Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1986, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1986, Qupperneq 15
LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1986. 15 CHRYSLER SKDl Opið i dag 1-5 JÖFUR hf. Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Sími 42600 Ein þeirra borgarmynda sem þegar hafa borist í Ijósmyndasamkeppni DV. Mannmergðin í miðbænum og góða veðrið voru skemmtilegt myndefni til að minna á daginn. Höfundur myndarinnar er Kolbrún Jónsdóttir, og þama hefur hún smellt af á Davíð og Vigdisi í mannfjöldanum. Bovgarmyndasamkeppni DV: Skilafrestur rennur út á miðvikudagmn — afmælismyndirnar streyma inn Myndir, sem teknar voru á afmælisdegi Reykjavíkur, þann 18. ágúst sl., eru nú farnar að berast Ijósmynda- samkeppni DV úr öllum áttum enda rennur frestur- inn til að skila mynd út miðvikudaginn 3. septemb- er, svo þeir sem ekki hafa enn komið myndunum sín- um í keppnina mega fara að flýta sér. Ekki er erfitt að uppfylla þau skilyrði sem þarf í keppnina, einungis að hafa tekið ljósmynd þann 18. ágúst sem minnir á afmælis- andann og þennan vel heppnaða dag þar sem margir möguleikar buðust til þess að ná fallegum myndum í afmælisveðrinu, ekki síst í miðbæjarmann- íjöldanum. Myndirnar mega vera í lit eða svart/hvítu, á pappír eða skyggnu. I boði eru vegleg verðlaun, ljósmyndavörur að eigin vali frá versluninni Geva- foto. Þau fyrstu eru að verðmæti 20 þúsund krónur, önnur að verðmæti 10 þús- und krónur og þau þriðju að verðmæti 5 þúsund krón- ur. Þátttakendum er bent á að merkja myndir sínar vel og skilmerkilega, með nafni höfundar, heimilisfangi og síma. Myndirnar þurfa að vera í umslagi merktu: DV „BORGARMYNDIN“ Þverholti 11 105 Reykjavík Til þess að hægt sé að senda myndirnar aftur til eigenda þarf að fylgja um- slag með nafni og heimilis- fangi. -BTH jr •m* Saab 900 GL 1980 5 dyra, fal- legur bíll með vökvastýri, útvarpi/segulbandi o.fl. Verð 250.000. Peugeot 505 SR statfon árg. 1982, vökvastýri, rafm. rúður, central-læsíngar o.fl., vel með farinn bill. Verð 450.000. Audi 100 CC árg. 1983, eklnn aðeins 41.000 km, sjálfsk., vökvastýri, útvarp/kass. o.fl., algjörlega sem nýr bíll. Mitsubishi Colt 1980, fallegur bill í góðu lagi, verð 140.000 (útb. 40.000, eftirstöðvar á 10 mán.). Jeep Wagoneer 1978, sjálf- skiptur, vökvastýri o.fl., óvenju gott eíntak - skipti ó ódýrari bíl möguieg.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.