Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1986, Blaðsíða 6
6
FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1986.
Viðskipti
segír forstjóri Stálhúsgagnagerðar Steinars um kaupin á Víðishúsinu
„Við erum í allt of litlu húsnæði.
Það stendur starfseminni fyrir þrifum.
Þess vegna erum við að þessu brölti,"
sagði Sigurbjörg Guðjónsdóttir, for-
stjóri og aðaleigandi Stálhúsgagna-
gerðar Steinars hf., sem í fyrradag
keypti eitt stærsta verksmiðjuhús
landsins, Smiðjuveg 2 í Kópavogi, áð-
ur hús Trésmiðjunnar Víðis.
Stálhúsgagnagerð Steinars er nú til
húsa að Skeifúnni 6. Hjá því vinna 27
manns. Húsnæði þess er á þremur
hæðum, alls um 2.000 fermetrar. Fyrir-
tækið fær nýja húsnæðið í Kópavogi
afhent 1. nóvember næstkomandi.
„Það er á einni hæð og hægt að
hagræða þar mikið betur. Það er um
6.400 fermetrar," sagði Sigurbjörg.
„Okkar aðalframleiðsla er skóla- og
stofnanahúsgögn. Við erum ábyggi-
lega stærst í framleiðslu á skólahús-
gögnum hérlendis," sagði forstjórinn.
Stálhúsgagnagerð Steinars hf. er lík-
lega þekktust fyrir Stacco-stólinn, sem
Pétur Lúthersson hannaði. Hefur fyr-
irtækið ekki undan að framleiða hann
fyrir innanlandsmarkað. Framleiðslu-
réttinn erlendis hefur fyrirtækið selt
til dansks fyrirtækis.
Steinar Jóhannsson stofaaði stál-
húsgagnagerðina fyrir 26 árum. Hann
lést árið 1974. Þremur árum síðar var
fyrirtækið gert að hlutafélagi.
Stærsti hluthafinn, Sigurbjörg Guð-
jónsdóttir forstjóri, ekkja Steinars, á
60 prósent. Fjórir starfsmenn eiga 10
prósent hver; Guðni Jónsson fram-
kvæmdastjóri, Hilmar Jóhannsson,
verkstjóri yfir bólstrun og samsetn-
ingu, Dagbjartur Jónsson, verkstjóri
yfir jámsmiðju, og Ágúst Guðmunds-
son, verkstjóri yfir trésmiðju. Sölu-
stjóri er Ingibjörg Friðjónsdóttir.
-KMU
Peningamarkaður
VEXTIR (%) hæst
Innlán óverötryggð
■ 1 1 1 1 i?r 1 8-9 lb
Sparireikningar
3ja mán. uppsógn 8.5-10 Ab.Lb.Vb
6 mán. uppsögn 9.5-12.5 Ab.Vb
12 mán. uppsögn 11-14 Ab
Sparnaður - Lánsréttur
Sparað í 3-6 mán. 8-13 Ab
Sp. i 6 mán. ogm. 8-13 Ab
Ávísanareikningar 3-7 Ab
Hlaupareikningar 3-4 Lb.Sb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1 Allir
6 mán. uppsögn 2.5-35 Lb
Innlán með sérkjörum 8-16
Innlán gengistryggð
Bandarikjadalur 8-7 Ab
Sterlingspund 3-10.5 Ab.Vb
Vestur-þýsk mörk 3.5-4 . Ab
Danskar krónur 6-7.5 Afa.Lb, Bb.Sb
Utlán óverðtryggð
Almennir vixlar(forv.) 15.25 Allir
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kge og 19.5
Almenn skuldabréf(2) 15.5 Allir
Viöskiptaskuldabréf (1) kge Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 7-9
Útlán verðtryggð Skuldabréf
Að2.5árum 4 Allir
Til lengri tima 5 Allir
lltlán tilframleiðslu
isl. krónur 15
SOR 7.75
Bandarikjadalur 7.75
Sterlingspund 11.25
Vestur-þýsk mörk 6
Spariskirteini
3ja ára 7
4raára 8.5
Bára 9
Með vaxtmiðum(4 ár) 8.16
Gengistryggð(5 ár) 8.5
Aimenn verðbréf 12-16
Húsnæðislán 3.5
Lífeyrissjóðslán 5
Dráttarvextir 27
visrröLUR
Lánskjaravisitala 1488 stig
Byggingavísitala 274.53 stig
Húsaleiguvisitaia Haskkaði 5% 1. júli
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnverðs:
Eimskip 200 kr.
Flugleiðir 140 kr.
Iðnaðarbankinn 98 kr.
Verslunarbankinn 97 kr.
Sigurbjörg Guöjónsdóttir, forstjóri og
aöaleigandi Stálhúsgagnagerðar
Steinars hf.
DV-myndir Óskar
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, af þriðja aðila, er
miðað við sérstakt kaupgengi, kge, hjá
flestum bönkum og stærri sparisjóðum.
(2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs
vanskilalána er 2% bæði á verðtryggð
og óverðtryggð lán. Skammstafanir:
Ab = Alþýðubankinn, Bb=Búnaðar-
bankinn, Ib=Iðnaðarbankinn, Lb =
Landsbankinn, Sb = Samvixmubankinn,
Úb = Útvegsbankinn, Vb = Verslunar-
bankinn, Sp = Sparisjóðimir.
Nánari upplýsingar um peninga-
markaöinn birtast í DV á fimmtudög-
Fjórir starfsmenn Státhúsgagnagerðar Steinars viö Stacco-stólinn vinsæla. Sitjandi er Ingibjörg Friðjónsdóttir. Karlmenn-
imir eru Hilmar Jóhannsson, Kristján Viðar Hilmarsson og Álfgeir Gislason.
Réttarhald í Sakadómi Reykjavíkur:
Erlendur yfirheyrður
um kaffibaunir í dag
Dómsyfirheyrslur í kaffrbaunamál-
inu hófust í Sakadómi Reykjavíkur
við Borgartún í morgun. Erlendur
Einarsson, fyrrverandi forstjóri Sam-
bands íslenskra samvinnufélaga, var
boðaður til að mæta klukkan níu í
morgun hjá Sverri Einarssyni saka-
dómara og meðdómurum hans, Sigurði
Stefanssyni og Jóni Þ. Hilmarssyni,
löggiltum endurskoðendum.
Kaffibaunamálið hefur verið með
mestumræddu sakamálum landsins
allt fi-á því að almenningur fékk fyrstu
fréttir af því fyrir tæpum tveimur
árum. Rannsókn málsins, sem skatt-
rannsóknarstjóri og gjaldeyriseftirlit-
ið hófú haustið 1983, leiddi til þess að
fimm yfirmenn hjá Sambandinu voru
ákærðir í byijun þessa árs.
Erlendur og Hjalti
taldir höfuðpaurar
Erlendur Einarsson og Hjalti Páls-
son, framkvæmdastjóri innflutnings-
deifdar Sambandsins, eru í ákæru-
skjali ríkissaksóknara taldir
höfuðpauramir í málinu. Gegn þeim
er málið höfðað fyrir að hafa gerst
sekir um flársvik, skjalafals og brot á
lögum um skipan gjaldeyris- og við-
skiptamála.
Erlendur og Hjalti eru ákærðir fyrir
stjóm þeirra og framkvæmd á um-
boðsstörfum Sambands íslenskra
samvinnufélaga fyrir Kaffibrennslu
Akureyrar hf. vegna innflutnings á
kaffibaunum frá Brasilíu á tímabilinu
frá nóvember 1981 fram til ársloka
1981. Norræna samvinnusambandið
(NAF) hafði milligöngu um þennan
innflutning.
Fjársvik
Fjársvikaákæruna rökstyður sak-
sóknari með því að Erlendur, sem
forstjóri, og Hjalti, sem framkvæmda-
stjóri innflutningsdeildar, sem sá um
innflutninginn á kaffinu, hafi sam-
mælst um að koma því til leiðar, með
ákvörðun um að leyna umbjóðanda
sinn miklum afslætti, sem stóð til boða
frá umsömdu kaffiverði, að Kaffi-
brennsla Akureyrar hf. var látin
greiða miklum mun hærra verð fyrir
kaffið en hinir erlendu seljendur
áskildu sér.
Verðmismunurinn er í ákæruskjali
talinn nema rúmum 4,6 milljónum
Bandaríkjadollara auk þess sem Kaffi-
brennslan var látin greiða um 218
þúsund dollara hærri vexti en hún í
raun þurfiti að greiða. Undir Samband-
ið hafi hinir ákærðu þannig náð með
refsiverðum hætti samtals 4,8 milljón-
um dollara eða um 200 milljónum
króna.
Saksóknari telur að þetta hafi þeir
Erlendur og Hjalti gert í því skyni að
skapa Sambandi íslenskra samvinnu-
félaga fáeri á því að fénýta bæði
afsláttinn og vaxtamismuninn, sem
þeir svo gerðu, aðallega með því að
nota afsláttinn til lækkunar á kaffi-
reikningum sem greiddir voru seljend-
um í erlendum bönkum af skrifetofu
SÍS í London.
Samtímis hafi þeir látið seljendur
útbúa og senda skrifetofú SÍS í London
aðra vörureikninga fyrir sömu kaffi-
sendingar með öðru og hærra verði
sem að beiðni skrifetofunnar voru inn-
heimtir hjá Kaffibrennslu Akureyrar.
Nokkur hluti þessara fjármuna, eða
um 1,5 milljónir dollara, hafi svo
seinna verið endurgreiddur Kaffi-
brennslu Akureyrar en með launung
um raunverulega fjárhæð afeláttarins.
Jafnframt hafi verið látið að því liggja
að þar með væri hann að fúllu endur-
greiddur.
Skjalafals- og gjaldeyris-
lagabrot
Þeir Erlendur og Hjalti eru einnig
ákærðir fyrir skjalafals- og gjaldeyris-
lagabrot, eða eins og segir í ákærunni
„með því að hafa, í þeim tilvikum sem
afeláttur var nýttur til lækkunar á
vörureikningum, látið hina erlendu
seljendur kaffisins gefa út í blekking-
arskyni gagnvart forráðamönnum
Kaffibrennslu Akureyrar hf. tvöfalda
vörureikninga mismunandi efiiis fyrir
sömu kafifikaupunum“.
Hærri reikningana, sém voru án alls
afeláttar, hafi Kaffibrennslan verið
látin greiða í þeirri trú að þeir hefðu
að geyma rétt kaffiverð. Kaffibrennsl-
an hafi lagt reikningana fram til
grundvallar umsóknum um gjaldeyris-
yfirfærslu svo og til grundvallar
umsóknum um að nýta þá gjaldfresti
er til boða stóðu.
í ákæruskjalinu eru taldir upp 28
vörureikningar sem „voru falsaðir
með framangreindum hætti og notaðir
fyrir tilstilli ákærðu til blekkingar í
viðskiptum við forsvarsmenn Kaffi-
brennslu Akureyrar hf. og gjaldeyris-
yfirvöld hér á landi“.
Þrír yfirmenn ákærðir fyrir hlut-
deild
Gegn þeim Sigurði Áma Sigurðs-
syni, deildarstjóra fóðurvörudeildar og
síðar framkvæmdastjóra Sambands-
skrifetofúnnar í London, Gísla Theód-
órssyni, framkvæmdastjóra
Lundúnaskrifetofunnar þar til Sigurð-
ur tók við, og Amóri Valgeirssyni,
deildarstjóra búvömdeildar, er málið
höfðað fyrir hlutdeild í framanlýstum
fjársvika-, skjalafals- og gjaldeyris-
brotum. Þeir hafi tekið við fyrirmæl-
um frá yfirmönnum sínum, þeim
Erlendi og Hjalta, um framkvæmd
kaffiviðskiptanna og síðan séð um
framkvæmd þeirra í einstökum atrið-
um, þrátt fyrir að þeim hlaut að vera
Ijóst að sú framkvæmd var bæði refei-
verð og andstæð eðlilegum viðskipta-
háttum.
-KMU
Erum í allt of
litlu húsnæði