Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1986, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1986.
11
dv Viðtálið
FöHunin hindrar mig
ekki í að ná takmarkinu
- segir Jóhann Pétur Sveinsson við opnun lögmannsstofu sinnar
Jóhann Pétur Sveinsson lögfræöingur: „Mun fást við öll almenn lögfræði-
störf, en læt máiefni fatlaðra sérstaklega til mín taka.'
„Ég er búinn að ná því takmarki sem
ég setti mér. Að vísu vinn ég að því
að verða héraðsdómslögmaður, en að
opna þessa stofu er þó stærsti hlutinn
af markmiðinu. Ég er kominn í gang.“
Þetta sagði Jóhann Pétur Sveinsson
lögfræðingur þegar blaðamaður DV
heimsótti hann sl. föstudag þegar
formlega var opnuð lögmannsstofa
hans og Ólafs Garðarssonar héraðs-
dómslögmanns við Grandagötuna í
Reykjavík. Það væri kannski ekki i
frásögur færandi að lögmannsstofa
opnaði í Reykjavík, nema í tilfelli sem
þessu, en Jóhann er mikið fatlaður og
hefur verið bundinn við hjólastól frá
bamæsku.
Sjúkrahúsvist í 11 ár
„Ég er fæddur á Varmalæk í Skaga-
firði 18. september 1959,“ segir Jóhann.
„Við fæðingu var ég ekki fatlaður, það
var ekki fyrr en við 4-5 ára aldur að
ég fékk sjúkdóm sem leiddi til fötlun-
arinnar. Ég man fremur fátt frá
þessum fyrstu árum, nema þegar ég
fótbrotnaði þetta gamall, þegar ég var
að príla upp á grindverki.
Menn hættu að kenna fótbrotinu um
þegar ég var ekki byrjaður að ganga
aftur mánuðum eftir slysið. Við rann-
sókn kom fyrst í ljós að ég var með
liðagigt á háu stigi. Og þá hófet sjúkra-
lega á Bamaspítala Hringsins, en þar
var ég að segja má samfleytt í 11 ár,
frá 5-16 ára aldurs. Ég útskrifaðist
þegar talið var ljóst að framgangur
sjúkdómsins hefði stöðvast. En hann
hafði þá sett sín mörk á mig, vaxtar-
mót við liði höfðu eyðilagst mjög
snemma svo ég hætti að stækka og
sumir liðir eyðilögðust alveg.
Meðan á spítalavistinni stóð var lít-
ið hægt að stunda endurhæfingu, þessi
tími fór mest í að halda sjúkdómnum
niðri. Liðagigtin hefur hins vegar lítið
látið bæra á sér síðan, svo ég hef og
er enn að styrkjast mikið frá þessum
tíma. Nú er ég raunar mjög hraustur,
gigtin hefur stöðvast og mér er ekkert
hættara við að fá venjulega sjúkdóma
frekar en öðrum."
Ekki margra kosta völ í Háskól-
anum
16 ára gamall flutti Jóhann Pétur í
hús Sjálfcbjárgar, Hátúni 12, og býr
þar enn. Um þetta leyti hóf hann nám
í Menntaskólanum við Hamrahlíð, en
grunnskólamenntun sína hafði hann
hlotið á spítalanum. „Ég kláraði stúd-
entinn á þremur og hálfii ári, aðallega
vegna leti, því upphaflega vildi ég
klára hann á þremur árum," segir
Jóhann og hlær. „Það var bara svo
þægilegt að láta þetta standa á hálfu
ári, þá gat maður fengið sér dálítið frí
áður en farið var af fullum krafti í
lögfræðina haustið ’79.“
- Varstu þá orðinn ákveðinn í að taka
lögfræðina?
„Ég þurfti eiginlega að gera upp á
milli viðskiptafræðinnar og lögfræð-
innar, enda varla um annað að ræða
því húsin þar sem þessi fög eru kennd
eru þau einu í eigu Háskólans sem eru
með þolanlega aðstöðu fyrir fatlaða.
Til allrar lukku hafði ég ekki áhuga
á að nema guðfræði, sem þeir kenna
í sjálfri Háskólabyggingunni, með að-
stöðu eins og hún er þar.“
Samvinna í lagadeildinni
„Ég sá ekki eftir þvi að hafa vahð
lögfræðina. Þar kynntist ég öndvegis-
mönnum, eins og honum Ólafi sem
rekur stofuna með mér og Sigurbimi
Magnússyni sem nú er framkvæmda-
stjóri þingflokks sjálfstæðismanna.
Við stóðum þrír saman í gegnum nám-
ið, sem t.d. í byrjun var ansi strembið.
Þegar próf nálguðust lokuðum við
okkur inni, en ekki hver í sínu lagi
heldur allir saman og stunduðum
merka tilraunastarfsemi í sambandi
við próflestur sem stóð stundum sólar-
hringunum saman. En þetta hafðist
og staðreyndin er, þótt ótrúlegt sé, að
það ér mjög gott að lesa undir próf í
lögfræði með öðrum, svo fremi að hann
sé á sama báti og maður sjálfur í kunn-
áttunni. Það sáum við eftir þessa
samvinnu okkar.
Svo er félagslífið í lagadeildinni líka
alveg einstakt, þar má nefha aðalfundi
Orators og fleiri uppákomur. Ég tók
þátt í því eins og tími leyfði, en ég hef
alltaf tekið mikinn þátt í félagsstarfi
Sjálfebjargar, svo ég varð að skipta
þessum félagsstörfum niður með nám-
inu.
Um réttindi fatlaðra á íslandi
Eftir að hafa útskrifast úr lögfræð-
inni vorið ’84 starfaði Jóhann um tíma
hjá Bjargráðasjóði en hélt síðan utan
til framhaldsnáms í félagsmálarétti við
Háskólann i Osló. Lokaritgerð hans
þar bar yfirskriftina: Réttindi fatlaðra
á íslandi.
- Er það ekki eitthvað sem vert er
meiri umfjöllunar en verið hefur hing-
að til?
„Jú, það er víst alveg öruggt, það
þekki ég-af reynslu. Þessum málum
er gífurlega ábótavant hér á landi.
Þróunin er að vísu í rétta átt, settar
eru reglugerðir um aðstöðu fyrir fatl-
aða þegar byggð eru hús í dag, en þær
eru heldur loðnar, svo það er auðvelt
að fara í kringum þær. Svo við tökum
sem dæmi hið ágæta hús Broadway.
Þar er salemisaðstaða fyrir fatlaða til
fyrirmyndar á meðan þeir verða að
fara inn um bakdyr, framhjá sorp-
geymslum og í gegnum eldhús til að
komast inn í húsið. Svona dæmi eru
mýmörg. Ég þarf að fara inn um bak-
dymar á mínum eigin vinnustað. En
það stendur sem betur fer til bóta.“
Lögfræðistörfin fjölbreytt
- Tekurðu eingöngu að þér mál sem
snúa að málefnum fatlaðra?
Nei, ég verð í öllum almennum lög-
fræðistörfum hér á stofunni og hlakka
til að fást við þau því lögfræðistörfin
em í raun ótrúlega fjölbreytt enda ná
DV-mynd S
þau til allra sviða í þjóðfélaginu. En
auðvitað læt ég málefhi fatlaðra sér-
staklega til mín taka.
Nú er ég rétt nýbúinn að ganga frá
mínum málum á skrifstofu borgarfóg-
eta þar sem ég hef starfað undanfarið.
Og svo er ég nú í fríi í dag enda verð-
ur hér svolítið hóf seinnipartinn til að
halda Upp á opnun stofunnar. Frá og
með mánudeginum verður starfeemi
stofunnar hafin. Þetta er markmiðið
sem ég hef sett mér fyrir löngu. Fötlun-
in hefur ekki hindrað að ég næði því.“
-BTH
Ökuleikni BFÖ - DV
íslandsmeistarakeppnin á laugardag
Bíll og utanlandsferðir ásamt bikarverðlaunum í boði
Nú líður senn að úrslitum ökuleikni
Bindindisfélags ökumanna og DV sem
haldnar voru á rúmlega 30 stöðum í
sumar.
Mjög góð þátttaka varð í keppninni
í sumar eða um 500 keppendur. Hafa
því um 2600 ökumenn þreytt ökuleikni
fró upphafi en sumarið i sumar var
níunda sumar ökuleikninnar.
íslandsmeistarakeppnin
Sigurvegarar keppnanna í sumar,
bæði í karla- og kvennariðlum, munu
nú um helgina leiða saman hesta sína
í úrslitakeppni sem jafhframt er Is-
landsmeistarakeppni. Alls hefur 71
keppandi rétt til þátttöku í úrslitun-
um. Keppnin mun fara fram við
nýbyggingu Mazda umboðsins, Bíla-
borgar hf. við Dragháls á Ártúnshöfða
í Reykjavík. Hefet hún með umferðar-
prófi fyrir hádegi laugardaginn 6.
september en fyrri umferð í þrauta-
plani hefet kl. 11.30. Seinni umferðin,
sem jafnframt verður væntanlega
meira spennandi, hefet kl. 14. Bílaborg
hf. gefur vegleg verðlaun, bikara fyrir
efetu 3 sætin í hvorum riðli en einnig
munu sigurvegarar hreppa utanlands-
ferðir með Amarflugi. Dagskránni
mun síðan ljúka með kvöldverðarboði
í boði tiyggingafélagsins Ábyrgðar hf.
og verðlaunaafhendingu að Hótel
Loftleiðum um kvöldið.
Bíll í verðlaun
Rúsínan í pylsuendanum verður sér-
verðlaun sem Mazdaumboðið veitir.
Forráðamenn umboðsins hafa ákveðið
að gefa þeim keppanda, sem tekst að
aka þrautaplanið villulaust, aðra
hvora umferðina, innan ákveðinna
tímatakmarka, splunkunýjan Mazda
626.
Margirgóðir
Keppnin á laugardag mun eflaust
verða mjög spennandi því margir góð-
ir ökumenn mæta og reyna sitt ýtrasta
til að hreppa verðlaunin, utanlands-
ferðina og bílinn. DV mun greina fró
keppninni í mánudagsblaðinu.
EG
Yfirlit yfir efstu keppendur
Margir keppendur náðu mjög
góðum árangri í keppnunum í
sumar. Fimm náðu þeim frábæra
árangri að aka villulaust í gegn um
brautina og verður spennandi að
fylgjast með hvort þeim tekst það
aftur í úrslitunum. Hér á eftir er
listi yfir efstu keppendur landsins
í sumar:
Karlar:
refeistig
1. Einar Halldórsson, Isafirði 73
2.-4. Guðm. Salómonsson, Húsavík 82
2.-4. Magnús Hermannsson, Húsavík 82
2.-4. Þráinn Jensson, Akranesi 82
5. Páll A. Halldórsson, ísafirði 91
6. Þórður Jónsson, Kópavogi 94
7. Snorri Skúlason, Reykjavík 96
8. Guðlaugur Jónsson, Kópavogi 98
9. Steinn Ólafeson, Þingeyri 101
10. Þórarinn Jónsson, Þingeyri 102
Konur:
refeistig
1. Fríða Halldórsdóttir, Hafiiarfirði 117
2. Guðný Guðmundsdóttir, Hellu 129
3. Inga Kristinsdóttir, Eskifirði 138
4. Sólveig Zophamasd., Blönduósi 143
5. Kristjana Áuðunsdóttir, Patreksf. 145
6. Auður Yngvadóttir, ísafirði 154
EG
Hér má sjá bílinn sem i boði verður á laugardag. Það er Mazda-umboðið Bílaborg hf. sem ætlar að gefa hann þeim
keppanda sem ekur villulaust, innan vissra tímatakmarka, í gegn um allar þær þrautir sem settar verða upp.
HVERFISGÖTU 105, RISIMLJ
LAUGARDAGINN 6. SEPTEMBER KL. 23—03
KABARETT A MIÐIMÆTTI
HOMMAR — LESBÍUR!
FJÖLMENNIÐ!