Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1986, Blaðsíða 12
12
FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1986.
<k=r
Opið á
laugardögum
Hárgreiðslustofan
LOKKABLIK
Miklubraut 68, simi 21375.
Ráðstefna um atvinnumál
á Suðurnesjum, með sérstöku tilliti til kvenna,
verður haldin i Glóðinni, Keflavík, laugardaginn
6. september 1986.
Dagskrá:
Kristín Halldórsdóttir alþingismaður setur ráðstefnuna kl. 10.00.
Nýjar leiðir í fiskvinnslu, Dr. Alda Möller.
Orkan í Svartsengi, Albert Albertsson verkfræðingur.
Iðnaður á Suðurnesjum, Jón Unndórsson iðnráðgjafi.
Hefðbundin kvennastörf, Þórunn Friðriksdóttir kennari.
Hádegisverðarhlé.
Ferðaþjónusta á Suðurnesjum, Guðrún Eyjólfsdóttir leiðsögumaður.
Fiskeldi á Suðurnesjum, Sara Harðardóttir kennari.
Keflavíkurflugvöllur og væntanlegar breytingar, Valdís Tómasdóttir
kennari.
Konur og hugbúnaður, Helga Sigurjónsdóttir kerfisfræðigur.
Stofnun fyrirtækja, Úlla Magnússon framkvæmdastjóri.
Ráðstefnustjórar: Guðný Guðmundsd. og Ragnhildur Eggertsd.
Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Kvennalistinn.
Fáðu þér
Ameríska
glerbrynju
d bilinn
* Þœgilegt og auðvelt í notkun.
* Bílþvotturinn verður leikur einn.
* Glerungurinn styrkir lakk
bílsins gegn steinkasti.
Þeim fjölgar ört sem átta sig á yfirburöum ULTRA GLOSS
gagnvartöörum bóntegundum. ULTRAGLOSSerí raun
„fljótandi gler" og því eölilegt aö þaö endist margfalt
lengur en vax- eöa plastbón.
Sé fariö eftir leiöbeiningum um notkun, þá nœgir aö
bóna bílinn 3 sinnum á ári til þess aö tryggja örugga
vernd gegn veðrun. Þetta vita þeir sem notaö hafa
ULTRA GLOSS frá byrjun. Erlendis er tekin 18 mánaöa
ábyrgö á endingu, en viö höldum okkur aö sjálfsögöu
viö hérlendar staðreyndir.
ULTRA GLOSS er ódýr langtímavörn.
Útsölustaðir: ESSO-stöðvarnar. HAGKAUP, Skeifunni
Hársins
vegna!
FAMILY
FRESH
FJÖLSKYLDUSJAMPÓ
600 rnl
Þrjár mildar tegundir fyrir |alja) fjölskylduna.
Reynið FAMILY FRESH
- hársins vegna!
Heildsala: Kaupsel
Laugavegi 25
S: 27770 og 27740
Neytendur
DV
Ef þið viljið hafa pikklesinn fíngerðan
eins og það sem kallað er relish er
ekki annað að gera en að hakka allt
í hakkavélinni.
Þama em grænmetistegundimar tilbúnar til þess að fara saman í kryddlög
og bæta steikina og kæfubrauðið í vetur.
Agúrkur og fleira
gott geymt í ediki
Nú stendur agúrkuútsalan sem hæst
og því sjálfsagt að notfæra sér það
með því að súrsa gúrkumar. Það er
einnig hægt að skera gúrkumar í
þunnar sneiðar og frysta í plastpoka.
Þær eru svo látnar þiðna í edikslegi
þegar á að nota þær. Þetta var mikið
notað fyrir nokkrum árum en senni-
lega er það ekki vinsælt lengur. En
það er mjög gott að eiga alls konar
pikkles á búrhillunni. Það er gott að
nota í matargerð, t.d. í pottrétti, smátt
skorið í köld salöt og sósur og í heilu
lagi með kjöti. Alls konar pikkles er
líka ómissandi með kæfúbrauði, hvort
sem er um að ræða kindakæfú eða lifr-
arkæfu. Hér eru nokkrar uppskriftir.
Akúrkurog laukur
5 kg agúrkur
Saltlögur: 100 g salt pr. 1 vatns
3 1 edik
1 14 kg sykur 14-1 kg smálaukur
10 dillkvistir
1 poki blandað pikkleskrydd
3 hólf hvítlaukur (má sleppa )
1 msk. rotvamarefni
Hreinsið agúrkumar vel, flysjið af
þeim börkinn og skerið í hæfilega
stóra bita. Skerið hvem bita í femt
(fer svolítið eftir sverleika gúrkunnar)
og hreinsið kjamana innan úr. Skolið
gúrkumar vel úr köldu vatni. Látið
síðan kalt vatn á gúrkumar og látið
bíða á köldum stað í einn sólarhring.
Sjóðið lög af salti og vatni í áður-
greindum hlutfollum. Kælið. Látið
agúrkumar í saltlöginn og látið bíða
einn sólarhring á köldum stað. Takið
þær þá upp úr leginum og hellið hreinu
ediki yfir þær og látið bíða á köldum
stað í þrjá sólarhringa. Hellið þá edik-
inu í pott og sjóðið með afhýddum
lauknum, sykri, dilli og kryddinu og
e.t.v. hvítlauknum þar til sykurinn er
bráðinn.
Látið agúrkubitana í hrein glös.
Takið edikslöginn af hitanum og látið
rotvamarefnið út í og hellið, yfir
gúrkubitana. Bindið strax yfir glösin.
Asíur úr agúrfcum
15 stk. agúrkur
1 1 edik
54 1 vatn
5 stk. laukur
Eykur
útsýnið
oQöryggið
við
akstur-
inn.
Fæst á
næstu
bensínstöð.
1 poki asíukrydd
(má að skaðlausu vera
aðeins meira)
750 g sykur
1 hnefi gróft salt
Gúrkumar em flysjaðar og skomar
í ca 10-12 cm langa bita sem em klofh-
ir í femt. Hreinsið kjamana úr með
skeið og látið agúrkubitana í stórt ílát,
stráið grófú saltinu yfir og látið standa
yfir nótt á köldum stað. Lögurinn er
útbúinn, ediki og vatni blandað sam-
an, laukurinn flysjaður og skorinn í
báta og látinn útí með kryddi og sykri
og loks gúrkubitunum. Allt er hitað
að suðu, en má ekki sjóða. Þá er pott-
urinn tekinn af hitanum og öllu hellt
í stóra skál og geymt á köldum stað í
eina viku. Hrærið í einu sinni á dag.
Þá er allt sett i pottinn á nýjan leik
og hitað upp að suðu, - ath. má ekki
sjóða. Gúrkubitamir em svo látnir á
hrein glös, sem lokað er strax. Ef ætl-
unin er að geyma þessar gúrkur
eitthvað er gott að láta rotvamarefni
út í, ca 1 matskeið í 1, en það em leið-
beiningar á umbúðunum.
Akúrkur með lauk
Þessi pikkles er auðveldur í notkun
og tilbúinn til notkunar strax.
6 agúrkur
6 meðalstórir laukar
Vt bollar gróft salt
2 bollar vatn
1 1 edik
3 bollar sykur
2 msk. sellerí kom
2 msk. mustarðskom
Agúrkumar em þvegnar vel og síð-
an skomar í þunnar sneiðar. Laukur-
inn er flysjaður og einnig skorinn í
þunnar sneiðar. Sjóðið saman löginn
úr vatni, ediki og kryddi og látið sjóða
í 3 mín. Látið laukinn sjóða með. Þessu
er svo hellt yfir gúrkumar, látið á
hrein glös og lokað strax.
Pikkles
Það er ýmislegt annað en agúrkur
og laukur sem gott er að súrsa, eins
og t.d. alls konar grænmeti. Það græn-
meti, sem þannig er notað, verður að
vera algjörlega óskemmt. Ef blómkálið
er eitthvað farið að dökkna skal skera
það í burtu. Það getur verið breytilegt
hvað notað er hveiju sinni en hér er
ágætis uppistaða:
Stórt, þétt blómkálshöfuð
14 kg smálaukur
54 kg agúrkur
54 kg gulrætur
54 kg litlir grænir tómatar
2-3 stk. rauðar paprikur
2- 3 stk. grænar paprikur
Saltlögur: 114 dl salt út í einn 1 af vatni
Pikkleslögurinn: 154 dl edik
' 4-5 dl sykur (efitir smekk)
3- 4 msk. gult sinnepsduft
3-5 msk. karrí
2 tsk. mild paprika
10 heil piparkom
2 stk. heilir negulnaglar
114 dl hveiti
1 msk. rotvamarefni
Þvoið grænmetið. Skiptið blómkál-
inu í litlar greinar, skerið gúrkumar
í litla bita, gulrætumar í sneiðar og
forsjóðið þær í 5 mín. Stingið tómatana
með gaffli. Skerið paprikumar í ör-
þunnar aflangar sneiðar.
Sjóðið saltlöginn þar til allt saltið
er íeyst upp og látið kólna. Látið allt
grænmetið út í og látið bíða á köldum
stað í einn sólarhring. Sjóðið gulræt-
umar í 3 mín. í edikinu, bætið hinu
grænmetinu út í og látið sjóða ör-
stutta stund. Takið þá grænmetið upp
úr með gataspaða.
Bætið þá sykrinum og heila krydd-
inu, sem látið hefur verið í grisjupoka,
út í. Hrærið sinnepsduftinu, karríinu
og hveitinu saman með vatni í þykkan
graut og hrærið út í edikslöginn. Sjóð-
ið sósuna í um það bil 10 mín., hrærið
í á meðan. Látið þá grænmetið út í
og látið suðuna koma vel upp. Látið
rotvamarefiún út í. Látið svo pikkles-
inn á hrein glös og lokið þeim strax.
Það er hægt að borða þennan pikkl-
es eftir eina viku en hann er bestur
ef hann fær að bíða í einn mánuð.
Út í svona pikkles má setja ýmislegt
annað grænmeti sem til fellur en það
sem hér er nefht, eins og t.d. niður-
sneitt blaðsellerí og alls konar baunir.
Pikkles í kryddlegi
Svipað magn af grænmeti og í upp-
skriftinni hér að framan.
Saltlögur: 2 1 vatn blandað með 300 g
af grófu salti.
Kryddlögur:
1 1 edik
14 kg sykur
2-4 msk. heil gul mustarðskom
1-2 msk. heil piparkom
1 tsk. anisfræ
1 tsk. fennikelfræ
54 tsk. kúmen
3 lárberjablöð
2 stk. heilar kardemommur
5 cm bútur af heilum kanil
1 tsk. koriander
14 múskat
1 stk. heill engifer
2 negulnaglar
2 tsk. rotvamarefiú
Hreinsið og skerið grænmetið eins
og lýst er í uppskriftinni hér að framan
og látið í saltlög í einn sólarhring.
Takið þá grænmetið úr saltleginum,
skolið hann af og látið drjúpa af því.
Látið allt heila kryddið í grisju og
sjóðið með ediki og sykrinum undir
loki í ca 54 klt.
Bætið grænmetinu út í og látið suð-
una koma vel upp þrisvar sinnum.
Takið pottinn af plötunni á milli.
Færið þá grænmetið með gatasigti
upp í hrein glös. Sjóðið upp á leginum
aftur, nú með lausu kryddinu, og hell-
ið síðan yfir grænmetið. Athugið að
það verður að fljóta yfir það. Jjokið
glösunum strax. Tilbúið til neyslu efl>
ir einn mánuð. -A.BJ.