Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1986, Síða 3
FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1986.
3
DV_______________________________
Stúdentar fá ekki frrtt í bíó:
Mjög óánægður
- segir fulltrúi stúdenta
„Ég er mjög óánægður með þessa
ókvörðun enda lagðist ég gegn henni
þar sem ég tel þetta ekki fullreynt,"
sagði Ásgeir Jónsson lögfræðingur,
sem sæti á í stjóm Háskólabíós fyrir
hönd stúdenta, í samtali við DV.
Stjóm Háskólabíós hefur ákveðið
að veita stúdentum Háskóla íslands
ekki lengur ókeypis aðgang að kvik-
myndasýningum bíósins. Var meiri-
hlutasamþykkt fyrir þessu innan
stjómarinnar en þar eiga sæti þrír
menn. Það em auk Ásgeirs Stefán
Már Stefánsson og Þórir Einarsson.
„Ástæða þessa er sú að viðskipta-
aðilar bíósins í Englandi sögðust
ekki sætta sig við að stúdentar
fengju ókeypis aðgang. Þeir höfðu
gert könnun hérlendis, talið út úr
bíóinu og borið það saman við upp-
gjör það sem bíóið sendi þeim. Þeim
fannst muna þama of miklu og þvi
vildu þeir láta afnema þetta. Þessir
viðskiptaaðilar fá borgað í prósent-
um af aðgangseyri og þess vegna er
þessi óánægja hjó þeim,“ sagði Ás-
geir.
Hann sagði að sér fyndist stjómin
hafa gripið til þessa ráðs of snemma
þar sem til stæðu viðræður við þessa
aðila nú í september. Ásgeir sagðist
því vona að þessi ákvörðun yrðifelld
úr gildi eftir þær viðræður. _KÞ
Getur orðið sprenging
- segir formaöur stúdentaráðs
„Stúdentar em mjög óhressir með
þetta en ég hef þó fulla trú ó að
þetta leysist," sagði Eyjólfur Sveins-
son, formaður stúdentaráðs, í
samtali við DV vegna þeirrar ák-
vörðunar stjómar Hóskólabíós að
veita stúdentum Hóskólans ekki
lengur ókeypis aðgang að kvik-
myndasýningum bíósins.
Eyjólfúr sagði að hann hefði lagt
fram ákveðna lausn á þessu máli.
Hún væri fólgin í þvi að stúdentar
þyrftu aðeins að borga þann hluta
upphæðar aðgöngumiðans sem færi
beint til dreifingaraðilans þannig að
bíóið tapaði ekki. Þó aðeins í þeim
tilvikum þar sem bíóið semdi þannig
við dreifingaraðilann að sá fengi
ákveðna prósentu af hveijum að-
göngumiða.
„Ég hef ekki trú á öðm en það
verði fallist á þetta, reyndar hef ég
enga ástæðu til að ætla annað. En
ef það verður ekki gert þá getur orð-
ið hér mikil sprenging," sagði
Eyjólfur Sveinsson.
-KÞ
Lengi staðið til
- segir forstjóri Háskólabíós
„Þetta hefur staðið lengi til,“ sagði
Friðbert Pálsson, forstjóri Háskóla-
bíós, um ákvörðun stjórnar bíósins,
í samtali við DV. Að öðm leyti vildi
hann ekki tjó sig um málið.
Stefán Már Stefánsson, formaður
stjómar Háskólabíós, vildi heldur
ekkert tjá sig um málið enda væri
það ekki venjan innan fyrirtækja að
segja frá þvi sem fram færi á stjóm-
arfúndum i fjölmiðlum.
Stefán gaf þó í skyn að ef til vill
væri þessi ákvörðun eins konar
bráðabirgðaákvörðun þar til annað
yrði ákveðið. -KÞ
Stöðugur straumur fólks hefur verið til Húsnæðisstofnunar vegna nýju lánanna.
DV-mynd Óskar Öm
Allt á fullu hjá Húsnæðisstofnun
Starfsfólk Húsnæðisstofnunar hefiir
ekki getað um frjálst höfúð strokið frá
því að nýju húsnæðislánareglumar
tóku gildi nú um mánaðamótin. Stans-
laus straumur fólks hefúr verið þessa
dagana til að afla sér upplýsinga, end-
umýja umsóknir og sækja um lán.
Sími stofhunarinnar hefúr heldur ekki
þagnað.
„Við höfúm þegar afhent á annað
þúsimd umsóknir og tæplega 250 hefur
verið skilað inn,“ sagði Katrín Atla-
dóttir, forstöðumaður byggingarsjóðs
ríkisins, er hún gaf sér tíma til að
ræða við DV.
„Ég hef orðið vör við að fólk haldi
að það þurfi að sækja um lánin fyrir
1. október. Þetta er misskilningur. Það
em aðeins þeir sem eiga óafgreiddar
umsóknir í gamla kerfinu og vilja láta
flytja sig yfir í það nýja sem verða að
sækja um fyrir þann tíma,“ sagði Katr-
ín.
Katrín sagði að öllum umsóknum
yrði svarað innan tveggja mánaða.
Ekki hefur verið ókveðið hvenær lán-
in verða afgreidd enda ákvarðast það
eftir framboði og eftirspum. Lánin
verða þó greidd út í tvennu lagi. Lán
til þeirra sem em að byggja í fyrsta
sinn og hafa ekki fengið áður lán er
samkvæmt byggingarvísitölu í dag 2,
268 milljónir og fyrir þá sem em að
kaupa í fyrsta sinn 1,588 milljónir
króna. Þessar upphæðir era miðaðar
við að lífeyrissjóður umsækjanda verji
55 prósentum af ráðstöfúnarfé sínu til
skuldabréfakaupa af Húsnæðisstofn-
un. -APH
Akureyri:
Fastesgnaverð fer hækkandi
Ján G. Haukssan, DV, ðtareyii
„Verð á 2ja, 3ja og 4ra herbergja
íbúðum í fjölbýlishúsum hefur hækkað
um 150 þúsund fró því snemma í vor.
Við vitum að íbúðimar hækka meira
á næstunni, en það er bara að bíða
og sjó hversu mikið,“ sagði Bjöm
Kristjánsson, fasteignasali á Akureyri,
í gær.
Bjöm sagði ennfremur að mikil eftir-
spum væri nú eftir húsnæði á
Ákureyri. Jafnframt væri mikill skort-
ur á íbúðum sem aftur ýtti á að verðið
hækkaði ó næstunni. „Það vantar til-
finnanlega 3ja og 4ra herbergja íbúðir
í fjölbýlishúsum inn á markaðinn, eins
lítil einbýlishús og raðhús. Þetta er
markaðurinn núna.“
Bjöm sagðist ekkert hafa selt á nýj-
um kjörum Húsnæðisstofnunar. „Fólk
virðist enn hika og reyndar ekki vita
hvaða réttindi það hefur t.d. vegna líf-
eyrissjóða sinna."
Verð á 3ja herbergja íbúðum er nú
á bilinu 1550-1650.000 á Akureyri, 4ra
herbergja í kringum 18-1850.000 og 2ja
herbergja frá 12-1250.000.
Fréttir
Senda herskip
til að minnast
Pourquoi Pas?
Franskt herskip, Vauquelin, kemur
til íslands þann 12. september næst-
komandi til að minnast þess að
fimmtíu ár em liðin frá því að franska
rannsóknarskipið Pourquoi Pas? fórst
á Mýrum.
Pourquoi Pas? steytti ó skerjum við
Mýrar þann 16. september árið 1936.
Aðeins einn úr áhöfn skipsins komst
lífe af en 38 menn fómst, þeirra á
meðal kunnur vísindamaður.
Franska herskipið verður til sýnis
almenningi í Reykjavíkurhöfn.
-KMU
Námsmenn leigja
oriofcíbúðir
Ján G. Haukssan, DV, Akureyri
Mikið hefur borið ó því ó Akureyri
að svonefndar orlofsíbúðir verkalýðs-
og félagasamtaka séu leigðar náms-
fólki. Orlofsíbúðimar, sem em bæði
raðhús og íbúðir i fjölbýlishúsum, em
nú a.m.k. 50-60 á Akureyri. Skólafólk-
ið tekur sig yfirleitt saman um að
leigja hveija íbúð.
Lieigumarkaðurinn á Akureyri hefur
undanfarin ár verið mjög þröngur.
Hann hefur verið í hálfgerðu svelti
vegna skorts á íbúðum. En með vetrar-
leigu orlofsíbúðanna hefur verið mjög
létt undir með nómsmönnum í hús-
næðismálum.
Júlíus áfrýjar ekki
Júlíus Þórðarson á Skorrastað i
Norðfjarðarhreppi hefúr ákveðið að
áfrýja ekki úrskurði félagsmólaráðu-
neytisins vegna kæm hans á fram-
kvæmd sveitarstjómarkosninganna í
hreppnum.
Júlíus sagði í samtali við DV að
hann væri að vísu ekki ánægður með
niðurstöðu málsins en byggist ekki við
að neitt fleira yrði aðhafst þótt hann
áfrýjaði málinu. „Hins vegar er betra
að hafa fyrirkomulag kosninganna
þannig að ekki þurfi að koma fram
kærur eins og þessi,“ sagði hann.
Sem kunnugt er af fréttum DV úr-
skurðaði félagsmálaráðuneytið kosn-
inguna í hreppnum löglega en
jafhframt vitti róðuneytið hrepps-
stjóra hreppsins fynr að víkja ekki úr
kjörstjóm þar sem hann var í fram-
boði.
YJazzballettskóli
KRISTÍNAR
" -;í,
12 vikna
námskeið
byrjar
mánudaginn 15. september í
Sigtúni 20 (íþróttahús Ár-
manns) fyrir börn frá 7 ára
aldri og unglinga
Hressandi tímar fyrir konur
einu sinni og tvisvar í viku
Góð sturtu- og búningsaðstaða
Innritun í síma 39160
eftir klukkan 17.30 öll kvöld