Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1986, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1986.
5
DV__________________
Sverrir tefur framgang
og gengur þvert á allar venjur, segir félagsmálaráðherra
„Nokkrar tafir hafa orðið á starfi
tveggja nefhda sem ætlað er að kanna
hvort unnt sé að flytja ýmis verkefhi
frá ríki til sveitarfélaga, vegna þess
að menntamálaráðherra, Sverrir Her-
mannsson, hefur dregið að tilnefha
fulltrúa sína,“ sagði Alexander Stef-
ánsson félagsmálaráðherra í samtali
við DV í gær.
Alexander sagði að við undirbúning
fjárlaga í júní hefði hann lagt til að
skipuð yrði nefnd til að kanna hvaða
verkefni mætti flytja frá ríkinu til
sveitarfélaganna. Það hefði verið sam-
þykkt og ákveðið að í henni ættu
sæti fulltrúar frá félagsmálaráðuneyt-
inu, fjármálaráðuneytinu, heilbrigðis-
ráðuneytinu og menntamálaráðuneyt-
inu. í kjölfar þess hefði fjármálaráð-
herra skipað aðra nefnd til að kanna
fjármálahliðina sérstaklega. Nokkrar
tafir hefðu hins vegar orðið á því að
nefndimar gætu hafið störf vegna
þess að menntamálaráðherra hefði
dregið að tilnefna fulltrúa sína. Sagði
Alexander að nefndimar væm nú
fyrst að koma saman.
Sverrir gengur þvert á allar
venjur
Alexander sagði að nýlegar yfirlýs-
ingar menntamálaráðherra um að
skera ætti niður framlög ríkisins til
skólamála á landsbyggðinni gengju
þvert á allar venjur í samskiptum rík-
is og sveitarfélaga.
„Þessi mál eru ákveðin í lögum og
verða ekki leyst með upphrópunum í
fjölmiðlum," sagði Alexander. „Hvað
sem öllum yfirlýsingum líður hefur
aldrei staðið til að láta sveitarfélögin
taka að sér aukin verkefni, eins og
skólaakstur og rekstur dagheimila, án
þess að veita þeim nýja tekjustofna í
staðinn." Félagsmálaráðherra sagði
að í þvi skyni hefði verið rætt um að
efla Jöfhunarsjóð sveitarfélaganna.
„Menntamálaráðherra hlýtur að
skilja að mál af þessu tagi verður að
leysa í samkomulagi við sveitarfélög-
in,“ sagði Alexander. „Það þýðir ekki
að þvinga menn til eins eða neins. Ég
Stjómmál
mála
hef þá skoðun að stokka þurfi upp í
þessum málum og að sveitarfélögin
eigi að taka að sér ný verkefni en þá
þárf jafnframt að vera tryggt að þau
hafi til þess fjárhagslegt bolmagn."
Félagsmálaráðherra sagði að nú
væri í smíðum mjög yfirgripsmikil
áætlun um að auka hlut sveitarfélag-
anna í heilbrigðismálum, menntamál-
um og öðru, og væri þar meðal annars
kveðið á um ný lög um tekjustofha
sveitarfélaga.
-EA
Vegglampar kr. 810.
kr. 882 og kr. 1.157
Lampi á fæti kr. 997. Gormalampi kr. 1251Klemmulampi kr. 810.
Opið í öllum deildum til kl. 20 í kvöld.
____ Opið laugardag kl. 9-16
Tji nn
wlS
Jón Loftsson hf.
V7S4
/A A A A A A ^
a c C' c: p
ifíUUUUUIll llkli,
Hringbraut 121 Sími 10600
Rafdeild, 2. hæð
Kennaraskortur í Reykjavík:
Forföll með mesta móti
Kennaraskortur er nú í Reykjavík
þrátt fyrir að fullráðið hafi verið i all-
ar kennarastöður í borginni sl. vor og
jafnvel dæmi um að kennurum hafi
þá verið synjað um stöður. Ástæður
skortsins eru þær að forfoll meðal ráð-
inna kennara eru með mesta móti nú
í ár.
„Það er orðið árvisst vandamál að
kennara vanti hér til starfa á hausti
þótt fullráðið sé í allar stöður að vori,“
sagði Ragnar Georgsson, annar for-
stöðumanna skólaskrifstofú Reykja-
víkurborgar, í samtali við DV.
„Nú vantar í nokkrar stöður al-
mennrar kennslu í grurmskólum auk
þess sem illa hefur gengið að fá fólk
í hlutastöður, til dæmis í tónmennt
og raungreinum. Ástæður þessa eru
að forföll hafa verið með mesta móti
í sumar og eiga rót sína eiga að rekja
til betri launakjara í öðrum störfum."
í máli Ragnars kom ennfremur fram
að ýmis yfirboð á landsbyggðinni til
handa kennurum gætu verið áhrifa-
valdur í þessu vandamáli.
Sem dæmi um vandann nú má nefna
að í einum skóla, Hólabrekkuskóla,
skortir nú kennara í sex bekki en aðr-
ir skólar i borginni munu ekki eins
illa settir.
-FRI
Vopnafjarðarskoli:
Ástandið verra en í fýrra
„Ástandið hjá okkur er verra en i
fyrra en hefhr lagast á undanfömum
dögum og við vonumst til að geta sett
skólann um miðjan september eins og
áformað er,“ sagði Hafþór Róbertsson,
skólastjóri Vopnafjarðarskóla, í sam-
tali við DV en skólinn er einn þeirra
sem erfiðlega hefur gengið að fá kenn-
ara til starfa í vetur.
Til skamms tíma skorti 4 kennara í
fullar stöður hjá skólanum og útlit
fyrir að eðlilegt starf hans gæti ekki
hafist á réttum tíma. Nýlega komu
hins vegar tvær umsóknir og er Haf-
þór bjartsýnn á að einnig takist að
fylla hinar tvær stöðumar sem lausar
em. í skólanum í vetur munu verða
tæplega 170 nemendur -FRI.
Greiðir rétt upp-
setta reikninga
„Byrjað er að endurgreiða sjúkling-
um sem koma með reikninga frá
tannlæknum þótt notast sé við ranga
gjaldskrá en einungis ef tannlæknir-
inn hefur kostnaðinn rétt sundurlið-
aðan á þar til gerðu eyðublaði frá
Tryggingastofhun. Þá er hægt að
draga frá þau 8% sem ber á milli i
gjaldskrám 'heilbrigðisráðherra og
Tannlæknafélagsins. Mismuninn
verður sjúklingurinn þó að borga enn
sem komið er,“ sagði Eggert Þor-
steinsson, forstjóri Tryggingastofhun-
ar, í samtali við DV.
„Þama er reynt að teygja mörkin
eins langt og hægt er svo sjúklingar
þurfi ekki að gjalda þess ósamkomu-
lags sem nú ríkir á milli þessara aðila.
en undanfarið hefur öllum reikningum
frá tannlæknum. sem nota sína gjald-
skrá. verið vísað frá. Þó sér Trygg-
ingastofhun sér ekki fært að
endurgreiða og endurreikna rangt
verðlagða reikninga ef kostnaður er
ekki sundurliðaður. þótt hann sé á
eyðublaði frá stofhuninni."
Þessi hópur sjúklinga. sem um er
að ræða í endurgreiðslu á tannlækn-
ingum. er böm undir 17 ára aldri.
gamalt fólk og ör>Tkjar. en hann hefúr
einna helst orðið fi.TÍr barðinu á deil-
unum sem hafa staðið \-fir um gjald-
skrána.
..Þessu fólki er ráðlagt að leggja
áherslu á að fá rétt sundurliðaðan
reikning og gæta þess að tannlæknir
afhendi því ekki vísvitandi reikning
sem ekki fæst greiddur. Meira er ekki
hægt að gera fyrir það meðan þetta
ástand varir.” sagði Eggert. Fátt virð-
ist þó benda til þess að málin skýrist
á nsestunni og hefur samningafúndm-
ekki verið boðaður.
-BTH
Grundaskóli:
Ástandið hefur aldrei
verið svona slæmt
„Ástandið hjá okkur hefúr aldrei
verið svona slæmt, við höfum ekki
lent í því fyrr að vera ekki með full-
skipað í allar kennarastöður," sagði
Guðbjartur Hannesson, skólastjóri
Grundaskóla, í samtali við DV en þar
vantar nú kennara í tæpar þrjár stöð-
ur.
„Við höfum alltaf getað ráðið rétt-
indakennara. f fyrra var að vísu tæpt
að svo færi en tókst rétt áður en skól-
inn hófst.“
Guðbjartur sagði að skólinn bvrjaöi
hjá þeim á tilsettum tíma þótt ekki
væri búið að ráða í allar stöður. Skól-
inn er stór, um 500 nemendur og 29
kennarar, og er ætlunin að skera nið-
ur kennslu um 10% til að mæta
kennaraskortinum.
-FRI
NÝKOMIN SENDING AF
BORÐ- OG VEGGLÖMPUM
LITIR: HVÍn, SVART, GRÁTT
Kennaraskorturinn:
Óráðið í 60 stöður
„í heild er ástandið heldur skárra
nú en á sama tíma í fyrra, ég gæti
trúað að óráðið væri í um 60 stöður
nú en sú tala á sennilega eftir að
lækka á næstu dögum er okkur berast
frekari gögn frá skólanefndum af
landsbyggðinni," sagði Sigurður
Helgason, deildarstjóri i menntamála-
ráðuneytinu, í samtali við DV er við
inntum hann eftir því hvemig gengi
að ráða í kennarastöður fyrir næsta
vetur.
Sigurður sagði að þótt ástandið væri
skárra nú en í fyrrp væru margir skól-
ar samt illa settir. Tók hann sem dæmi
skóla á Akranesi, Vopnafirði, Bolung-
arvík, Patreksfirði og Höfh í Homa-
firði.
Af einstökum kennarastöðum sagði
Sigurður að mest skorti tónmenntar-
kennara og raungreinakennara. -FRI
Þótt enn sé óráðið í sextiu stöður er ástandið samt ivið skárra en i fyrra.