Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1986, Síða 17
MÁNUDAGUR 14. JÚLÍ .1986.
17
Lesendur
Enn veiðum við hvalinn
Konráð Friðfinnsson skrifar:
Enn einu sinni eru hvalbátar okkar
að veiðum. Vísindaveiðar heitir það
víst núna. í nýjustu skoðanakönnun
Hagvangs kom í ljós að 75% þjóðar-
innar eru hlynnt veiðunum sem hlýtur
að teljast allgóð samstaða. Ég fæ það
ekki skilið hvaða máli samstaða hér
innanlands skiptir. Er almenningur,
t.d í Bandaríkjunum, sammála okkur,
ætlar hann áfram að kaupa fisk héð-
an, eða snýr hann sér eitthvað annað?
Og hvað um Japani, hyggjast þeir
hætta sínum veiðiheimildum í banda-
rískri landhelgi íyrir íslendinga? Nei,
því miður er ég smeykur um að ekki
verði af því. Og hvað um Grænfrið-
unga, hveiju hafa þeir áorkað á þessu
umliðna ári, hversu mikið hefur þeim
tekist að skemma íyrir okkur? Um það
liggja ekki neinar niðurstöður. Við
íslendingar getum á hinn bóginn bók-
að það að þeir hafa engu gleymt.
Grænfriðungum hefur vaxið fiskur
um hrygg, sér í lagi varðandi hvalfrið-
unarmálið. Þessi samtök eru í sókn
allstaðar í heiminum hvað svo sem við
segjum.
Eg vona það að hvalurinn komi ekki
til með að skemma okkar góðu mark-
aði erlendis en úr því sem komið er
verður að sjá hvað setur og vona það
besta.
75% þjóðarinnar eru hlynnt hvalveiðum.
Electrolux 0} Electrolux 0]] Electrolux
MEÐ MAGNINNKAUPUM FENGUM VIÐ
NÆR 40% AFSLÁTT AF ELECTROLUX
BW 200 KING UPPÞVOTTAVÉLUM.
Fullkomin uppþvottavél á afsláttarverði, hljóðlát — full-
komin þvottakerfi — öflugar vatnsdælur sem þvo úr 100
lítrum á mínútu — þrefalt yfirfallsöryggi — ryðfrítt 18/8 stál
í þvottahólfi — barnalaesing — rúmar borðbúnað fyrir
¥ 12—14 manns.
ELECTROLUX BW 200 KING uppþvottavél á verði
sem þú trúir varla — og ekkert vit er í að sleppa.
Vörumarkaðurinn lil.
Armúla 1a. Sími 91-686117.
Sjónvarpið þarf að bæta sig
Ellilífeyrisþegi skrifar.
Ég get nú vart orða bundist út af
sjónvarpinu. Kvöld eftir kvöld er eng-
in sæmileg kvikmynd. Gamla fólkið
var líka svo þreytt á Listahátíð að það
hlustaði bara á útvarp. Það vantar
alla hátíðarstemmningu í sjónvarpið.
Svo er þetta leiðinlega Poppkom með
alls konar fíflalæti. Því er Dallas, sú
ágæta fjölskyldumynd, ekki fengin
þótt hún fáist á myndböndum hjá
bensínsölum. Svo er til gamalt efni sem
ágætt væri að sjá aftur. Nú loksins,
þann 14. júní, kemur góð mynd en hún
var svo seint á skjánum að gamalt
fólk átti erfitt með að halda sér vak-
andi, en nóg um sjónvarpið.
Þá em það kosningaloforðin, eða
svokölluð laun. Því var útvarpað að
elli- og örorkulaun myndu hækka
verulega en hvað skeður. Ég fékk bara
fimm þúsund og eitt hundrað að auki.
Svo er manni sagt að þetta verði bara
einu sinni. Þetta dugir ekki, það þurfa
að verða varanlegar kauphækkanir.
Þegar peningaskiptin urðu vorum við
illa svikin því kaupmenn vom búnir
að hækka vöruna áður en mánuður
var liðinn og nú er fæðið svo dýrt að
ekki duga þau hungurlaun sem við
höfum.
REYKJAVlKUR-LJÓSMYND
FYRIR
VIKUNA
Sendist
VIKAN
Þverholti 11,
105 Reykjavík.
Skilafrestur er til 18. júlí.
Sendið inn Ijósmyndir í samkeppni
VIKUNNAR.
Besta Ijósmyndin verður á forsíðu
VIKUNNAR 14. ágúst nk. en þá kem-
ur sérstök REYKJAVlKUR-VIKA,
tileinkuð 200 ára afmæli höfuðborg-
arinnar.
1. verðlaun:
KODAK AF 2 - ný myndavél frá KODAK.
Hans Petersen hf. veitir verðlaunin.
2. VERÐLAUN:
6 þús. kr.
3. VERÐLAUN:
4 þús. kr.
Sendið inn Ijósmyndir í samkeppni VIKUNNAR.
Myndefnið úr eða í Reykjavík.
GOODYEAR
GRAND PRIX S RADIAL
— Traust og öruggt „veggrip" —
— Undirstaða úr polyesterþræði með mikla mýkt —
— Sveigjanlegar hliðar —
— Brúnalaus sóli, auðveldar fulla stjórn á bílnum —
— Sóli, sem endist ótrúlega —
MÝKT, GRIPFESTA OG GÓÐ ENÐING
eru aðalsmerki Goodyear-hjólbarðans
LEIÐANDI í VERÖLD TÆKNIÞRÓUNNAR HJÓLBARÐA
[hIheklahf
I" " |Laugavegi 170 172 Simi 695500
GOODfÝEAR