Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1986, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1986, Side 5
FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1986. 5 Fréttir Forseti islands, Vigdís Finnbogadóttir, við komuna til Egilsstaða i gær. Á móti Vigdísi tóku m.a. Bogi Nilsson, bæjarfógeti á Eskifirði, og Hrafnkell A. Jónsson bæjarstjóri sem hér sjást í fylgd með henni. DV-mynd Anna/ Egilsstöðum Andstaða við flutning hreindýra til Reykjanesskagans: Myndu hreindýrin deyja þar út vegna hagleysis? Forsetinn á afmælis- hátíð á Eskifirði Flestir umsagnaraðilar, sem hafa svarað, vilja ekki hreindýrin suður. Emfl Thoraiensen, DV, Eskifiröi: Forseti íslands, Vigdís Finnboga- dóttir, kom í opinbera heimsókn til Eskifjarðar í gær í tilefhi af 200 ára afinæli kaupstaðarins sem haldið er hátíðlegt þessa dagana. Vigdís kom á Egilsstaðaflugvöll kl. 10 í gærmorgun. Þar tóku á móti henni Bogi Nilsson, bæjarfógeti á Eskifirði, Hrafnkell A. Jónsson bæjarstjóri, Að- alsteinn Valdimarsson, formaður hátíðamefndar, og Bjami Stefánsson sýslufulltrúi. Frá Egilsstöðum var ekið til Eskifjarðar. Þangað kom forsetinn, ásamt föruneyti, klukkan ellefu. Eftir hádegið, klukkan tvö, heim- sótti forsetinn sýningar sem settar hafa verið upp í tilefni afinælishátíðar- innar. Þar var fyrir fjölmenni sem fagnaði Vigdísi vel. Siðan var haldið til bamaheimilisins Melbæjar. Loks skoðaði forsetinn gömlu rafstöðina, á elstu sinnar tegundar hér á landi. ár em raunar liðin 75 ár síðan hún var tekin í notkun. I gærkvöld sat Vigdís kvöldverð í hátíðarsal grunnskólans. Að þvi búnu var haldið á kvöldvöku í félagsheimil- inu Valhöll. Hátíðardagskráin í dag hófst með helgistund í Eskifjarðarkirkju kl. tíu í morgun. Að því loknu ætlaði forset- inn að skoða steinasafn Sigurborgar og Sörens. Heimsókninni lýkur svo síðdegis í dag. „Við erum andvígir þeirri hug- mynd að hreindýr verði flutt á Reykjanesskagann á þeirri forsendu fyrst og fremst að hér vom einu sinni hreindýr sem dóu út og það er ekk- ert sem bendir til þess að hið sama myndi ekki endurtaka sig. Reykja- nesskaginn er illa farinn og hagar orðnir litlir. Sú hugmynd er mun sennilegri að girt verði fyrir alla beit á þessu landssvæði í nokkra áratugi," sagði Eyþór Einarsson, formaður Náttúruvemdarráðs. Sendar vom umsagnarbeiðnir til um 20 aðila vegna þessa máls og svo virðist sem áhugamenn um endur- komu hreindýranna séu þar í minnihluta. Sýslunefnd Ámessýslu fjallaði um málið í vor og var þar samdóma álit nefndarmanna að ekki kæmi til greina af gróðurfarslegum ástæðum að flytja hreindýr á fólk- vanginn. Kópavogsbær hefur einig lagst gegn þessu og byggir þar með- al annars á áliti stjómar Reykjanes- fólkvangs. „Menn em lítið hrifnir af sauðkindinni hvað þá að það sé áhugi á að bæta við áganginn á landið,“ sagði Bjöm Þórðarson, bæj- arrritari Kópavogs. Hugmyndin hefur einnig komið til umræðu hjá Búnaðarfélaginu og vom umsagnir þar einnig neikvæð- ar, en enn hafa ekki borist svör fi"á nokkrum aðilum, meðal annars Rey kj avíkurborg. Það lítur því ekki út fyrir að hrein- dýr muni ganga um Reykjanesið á næstunni og þykir nú nokkuð ein- sýnt að aðdáendur þeirra vrrði áfram að leita austur á land til að beija þau augum. -S.Konn. ewk*. SÍ’íiEv»'Æ°íoömw FÁLKINN Laugavegi 24. S. 18670. FÁLKINN Suóurlandsbraut 8. S. 84670. FÁLKINN Póstkrðfur. S 685149. REYKJAVÍKUR FLUGU Um útsetningar sá Gunnar Þórðarson eins og honum er einum lagið. Á seinni plötunni eru lög úr kvikmyndinni „Reykjavik, Reykja- vik“ Hrafns Gunn- laugssonar og tónlistin er eftir Gunnar, sem sýnirá sér nýja hlið við gerð hennar. Verð 999,- TIL HAMINGJU, REYKJAVÍK Við erum stoltir af að geta fært þér tvöfalda plötu með tónlist sem tileinkuð er þér. Hér koma eingöngu við sögu færustu listamenn á sínu sviði, með gömul og ný dægurlög, um okk- ar ástkæru höfuðöorg. HLIÐ1 1. F0RLEIKUR2 00 Gunnar Þórðarson 2. AUSTURSTRÆTI3 39 Sigfús Halldórsson • Tómas Guðmundsson Söngur: Jóhann Helgason 3. i REYKJAVÍKURBORG 3 37 Jóhann Helgason Söngur: Erna Gunnarsdóttir 4. BRAGGABLÚS 3 45 Magnús Eiríksson Söngur: Bubbi Morthens 5. HERRA REYKJAVlK 305 Sigurður Bjóla • Valgeir Guðjónsson Söngur: RíóTrió 6. FYRIR SUNNAN FRÍKIRKJUNA4 oo Sigfús Halldórsson • Tómas Guömundsson Söngur: RíóTríó HLIÐ3 1. HÚSIN IBÆNUM 3 24 Gunnar Þórðarson • Tómas Guðmundsson Söngur: Egill Ölafsson 2. VIÐ SUNDIN BLÁ1 30 Gunnar Þórðarson 3. TILBRIGÐI UM FEGURÐ 6 45 Gunnar Þórðarson 4. JÚLASTEMMNING 3 15 Gunnar Þórðarson HLIÐ2 1. 0 B0RG MlN B0RG 4 04 Haukur Morthens • Vilhjálmurfrá Skáholti Söngur Ellen Kristjánsdóttir 2. FRÖKEN REYKJAVÍK 3 52 Jón Múli Árnason JónasÁrnason Söngur: RlóTríó 3. HAGAVAGNINN 3 20 Jónas Jónasson • Ragnar Jóhannsson Söngur: Jóhann Helgason 4. SlÐASTI VAGNINN IS0GAMÝRI3 39 Erlent lag. Textahöfundur ókunnur. Söngur: Ragnar Bjarnason 5. VERSTAFÖLLU2 40 Erlent lag. Jónas Friðrik Söngur: RióTrló 6. V0RKVÚLDI REYKJAVÍK3 35 Erlent lag. Sigurður Þórarinsson Söngur: Ragnar Bjarnason • Erna Gunnarsd. HLIÐ4 1. REYKJAVlK 5 oo Gunnar Þórðarson • Einar Benediktsson Söngur: Ragnhildur Gísladóttir 2. AÐFLUG4 04 Gunnar Þórðarson 3. MYNDIR ÚR B0RG 1 26 Gunnar Þórðarson 4. BLAÐBURÐARSÖNGUR o 50 Gunnar Þórðarson • Hrafn Gunnlaugsson Söngur: Pálín Dögg Helgadóttir 5. FJALAKÖTTUR 2 36 Gunnar Þórðarson Hrafn Gunnlaugsson Söngur: Egill Ólafsson 6. KVEÐJUSTUND 1 04 Gunnar Þórðarson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.