Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1986, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1986, Qupperneq 32
44 FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1986. Sviðsljós w r n -V Olyginn sagði... er að gera alla óða sem eiga að vinna með honum í ný- justu kvikmyndinni, Over theTop. Leikstjórinn upplifir hreinræktaða martröð við að reyna að stýra Stallone sem hlustar ekkert á ráðleggingar og kemur og fer þegar hon- um þóknast. Nú er svo komið að Golan gerir lítið annað á staðnum en svara í símann meðan vöðvafjallið stjórnar öllu eftir eigin geð- þótta og leikararnir flýja unnvörpum í önnur störf víðs fjarri upptökustaðnum. Stefanía prinsessa berst ennþá fyrir rétti sínum til að velja lífsstarf að eigin geðþótta þrátt fyrir með- fæddan aðalstitil. Nýjasta röksemdin er að benda á að raunverulega hafi hún að- eins fetað í fótspor móður sinnar en eins og flestir vita var Grace heimsþekkt leik- kona á yngri árum. Eitthvað vilja menn nú telja rökin langteygð þegar poppsöng- urinn ertekinn inn í myndina en Stebba gefur sig ekki fremur en áður og er nú með nýja plötu í undirbúningi. Warren Beatty varð fyrir því að ræningja- flokkur braust inn í hús hans í Bel Air og henti húsgögn- um og smáhlutum út um næstu glugga af mikilli elju. Þetta vildi Beatty síður á sín- um heimavígstöðvum og réð því til sín vörð sem gæta skyldi eignanna og hans sjálfs nótt sem nýtan dag. I fyrstunni var sá vopnaði hafður inni í húsinu en var svo fluttur í bifreið í inn- keyrslunni því leikarinn vildi fá frið fyrir vökulum augum á eigin heimili. Að lokum varð honum Ijóst að með vaktinni tapaði hann því dýr- mætasta - réttinum á eigin einkalífi - og rak því vörðinn úr vistinni ákveðinn í að fylgjast sjálfur með húsmun- unum í framtíðinni. Úffif, þessi hátíðahöld Það var annar í afmæli, farið aö kvölda og talsverö þreytumörk að sjá á sumum sem samviskusamlega skemmtu sér timunum saman. Þessir strák- ar sóttu styrk til landnámsmannsins og biðu þess að rokkhljómleikarnir tækju enda eða klukkan yrði svo óguðlega margt að hæfilegt þætti að halda heim aftur. DV-mynd Óskar Örn Unglingurinn Úrsúla Við frumsýningu kvikmyndarinnar Mona Lisa stal hinn hálfrar aldar gamli unglingur Úrsúla Andress senunni fullkomlega frá öllum aðalhetjunum - þar með talið leikurum - þegar hún mætti í þröngum míníkjól og röndóttum jakka. Hin hressa kvensa skildi þó kornungt viðhaldið eftir heima í Róma- borg, sagði hann hálfslappan þessa dagana. Tannhvassir höfðu á orði að líklega væri greyið með hitavellu samfara tanntökunni en hinir frjálslyndari í gestaliðinu dáðust að unglegu yfirbragði stórstjörnunnar. Leyndardómur- inn við aö halda í eilífa æsku er reglulegt kynlíf og jákvætt hugarfar svaraði Ijóskan aðspurð og glotti hressilega að þétthrukkóttum og samankrumpuð- um jafnöldrum sínum. Um borð í hinni konunglegu snekkju Britanniu gerist ýmislegt sem ekki er ætlað augum almennings. Stundum er betra að fara varlega í að skipta um starfslið og það fengu Díana og Karl Bretaprins svo sannarlega að reyna þegar einkaþjónninn var rekinn úr vist- inni. Díana fékk grænar bólur við tilhugsunina um að sitja uppi með fyrinn í framtíðinni og því verður nú Stephen Barry að leita nýrrar atvinnu. Og hann var ekki lengi að hugsa sig um - endurminningar úr höllu Karls renna út eins og heitar lummur. Aðalorsökin fyrir því að Díönu leiddist karlinn var að hann leitað- ist við að vera nákvæmlega eins og prinsinn, var farinn að tala eins, klæðast eins og hafði áhuga á ná- kvæmlega sömu tónlist - svo eitthvað sé upp talið. Líklega finnst prinsessunni nóg að hafa eitt ein- tak af eiginmanninum fyrir augunum sólarhringum saman þótt ekki vafri á eftir hliðarútgáfa líka. Vinsælustu fréttimar eru af líf- inu á hinni konunglegu snekkju - Britanniu. Þar segir Barry að El- ísabet drottning og Philip sýni þjónunum yfirleitt hina mestu virðingu og gæti þess að missa aldrei stjóm á skapi sínu. Þó hafi það komið fyrir gæðahjónin að æpa á starfsliðið en drottningin hafi þá döngun í sér til að koma og biðja viðkomandi afsökunar á eftir. Margrét er eftirlæti allra um borð og reynir starfsliðið að draga úr ofdrykkju prinsessunnar með sára- litlum árangri. Við borðhaldið er reynt að fá hana til þess að drekka borðvín í hófi með öðrum gestum - án árangurs. Viskíglasinu sleppir hún ekki hvað sem á dynur og það sker í augun innan um hin vínglös- in eins og skítugur sveppur. Og við rúmstokkinn hennar verður ævin- lega að fyrirfinnast nægilegt magn drykkjarfanga - viskí og gin. Þá er Margrét alsæl með þjónustuna. Oft hefur legið við slysum vegna Einkaþjónninn var farinn að tala eins og Kalli, klæðast sömu fötum og hlusta á sígilda tónllst. drykkjuvandamálsins og eitt sinn hrapaði prinsessan kófdmkkin niður stiga. Henni var hjálpað á fætur og það eina sem hún bað um var tvöfaldur viskíi til þess að jafna sig eftir fallið. Þjónustufólkið hef- ur áhyggjur af heilsu Margrétar en segir að hún sé ótrúlega ljúf og góð í viðskiptum þannig að hún á hug og hjarta allra á staðnum. Díana fær ekki góðar einkunnir hjá þjóninum þótt hann segi að hún hafi yfirleitt látið hann afskipta- lausan. Eitthvað kvartar Barry yfir meðferð prinsessunnar á fatnaði, svo sem nýstroknum pífukjól sem hann lagði þriggja tíma vinnu í að gera nothæfan. Hún henti honum yfir stólbak að notkun lokinni og fékk því afhent strokjárn í hend- urnar næst þegar þurfti að lagfæra klæðnað. Hins vegar er hún manna best í sjálfsbjargartækninni innan fjölskyldunnar og leysti strokvinn- una óaðfinnanlega af hendi á svipstundu. Og Díana gerir lítið að því að kalla á þjónustuliðið heldur bjargar hlutunum sjálf í flestum tilvikum. Þessar endurminningar þjónsins fara illilega fyrir brjóstið á kónga- liðinu en sagt er að hann hafi engu að tapa. Eftir brottreksturinn var þjónninn Stephen Barry ekki til í augum konungsfjölskyldunnar og á einhverju verða fyrmm einka- þjónar að lifa.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.