Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1986, Side 13
FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1986.
13
Margir þeirra sem höfðu hugsað
sér að gæða sér á afmælistertunni
góðu, sem komið var fyrir í Lækjar-
götu á afmæli höfuðborgarinnar,
urðu frá að hverfa sökum mann-
troðnings án þess að fá að smakka
á henni.
I síðustu viku birtum við upp-
skriftina að tertunni vinsælu en
lesendur, sem misstu af kökunni í
Lækjargötu og uppskriftinni, hafa
haft samband við okkur og beðið um
að hún yrði birt aftur. Við látum
hana fylgja nú og vonum að sem
flestir muni á endanum hafa tekið
þátt í afmælisgleðinni á hinn eina
góða
og sanna hátt, það er með þvi að
bragða á afmælistertunni. Hér kem-
ur uppskriftin:
300 g kransakökumassi
300 g sykur
300 g smjörlíki
6 egg
80 g hveiti
Fromage:
3 egg
125 g sykur
5 g matarlím
33 cl sérrí
50 g makrónur
einn peli ijómi
400-450 g marsipanhjúpur
Kransakökumassinn og sykurinn
er hrært saman og smjörlíkið út í.
Þá eru eggin hrærð saman við, eitt
í einu. Gætið þess að hræra deigið
ekki alltof mikið.
Fromage er búið til á þann hátt
að eggin eru stífþeytt með sykrinum.
Matarlímið (5 blöð) er látið í bleyti
í kalt vatn í smástund og síðan látið
bráðna í velgdu sérríinu. Makrón-
urnar eru muldar, rjóminn þeyttur
og og öllu blandað varlega saman,
sett á milli laga á tertuni. Ofan á
hana kemur svo marsípanið sem flatt
er út þar til það passar á kökuna.
Síðan má auðvitað skreyta kökuna
að vild.
-Ró.G./A.Bj.
Það eru fjölmargir sem misstu af afmæiistertunni miklu. Við birtum uppskriftina a< tertunni til heimilisnota i
síðustu viku en lesendur hafa beðið okkur um að birta hana aftur svo halda megi síðbúna afmæliveislu um
helgina fyrir hina óheppnu.
DV-mynd Bj.BJ.
Afmælistertan
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á fasteigninni Gullteigi 4, 1. hæð suður, þingl. eigandi
Hafsteinn Ingólfsson og Ingibjörg Einarsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri
mánudaginn 25. ágúst 1986 kl. 14.15. Uppboðsbeiðendur eru Utvegsbanki
íslands, Þorvaldur Lúðviksson hrl., Árni Guðjónsson hrl. og Gjaldheimtan í
Reykjavík.
___________________ Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á fasteigninni Brúarenda við Starhaga, þingl. eigandi Pétur
Einarsson, fer fram á eigninni sjálfri mánudaginn 25. ágúst 1986 kl. 11.30.
Uppboðsbeiðendur eru Örn Höskuldsson hdl., Gjaldheimtan í Reykjavík,
Ásgeir Thoroddsen hdl„ Björn Ölafur Hallgrímsson hdl., RóbertÁrni Hreiðars-
son hdl. og Helgi V. Jónsson hrl.
______________________Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Vatnagörðum 16, þingl. eigandi Lyftarasalan hf„ fer fram á
eigninni sjálfri mánudaginn 25. ágúst 1986 kl. 13.30. Uppboðsbeiðendur
eru Ari ísberg hdl. og Gjaldheimtan í Reykjavík.
______________________Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Kjarrvegi 3, þingl. eigandi Guðmundur Sigmundsson, fer fram
á eigninni sjálfri mánudaginn 25. ágúst 1986 kl. 13.45. Uppboðsbeiðendur
eru Ólafur Gústafsson hrl„ Sgríður Jósefsdóttir hdl„ Gjaldheimtan i Reykja-
vík og Skúli Bjarnason hdl.
______________________Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Fururgerði 3, vesturenda, þingl. eigandi Sigurjón Þórarinsson,
fer fram á eigninni sjálfri mánudaginn 25. ágúst 1986 kl. 15.00. Uppboðs-
beiðandi er Sveinn H. Valdimarsson hrl.
______________________Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Háagerði 81, hl„ þingl. eigandi Baldur M. Stefánsson, fer fram
á eigninni sjálfri mánudaginn 25. ágúst 1986 kl. 15.45. Uppboðsbeiðandi
er Gjaldheimtan í Reykjavík.
______________________Borgarfógetaembættið i Reykjavík.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Espigerði 4, 3. hæð E, þingl. eigandi Bjarni Einarsson og Sig-
ríður Stefánsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri mánudaginn 25. ágúst 1986
kl. 16.00. Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan i Reykjavik.
___________________Borgarfógetaembaettió i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Kjarrvegi 6, þingl. eigandi Pétur R. Guðmundsson, fer fram á
eigninni sjálfri mánudaginn 25. ágúst 1986 kl. 15.30. Uppboðsbeiðandi er
Gjaldheimtan í Reykjavík.
______________________Borgarfógetaembættið i Reykjavik,
Raddir neytenda
Þ.J. hringdi:
„Mig langar til að vekja athygli á
furðulegum viðbrögðum sem ég fékk
frá kartöfluframleiðanda á dögunum.
Ég keypti 2 kg poka af kartöflum i
verslun einni og um tveimur dögum
síðar kaupi ég sama magn af kartöflum
í sömu verslun þá á miklu hærra verði.
Er ég fór að spá betur í málið þá reynd-
Skýrt svar
ist um kartöflur frá Þykkvabæjarkart-
öflum að ræða í fyrra tilvikinu en frá
Ágæti í því síðara.
Kartöflur frá Þykkvabæ eru seldar
á jafnaðarverði, allar tegundir á sama
verði en Ágætiskartöflur eru seldar á
mismunandi verði eftir tegundum.
Hringi ég síðan í Ágæti og spyr betur
út í þetta. Svarið var nú heldur betur
skýrt: „Þeir hjá Þykkvabænum gera
þetta því þeir eru að bjóða svikna
vöru, kartöflumar eru drasl."
Mér finnst þetta svar eða þessi full-
yrðing sem ég fékk eiginlega bara
hlægileg en engu að síður þess vert
að vekja athygli á þessu.“
-Ró.G.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Vatnsstig 3, 1. hæð norður, þingl. eigandi Eiríkur Ketilsson, fer
fram á eigninni sjálfri mánudaginn 25. ágúst 1986 kl. 10.30. Uppboðs-
beiðendur eru Gjaldheimtan í Reykjavík og Ólafur Gústafsson hrl.
___________________Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Sogavegi 138, þingl. eigandi Alexander Sigurðsson, fer fram
á eigninni sjálfri mánudaginn 25. ágúst 1986 kl. 16.15. Uppboðsbeiðendur
eru Gjaldheimtan i Reykjvík og Búnaðarbanki íslands .
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
BESTA BORGARMYNDIN
Verðlaun fyrir bestu afmælismyndina
LJÓSMYNDAKEPPNI
Tókst þú Ijósmynd í Reykjavík á afmælisdaginn 18. ágúst?
Sé svo átt þú kost á að vinna til veglegra verðlauna.
Myndirnar mega vera í lit eða svart/hvítu, á pappír eða skyggnu.
Veitt verða þrenn verðlaun, Ijósmyndavörur frá versluninni Gevafoto, þau
fyrstu að verðmæti 20 þúsund krónur, önnur að verðmæti 10 þúsund
krónur og þriðju að verðmæti 5 þúsund krónur.
Skilafrestur er til 3. september.
Ljósmyndin þarf að vera vel merkt höfundi með nafni, heimilisfangi og
síma. Hún þarf að berast til DV i umslagi merktu:
!D'Vf„borgarmyndin“
Þverholti 11, 105 Reykjavík.
Til að við getum sent myndirnar aftur til eigenda þarf að fylgja
umslag með nafni og heimilisfangi.