Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1986, Side 19
FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1986.
31
DV íþróttir
. | r 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 ■
Hameln fer fram
á tvær milljónir
Mál Kristjáns Arasonar ennþá í hnút
„Þetta er vægast sagt mjög slæmt
ástand. Ég má bókstaflega ekkert spila
! með Gummersbach, ekki einu sinni
æfingaleiki,“ sagði Kristján Arason í
samtali við DV í gær. Ekki hefur enn-
þá tekist samkomulag milli Hameln
og Gummersbach um þá upphæð sem
Hameln fær fyrir Kristján. Félagið
vill fá tvær milljónir króna fyrir hann,
sem er mjög há upphæð fyrir hand-
knattleiksmann. Gummersbach vill
hins vegar ekki borga þessa upphæð
og á meðan ekki semst má Kristján
ekkert spila.
„Ég verð bara að bíða og æfa þang-
að til þetta kemst á hreint. Fyrsti
leikur okkar í Bundesligunni er á
miðvikudaginn og ég er svartsýnn á
að þetta verði komið á hreint þá.
Hægri handar skyttan í liðinu, Neit-
zel, verður í leikbanni þá svo að þetta
lítur ekki of vel út,“ sagði Kristján
- En hvað getur þetta staðið lengi?
„Þetta gæti í versta falli staðið til
7. desember sem væri auðvitað ferlegt.
Hameln getur sett á mig sex mánaða
leikbann ef ekki tekst að semja en
eftir það er ég frjáls frá félaginu," sagði
Kristján. Hann má þó spila Evrópu-
leiki með Gummersbach en liðið sat
hjá í fyrstu umferð Evrópukeppninnar.
„Að öllu þessu veseni slepptu líður
mér mjög vel héma. Þetta er mjög
gott lið og aðstaðan frábær. Liðið hef-
ur verið á toppnum í 20 ár og menn
vita héma hvað þarf til að ná góðum
árangri," sagði Kristján sem verður
klár í slaginn með landsliðinu á móti
V-Þjóðveijum enda klæjar hann í fing-
umar í að fá að spila.
-SMJ
9 Sigi Held landsliðsþjálfari.
Tekiðá
móti Frökkum
með hörku
Það verður tekið á fnóti Frökkum með hörku
;gar þeir mæta til leiks á Laugardalsvellinum.
gi Held, landsliðsþjálfari íslands, hefur tilkynnt
) leikinn verði vamarleikur og skyndisóknum
'itt. Hann mun því láta íslenska liðið leika maður
)gn manni, leikaðferð sem hann þekkir svo vel
! er nær eingöngu notuð í V-þýskalandi.
Leikskipulagið verður því 3-5-2. Bjarni Sigurðs-
n mun verja markið. Allt bendir til að Gunnar
íslason leiki stöðu „sweeper’s", eða sem aftasti
aður vamarinnar. Sævar Jónsson verður honum
trausts og halds og fyrir framan þá verðir Atli
ivaldsson að öllum líkindum á fullri ferð. Þeir
iðvallarspilarar, sem leika út á köntunum, verða
ugglega Guðmundur Þorbjömsson, vinstra meg-
, og Sigurður Jónsson, hægra megin. Þeir fá það
utverk að draga sig aftur og leika sem bakverðir
gar við á. Inni á miðjunni verða örugglega Ómar
irfason, Ragnar Margeirsson og Ásgeir Sigur-
nsson. Ásgeir leikur sem stjómandi, en Ómar og
ignar sem vinnuhestar við hlið hans. í fremstu
jlínu verða þeir Pétur Pétursson og Amór
iðjohnsen. Pétur fremstur, en Amór fyrir aftan
mn, tilbúinn að brjótast upp báða kantana.
Hér til hliðar er teikning, sem sýnir á hvaða róli
kmenn íslenska landsliðsins koma til með að
ra í leiknum gegn Frökkum. -SOS
„Ég æfi fjóra tíma á
hverjum einasta degi“
- segir Einar Þorvarðarson, landsliðsmarkvörður hjá Tres de Mayo
„Þetta hefur verið mjög erfitt, æft
góra klukkutíma alla daga vikunnar
og það er ekkert gefið eftir. Ég er
mjög bjartsýnn á góðan árangur
okkar í spönsku deildinni í vetur en
auðvitað er afar nauðsynlegt að Sig-
urður Gunnarsson komist fljótt í
gagnið. Hann er á góðri leið,“ sagði
Einar Þorvarðarson, landsliðsmark-
vörður í handknattleik, í samtali við
DV í gærkvöldi en hann leikur sem
kunnugt er með spánska liðinu Tres
de Mayo eins og síðasta vetur.
Tveir sigrar
gegn dönskum liðum
„Eg er nýkominn heim úr æfinga-
ferð þar sem við lékum gegn tveimur
dönskum liðum. Fyrst unnum við
dönsku meistarana Helsingör með
22 mörkum gegn 18 og loks 2. deild-
ar lið með tíu marka mun, 18-8. Ég
er þokkalega ánægður með mína
frammistöðu í þessum leikjum. Ég
lék annan hálfleikinn í báðum leikj-
unum. Þjálfarinn er að prófa sig
áfram og finna út sterkasta liðið.
Eins og ég sagði áðan þá eru æfing-
amar hér gífúrlega erfiðar og ég hef
aldrei æft eins mikið."
Fékk leyfi í gær
„Ég fékk í gær leyfi hjá forráða-
mönnum félagsins til að fara til
Þýskalands og leika þar með lands-
liðinu og vonast eftir því að komast
til Þýskalands á sunnudaginn. En
áður en ég losna verð ég að leika tvo
æfingaleiki en fæ síðan iri í öðrum
tveimur," sagði Einar Þorvarðarson.
Þess má geta að Geir Sveinsson,
Val , æfði með Tres de Mavo um
tíma og að sögn Einars hefði hann
getað komist að hjá liði ef áhugi
hefði verið fyrir hendi hjá Geir. Svo
mun ekki hafa verið að svo komnu
máli hvað sem síðar verður.
-SK
• Goicoechea.
Slátrarinn
frá Bilbao
enn á ferðinni
Alsírski landsliðsmaðurinn Rac-
hid Harkouk er að öllum líkindum
nýjasta fómarlamb Andoni Goico-
echea sem hefur fengið hið hroll-
vekjandi viðumefni „slátrarinn frá
Bilbao". Þetta váðumefhi fékk
hann eftir að hann afgreiddi Diego
Maradona svo hressilega að hann
missti af heilu keppnistímabili með
Barcelona. Einnig náði hann í
skottið á Bemd Schuster einu
sinni með þeim afleiðingum að
Schuster gat ekki leikið í langan
tíma. Goicoechea, sem leikur með
Atletic Bilbao, þykir gífurlega
harðskeyttur vamarmaður og nú
hefur listi fómarlamba hans enn
lengst.
Goicoechea slasaði Harkouk í
leik Alsírs og Spánar í Mexíkó í
sumar og hefur Harkouk ekki náð
sér af þeim meiðslum enn. Hann
hefur leikið undanfarin ár með
Notts Countv. Liðið hefiu- nú boð-
ið honum frjálsa sölu. -SMJ
liverpool
mætir Fulham
{gær var dregið í 2. umferð enska
deildarbikarsins í knattspymu og
komu þá 1. deildar liðin til sögunn-
ar. Eftirfarandi lið drógust saman:
Liverpool - Fulham. C-ambridge -
Wimbledon. Reading - Aston Villa.
Swansea - Leicester. Arsenal -
Huddersfield. Southampton -
Swindon. Everton - Newport, Co-
ventrv - Rotherham. Óxfoi-d -
Gillingham. Bamsley - Totten-
ham. Preston - West Ham,
Wrexham - Portsmouth, Watford
- Rochdale. Scunthorpe - Ipswich.
Luton - Cardiff. Middlesborough -
Birmingham. Shrewsbury - Stoke,
Peterborough - Noi-wich. Oldham
- Leeds, Southend - Manchester
City, Walsall - Millwall, Hull -
Carlisle eða Grimsby, Bradford -
Newcastle, York - Chelsea, QPR
- Blackbum, Manchester United
- Port Vale, Crystal Palace- Buiy,
Sheffield Wednesday - Stockport,
Charlton - Lincoln, Bristol City -
Sheffield United, Derby - WBA,
Brighton - Nottingham Forest.
Engin lið úr 1. deild drógust sam-
an og ættu öll 1. deildar liðin að
hafa mikla möguleika á að komast
áfram nema þá helst QPR og
Manchester United. Gengi United
hefur ekki verið upp á marga fiska
undanfarið og óbreytt virðist liðið
ekki til stórræðanna á næstunni.
-SK
Siggi Matt
kastaði 70,80
Sigurður Mattíhasson, UMSE,
náði í gærkvöldi sínum besta ár-
angri í spjótkasti. Hann kastaði
70,80 metra og sigraði á móti í
Noregi. Sigurður hefin- stöðugt
verið að bæta árangur sinn undan-
farið og er nú farinn að nálgast
þá Einar Vilhjálmsson og Sigurð
Einarsson. -SK