Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1986, Qupperneq 9
FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1986.
9
Norðmenn
þurfa að
herða
sultarólina
Norsk pólitík snýst nú fyrst og
fremst um það hvemig á að koma
efhahagslífi þjóðarinnar á réttan
kjöl en þar em skoðanir skiptar
milli flokka.
Minnihlutastjóm verkamanna-
flokksins á á hættu að falla í
byijun október þegar hún leggur
fram fjármálastefhu sína.
Formaður hægri flokksins, Rolf
Presthus, telur frammistöðu
stjómarinnar hafa verið lélega
fram að þessu. Hann segir að ef
stjómin bæti sig ekki muni hægri
flokkurinn lýsa vantrausti á hana
nú í haust.
Gro Harlem Brundtland og
stjóm hennar vilja spara með því
að hækka skatta og hvetja fólk til
spamaðar. Stjómin hefur nú lagt
fram drög að umfangsmiklum
breytingum á skattakerfinu.
Tekjuhá fyrirtæki og einka-
hringar sem taka stór bankalán
raunu finna mest fyrir breytingun-
um. Skuldimar verða nefhilega
ekki endalaust frádráttarbærar til
skatts eins og nú er. Þessar að-
gerðir eiga að draga úr einka-
neyslu fólks og hvetja almenning
til þess að spara í staðinn fyrir að
taka endalaus lán.
Borgaralegu flokkamir vilja
ekki auka skattana. Auknir skatt-
ar munu draga úr framtakssemi
fólks og þar með lama atvinmdifið
í landinu, segir stjómarandstaðan.
Skotiðá
lögreglu
í Santiago
Mótmælaaðgerðir gegn herfor-
ingjastjóminni í Chile bmtust út
í Santiago og öðrum borgum í
gær. Samkvæmt heimildum örygg-
issveita hafa sjö manns særst og
350 hafa verið handteknir.
Lögreglan skaut táragasi og
gúmmíkúlmn að mótmælendum og
handtók marga tugi.
Talið er að tveir lögreglumenn
að minnsta kosti og einn vegfar-
andi hafi særst er óþekktir byssu-
menn hófu skothríð á lögreglu-
menn í eftirlitsferð í útborg
höfuðborgarinnar Santiago í gær.
Lögreglan svaraði skothríðinni en
að sögn yfirvalda komust árásar-
mennimir á brott.
Neyðarfundur
Chiracs í kjótfar
sprengjutilræðis
Chirac, forsætisráðherra
Frakka, átti í gær skyndifund með
ríkisstjóm sinni og yfirmönnum
öryggismála í kjölfar sprengjutil-
ræðis á neðanjarðaijámbrautar-
stöð í miðborg Parísar á
háannatíma.
Aé sögn löreglunnar þykir það
mikil mildi að sprengjan, öflug
plastsprengja, skyldi ekki rlá að
springa af ftdlum krafti á brautar-
stöðinni þar sem hundmð Parísar-
búa áttu leið um á mínútu hverri.
Olli sprengjan litlu tjóni er hún
sprakk en haft er eftir sprengjusér-
fræðingum lögreglunnar að fyrir
mistök við samsetningu sprengj-
unnar hafi kveikjuþráður hennar
ekki náð að kveikja í öllu sprengi-
efhinu.
Talsmaður stjómarinnar sagði
eftir fundinn að frönsk yfirvöld
myndu nú auka til muna hvers
konar aðgerðir er orðið gætu til
að minnka hættuna á hryðjuverk-
um og auka öryggi franskra þegna.
Útlönd
Fjógur hundruð farþegar
rísaþotu gíslar í Karachi
Árásarmenn hóta að Irfláta farþegana, einn í einu
Fjórir hryðjuverkamenn, vopnað-
ir handsprengjum og sovéskum
Kalashnikov vélbyssum, réðust um
borð í Boeing 747 risaþotu banda-
ríska Pan Am flugfélagsins á flug-
vellinum í Karachi í Pakistan í
morgun og tóku farþega og áhöfn
vélarinnar, alls fjögur hundmð
manns, í gíslingu.
Sjúkrahúslæknar í Karachi stað-
festu skömmu eftir árásina að einn
farþegi vélarinnar hefði þegar fallið
fyrir kúlum hermdarverkamann-
anna.
Yfirvöld í Karaclii segja ennfrem-
ur að annar farþegi og tveir flugvall-
arstarfsmenn hafi særst í skothríð
árásarmannanna um leið og þeir
réðust til uppgöngu í Pan Am vél-
ina. Komust árásarmennimir um
borð um svipað leyti og síðustu far-
þegamir, er komu í vélina eftir
millilendingu í Karachi, og skömmu
áður en halda átti í loftið að nýju
áleiðis til Vestur-Þýskalands.
Til Karachi kom vélin frá Bombay
á Indlandi og er talið að flestir far-
þeganna fjögur hundruð séu Indveij-
ar.
Haft er eftir flugvallarstarfsmönn-
um í Karachi, er urðu vitni að
áhlaupi byssumannanna, að þeir
hafi talað arabísku sín á milli.
Pakistönsk stjómvöld sögðu í
mörgun að samband hefði náðst við
áhlaupsmennina og væra samninga-
viðræður um lausn gíslanna þegar
hafhar. Hafa yfirvöld fengið til sín
arabískan túlk til að auðvelda við-
ræður við árásarmennina.
Haft er eftir pakistönskum emb-
ættismönnum að árásarmennimir
hafi krafist þess að flogið verði með
þá til Kýpur. Tveir flugmenn og flug-
vélstjóri þotunnar komust undan á
hlaupum skömmu áður en vélin var
hertekin.
Krefjast árásarmennimir þess nú
að fá áhöfn til að fljúga vélinni frá
Karachi.
Sérsveitir pakistanska hersins
umkringdu þegar Pan Am vélina
eftir áhlaupið og sá hluti flugvallar-
svæðisins þar sem bandaríska vélin
stendur var girtur af. Flugvallaryfir-
völd í Karachi takmörkuðu þegar
alla flugumferð um alþjóðaflugvöll-
inn og var flugumferð beint á
nærliggjandi flugvelli.
Óstaðfestar fregnir frá Karachi
herma að byssumennimir vilji kom-
ast til Kýpur til að freista þess að
fá leysta úr haldi þijá hermdar-
verkamenn samtaka Palestínu-
manna er fyrir ári myrtu þrjá
ísraelska siglingamenn í höfninni í
Nikósíu. Einn hinna fangelsuðu er
Breti, Ian Davison að nafni, kunnur
stuðningsmaður palestínskra
hryðjuverkasamtaka og þátttakandi
í árásinni á ísraelsmennina.
Noregur:
Læknamiðstöövar
í einkaeign
leggja upp laupana
Björg Eva Erlendsdóttír, DV, Osló:
Mikill fyöldi læknamiðstöðva í
einkaeign hefur sprottið upp í Noregi
síðastliðið ár og flestar þeirra á höfuð-
borgarsvæðinu. Nú er markaðurinn
orðinn of lítill fyrir svo margar stöðv-
ar. Ein þeirra varð gjaldþrota í fyrra-
dag og fleiri munu fylgja á eftir.
Aðeins ein þeirra sex læknamið-
stöðva, sem eftir era í Osló, er rekin
með hagnaði og er gert ráð fyrir að
hinar leggi upp laupana innan árs með
sama áframhaldi. Miklar spamaðar-
ráðstafanir era í gangi við ríkisspítal-
ana í Noregi. Sums staðar leggjast
heilu deildimar niður nú i haust og
fólk þarf jafhvel að bíða í fleiri ár eft-
ir að komast í aðgerð.
Af þessum sökum er fólk að missa
trúna á að ríkið geti boðið þá þjón-
ustu sem þvi er ætlað og margir era
famir að íhuga þann möguleika að
fjárfesta í eigin heilsu. Þetta gefur
læknamiðstöðvunum í einkaeign nýja
von. Um leið lýsir þetta því ófremdar-
ástandi sem ríkir í opinberri heilsu-
þjónustu hér í Noregi.
Örygglsráðið krefst
aukins öryggis gæsluliða
Búist er við þvi í dag að öiyggisráð
Sameinuðu þjóðanna krefiist auk-
inna öryggisráðstafana á meðal
gæsluliða samtakanna í Líbanon, í
kjölfar sprengjutilræðis í smáþorpi
skammt frá borginni Tyrus þar sem
tveir franskir gassluliðar létu lífið
og einn særðist alvarlega.
Sprengjutilræðið átti sér stað á
sveitavegi einum þar sem flokkur
tólf franskra gæsluliða var í heilsu-
bótarskokki skammt frá bækistöð
sinni.
í síðasta mánuði særðust tuttugu
franskir gæsluliðar að auki í inn-
byrðist átökum öfgasinnaðra shíta,
og nokkrum dögum síðar féll liðs-
foringi í írska gæsluliði Sameinuðu
þjóðanna af sárum er hann hlaut í
svipuðum átökum.
Frakkar era með langfjölmenn-
ustu herdeild gæsluliða í Líbanon,
alls rúmlega fimm þúsund menn.
Háttsettur embættismaður Sam-
einuðu þjóðanna kom til Líbanon í
morgun til viðræðna við leiðtoga
landsins og talsmenn stríðandi fylk-
inga múslíma og kristinna, og er
markmið ferðarinnar að semja um
leiðir við heimamenn er aukið gætu
öryggi gæsluliða Sameinuðu þjóð-
anna í landinu.
í dag á embættismaðurinn firnd
með Rashid Kamare, forsætisráð-
herra Líbanon, ásamt fleiri líbönsk-
um embættismönnum.
Rashid Kamare, forsætisráðherra Libanon, á vettvangi eftir sprengjutilræði
i fyrradag, þar sem tveir franskir gæsluliðar Sameinuðu þjóðanna létu lífið
og annar særöist alvartega.
Aquino ræðir við
uppreisnarforingja
Uppreisnarmenn á Filippseyjum hafa látið æ meir til sin taka að undanfömu með skyndiárásum á stjómarhermenn
yfirvalda í Manila.
Corazon Aquino, forseti Filippseyja,
átti í morgun fund með Nur Misuari,
einum helsta leiðtoga uppreisnar-
manna í landinu, er barist hafa gegn
ríkisstjóminni í Manila með oddi og
egg í áraraðir.
Fundurinn átti sér stað í bænahúsi
múslíma á eynni Jolo í suðurhluta
landsins en þar hafa uppreisnarmenn
átt mestu fylgi að fagna.
Aquino hafði áður lýst yfir áhuga
sínum á að hitta leiðtoga uppreisnar-
manna 1 landinu í tilraun sinni til að
koma á varanlegum sáttum í landinu
eftir fall Markosar síðastliðið vor og
draga úr frekari innbyrðis átökum í
landinu er kostað hafa hundrað lífið
á örfáum mánuðum.
Misuari uppreisnarforingi kom til
Filippseyja" fyrr í þessari viku eftir
áralanga útlegð í Saudi Arabíu og
Líbýu.