Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1986, Page 4
4
FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1986.
Stjómmál
Alþýðubandalagið:
Hörð barátta framundan
um efstu sætin á framboðslistanum í Reykjavík.
Ljóst er að framundan er hörð bar-
átta um efstu sætin á framboðslista
Alþýðubandalagsins í Reykjavík.
Margfr hafa þegar verið nefndir sem
hyggjast hreppa sæti ofarlega á þeim
lista.
Þingmennimir Guðrún Helgadóttir,
Skúli Alexandersson, Ragnar Amalds
og Hjörleifur Guttormsson svara þvf
ákveðið að þau ætli að gefa kost á sér
í næstu Alþingiskosningum. Svavar
Gestsson, Steingrímur J. Sigfússon og
Geir Gunnarsson vilja ekki svara
neinu um framboðsmál sín að svo
stöddu. Flest bendir þó til þess að þess-
ir þingmenn ætli sér að halda áfiram.
Guðmundur J. Guðmundsson er að
hugsa málið og Garðar Sigurðsson
hefur ekkert ákveðið enn. Aðeins einn
þingmaður er ákveðinn að hætta,
Helgi Seljan.
Barátta í Reykjavík
Alþýðubandalagið er nú með þrjá
þingmenn í Reykjavík; Svavar Gests-
son, Guðmund J. Guðmundsson og
Guðrúnu Helgadóttur. Guðmundur
hafði áður lýst því yfir að hann ætlaði
að láta af þingmennsku. Eftir fjaðra-
fokið kringum fé það sem hann þáði
úr hendi Alberts Guðmundssonar ák-
vað hann að endurskoða þessa afetöðu
sína. Heimildir DV segja þó að líklega
verði það ofan á að Guðmundur láti
af þingmennsku. Þar með myndi losna
eitt öruggt þingsæti á framboðslistan-
um. Við það bætist að flokksmenn eru
bjartsýnir á að auka fylgi í Reykjavík.
Flestir telja fjögur þingsæti örugg og
það fimmta í sjónmáli. Svo er að heyra
að margir hugsi gott til glóðarinnar
og fjölmargir nefndir sem muni freista
þess að krækja í þessi nýju sæti. Úr
verkalýðshreyfingunni eru Ásmundur
Stefánsson, forseti ASÍ, og Þröstur
Ólafeson, framkvæmdastjóri Dags-
brúnar, nefndir sem líklegir frambjóð-
endur. Þá þykir líklegt að Ólafur
Ragnar Grímsson sitji ekki aðgerða-
laus. Konur eru einnig nefndar.
Líklegar þykja Álfheiður Ingadóttir
blaðamaður, Guðrún Ágústsdóttir
borgarfúlltrúi og Kristín Á. Ólafe-
dóttir, varaformaður flokksins. „Það
er ljóst að þetta verður spennandi
barátta,“ sagði einn viðmælandi DV.
Hættir Garðar?
Garðar Sigurðsson segist ekkert
hafa hugleitt þessi framboðsmál enn.
Hann hefur verið í fýrsta sæti fram-
boðslista Alþýðubandalagsins á
Suðurlandi um árabil. Hins vegar er
ljóst að margir innan forystu flokksins
vilja hann burt. „Hann rekst illa innan
þingflokksins," sagði einn viðmæl-
andi. Það eru líklega orð að sönnu því
Garðar fer sínar eigin leiðir. Margrét
Frímannsdóttir, oddviti á Stokkseyri,
er talin vera líklegur arftaki Garðars.
Enginn á Vestfjörðum
Alþýðubandalagið hefur engan
þingmann á Vestfjörðum. Kjartan Ól-
afeson var í efeta sæti þar f síðustu
kosningum en komst ekki inn á þing.
Ekki er vitað hvort hann ætlar aftur
í slaginn. Hins vegar eru Kristinn H.
Gunnarsson í Bolungarvík og Þuríður
Pétursdóttir nefnd sem vænlegir fram-
bjóðendur flokksins.
Helgi Seljan ætlar að hætta þing-
mennsku. Auk hans hefur Hjörleifur
Guttormsson verið þingmaður flokks-
ins í Austurlandskjördæmi. Engin
nöfh hafa verið nefhd í sambandi við
arftaka Helga en líklegt þykir að reynt
verði að tefla fram konu í hans stað.
Aðrir þingmenn þykja nokkuð
tryggir í sessi. Geir Gunnarsson hefur
áður haft á orði að hætta þing-
mennsku. Hins vegar er hann mjög
vinsæll meðal flokksmanna. Ef hann
hættir þykir ekki ólíklegt að Ólafur
Ragnar Grímsson fari fram í Reykja-
neskjördæmi.
-APH
Steingrimur J. Sigfusson:
Aulalegar
yfirlýsingar
„Mér finnst aulalegt að vera að gefa
yfirlýsingar sem þessar í fjölmiðla áður
en ég hef rætt þetta við félaga mína,“
sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjórði
þingmaður Alþýðubandalagsins á
Norðurlandi eystra, og vildi ekkert
segja um það hvort hann byði sig fram
í komandi forvali.
„Ég ræði slík mál ekki að svo
stöddu,“ sagði hann. -S.Konn.
Guðmundur J. Guðmunds.:
Er að hugsa
málið
„Ég hafði hugsað mér að gefa ekki
kost á mér og ætlaði að hætta þing-
mennsku. Þessa ákvörðun mína hef
ég nú tekið til endurskoðunar og er
ekki enn búinn að komast að endan-
legri niðurstöðu,“ sagði Guðmundur
J. Guðmundsson, Alþýðubandalagi og
7. þingmaður Reykjavíkur. Hann kom
fyrst inn á Alþingi í lok ársins 1979
og hefur setið þar síðan. -APH
Helgi Seljan:
Ákveðinn í
að hætta
„Ég hef nú lýst því yfir áður að ég
sé ákveðinn í að hætta og það hefur
ekkert breyst. Ákvörðun mín stendur
óhögguð. Þetta er ársgömul ákvörðun
og maður hringlar ekkert með svona,“
sagði Helgi Seljan, þingmaður Al-
þýðubandalagsins á Austurlandi.
Þegar talið barst að arftaka Helga á
lista Alþýðubandalagsins sagði hann
að ákvörðun um hann yrði tekin í
forvali og síst af öllu vildi hann fara
að ákveða slíkt. JFJ
Guðrún Helgadóttir:
Svo sannar-
lega
„Ég ætla svo sannarlega að gefa
kost á mér,“ sagði Guðrún Helgadótt-
ir, Alþýðubandalagi. Hún sagði að
reyndar yrðu það aðrir sem myndu
ákveða hvort hún yrði í framboði eða
ekki.
Guðrún skipaði þriðja sætið á fram-
boðslista flokksins í Reykjavík í
síðustu alþingiskosningum. Þá fékk
flokkurinn þrjá menn kjöma. -APH
Svavar Gestsson:
Trúnaðar-
spuming sem
ég mun svara
flokknum
„Þesseiri spumingu mun ég svara
þeirri nefiid sem hefur með þessi mál
að gera innan Alþýðubandalagsins,"
sagði Svavar Gestsson, formaður Al-
þýðubandalagsins og þingmaður í
Reykjavík.
„Hér er um trúnaðarspumingu að
ræða sem ég mun fyrst gera grein fyr-
ir innan flokksins," bætti Svavar við.
-S.Konn.
Hjórieifur Guttormsson:
Stefhi inn
„Ég hef gert upp hug minn og ætla
að gefa kost á mér og stefiii inn,“ sagði
Hjörleifur Guttormsson, þingmaður
Alþýðubandalagsins á Austurlandi.
Sagði Hjörleifúr að vel mætti búast
við því að hann skipaði fyrsta sætið
nú þegar Helgi Seljan ætlaði að draga
sig í hlé „en annars á eftir að ákveða
þetta og það verður gert á réttum tíma
og á réttum vettvangi“. JFJ
Geir Gunnarsson:
Ekki
rætt í
dagblöðum
„Ég ætla mér ekki að skýra frá því
í dagblöðum. Þetta er mál sem varðar
flokksmenn hér í kjördæminu. Þegar
ég mun skýra frá því hvort ég ætla
að gefa kost á mér mun ég skýra þeim
fyrst frá því,“ sagði Geir Gunnarsson,
Alþýðubandalagi og 5. þingmaður
Reykjaneskjördæmis. Geir hefúr setið
á Alþingi frá 1959. -APH
Ragnar Amalds:
Ég mun gefa
kost á mér
„Það eru hreinar línur að ég mun
gefa kost á mér áfram,“ sagði Ragnar
Amalds, þriðji þingmaður Alþýðu-
bandalagsins á Norðurlandi vestra.
„Kjördæmaráð hefur ekki enn
ákveðið hvort prófkjör verður haldið,
en ég myndi bjóða mig fram ef til þess
kæmi,“ sagði Ragnar. -S.Konn.
Garðar Sigurðsson:
Ekkert
ákveðið
„Ég hef ekkert ákveðið í þessum efh-
um og ekkert hugsað um framboðsmál
mín ennþá,“ sagði Garðar Sigurðsson,
Alþýðubandalagi.
Garðar hefur setið á þingi í 15 ár.
Hann hefúr farið fram í Suðurlands-
kjördæmi og skipað fyrsta sæti þar
undanfamar kosningar. -APH
Skúli Alexandersson:
Heftekið
ákvörðun
umframboð
„Það liggja ekki fyrir neinar breyt-
ingar í þessum málum. Það em líkur
til að forval muni fara fram og ég mun
bjóða mig fram. Ég hef ákveðið mig í
þvi efni,“ sagði Skúli Alexandersson,
fjórði þingmaður Alþýðubandalagsins
á Vesturlandi, sem býður sig því ffarn
á sitt þrettánda þing. -S.Konn.