Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1986, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1986, Blaðsíða 33
FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1986. 45 Framsóknarmenn fyrir utan kirkjuna að Hólum í Hjaltadal. Jón Helgason í biskupsstól Jón G. Hauksson, DV, Akureyii: Jón Helgason kirkjumálaráðherra brá sér í biskupsstól þegar þingmenn Framsóknarflokksins tóku sér frí frá þingflokksfundi á Sauðárkróki á dögunum og skoðuðu kirkjuna á Hólum í Hjaltadal. Þingmenn hlýddu þar á tal Hjartar Jónssonar, prófasts Skagfirðinga, og tylltu sér inn í kórbygginguna. Inni við kórgaflinn eru 2 biskupsstólar, hvor sínum megin við altaristöfluna. Helgur maður Jón Helgason, að sjálfsögðu settist hann í annan bisk- upsstólinn. Jón Helgason kirkjumálaráðherra brá sér I biskupsstólinn á Hólum og þar fór vel um hann. DV-myndir JGH Islendingar vita að Sigurbjörn biskup er fjölhæfur liðsmaður kirkjunnar. Hér slær hann smiðshögg við byggingu þjóðarhelgidómsins þar sem hann kom fyrst til starfa árið 1940. Sjálfboðaliðar Líflegt hefur verío undanfamar vikur á Skólavörðuhæðinni um- hverfis Hallgrímskirkju þar sem sjálfboðaliðar á aldrinum 5 til 89 ára hafa hjálpast að við að naglhreinsa og raða vinnupallatimbrinu innan úr kirkjunni. Timbur þetta er sett á boðstóla og selt til að fjármagna kostnað við að gera Hallgrímskirkju vígsluhæfa sunnudaginn 26. október næstkomandi. Þessi vinna sjálfboða- liðanna er verðmæt og flýtir fyrir að takmarkinu verði náð. Timburvinnan er um það bil hálfn- uð svo enn verður verk að vinna næstu vikurnar fyrir alla þá sem leggja vilja hönd á plóginn og kom- ast þannig í hóp „kirkjusmiðanna“ en þannig leit fimm ára pollinn á málið. Hann suðaði í mömmu sinni, pabba og systur og hætti ekki fyrr en þau komu honum í timburhreins- unina hvert sitt kvöldið. „Ef æskan vill rétta þér örvandi hönd......“. Þarna á hæðinni við kirkju allra ís- lendinga hefur sannast að undan- förnu að margar hendur vinna létt verk. Það er bara að koma og gefa sig fram þá finnst verk handa öllum. Kalli prins fékk gestgjafa sina aldeilis til að svitna. Sögur Ka]la prins vékja óhug Karl Bretaprins svipti hulunni af konunglegri þjóðsögu um daginn og vakti mikinn óhug meðal ítalskra gestgjafa sinna. Gestgjafamir urðu hreinlega furðu lostnir yfir þeirri stefnu sem borðsamræðumar tóku þegar nýveiddur fiskur var fram- reiddur. Þetta var hvorki meira né minna en „Lake Garda silungur", það fínasta fína. Kalli skammtaði sér á diskinn og sagði: „Þetta lítur svo vel út að ég ætla að borða vel þrútt fyrir þjóðsöguna um að konungur muni deyja á þann hátt að hann muni kafna að völdum fiskbeins." Að svo mæltu hóf Kalli að gera matnum góð skil en hinir gestimir litu hver á annan og máttu vart mæla af undrun. Þetta átti sér stað á fimmtudagskvöldi hjá Punta San Vigimo nærri Verona en þar var Karl í fríi. Gestgjafar hans voru greifahjónin af Guarienti og höfðu þau pantað fiskinn sem alveg sér- stakan hátíðarmat. Þessi gómsæti fiskur, sem allir hrósuðu eftir á, var með fjölda beina eins og títt er um fisk og leitaði Kalli víst vel að beinum áður en hann setti upp í sig bita. Amma hans hefur tvisvar komist í hann krappan af völdum fiskbeina og í bæði skiptin verið farið með hana á sjúkrahús. Vakti þessi yfirlýsing Karls áhyggjur meðal fjölmargra sem borið hafa fisk á borð fyrir breska kóngafólkið eða á von ú því í heimsókn. Er allt í lagi að bjóða því upp á fisk eftir allt? Viðbrögðin í Buckinghamhöll vom á einn veg við þessum uppljóstrunum Karls. Talsmaður hallarbúa sagði að ekki væri vitað um neina þjóðsögu sem tengdist fiskbeinum. Eru nú flestir sögu- og þjóðsagnagrúskarar komnir af stað og leita dyrum og dyngjum að sögu um breskan kon- ung og fiskmáltíð. Svidsljós Ólyginn sagði . . Shari Belafonte dóttir söngvarans með sykur- röddina og Hotel-leikari hafði heldur óvenjulegt starf með höndum hér einu sinni. Áður en hún hóf leiklistarferilinn sat hún nefnilega inni á skrifstofu og svaraði öllum bréfum sem bárust til teiknimyndapersón- unnar Fred Flintstone. Sagðist Shari hafa þótt starfið hið skemmtilegasta og ekki hefði verið erfitt að setja sig inn í hugsanagang steinaldarmanns- ins. Þó fannst henni vinnan vera orðin heldur einhæf undir það síðasta og getur ekki hugsað sér að byrja á því að verða „ritari" Fred Flintstone aftur. Tina Turner konan með kálfana og hressasta amma rokksins (enda 47 ára) er nú í hljóðveri. Er söngkonan að hljóðrita nýjustu LP plötu sína sem hefur fengið nafnið „Break Every Rule" til bráða- birgða. Nýtur þessi eldhressa söngkona aðstoðar fjölda lista- manna við gerð plötunnar og meðal þeirra eru þeir David Bowie, Bryan Adams og Mark Knopfler. Er ekki annars að vænta en aðdáendur söng- konunnar bíði nú óþreyjufullir eftir því að platan komi út því hún ku vera nokkuð góð ef marka má það sem poppsér- fræðingar erlendis hafa heyrt. Katharine Hepburn hin aldna leikkona hefur verið þekkt fyrir að vera hinn mesti orðhákur. Nýlega var hún I stórsamkvæmi í New York og fatahönnuður nokkur sveif á hana. Gerði sá hinn sami sig nokkuð breiðan í samtali þeirra um föt og fór síðan að hrósa hönnuninni á samkvæmiskjól stjörnunnar. „Hugmyndarikt og einstaklega smekkleg hönnun," sagði hönnuðurinn hugfanginn. Og Hepburn svaraði að bragði: „Já, finnst þér það ekki og það besta að hann var keyptur á flóamarkaði," reyndist verðið nema um 100 krónum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.