Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1986, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1986, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1986. Spumingin Lesendur Hvað finnst þér um teikninguna að nýja Alþingishúsinu? Guðjón Björnsson kennari: Mér líst vel á hana, það er líka alveg nauð- synlegt fyrir Alþingi að fá betri aðstöðu. Bflnúmera- safnari frá Sviss J.J. Potylo Glanzmann skrifar: Halló, allir íslendingar! Ég er Svisslendingur og hef það fyr- ir tómstundaiðju að safoa bílnúmera- skiltum alls staðar að úr heiminum. Nú á ég orðið 3024 skilti en mig lang- ar til þess að fullkomna safoið mitt og eignast eitt frá íslandi. Getið þið mögulega hjálpað mér? Mér er mikið í mun að eignast þetta, sérstaklega þar sem sýning er í vænd- um hjá mér innan fárra mánaða. Ég vil taka það fram að það skiptir engu máli þótt skiltin séu eldgömul. Ég vonast til að heyra frá ykkur fljótlega og að þið hneykslist ekki á þessu undarlega áhugamáli mínu. Pósthólf mitt er: P.O. Box 591 CH - 8401 Winterchur - Zurich Switzerland. Á myndinni sést Glanzmann ásamt einu skilta sinna. Hann hefur mikinn áhuga á að bæta einu íslensku í safnið sitt. Hulda Guðráðsdóttir skrifstofumað- ur: Mér líst vel á hana, hún er afskaplega jákvæð. Rögnvaldur Sigurðsson verkamaður: Ég hef nú ekki séð hana, en ég tel vera þörf á nýju Alþingishúsi. Jóhann Jóhannsson sendill: Mér líst vel á þetta og líka að það eigi að vera í miðbænum. Lúsinda Grímsdóttir einkaritari: Mér líst bara vel á hana, það er kom- inn tími til að fá nýtt Alþingishús. Steinar Almarsson nemi: Ég er alveg sáttur við hana. Bréfritari er ánægður með hvernig staðið var að afmæli Reykjavíkurborgar. „Hef aldrei lifað slíkan dag“ Reykvíkingur skrifar: Ég vil koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem stóðu að afrnæli Reykjavíkurborgar. Þetta hefúr allt verið svo vel skipulagt að mig hrein- lega undrar. Svo virðist sem hvert einasta atriði hafi gengið upp. Ég verð nú bara að segja að mánu- dagurinn 18. ágúst var hreint frábær, ég hef aldrei lifað slíkan dag. Sá sam- hugur og gleði sem ríkti þennan dag eru ólýsanleg, allir virtust leggja sig fram um að hlutimir gengu vel fyrir sig. Ég veit að mörgum finnst fullmiklu hafa verið eytt í þetta afinæli. Það getur vel verið að mikill peningur hafi farið í þetta en skiptir það nokkru máli, við nutum öll góðs af. Staðreynd- in er nú einu sinni sú að lítið er hægt að framkvæma án þess að kosta ein- hveiju til og hverjum dettur í hug að halda því fram að afmælisveisla fyrir áttatíu þúsund manns geti orðið annað en dýr? „Útþynnt kaffi, engin mjólk“ Starfsfélagar skrifa: Sá atburður varð um daginn að ónefodur kaupmaður í Reykjavík ák- vað að bæta rekstur fyrirtækis síns. Fannst honum nóg að hann sæi „lág- launaþrælum" fyrir ókeypis kaffi, og þar með hætti hann að kaupa mjólk út í kaffið. f tilefai af þessu samdi einn starfe- krafturinn vísu sem hittir „naglann" á höfúðið. Einar grimmi ergir fólk olli rýmun kjara, útþynnt kaffi, engin mjólk alltaf þarf að spara. Ekki gefið fn' hjá Vamariiðinu Spældir starfsmenn skrifa: Fjölmargir íslenskir starfemenn Vamarliðsins á Keflavíkurflugvelli voru mjög vonsviknir og nánast draugfúlir yfir þvi að þeim var ekki gefið frí frá vinnu eftir hádegi þann átjánda ágúst, í tilefai 200 ára afmælis Reykjavíkur. Varla er hægt að finna svo aumt fyrirtæki á suðvesturhluta landsins, að það gæfi starfsfólki sínu ekki frí. Vamarliðið virðist ekki hafa haft efai eða skilning á því. Óbrigð- ult ráð gegn kattar- hlands- lykt Kona í gamla miðbænum hringdi: Vegna fyrirspumar sem birtist í DV ekki alls fyrir löngu þá langar mig til þess að benda á óbrigðult ráð til þess að losna við kattarhlandslykt. Hellið óblönduðu ediki á blett- inn þar sem kötturinn meig, þá fer lyktin strax. Edikið gufar upp og skilur engin merki eftir sig. Þetta ráð fékk ég frá gamalli sveitakonu. Annars langar mig til þess að spyrja í leiðirmi, hvemig er hægt að losna við hlandlykt frá mann- skepnunni sjálfri, það er of algengt að karlar spræni upp um veggi og hurðir f húsasundum og víðar. HRINGIÐ MILLI KL. 13 og 15 EÐA SKRIFIÐ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.