Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1986, Síða 13
FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1986.
13
Neytendur
Breytingar á Kringlumýrarbraut:
Tökum eftir yfirborðs
merkingum gatna
Umferðin í Reykjavík eykst stöðugt
og vaxandi umferð fylgja ný vanda-
mál. Hvar á að finna stæði? Hvað á
að gera í málefnum gangandi veg-
farenda? Hvemig á að auðvelda
umferð milli borgarhverfa? Svona
mætti lengi telja.
Umferð frá nærliggjandi bæjarfélög-
um til Reykjavíkur er gífurleg því
margir sækja allt sitt til höfuðborgar-
innar. Kringlumýrarbrautin er orðin
mjög þung umferðaræð. Nú nýlega
hafa verið gerðar nokkrar breytingar
á henni sem við viljum vekja athygli
lesenda á.
Gatan hefur verið breikkuð frá
Kópavogi og að Hamrahlíð í 3 akrein-
ar. Þessu samfara var gatnamótunum
í Fossvogi, þar sem umferðin kemur
inn á úr Kópavogi, breytt. Umferðin
úr Hafnarfirði hefur 2 akreinar til
umráða en þriðja akreinin er eingöngu
ætluð þeim sem koma úr Kópavogi.
Töluvert hefúr verið um það að öku-
menn, sem koma úr Hafriarfirði, sveigi
strax inn á þá akrein sem ætluð er
Kópavogsbúum, enda ökumenn vænt-
anlega vanir því að aka svo, ökumað-
ur, sem kemur akandi á hægri akrein,
er nú skyndilega farinn að aka á
miðjuakrein þegar þriðja akreinin
bætist við og finnst sumum því eðli-
legt að sveigja yfir á hægri akreinina.
Ef þú, lesandi góður, ferðast um þessi
gatnamót, mundu þá að þegar þriðja
akreinin bætist við, og það er hægri
akrein, er hún ætluð fyrir ökumenn
úr Kópavogi fyrst um sinn. Aðgættu
því vel umferðina þaðan áður en þú
sveigir yfir á hægri akrein því nú hef-
ur þú ekki lengur forgang á henni.
Umfram allt, fylgstu vel með merking-
unum á götunni, þær eru skýrar og
góðar núna. Eftir þeim áttu að fara,
það verður erfiðara i vetur þegar
snjórinn kemur og nagladekkin éta
upp allar yfirborðsmerkingar.
I lokin viljum við benda á að nú
hefur annarri beygjuakrein verið bætt
I umsjón
Bindindisfélags
ökumanna
við á gatnamótum Kringlumýrar-
brautar og Miklubrautar. Nú hefur
þú um tvær akreinar að velja ef þú
ert að koma úr Kópavogi og hyggst
taka vinstri beygju niður Miklubraut.
Það ætti að vera hagræði í því þar sem
engin sérstök beygjuljós eru fyrir þá
beygju.
Góði ökumaður; nýttu þér yfirborðs-
Raddir neytenda
Ekki auglýst
rétt verð
Kona í Breiðholti hringdi:
„Síðastliðinn föstudag var auglýst í
blöðunum að kryddlegnar lambalæris-
sneiðar fengust í Hólagarði á 228
krónur kílóið. Daginn eftir bið ég
manninn minn að koma þar við og
kaupa þessa vöru. Er hann kemur
heim með kjötið kemur í ljós að kílóið
kostar 399 krónur en ekki 228 eins og
auglýst var. Mér finnst þetta hreinasta
svindl og léleg kaupmennska. Að lok-
um vil ég þakka fyrir Neytendasíðuna,
Upplýsingaseðill
til samanburðar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak-
andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltai heimiliskostnaðar
fjölskyldu af sömu stærð og yðar.
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
Fjöldi heimilisfólks .
Kostnaður í ágúst 1986.
Matur og hreinlætisvörur kr.
Annað kr.
Alls kr.
merkingamar meðan þær eru og farðu
eftir þeim, þannig stuðlar þú að auknu
umferðaröryggi og bættri umferðar-
menningu.
Myndin sýnir gatnamótin þar sem umferðin úr Kópavogi kemur inn á Kringlu-
mýrarbrautina, rétt við öndvegissúlur Daviðs. Hér á umferð úr Kópavogi
EG forgang á hægri akrein.
þar er unnið gott starf fyrir okkur
neytendur."
Neytendasíðan hafði sambauid við
verslunarstjóra Hólagarðs og spurði
hvemig á þessu stæði. Hann sagði að
til væm tveir verðflokkar af krydd-
legnum lambalærissneiðum og kostaði
annar flokkurinn 228 krónur kílóið en
hinn 339 krónur. Þennan dag vom
báðir verðflokkar á boðstólum.
-Ró.G.
FATALAND
Nú er allt að
fyllastaf nýjum vörum
Við seljum samt þær
gömlu á útsöluverði.
Opið til kl. 21 í kvöld
og frá 10-16 á laugardögum.
Smiðjuvegi 4e, c-götu, á horni Skemmuvegar.
Símar 79866 og 79494.
Laugavegi 28, Reykjavík
Stóragarði 7, Húsavík
Egilsbraut 7, Neskaupstað
Mánagötu 1, ísafirði
Hafnarstræti, Akureyri.
OPIÐIKVOLD
TIL KL. 20
í ÖLLUM DEILDUM.
OPIÐ AFTUR LAUGARDAGA
KL. 9-16.
í öllum deildum.
Munið barnagæsluna 2. hæð -
opið kl. 14-20 föstudaga
og 9-16 laugardaga
Jll
KORT
WS4
•» M « f 1 UUil «4 <4 4 I í Ikll.
Jön Loftsson hf. ________________
Hringbraut 121 Sími 10600
i