Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1986, Page 36
FRÉTTASKOTIÐ
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Hafirþú ábendingu eða
vitneskju um fréjtt -
hringdu þá í síma 62-25-25
Fyrir hvert fréttaskot, sem
birtist eða er notað í DV,
greiðast 1.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í
hverri viku greiðast 3.000
krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1986.
Sumarhúsa-
sali kærður
’ til RLR
Reykvískur kaupsýslumaður, er
fengist hefur við sölu sumarhúsa ó
Spáni, var í gær kærður til Rannsókn-
arlögreglu ríkisins. Maðurinn hefur
að undanfömu leikið þann leik að
taka við greiðslum og gefa fullnægj-
andi kvittanir vegna sölu sumarhú-
sanna án þess að skila peningunum
yfir til réttra aðila ó Spáni. Hefur
hann í því skyni falsað undirskriftir
spænskra seljenda.
Mál þetta mun ekki vera einstætt.
DV greindi fyrir skömmu frá viðskipt-
um Starfsmannafélags Garðabæjar við
þennan sama sölumann og fleiri aðilar
eiga um sárt að binda vegna þessa.
Upphæðimar er sölumaðurinn hafði
af viðskiptavinum sínum vom yfirleitt
um 6-700 þúsund krónur í hvert sinn.
Frá því að svikin komust upp í sum-
ar hefur nýr umboðsmaður tekið við
sölu og kynningu á umræddum sumar-
húsum á Spáni og er hann ekki
viðriðinn málið.
-EIR
Snjór í Esjunni
j ^ Borgarbúar urðu þess varir í morgun
að hvít slikja lá á toppi Esjunnar.
Það er byrjað að snjóa í fjallið og
samkvæmt upplýsingum frá Veður-
stofunni má búast við að Esjan skarti
hvítu á næstunni. Kalt loft hefur geng-
ið yfir landið. I nótt var aðeins 3 stiga
hiti í Reyjavík. A næstu dögum má
búast við frekar dimmu og umhleyp-
ingasömu veðri. Á sunnudag og
mánudag er spáð norðanátt og kóln-
andi veðri. Það er kominn tími til að
dusta rykið af vetrarfötunum.
-KB
Verslanir opnar
á laugardögum
^ Frá og með 1. september munu kaup-
menn verslana við nýja Laugaveginn,
neðri hluta Laugavegar, hafa verslan-
ir sínar opnar á laugardögum til
klukkan 13.00.
TRÉSMIÐJA
ÞORVALDAR ÓLAFSSONAR HF.,
IÐAVÖLLUM 6, KEFLAVÍK.
SIMAR: 92-4700-92-3320.
LOKI
Það eru margir að „hugsa
málið“ þessa dagana.
Kaupmátturinn
eykst verulega
„Augljóst góðæriy“ segir forstjóri Þjóðhagsstofnunar
I spá Þjóðhagsstofnunar, sem birt
verður á næstu dögum, er gert ráð
fyrir að á þessu ári náist upp kaup-
máttarrýmun ráðstöfunartekna sem
varð á árunum 1983 og 1984.
Á síðasta ári spáði Þjóðhagsstofh-
im að kaupmáttur ráðstöfunartekna
myndi aukast um 5 til 6% en raunin
varð 7,5% aukning. I ár var upp-
haflega gert ráð fyrir 4 til 5%
kaupmáttaraukningu en nú er ljóst
að hún fer verulega yfir það. Líklegt
er að hún verði svipuð og á síðasta
ári.
„Það er augljóst mál að nú er góð-
æri,“ sagði Jón Sigurðsson, forstjóri
Þjóðhagsstofrnmar, í viðtali við DV.
„Kaupmátturinn eykst verulega um-
fram það sem við spáðum. Hagvöxt-
urinn veiður meiri en ætlað var og
viðskiptajöfiiuðurinn betri.“ -APH
„Ég get ekki neitað því að marg-
ir hafa hvatt mig í framboð," sagði
Þórður Friðjónsson, efiiahagsráð-
gjafi forsætisráðherra, þegar hann
var spurður hvort hann ætlaði að
gefa kost á sér i prófkjör Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjavik fyrir næstu
alþingiskosningar.
„Það yrði vissulega spennandi
að vinna beint og milliliðalaust
fyrir kjósendur,“ sagði Þórður.
„En þátttaka í flokkspólitík sam-
rýmist ef til vill ekki því starfi sem
ég gegni nú um stundir, þannig að
ég á síður von á að taka þátt í
þessu prófkjöri."
-EA
Rólegt við
mýraiveg
Næturklúbburinn Hrókur og gosi
við Kleppsmýrarveg var lokaður í
nótt. Nátthrafhar, sem gerðu sér ferð
á staðinn eftir að almennum veitinga-
húsum var lokað í gærkvöldi, komu
að tómum kofanum. Óvíst er hvort
framhald verður á rekstri næturklúbb-
sins enda er lögreglan í viðbragðs-
stöðu.
Matsveinninn er rekið hefur Hrók
og gosa frá því í vor vildi ekki tjá sig
um framtíð staðarins er DV ræddi við
hann í gær.
Veðrið á morgun
Norðvestan
gola um
mestallt land
Á morgun verður hæg suðvestan-
átt og smáskúrir um vestanvert
landið en norðvestan gola eða kaldi
í öðrum landshlutum. Norðanlands
verður skýjað en að mestu úrkomu-
laust en bjartviðri austan- og
-EIR