Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1986, Side 37

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1986, Side 37
DV. LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ 1986. 37 Knattspyrna unglinga Knattspyrna unglinga Knattspyrna unglinga Myndirnar eru af Reykjavíkurmeisturum KR-inga í 6. fl. A- og B-iiða. KR-liðin sýndu tals- verða yfirburði i úrslitaleikjunum og verðskulduðu svo sannarlega meistaratitlana. Myndin til vinstri er af A-liðinu sem sigraði Val, 5-0, í úrslitaleiknum. I öftustu röð frá vinstri: Geir Þorsteinsson aðstoðarþjálfari, Jón Már Ólason liðsstjóri og Einar Sigurðsson þjálfari. Mið- röð frá vinstri: Anton G. Pálsson, Andri Sigþórsson, Bjarni Jónsson og Óli B. Jónsson. Fremsta röð frá vinstri: Nökkvi Gunnarsson fyririiði. Páll Ó. Gíslason, Ágúst Jóhannsson og Valgeir Þorvaldsson. - Myndin til hægri er af B-liðinu sem sigraði Fram, 2-0, i úrslita- leiknum. Aftari röð frá vinstri: Bjarni Þorsteinsson, Sigurður Friðriksson, Georg Lúðviksson, Haraldur Þorvarðarson, Jóhann Þorláksson og Hörður Gylfason. Fremri röð frá vinstri: Sverr- ir Þór Viðarsson, Kristinn Viktorsson, Benedikt Magnússon fyrirliði, Vilhjálmur Vilhjálmsson, Óskar Sigurgeirsson, Ragnar Guðjónsson og Arnar Sigurgeirsson. DV-mynd HH 6. flokkur A- og B-lið: KR-ingar Reykjavíkurmeistarar Reykjavikurmót 6. fl. A- og B-liöa var háð 7. og 8. júni sl. Leikiö var i 2 forriðlum, á Vals- og KR-velli, og úrslitakeppnin siðan á gervigrasinu á sunnudeginum. Þetta virðist góð tilhögun og tókst mótið vel til i alla staði. 6. flokkur A-lið: Andri skoraði þrennu! - KR-Valur, 5-0 Andri Sigþórsson, leikmaður með 6. fl. KR A, átti mjög góðan leik gegn Val i úrslitaleiknum. DV-mynd Gústi ,sweeper „Nú er ég alveg orðlaus. - Er þetta ekki einum of mikiö af því góða - þó svo þeir hafi tap- að 15-0 fyrir þeim síðast!!! í úrslitaleik A-liða á Reykjavíkurmóti 6. flokks léku KR og Valur. KR-strák- amir mættu mjög ákveðnir til leiks Og sigruðu með 5 mörkum gegn engu. - Valsstrákamir vom minni að vexti - og skorti því kraft á við KR-ingana sem skipa góðan 6. fl. í ár. 1 Klt-liðinu bar mest á Andra Sigjxirssyni sem sýndi mjög góða leikni og útsjónarsemi en hann skoraði 3 mörk og lagði sitt af mörkum í hinum tveimur. Einkum var skemmtileg sending hans á Valgeir Guð- jónsson í fyrsta markinu sem Valgeir afgreiddi af öryggi. Páll Gíslason gerði og eitt mark í síðari hálfleik með þrumuskoti af um 10 metra færi. KR-liðið er mjög jafhgqtt - enda skipað strákum eins og Nökkva Gunnarssyni fyrir- liða, sterkum leikmanni, Andra Sigþórssyni, Iljama Jónssyni, Antoni G. Pálssyni, Páli Ó. Gíslasyni, og markverðinum Ágústi Jó- hannssyni, svo einhveijir séu nefhdir. Lið Vals er skipað minni strákum, eins og fyrr segir, en góðum þvi þieir fóru vel með boltann og reyndu ávallt að spila en kraílinn vantaði að jiessu sinni. - Bestir í Valsliðinu voru þeir Ólafur Ingason, Ingi Snær Einarsson, Ásmundur Ólafsson og Haffdór Hilmisson. Einnig átti Sigfús Gunn- Sverrir Viðarsson, 6. fl. KR B, átti mjög góðan leik gegn Fram. DV-mynd HH laugsson góða spretti. Allt strákar sem lofa góðu. Leikur liðanna var mjög skemmtilegur þrátt fyrir stóran sigur KR-inga því Vals- strákamir börðust vel. Maður leiksins: Andri Sigjxirsson, KR. HH Urslit leikja: í forkeppni Reykjavíkurmóts 6. fl. A- og B-liða laugnrd. 7. júní varskipt í tvo riðla. A-riðill lék á KR-velli og B-riðill lék á V alsvelli. A-riðill: - Úrslit leikja: ÍR-Víkingur A 0-7 B-lið 0-5 Leiknir-KR A 0-16 B-lið 1-5 Víkingur-KR A 2-4 B-lið 0-5 IR Ixjiknir A 5-3 B-Iið 4-0 Leiknir-Vík. A 1-2 B-lið 1-4 KR ÍR A 6-1 B-lið 8-0 Röðliða: A-lið: 1. sæti KR6st., Vík. 4, ÍR2 og LeiknirO. B-lið: 1. sæti KR6 st„ Vík. 4, ÍR 2 ogLeiknirO. B-riðill á Valsvelli: Fylkir-Þróttur A 4-2 B-Iið 5-0 Fylkir Fram A 0-8 B-lið 1-8 Fylkir Valur A 0-2 B-lið 1-3 Þróttur-Fram A 1-3 B-lið 0-8 Þróttur Valur A 0-4 Valur-Fram A 3-Ö B-lið 0 3 B-lið 1-5 ^Þrottur-rram A 1-3 B-hð 0-8 1.-2. sæti: Kn r ram 24 Röðlið: A-lið: 1 . sæti Valur 6 st., Fram 4. Fylkir 2 og Þróttur 0. B-lið: 1. sæti Kram6st., Valur4. Fylkir 2 og Þróttur 0. Sunnudaginn 8. júní sl. fór fram sjálf úrslitakeppnin og var þá leikið um sæti. Keppt var á gervigrasvellin- um. Úrslit urðu sem hérsegir: A-lið: 7.-8. sæti: Leiknir Þróttur 2-3 5.-6. sæti: ÍR Fvlkir 7-3 3.-4. sæti: Víkingur-Fram 0-2 1.-2. sæti: KR-Valur 5-0 B-lið: 7.-8. sæti: Leiknir-Þróttur 3-0 5.-6. sæti: ÍR-Fylkir 1-1 3.-4. sæti: Vikingur-Valur 3-0 1.-2. sæti: KR-Fram 2-0 6. flokkur-B-lið: Sverrir maður leiksins! - KR-Fram 2-0 í úrslitaleik B-liða, sem var á milli KR og Fram, voru yfirburðir KR-inga tals- verðir - en það var sama sagan og í úrslitaleik A-liða - KR-ingamir voru likamlega sterkari ásamt því að vera góðir. Fyrra mark leiksins kom tiltölulega snemma í fyrri hálfleik og gerði það hinn sterki leikmaður þeirra KR-inga, Benedikt Magnússon, eftir mistök í vöm Framara. KR-ingar sóttu mun meir út í fyrri hálfleik og undir lokin bætti hinn snaggaralegi Óskar Sigurgeirsson öðm marki við og staðan orðin 2-0, KR í vil. Þannig var stað- an í hálfleik. í síðari hálfleik, sem var mun jafhari, var ekkert mark skorað þrátt fyrir góðar tilraunir beggja liða. Leikurinn var í heild sinni skemmtilegur og sýndu bæði liðin góðan fótbolta, eink- um KR-ingar. Bestir í liði KR voru Sverrir Þór Viðarsson, góður drabblari og reyndi ávallt að skila boltanum til samheija, Benedikt Magnússon, harðsnúinn leik- maður, Óskar Sigurgeirsson og Ragnar Guðjónsson. Lítið reyndi á markvörðinn Kristin Magnússon. Einnig vakti Georg Lúðvíksson athygli fyrir góðan leik. KR- liðið sem heild er skipað góðum strákum. Framliðið var, eins og áður segir, minna að vexti og háði það drengjunum töluvert - en þeir reyndu ávallt að leika af skyn- semi og það er það sem skiptir máli. Strákar eins og Rúnar Ágústsson, Sigurð- ur Ö. Magnússon, Friðjón Þórðarson, Pétur Pétursson og Hjalti Harðarson ásamt markverðinum Helga Grétarssyni eiga örugglega eftir að taka stórstígum framfórum. Leikurinn var skemmtilegur og var ánægjulegt að fy'lgjast með áhorfendum sem hvöttu besta liðið að sjálfsögðu af miklum krafti. Maður leiksins: Sverrir Viðarsson, KR. -HH -

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.