar í ánni. létu sig samt hafa það að vaða. En vegna þess hve vatnsmagnið var mikið og straumurinn þungur stóð víst tæpt stundum og eitt skiptið var aðeins hausinn á veiðimanninum upp úr vatnsskorpunni, hitt var allt neðan vatnsflatar. En allt fór vel að lokimi og veiðimaðurinn náði í fisk skönmiu seinna. En það er kannski betra að fara varlega. Einn fiskur til eða fi-á skiptir engu máli en mannslíf öllu. Fömm með vanið \ið ámar. Það gerist oft margt skemmtilegt í veiðiferðunr og hér koma tvær stuttar sögur af hjónakomum sem við skuhun kalla Steina og Stínu. Við eigvun eftir að he\Ta meira af þeim i simiar því þau fara yfirleitt í marga veiðitúi-a á hverju sumri og alltaf gerist eitthvað skondið hjá þeim. blessuðum. Þau vom \ið veið- ai- í veiðiá einni á Vesturlandi og hafði Steini sett í flugufisk. Bað hann Stínu að vaða út i hylinn og ná í fiskinn. Stína. sem var vön að landa fiskum. gerði eins og fyrir hana var lagt og óð út í hylinn. Mikið var af fiski í hylnum og kem- ur hún auga á fisk eiginmannsins. heldur hún. og tekur um sporð hans og labbar með hann í land. Gellur þá í eiginmanninum: „Hevrðu, þegar þú ert búin að rota fiskinn viltu þá ná i fiskinn minn?“ Og skömmu seinna vom þau að veiða í þessari veiðiá þar sem eingöngu mátti veiða með flugu, var víst veiðin eitthvað treg. Stína var þá sett á vakt og Steini setti tvo maðka á og renndi en Stína átti að láta vita þegar veiði- vörðurinn kæmi. Líður nú og bíður og ekki bítur laxinn á maðkinn hjá eiginmanninum. Allt í einu er bank- að í bak Steina og gellur hann þá við: „Er helvítis veiðivörðurinn kominn, Stína mín.“ Veiðivörðurinn þurfti víst ekki að banka oft. G.Bender

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.