Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1986, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1986.
Fréttir
Dökk, innlend heilbrigðisspá:
1200 smitaðir af
eyðni eftir tvö ár
„Dekkstu framtíðarspár okkar
gera ráð fyrir að 1200 íslendingar
verði smitaðir af AIDS innan tveggja
ára,“ sagði Haraldur Briem smit-
sjúkdómalæknir í samtali við DV.
„Er þá miðað við að 2-300 manns
séu þegar smitaðir og (jöldinn tvö-
faldist árlega."
Tæplega 40 einstaklingar hafa nú
greinst með eyðnismit hér á landi,
bæði karlar og konur. Tveir eru með
sjúkdóminn á lokastigi og einn heíúr
látist.
„Það er aðeins ár síðan við greind-
um sjúkdóminn fyrst hér á landi og
nú höfúm við þijú skjalfest tilfelli
um lokastig. Þetta er þróunin og hiin
mun halda áfram,“ sagði Haraldur
Briem. „Verstu fréttir sem ég hef
fengið af þessum vígstöðvum eru
hins vegar ættaðar frá Bandaríkjun-
um en þar eru hermálayfirvöld farin
að AIDS-prófa alla sem sækja um
inngöngu í herinn. Hér er um að
ræða 8-400 þúsund manns og hefur
einn af hveijum 600 reynst smitað-
ur. Þessar prófanir hafa einnig leitt
í ljós að hlutföllin milli kynja eru
að breytast. Fram að þessu hefúr
verið talið að á móti hverri smitaðri
Uggvænlegustu tíðindin berast frá Bandaríkjunum. Einn af hverjum 600,
sem sækja um inngöngu i Bandaríkjaher, er smitaður af eyðni, bæði kon-
ur og karlar.
konu væru 13 smitaðir karlmenn. í
prófun Bandaríkjahers kemur hins
vegar í ljós að hlutföllin eru ein
kona á móti hveijum þremur karl-
mönnum."
- Dvelja íslendingamir tveir, sem
eru með eyðni á lokastigi, á sjúkra-
húsi eða i heimahúsum?
„Bæði og. Þeir eru á sjúkrahúsum
þegar þeir verða veikir en margir
af þessum sjúkdómum, sem þeir fá,
eru læknanlegir þannig að þeir geta
lifað tiltölulega góðu líf á milli,“
sagði Haraldur Briem.
-EIR
„Skilnaðarmánuður-
inn er desember“
- þegar óvenjumargir skilnaðír á árinu
SHja uppi með
20% vextina
„Mér sýnist stefiia í að skilnaðir
verði óvenjumargir í ár. Það sem af
er þessu ári eru þegar skráðir hjá
okkur 316 lögskilnaðir og 34 að borði
og sæng. Þó er eftir sá mánuður
ársins þegar skilnaðir verða yfirleitt
flestir, en það er desembermánuð-
Fræðslustjórinn í Reykjavík, Áslaug
Brynjólfsdóttir, hefiir sent mennta-
málaráðuneytinu bréf þar sem hún fer
firam á að athuguð verði lagaleg staða
skólamálaráðs sem skipað var af borg-
arsfjóm. Skipunin sjálf er ekki ve-
fengd en verkefiii hins nýja ráðs
virðast stangast á við grunnskólalög-
in.
„Ég og lögfræðiráðunautar mínir
telja að skólamálaráðið samrýmist
ur,“ sagði Þorbjörg Jónsdóttir
starfsmaður sem fylgist með af-
greiðslu skilnaða hjá dómsmála-
ráðuneytinu.
Fyrir nokkru birtist grein í DV um
að allt útlit væri fyrir að giftingum
fjölgaði verulega í ár og rætt við
ekki grunnskólalögunum, það er að
ekki sé hægt að taka verkefni frá
fræðsluráði til skólamálaráðs sam-
kvæmt þeim lögurn," sagði Áslaug
Brynjólfsdóttir í samtali við DV er hún
var spurð um þetta mál.
„Mál skólamálaráðs eru nú hlutverk
skólanefiidar í Reykjavík, það er
fræðsluráðs, og áin breytinga á grurrn-
skólalögunum er þetta ólöglegt að
okkar mati. Alla vega lít ég svo á að
nokkra aðila sem þekkja til þeirra
mála. Þótt undarlegt megi virðast
stefnir einnig í það að skilnuðum
§ölgi á þessu ári. Á síðasta ári voru
lögskilnaðir fleirí en nokkru sinni
áður samanborið við síðasta áratug,
eða 540. Það ár voru giftingar líka
óvenjufáar, eða 1252, sem var tölu-
verð fækkun frá árinu áður. At-
hyglisvert er að desember er sá
mánuður ársins þegar yfirleitt er
mest um bæði giftingar og skilnaði.
„Ætli menn vilji ekki drífa í hlutun-
um, annaðhvort í hjónaband eða úr,
áður en jólin koma,“ sagði Þorbjörg.
- En hvaða mánuðir eru mest ein-
kennandi fyrir fjölda skilnaða, það
sem af er þessu ári?
„Þótt merkilegt megi virðast sker
febrúarmánuður sig úr. Þá voru af-
greiddir 62 lögskilnaðir, á þessum
stysta mánuði ársins. Júní og júlí
koma næst með 42 og 45 lögskiln-
aði. Hins vegar eru aðeins afgreiddir
25 skilnaðir í maí. Þetta er mjög
sveiflukennt eftir mánuðum. Að vísu
er óvenjulegt hve margir skilnaðir
eru afgreiddir nú í sumar því yfir-
leitt er minna um þá á þessum tíma.
Annars er ekki nein sérstök regla
um á hvaða árstíðum er mest um
skilnaði. Nema desembermánuður-
inn, það er nokkuð öruggt að í
honum eru afgreiddir flestir skilnað-
ir ár hvert."
-BTH
eitthvert ráð geti ekki tekið að sér
verkefhi fræðsluráðs enda komu fram
athugasemdir að þessu lútandi á fyrsta
fúndi fræðsluráðs nú í byijun mánað-
arins.“
Áslaug sagði ennfremur að embætti
hennar heyrði undir menntamálaráð-
herra og hún vildi taka það fram að
hún færi eftir því sem hann segði í
þessu máh.
-FRI
Húskaupendur, sem sömdu um 20
prósent vexti á eftirstöðvalán án þess
að hafa fyrirvara um að þeir yrðu aldr-
ei hærri en hæstu lögleyfðu vextir
Seðlabankans, verða að sætta sig við
að greiða þessa vexti. Eigendur
skuldabréfanna geta vel við unað en
skuldarinn sitúr eftir með sárt ennið.
„Ég hef látið kanna þetta mál. Það
er mat lögfræðinga að ekki sé hægt
að krefjast þess að þessir vextir lækki
þegar ekkert slíkt hefúr verið tilgreint
í kaupsamningi," sagði Alexander
Stefánsson félagsmálaráðherra.
„Við hugsum þetta fyrst og fremst
sem fastan punkt hjá nýnemum við
skólann, jafrivel til að koma á sam-
stöðu eða bekkjaranda hjá hópum og
vega upp á móti þeim félagslegu
vandamálum sem stundum koma upp
í byrjun þegar nemendur, vanir
bekkjakerfum, koma inn í áfangakerfi
í fyrsta sinn,“ sagði Ömólfur Thorlac-
ius, rektor Menntaskólans við
Hamrahlíð, um svokallaðan umsjón-
aráfanga sem er nú í fyrsta skipti á
stundatöflum nýnema skólans og gef-
ur einingu til stúdentsprófs. I þessum
áfanga hefur sami hópur nemenda
fastan umsjónarkennara og í tímunum
verða gefiiar leiðbeiningar í náms-
tækni og kynning á námsbrautum.
Á sama tíma eru tveir grunnaskólar,
Réttarholtsskóli og Garðaskóli, að
taka upp áfangakerfi í níunda bekk
og em ásamt Hagaskóla að auka nám-
sval í kjamafögunum fjórum í fyrsta
skipti í haust.
- Skýtur þá ekki skökku við að grunn-
skólar skuli vera að taka upp áfanga-
kerfi um leið og framhaldsskólar eru
að stuðla að því að einhvers konar
Alexander lét kanna þetta mál þegar
ljóst var að hæstu lögleyfðu vextir
Seðlabankans lækkuðu niður fyrir 20
prósent. Sumir höfðu verið það fyrir-
hyggjusamir að semja um að vextir
yrðu aldrei hærri en hæstu vextir
Seðlabankans. Vextir þeirra hafa því
lækkað samfara lækkun vaxta Seðla-
bankans og em þeir nú 15,5 prósent.
Að sögn Álexanders var meirihluti
samninga með fasta 20 prósent vexti
áður en vextir Seðlabankans lækkuðu.
-APH
bekkjarandi náist meðal nýnema?
„Það er verið að bæta áfangakerfið
enn frekar en ekki falla fiá því. Þau
vandamál sem áfangakerfið leysir með
betri nýtingu á kennsluframboði og
það að nemendur fái að ráða náms-
hraða sínum sýnir að þetta kerfi hefúr
marga ótvíræða kosti,“ sagði Ömólfúr.
Armúlaskóli hefur óbundið áfanga-
kerfi eins og MH en að sögn skóla-
meistarans, Hafsteins Þ. Stefánssonar,
er ekki fyrirhugað að taka upp sam-
bærilega umsjónaráfanga í ár. „Það
er vel líklegt að þessi stefria verði tek-
in upp á næsta skólaári," sagði Stefán,
„við fylgjumst með þessari tilraun hjá
MH og tökum mið af henni.“
I Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
er bundið áfangakerfi og sagði skóla-
meistarinn, Guðmundur Sveinsson, að
með því væri töluvert minni röskun
milli hópa í skólanum, og t.d. á fyrsta
ári væri kerfið lítið frábragðið bekkja-
kerfi. „Þessu bundna áfangakerfi var
komið á árið 79 þar sem við töldum
að óbundna kerfið hefði reynst mjög
illa.“
-BTH
Eins og sjá má hefur skilnaðartíðni verið mjög sveifukennd síðustu ár
þessa áratugar en nokkuð stöðugri í byrjun hans. í fyrra urðu skilnaðir
fleiri en nokkni sinni áður, eða 540. Það ár var giftingartalan líka lægst. í
ár virðist bæöi skilnuðum og giftingum ætla að fjölga verulega.
Fræðslustjórinn í Reykjavík:
Vill athugun á lagastöðu skólamálaráðs
„Hugsað sem
fastur punktur
nýnemanna"
- segir rektor MH um bekki í áfangakerfinu